Morgunblaðið - 19.12.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.12.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 45 FYRIR einum áratug eða svo hélt Taflfélagið Hellir sitt fyrsta jóla- pakkamót og æ síðan hafa þessi mót fyrir börn og unglinga á grunn- skólaaldri verið á meðal fjölmenn- ustu móta hvers árs. Að öðrum ólöstuðum hafa Vigfús Óðinn Vig- fússon og Gunnar Björnsson, núver- andi formaður Hellis, staðið vaktina í öll þessi ár og gert það af stakri prýði. Í ár var engin undantekning þar sem alls lagði 131 krakki leið sína í Ráðhús Reykjavíkur til að tefla fimm skákir og bítast um að fá vegleg verðlaun en þess utan gátu allir fengið jólapakka ef þeir yrðu dregnir út í happdrætti. Sem fyrr var keppt í fjórum ald- ursflokkum. Sá elsti var fyrir þá sem voru fæddir 1991-1993, sá næsti frá 1994-1995 og næstyngsti frá 1996-1997 og sá yngsti fyrir þá sem voru fæddir eftir árið 1997. Vil- hjálmur Vilhjálmsson, borgarstjór- inn í Reykjavík, setti mótið og lék fyrsta leikinn í skák Huldu Mar- grétar Sigurðardóttur og Ólafs Þórs Davíðssonar. Hart og drengilega var barist á mótinu og fylgdust for- eldrar spenntir með gengi sinna barna. Þegar umferðunum fimm var lok- ið varð staða efstu keppendanna þessi: Í flokki fæddra 1991-1993: 1.-2. Hjörvar Steinn Grétarsson og Helgi Brynjarsson 4 v. 3. Daði Ómarsson 3½ v. 4.-7. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, Sverrir Þorgeirsson, Paul Frigge og Svanberg Már Pálsson 3 v. Stúlknaverðlaun í flokknum fengu Hallgerður Helga, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Tinna Kristín Finnbogadóttir. Í flokki fæddra 1994-1995: 1. Dagur Andri Friðgeirsson 5 v. 2. Brynjar Ísak Arnarsson 4½ v. 3.-7. Birta Össurardóttir, Eiríkur Örn Brynjarsson, Einar Ólafsson, Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir og Páll Andrason 4 v. Stefanía Bergljót Stefánsdóttir var á meðal þeirra sem fengu 3½ v. og hreppti hún því stúlknaverðlaun í flokknum ásamt Birtu og Geirþrúði. Í flokki fæddra 1996-1997: 1. Friðrik Þjálfi Stefánsson 5 v. 2.-6. Birkir Karl Sigurðsson, Hrund Hauksdóttir, Hafsteinn Björn Gunnarsson, Dagur Kjartansson og Dagur Ragnarsson 4 v. Selma Líf Hlífarsdóttir, Hulda Rún Finnbogadóttir, Heiðrún Ósk Reginsdóttir og Gunnhildur Krist- jánsdóttir fengu stúlknaverðlaun ásamt Hrund Hauksdóttur. Í flokki fæddra 1998 og yngri: 1. Skúli Guðmundsson 5 v. 2.-4. Oliver Aron Jóhannesson, Patrekur Ragnarsson og Kári Hrafn Guðmundsson 4 v. 5.-8. Askur Jóhannsson, Magni Marelsson, Benedikt Bjarnason og Gabríel Orri Duret 3½ v. Stúlknaverðlaun í flokknum fengu Hildur Berglind Jóhannsdóttir, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir og Veronika Magnúsdóttir. Það er athyglisvert að af 131 keppanda voru 129 nemendur í grunnskóla en einn er í menntaskóla og einn í leikskóla! Frá einstökum skólum voru nemendur úr Flata- skóla í Garðabæ fjölmennastir en 13 krakkar þaðan tóku þátt. Í helstu skákskólum landsins, Rimaskóla, Salaskóla og Laugarlækjaskóla voru 12 keppendur úr Grafarvog- inum, 11 úr Kópavogi og 10 úr Laugalæknum. Ánægjulegt var að keppendur komu einnig utan að landi, m.a. frá Laugarvatni og Borg- arnesi. Allur þessi skari af þátttakendum og foreldrar þeirra biðu í eftirvænt- ingu eftir því þegar dregið var í happdrætti þar sem í boði voru góð- ar gjafir sem höfðu verið gefnar af fyrirtækjunum 365, Eddu útgáfu, Jóa útherja, Leikbæ og Pennanum. Fyrir utan að geta fengið helstu jólabækurnar í ár gátu vinningshaf- ar í happdrættinu fengið áskriftir að Stöð 2 og Sýn, geisladiska, bolta, töfl og skáktölvur. Allir fóru glaðir út í desemberhúmið að happdrætt- inu loknu þar sem við útganginn biðu þátttakenda nammipokar frá Góu. Nánari upplýsingar um mótið og myndir af því er að finna á heima- síðu Hellis, www.hellir.com. Vel heppnað jólapakkamót Hellis Einbeiting Ákveðnog kapp skein úr andliti keppenda í yngsta aldursflokki mótsins. Setning Vilhjálmur Vilhjálmsson, borgarstjóri, lék fyrsta leiknum á jólapakkamótinu. Helgi Áss Grétarsson daggi@internet.is SKÁK Ráðhús Reykjavíkur JÓLAPAKKAMÓT TAFLFÉLAGSINS HELLIS 17. desember 2006 ✝ Fríða Gísla-dóttir fæddist 21. janúar 1924. Hún andaðist á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 4. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Gísli Jónsson vagnasmiður og Guðrún Magnús- dóttir húsfreyja. Systkini Fríðu eru Ragnheiður, f. 1922, d. 1985, Magnús Björgvin, f. 1925, d. 2003, Marín Guðrún, f. 1929, d. 1994, Arnfríður, f. 1932, d. 2003 og Hrafnkell Henry, f. 1937. Eiginmaður Fríðu er Bene- dikt Antonsson, f. 12. febrúar 1922. Sonur þeirra er Gísli, f. 1947, kvæntur Evu Maríu Gunnarsdóttur, f. 1949. Börn þeirra eru: 1) Davíð Bene- dikt, f. 1969, maki Brynhildur Þor- geirsdóttir, f. 1970, börn þeirra Eva Björk, f. 1994, Þor- geir Bjarki, f. 1996, Anna Lára, f. 2000 og Benedikt Arnar, f. 2003. 2) María, f. 1974 maki Einar Krist- inn Hjaltested, f. 1970, börn þeirra Hrefna María, f. 1996, Hrafn- hildur, f. 2001 og Karólína, f. 2002. Fríða var hárgreiðslumeistari að mennt. Fríða verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Fríða tengdamóðir mín var alltaf kölluð Stella. Hún var einstaklega lagleg og stórglæsileg kona. Önnur í röðinni af sex systkinum. Hún hafði á orði fyrir stuttu að hún bara skildi ekki hvern- ig mamma hennar fór að því vera alltaf svona róleg og æsa sig aldrei við þennan stóra fjöruga barnahóp. Enda var þar á ferðinni einstaklega ósérhlífið og duglegt gæðablóð. Guð- rún og Gísli áttu heima með börnum sínum á Frakkastíg 12. Vagnasmiðja Kristins, þar sem húsbóndinn starf- aði, var áföst húsinu og því mikill gestagangur á bernskuheimilinu. Frakkastígurinn hefur verið mikið menningarheimili og talaði Stella oft um bernskuárin þar. Allir þekktu alla og lífið var ljúft. Það var spilað, sungið og teflt. Systkinin skottuðust um bæinn og gengu í Austurbæjar- skóla. Jafnvel var veðrið betra á þessum árum en það er hjá okkur nú. Lífið var einfalt og gleði yfir stóru og smáu. Nýir skór voru jafnvel svo mikill gleðigjafi að þeir og gleðin við að eignast þá vakti enn ánægju tug- um ára seinna. Bernskuárin voru Stellu kær. Stella giftist Benedikt 6. febrúar 1947 og fæddist Gísli sama ár á Frakkastígnum. Þau fluttu á Hrefnugötu, en byggðu sér síðan hús í Breiðholti síns tíma, Smáíbúðarhverfinu, að Bakkagerði 19, en þar reistu þau sér stórglæsilegt hús árið 1952. Hverfið reyndist litlu fjölskyldunni vel. Ná- grannar urðu vinir og litlir strákar í Breiðagerðisskóla bundust órjúfan- legum vinaböndum. Fyrir stuttu á Grund, þegar ég var í heimsókn, leit hún svona sposk eins og henni var einni lagið á skóna mína og sagði: „En hvað þú ert í fallegum skóm, eru þeir nýir? Voða ertu fín er þetta nýtt?“ Þótt hún segði fátt ann- að. Hún dáðist alltaf að því sem við vorum í en var nægjusöm sjálf, keypti sér mjög sjaldan eitthvað og fór afskaplega vel með allt enda er Bakkagerði nákvæmlega eins núna eins og það var fyrir 39 árum þegar ég kom þangað fyrst. Tíminn líður hratt. Það eru 39 ár síðan ég hitti Stellu fyrst í Bakka- gerði. Ég þá bálskotin í einkasyn- inum Gísla. Stella og Benni tóku mér vel eins og þeim var einum lagið og ári síðar þegar við Gísli trúlofuðum okkur og komum stolt inn í Bakkagerði að sýna hringana gáfu Stella og Benni mér hring. Þetta kom okkur hjóna- leysunum mjög á óvart en táknrænt eftir á að hyggja, þarna bundumst við ég, Gísli, Stella og Benni órjúf- anlegum böndum, ég skildi það ekki þá. Ég skil það núna. Þegar ég kom inn í fjölskylduna er amma Gunna orðin ekkja. Gísli, faðir Stellu, lést fyrir aldur fram, rúmlega fimmtugur að aldri. Stella og Benni, BeSte, hafa alltaf verið órjúfanlegt hugtak, gert allt saman, súrt og sætt. Þau bjuggu í Bakkagerðinu alla sína hjúskapartíð utan eins árs þegar þau, ásamt Gísla, bjuggu í Þýskalandi. Fyrir þá utanlandsferð var heimilishundurinn Bella aflífað- ur, Bella, skemmtilegt samkrull nafna þeirra. Þegar ég kynnist Stellu og Benna ferðuðust þau vítt og breitt um land- ið vegna vinnu Benna eða á vegum Lions-hreyfingarinnar, spiluðu bridge, flugu og sigldu til útlanda. Maja systir var heimsótt til Dan- merkur og síðar til Spánar – en heima í Bakkagerði var þó alltaf best að vera. Stella var alltaf mjög heima- kær og jókst það með árunum. Heima er best. Stella og Benni í fallega húsinu sínu í Bakkagerði – Stella í eldhúsinu að syngja og raula við undirleik Benna sem situr við píanóið niðri í stofu, spilar Fúsa, Jón Múla, gamla slagara eða fallegt lag sem hann er nýbúinn að heyra. Það er mjög góð stemning og gjarnan kaka í ofninum. Allt hreint og pússað. Allt á sínum stað í litla húsinu, skondin skot og lúmsk kímnigáfa, málin rædd. Við komin í heimsókn með krakkana. Garðurinn til fyrirmyndar enda hafði hún mjög gaman að vera í garð- inum og hefur garðurinn þeirra Benna alltaf verið augnayndi. Fugl- unum gefið á veturna og var fugla- mergðin oft mikil í garðinum þess vegna. Stella átti við mjög erfið veikindi að stríða síðastliðin þrjú ár. Rúmlega eitt ár dvaldist hún á Grund, á Frúargangi. Þar andaðist hún í faðmi fjölskyldunnar og við fuglasöng á glugga. Henni leið eins vel þar og hægt var miðað við hennar veikindi. Henni var hjúkrað af mikilli alúð og nærgætni og vil ég þakka starfsfólki á Grund sérstaklega fyrir elskulegheitin, þolinmæðina og hlýju við hana og okkur fjölskylduna. Ég kveð elskulega tengdamóður mína með söknuði og þakka fyrir sam- fylgdina. Þakka allt sem hún gaf mér. Stella var orðin þreytt og hvíld- inni fegin. Eva María. Amma Stella og afi Benni, Bakka- gerði. Þetta er okkar æska, þessi orð eru samtvinnuð okkar lífi og vekja upp ljúfar minningar. Í eldhúsinu er amma að spjalla við okkur, hnyttin tilsvör, málin rædd og ekki legið á skoðunum. Í stofunni situr afi og spilar á píanóið, einn eða fjórhent með okkur. Úti í garði er rabarbari nagaður eða spilaður fótbolti við pabba og eftir sveskjugrautinn er keppni um hver er með flesta steina. Við pössum okkur að detta ekki í tröppunni og borðum ótæpilega mik- ið af ís. Við erum víst orðin fullorðin en amma manns er alltaf amma manns og góðu stundirnar verða manni kærari með árunum. Það var alltaf gott að koma til ömmu og afa í Bakkagerði, ein, með mömmu og pabba eða hin síðari ár með okkar börnum. Við kveðjum ömmu Stellu með þakklæti fyrir alla velvild, umhyggju og ástúð í garð okkar og barna okk- ar. Við munum hana alltaf og munum henni aldrei gleyma. Í huga okkar á hún nú heima. „We’ll meet again, don’t know where, don’t know when, but I know we’ll meet again some sunny day.“ Davíð og María. Fríða Gísladóttir Stúfur, Stubbur, Kertasníkir og Spila- gægir efstir hjá BK Síðasta spilakvöld ársins hjá Bridsfélagi Kópavogs var jólatví- menningur í léttum anda. Röð efstu para í AV: Stúfur – Stubbur 220 Freyja Sveinsd. – Sigríður Möller 185 Georg Sverriss. – Ragnar Jónsson 183 Brynjar Bragason – Örn Eyjólfss. 179 NS. Kertasníkir – Spilagægir 220 Gísli Tryggvason – Leifur Kristjánss. 184 Elín Jóhannsd. – Hertha Þorsteinsd. 179 Jón St. Ingólfss. – Þorsteinn Berg 175 Jólasveinarnir létu sig hverfa strax að lokinni spilamennsku, enda annríkt hjá þeim um þessar mundir, en þrjú hæstu pörin á eftir þeim fengu glaðning sem K. Karlsson heildverzlun gaf. Þeir rauðklæddu minna á aðra jólasveina, þá Steina Berg og Jenna, sem létu sig líka hverfa eftir að hafa unnið Bergplasttvímenninginn í haust og eftirlétu næstu pörum verð- launaféð, sem þeir gáfu sjálfir. Spilamennska hefst að nýju eftir áramót hinn 4. janúar. Við í BK óskum öllum bridsurum landsins gleðilegra jóla og farsæls komandi spilaárs, ekki sízt umsjón- armanni Bridsþáttar Morgunblaðs- ins, sem við jafnframt þökkum fyrir gott samstarf á árinu. Frá Hreppamönnum Hausttvímenningi 2006 lauk í síð- ustu viku og er hægt að segja að sannarlega hafi verið hart barist og ekki séð fyrir um úrslit fyrr en í síð- asta spili. Það fór svo að lokum að Margrét hótelstjóri og Bjarni, fyrr- verandi skólastjóri, stóðu uppi sem sigurvegarar. Efstu pör urðu þessi. Margrét Runólfsd. – Bjarni H. Ansnes 479 Viðar Gunngeirss. – Gunnar Marteinss. 479 Ingibj. Steindórsd. – Loftur Þorsteinss. 467 Magnús Gunnlss. – Pétur Skarphéðinss. 462 Guðni Þór Guðmss. – Helgi Guðmss. 459 Karl Gunnlss. – Jóhannes Sigmundsson 453 Næsta keppni er topp sextán en síðan verður tekið til við tvenndar- keppni eftir áramót. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, fimmtud. 14.12. Spilað var á 15 borðum. Meðalskor 312 stig. Árangur N-S Gísli Víglundss. – Oliver Kristóferss. 369 Sigurður Pálss. – Eysteinn Einarsson 366 Bragi Björnss. – Albert Þorsteinsson 348 Árangur A-V Björn E. Péturss. – Gísli Hafliðason 385 Oddur Jónss. – Katarínus Jónsson 381 Halla Ólafsd. – Hilmar Valdimarsson 366 Næsti spiladagur hjá bridsdeild FEB verður fimmtud. 4. jan. 2007. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 15. des. var spilað á 12 borðum. Meðalskor var 216. Úrslit urðu þessi í N/S Sæmundur Björnss. – Albert Þorsteinss. 245 Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 240 Ragnar Björnss. – Gísli Víglundsson 239 Magnús Oddss. – Magnús Halldórsson 235 A/V Knútur Björnsson – Elín Björnsd. 258 Bragi V. Björnss. – Guðrún Gestsd. 250 Hera Guðjónsd.– Þorvaldur Þorgrímss. 231 Björn Björnss. – Haukur Guðmundss. 227 Verðlaunaafhending fyrir stiga- keppnina fer fram miðvikudaginn 20. desember. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.