Morgunblaðið - 19.12.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.12.2006, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ágúst Bjarnasonfæddist í Vest- mannaeyjum 9. maí 1978. Hann lést af slysförum sunnu- daginn 10. desem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans eru Auróra Guðrún Friðriksdóttir, f. 18.4. 1953, og Bjarni Sighvatsson, f. 19.7. 1949. Bróðir Ágústs er Sighvatur, f. 7.9. 1975. Sambýliskona hans er Jóhanna Jó- hannsdóttir, f. 3.4. 1968. Hennar sonur er Gabríel, 10 ára. Móður- foreldrar Ágústs eru Anna Odd- geirs, f. 30.10. 1932, og Friðrik Ágúst Hjörleifsson, f. 16.11. 1930. Föðurforeldrar Ágústs eru Elín Jóhanna Ágústsdóttir, f. 12.6. 1925, og Sighvatur Bjarnason, f. 15.6. 1919, d. 6. des. 1998. Ágúst ólst upp í Vestmannaeyjum. Á unglingsárunum stundaði hann knatt- spyrnu, var í skát- unum og starfaði í Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Eft- ir skólagöngu fór hann sem skiptinemi til Ghana. Hann stundaði ýmis störf um ævina en þó varð sjómennskan hans aðalstarf. Helstu áhugamál Ágústs voru hljómlist, myndlist og andleg málefni. Útför Ágústs verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í kirkjugarðinum á Mos- felli. Það bærast með mér ótrúlegar til- finningar við það að setjast niður og skrifa minningarorð um þig, elsku frændi og vinur. Þetta er búin að vera vægast sagt ein sorglegasta vikan í mínu lífi. Það eru mjög margir sem koma til með að sakna þín og eru í mikilli sorg núna. Það sem gildir á svona stundum er að vera raunsær, eins og þú varst oft og trúa því að allt hafi þetta tilgang. Það er svo margt sem mig langar að gera til að minnast þín. Að velja tónlist í jarðarförina þína er búið að gera mikið fyrir mig. Það að rifja upp góðar minningar um þig í gegnum lög. Þú varst ótrúleg tilfinn- ingavera, einlægur, næmur og mjög litríkur. Það er svo sárt að missa þig sem trúnaðarvin. Það er svo margt sem við höfum talað um sem ég mun hugsa um alla ævi. Þú varst svo sterk- ur karakter og tengdist öllum. Fjöl- skyldan okkar sameinaðist oft í gegn- um þig. Þannig er það einnig nú á þessum erfiðu tímum þegar við erum að kveðja þig að fjölskyldan er sam- rýnd. Þú varst einn af mínum bestu vinum. Ég kveð þig með þessum orð- um. Ég elska þig og ég mun sakna þín alla ævi, en við hittumst síðar. Borgþór Friðrik Ágústsson. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Elsku Guð, viltu geyma Ágúst frænda fyrir mig. Þórdís Perla Borgþórsdóttir. Okkur frændunum þótti afar sárt að heyra þær fréttir að okkar kæri vinur Ágúst Bjarnason væri látinn. Við kynntumst Ágústi fyrst á sjónum, þegar hann var að leysa af á Guð- mundi VE á loðnuvertíð 2001. Ágúst var ekki allra, en á einhvern sérstæð- an hátt urðum við einstaklega góðir vinir og héldum traustum vinskap al- veg fram til síðasta dags. Við minn- umst Ágústs sem mikils prúðmennis, duglegs, trausts og heiðarlegs vinar. Okkur þykir vænt um allar þær stundir sem við áttum með Ágústi, samtöl okkar um framtíðina og um allt það sem lífið hefur fram að færa. Ágúst var glaðlyndur maður og afar orðheppinn. Einnig hafði hann þjálfað með sér góða samskiptahæfileika sem oftar en ekki nýttust honum vel í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Ágúst hafði brennandi áhuga á málefnum sálarinnar og andans. Hann sótti tíma hjá öðrum sálarunn- endum, bæði til að taka þátt í um- ræðum, fá fréttir og jafnframt til að kynnast nýjum og framandi andleg- um málefnum. Hæfileikar hans á þessum sviðum náðu út fyrir okkar efnislega heim. Heim sem hann yfir- gaf snemma. Vertu sæll, elsku vinur. Tíminn er eins og vatnið, og vatnið er kalt og djúpt eins og vitund mín sjálfs. Og tíminn er eins og mynd, sem er máluð af vatninu og mér til hálfs. Og tíminn og vatnið renna veglaust til þurrðar inn í vitund mín sjálfs. (Steinn Steinarr.) Kristján Már og Stefán Örn. Ágúst Bjarna, eins og hann var svo oft kallaður, var besti vinur minn og hans mun verða sárt saknað. Ég mun aldrei gleyma þeim tíma sem við feng- um að njóta saman. Þegar ég hugsa til baka er þakklæti mér efst í huga, ég er svo þakklátur fyrir að hafa kynnst þér og fengið að taka þátt í lífi þínu. Það er ekki sjálfgefið að eiga svona góðan vin, sem hægt er að treysta fyr- ir öllu og alltaf hægt að leita til. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa verið bú- inn að láta þig vita hversu mikils virði vinátta þín var mér og að ég væri virkilega þakklátur fyrir að eiga slík- an vin. Ég á eftir að sakna þess að vera með þér og tala um lífið og til- veruna. Ég gat alltaf leitað til þín, með hvað sem var og þú gast alltaf leitað til mín. Þú hefur hjálpað mér meira en ég gæti nokkuð tímann farið fram á. Ég mun alltaf verða þér þakk- látur og er stoltur af þér. Ágúst var fæddur leiðbeinandi og var mikill áhrifavaldur á líf margra. Áhrif hans á líf mitt voru gríðarleg og munu ávallt fylgja mér. Þeir sem þekktu Ágúst vita hversu mikill gull- moli hann var, hann snerti hjörtu okk- ar og skildi eftir sig gullkorn alls stað- ar. Ágúst hefur snert hjarta mitt á svo magnþrunginn hátt að orð fá því ekki lýst. Ég mun alltaf geyma mynd hans í hjarta mínu og minnast hans af þakklæti, virðingu og ást. Þinn vinur, Hilmar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Þetta ljóð kemur upp í huga okkar hér í Odda að liðnum þínum lífsins degi. Hér sitjum við með trega og lít- um yfir farinn veg þar sem við áttum margar góðar stundir. Þessar ljúfu stundir viljum við þakka fyrir nú við leiðarlok. Nú ert þú farinn heim eins og við skátar segjum. Sem peyi komstu inn á heimili okkar og æsku- árin liðu í indælis ró. Unglingsárin komu með því kappi og fjöri sem bú- ast mátti við, margt brallað með strákunum. Sú slóð sem fetuð var, var ekki laus við angur og bresti. Oft var slóðin grýtt en með ró og vangaveltu var vegurinn fetaður áfram. Til sjós fórstu ungur og þar lagðir þú þína lóð. Þó fréttum við af því að þú ætlaðir að fara í land að vinna. Sú vinna verður nú ekki unnin. Nú er þessari vegferð þinni hér lokið, nú taka við víðlendur eilífðarinnar, samt ertu okkur svo nærri sem minningin tær. Leiðir okk- ar hinna verða áfram um ókunna vegu, eitt var það sem við áttum sam- eiginlegt, það var að við ætluðum ekki að láta gras vaxa í slóð vináttunnar. Vonandi verða þeir stígar vel troðnir og sjáanlegir af öllum okkar vinum. Við viljum vitna til eftirfarandi orða á kveðjustund: Harmið mig ekki með tárum, þótt ég sé látinn. Hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, en þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég tek þátt í gleði ykkar. (Kahlil Gibran.) Þessi orð eru svo í þínum anda, nú þegar dagur er hvað dimmastur þá tekur vonandi birtan og ylur sólar við er dag lengir að nýju. Megi minning um góðan dreng lifa. Kæru vinir, fjölskyldan í Odda sendir ykkur innilegustu samúðar- kveðjur og hluttekningu á þessum erfiðu tímum. Ólafur, Emma Vídó og Hlynur Ó. Kvöldsöngur skáta: Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guð er nær. Með saknaðarkveðjum, Kjartan Vídó. Okkur á Frá langar að minnast Gústa félaga okkar með nokkrum orðum. Það var þungbært þegar við fréttum að Gústi hefði látist í hörmu- legu bílslysi. Gústi Bjarna, eða rauði þráðurinn, eins og við kölluðum hann, vegna hversu hann var grannur, há- vaxinn og rauðhærður, var góður drengur. Hann var nýhættur hjá okk- ur og var kominn í góða vinnu í Reykjavík. Gústi fór sínar eigin leiðir í lífinu og hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, oft svolítið sérstakar, en hann stóð á sínu. Hann var eiginlega aldrei í vondu skapi sem er góður kostur í litlu samfélagi á sjónum. Heimspekilegar umræður eru oft í borðsalnum á Frá og sá rauði kom oft með aðra sýn á lífið og til- veruna en við hinir, hann fór t.d. til Kína ásamt bróður sínum til að kynna sér trúarbrögð og munklífi eins og hann komst að orði. Gústi hélt því fram að hann tilheyrði minnihluta- hópi og væri ofsóttur vegna háralitar síns, svo glotti hann og hló sínum dill- andi hlátri, gott dæmi um húmorinn hjá Gústa, hann gerði óspart grín að sjálfum sér. Gústi Bjarna var duglegur, áhuga- samur og snaggaralegur sjómaður og góður félagi. Góður drengur er nú fallinn frá og við minnumst hans með virðingu og góðum minningum. Nú ertu kominn á veiðislóð Drott- ins allsherjar og þar er aldrei bræla og alltaf gott fiskirí. Við vottum Áróru, Bjarna, Sig- hvati, Jóhönnu og öðrum aðstandend- um okkar dýpstu samúð. Megi góður Guð styrkja ykkur og styðja í sorg- inni. Áhöfn og útgerð Frár VE 78. „Ég græt vegna þess sem var gleði mín.“ Það var gleði mín að hafa fengið að kynnast Ágústi Bjarnasyni. Við hittumst ekki oft í gegnum árin en samræður okkar skiptu máli. Orðin og einstaklega ljúf nærvera Ágústs mörkuðu varanleg spor í hjarta mitt. Tvírætt bros, blik í augum þegar við töluðum um æðri málefni, viðkvæm sál og blítt hjartalag endurspegluðust í augum hans, orðum og fasi. Gagn- kvæmur skilningur og virðing, and- legur skyldleiki og kærleiki var það sem einkenndi samskipti okkar og samtöl sem voru allt annað en hvers- dagsleg. Æðri leit að lífsfyllingu, hug- arró, trú og tilgangi voru ávallt inni- hald þeirra. Elskulegu hjón, Aurora og Bjarni, svo og fjölskylda öll, ég veit að harm- ur ykkar er mikill. Megi Guð halda ut- an um ykkur og gefa ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Ég vil heiðra minn- ingu einstaks drengs með þakklæti í huga og kærar minningar í hjarta. Guð blessi ykkur og huggi. Íris Guðmundsdóttir. Síðan ég fékk þær fréttir að Ágúst Bjarnason vinur minn hefði látist af slysförum hefur mér oft orðið hugsað til hans. Láti hans fylgir mikill skuggi enda var hann ungur og átti allt lífið fyrir sér. Samt sem áður víkur sá skuggi að vissu leyti þegar maður hugsar til Ágústs, uppátækja hans og gamansemi. Samskipti mín við Ágúst á seinni árum hafa ekki verið mikil, enda oft langt á milli okkar, en alltaf þótti mér ánægjulegt þegar ég kom í heimsókn til Eyja og hitti hann þar. Það skipti heldur engu máli þótt mað- ur hefði ekki heyrt hann eða séð lengi, ef maður hitti hann fyrir tilviljun niðri í bæ var alltaf hægt að taka bryggj- urúnt og gott spjall. Ágúst átti til orð yfir allt og kunni heldur betur að svara fyrir sig alla tíð. Eitt sinn þegar við vorum í Barna- skólanum í Eyjum hafði Ágúst orðið eitthvað ósáttur við einn kennarann eins og gengur. Sá maður er þekktur í Eyjum fyrir að kunna sitthvað í rökræðulist án tæpitungu og var ég viðstaddur þegar þeir Ágúst mættust á göngunum og hófu að „ræða“ málin. Þegar Ágúst hafði lokið máli sínu varð þessi ágæti maður, sennilega í eitt af mjög fáum skiptum algjörlega kjaftstopp. Ágúst vildi öllum vel en ef honum fannst á sig hallað svaraði hann alltaf af enn meiri krafti en til hans var beint. Hann átti til svar við öllu og oftast það rétta. Ágúst var mikill ævintýramaður og vildi prófa sem flest í lífinu sem hann og gerði. Hann bjó yfir sérstöku æðruleysi og tók lífið ekki of alvarlega þótt það væri honum ekki alltaf auð- velt. Hann setti lífsspeki sína ávallt fram á skemmtilegan hátt. Hver man til dæmis ekki eftir reglunni um að aldrei skyldi borða gula snjóinn? Það eru ótalmargar skemmtilegar sögurnar af Ágústi Bjarna og tilsvör- um hans en líklega eru fæstar þeirra prenthæfar. Það er mikil eftirsjá að þessum góða dreng og það er slæmt að vita fyrir víst að ég mun ekki hitta Ágúst þegar ég kem til Eyja nú um jólin. En minningin um hann lifir. Ég votta fjölskyldu Ágústs samúð mína og bið um styrk handa þeim á þessum erfiðu tímum. Sverrir Haraldsson. Það var svo frábært að fá að kynn- ast þér. Þín sál var svo miklu eldri og þroskaðri. Þú áttir alltaf svör við öllu og gast alltaf talað um hvað sem var. Ég veit ekki hvar þú ert núna en ég veit að þú ert sáttur og mig langar að segja þér að ég er það líka. Þú þekktir tilfinningar þínar. Ég þakka þér fyrir, þú kenndir mér betur á mínar. Fyrir mér lifir þú ennþá. Í gegnum tíðina hefurðu fengið mig svo oft til að brosa. Ég get ekki þakk- að þér strax fyrir þau öll, því þú átt eftir að fá mig til að brosa svo miklu oftar. Héðinn Þorkelsson. Ágúst Bjarnason ✝ Elskulegur bróðir okkar, ÞORSTEINN EINARSSON, Baughóli 26, Húsavík, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðju- daginn 12. desember síðastliðinn. Jarðsungið verður frá Húsavíkurkirkju miðviku- daginn 20. desember kl. 14.00. Systkini hins látna. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN SIGURFINNSSON húsasmíðameistari, Hraunbæ 103, Reykjavík, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 16. desember. Katrín Jóhanna Gísladóttir, Þórunn Ísfeld Þorsteinsdóttir, Guðmundur Rögnvaldsson, Sigurfinnur Þorsteinsson, Sigríður Pétursdóttir, Björk Þorsteinsdóttir, Hilmar Óskarsson, Rúnar B. Þorsteinsson, Halldóra Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, ÞÓRUNN ÁGÚSTSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudagsmorguninn 18. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Hulda Eggertsdóttir, Ingólfur Jónsson, Guðrún Eggertsdóttir, Klemenz Gunnlaugsson, Dýrleif Eggertsdóttir, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR ÞORGEIRSSON, Staðarseli 3, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 17. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Inga Magdalena Árnadóttir, Árni Þórðarson, Inga Jytte Þórðardóttir, Ólafur Már Ólafsson, Birgitta Svava, Steinar Þór, Þórunn Inga og Þorgeir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.