Morgunblaðið - 19.12.2006, Síða 22

Morgunblaðið - 19.12.2006, Síða 22
daglegtlíf Margir foreldrar þekkja lítið til tölvuleikjanna sem börn spila. Daglegt líf skoðar merkingarnar á tölvuleikjum. » 28 uppeldi Sigurður Ingi Bjarnason er þessa dagana að smíða verðlaunagrip fyrir íþróttamann ársins. » 24 hönnun Á aðfangadagskvöld býður Hjálpræðisherinn til veislu þar sem á annað hundrað manns koma saman. » 26 aðventan Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir nýtur skíðaíþróttarinnar og eyðir jólunum í skíðaþjálf- unarbúðum í Noregi. » 29 tómstundir Sif Sigmarsdóttir er búsett í Lundúnum en þaðan skrifar hún fyrir íslenskan markað og gefur út bækur. » 28 daglegt líf Morgunblaðið/G.Rúnar Læra saman Mæðgurnar Helga Fanney Edwardsdóttir og Stefanía Veiga Sigurjónsdóttir ákváðu að skella sér í píanónám saman eftir að þeim ásotnaðist flygillinn góði. nokkuð dró svolítið úr því þegar hún komst á efri ár,“ segir Helga. „Þegar ég var ungling- ur bjuggum við erlendis en þegar við komum heim fluttum við inn á neðri hæðina í Vest- urbrún, sem þá hafði verið breytt í tvíbýli.“ Pabbi Helgu bjó í húsinu alveg þangað til í fyrra en þá varð það að ráði að Helga keypti húsið ásamt systur sinni og nú ræður hún ríkjum á neðri hæðinni. „Systir mín fór þann- ig í íbúðina uppi þar sem afi átti heima og ég á neðri hæðina og flygillinn var svo bara fluttur á milli hæða,“ segir Helga um tilkomu flygilsins á sitt heimili. Ástæðuna fyrir því að hún fékk flygilinn að ömmu sinni og afa gengnum segir Helga vera þá að hún hafi einfaldlega sýnt mestan áhuga á að fá hann. É g er bara að læra á píanó af því að langafi minn gaf konunni sinni þennan flygil í morg- ungjöf,“ segir Stefanía Veiga Sigurjónsdóttir, átta ára, feimn- islega þegar hún er beðin að segja frá ástæð- unni fyrir því að hún er nú að læra á píanó ásamt mömmu sinni. „Ég fer í píanótíma í Tónheimum einu sinni í viku,“ bætir hún við, ennþá pínulítið feimin. Mamma hennar, Helga Fanney Edwardsdóttir, erfði flygil eft- ir ömmu sína fyrir tveimur árum og ákvað að láta gamlan draum rætast þegar flygillinn komst í hennar hendur og ákvað að læra líka á píanó þannig að þær mæðgur stunda nú tónlistarnámið saman. Spilaði undir þöglu myndirnar Helga tekur nú við sögunni. „Svo er nú langamma hennar dáin fyrir löngu og Stef- anía hitti hana aldrei,“ segir hún og Stefanía segir aðspurð að henni finnist jú frekar skrít- ið að læra á flygil sem langamma hennar átti. „Þetta er ótrúlega merkilegur flygill,“ segir hún og bætir við undirleit; „ótrúlega gamall.“ Flygillinn góði er frá árinu 1943 og á ræt- ur að rekja til Bandaríkjanna. „Amma og afi giftu sig í nóvember 1943,“ segir nú Helga. „Afi gaf henni sem sagt þennan flygil í morg- ungjöf. Mamma ömmu rak tvö bíóhús úti í Bandaríkjunum og amma spilaði undir þöglar myndir á sínum tíma.“ Amma Helgu hét Doris Walker Finnsson og fæddist í Banda- ríkjunum árið 1920. „Flygillinn er keyptur þar, amma þurfti náttúrlega að hafa eitthvað að spila á. Amma og afi fluttu svo til Íslands árið 1948 og auðvitað fylgdi flygillinn þeim.“ Systurnar ráða nú ríkjum í húsinu Afi Helgu, Hjálmar Finnsson, lést árið 2004. Hann var íslenskur frumkvöðull með sanni og starfaði hjá Loftleiðum. „Hann átti þátt í að koma á flugleiðinni milli Íslands og Bandaríkjanna og starfaði í tengslum við það í New York, ásamt því að flytja inn ýmislegt á stríðsárunum, m.a. nælonsokkabuxur og svoleiðis,“ segir Helga og hlær. „Þau kynnt- ust þar og áttu þrjú börn sem öll fæddust í New York.“ Þegar heim til Íslands var komið byggðu ungu hjónin sér hús í Vesturbrún í Reykja- vík. „Þau bjuggu þar og þó að amma spilaði „Mig hafði alltaf langað að spila og mig lang- aði líka til að stelpurnar mínar gætu spilað,“ segir Helga og þetta hafi því orðið henni kærkomið tækifæri til að setjast á tónlistar- skólabekk, en hún hafði fram að því aldrei lært neitt. „Það var haldið brúðkaup heima í fyrra og fyrir það lét ég stilla hann og það var spilað á hann í brúðkaupinu. Svo skellt- um við mæðgurnar okkur í Tónheima núna í haust á námskeið,“ segir Helga og Stefanía læðir nú að orði: „Ég var sko búin að læra þrjú lög fyrir. Það var einhver sem kenndi mér.“ Námið segir Helga ganga ótrúlega vel. „Ég bjóst ekki við þessum árangri á einni önn,“ segir hún brosandi. „Ég er búin að spila á tónleikum,“ segir Stefanía, „og í dag fór ég á elliheimili með tónmenntakenn- aranum mínum og fékk að spila þar. Ég var ein að spila fyrir alla og það var rosalega gaman,“ segir hún og gerir þannig ljóst að námið hjá henni gengur líka vel og spurning hvort upprennandi píanósnillingur er þarna á ferðinni. Amman og langamman Myndin af Doris Walker Finnsson er á heiðursstað á flyglinum. Arfur leiddi til tónlistarnáms Mæðgurnar Helga Fanney Edwardsdóttir og Stefanía Veiga Sigurjónsdóttir læra nú saman á flygil sem fylgt hefur fjölskyldunni í meira en hálfa öld. Sigrún Ásmundar hlýddi á píanóleik og fékk að heyra sögu flygilsins. Svo skelltum við mæðgurnar okkur í Tónheima núna í haust á námskeið,“ segir Helga og Stefanía læðir nú að orði: „Ég var sko búin að læra þrjú lög fyrir. Það var einhver sem kenndi mér.“ sia@mbl.is |þriðjudagur|19. 12. 2006| mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.