Morgunblaðið - 19.12.2006, Page 53

Morgunblaðið - 19.12.2006, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 53 dægradvöl STAÐAN kom upp á rússneska meist- aramótinu í Moskvu. Stórmeistarinn Ernesto Inarkiev (2.628) hafði hvítt gegn alþjóðlega meistaranum Ian Nepomniachtchi (2.545). 34. Hxg7+! Kxg7 35. Hg1+ svartur gafst upp enda verður hann mát eftir 35. … Kf7 36. Dg8+ Ke7 37. Hg7#. Sigurvegari mótsins varð hinn 21 árs gamli stór- meistari Evgeny Alekseev (2.639) en hann vann Dmitry Jakovenko (2.671) í einvígi um titilinn eftir þeir höfðu orðið jafnir og efstir á mótinu með 7½ vinn- ing af 11 mögulegum. Lokastaðan varð að öðru leyti þessi: 3. Ernesto Inarkiev (2.628) 7 v. 4. Peter Svidler (2.750) 6½ v. 5.–7. Sergei Rublevsky (2.688), Ildar Khariullin (2.543) og Evgeny Tom- ashevsky (2.595) 5½ v. 8.–10. Sergey Grigorians (2.582), Ian Nepomni- achtchi (2.545) og Denis Khismatullin (2.583) 5 v. 11. Nikita Vitiugov (2.596) 3½ v. 12. Evgeniy Najer (2.648) 2½ v. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Uppsalir. Norður ♠KD6 ♥K864 ♦G83 ♣ÁDG Vestur Austur ♠1076 ♠ÁG43 ♥ÁG52 ♥107 ♦76 ♦1042 ♣7653 ♣K1098 Suður ♠982 ♥D93 ♦ÁKD95 ♣42 Suður spilar 3G og fær út lauf. Spil dagsins er frá alþjóðlega mótinu í Uppsölum fyrr í mánuðinum, sem sveit Þriggja frakka vann. Stefán Jóns- son og Ísak Örn Sigursson voru í AV í vörn gegn 3G. Stefán kom út með lauf og Ísak fékk fyrsta slaginn á kónginn. Sagnhafi á einfalt verk fyrir höndum ef austur heldur áfram með laufið. Hann spilar til dæmis hjarta á drottninguna. Vestur drepur og hvort sem vestur spil- ar hjarta um hæl eða laufi, nær vörnin aldrei að skapa sér meira en fjóra slagi. Ísak gerði sér grein fyrir því að lauf- sóknin var of tímafrek og skipti yfir í smáan spaða í öðrum slag. Tía Stefáns þvingaði út drottninguna og þegar sagnhafi læddist heim til að spila hjarta að blindum, rauk Stefán upp með ásinn og spilaði spaða í gegn: Einn niður. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 fáni, 4 þoli, 7 mannsnafns, 8 ósætti, 9 þil að innan, 11 rómur, 13 geislahjúpurinn, 14 lands í Asíu, 15 hrygg- dýr, 17 tala, 20 bókstaf- ur, 22 flokk, 23 hreysið, 24 þekkja, 25 stílvopns. Lóðrétt | 1 til sölu, 2 þátt- taka, 3 eignir, 4 hjartan- leg framkoma, 5 hreyfir, 6 glerið, 10 uxans, 12 blett, 13 kærleikur, 15 ný, 16 hlunnindin, 18 eyktamarkið, 19 hljóð- færi, 20 dugnaður, 21 bátur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 aftansöng, 8 útlæg, 9 nýtan, 10 ann, 11 arinn, 13 arður, 15 frosk, 18 gnótt, 21 aur, 22 guldu, 23 okinn, 24 afrakstur. Lóðrétt: 2 fylki, 3 aggan, 4 sinna, 5 netið, 6 búta, 7 snær, 12 nes, 14 rún, 15 fúga, 16 oflof, 17 kauða, 18 groms, 19 ófimu, 20 tonn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 1 Bilun er í sæstreng milli Kanada,Danmerkur, Þýskalands og Bret- lands með leggjum til Íslands og Færeyja. Hvað kallast hann? 2 Unnið er að nýrri orðabók, þ.e. áíslensku annars vegar en á hvaða tungumáli hins vegar? 3 Framsóknarflokkurinn fagnaði90 ára afmæli um helgina og formaðurinn og varaformaðurinn blésu á kerti afmæliskökunnar ásamt ritara flokksins. Hver er ritar- inn? 4 Norðmenn urðu Evrópumeistar-ar í handknattleik kvenna og með þeim fagnaði íslenskur aðstoð- arþjálfari liðsins. Hver er hann? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Veðráttan undanfarið hefur valdið mikl- um uppblæsti sunnanlands. Hver er land- græðslustjóri? Svar: Sveinn Runólfsson. 2. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri ætl- ar ekki að bjóða sig fram til þings að nýju. Hvar er hann sveitarstjóri? Svar: Hruna- mannahreppi. 3. Sannað þykir að Díana prinsessa hafi látist af slysförum. Hver er talin orsök slyssins? Svar: Ölvun öku- mannsins. 4. Helen Mirren er tilnefnd til 3 verðlauna á Golden Globe fyrir leik sinn, m.a. á tveimur drottningum. Hverjar eru þær? Svar: Elísabet I. og Elísabet II. Spurt er … ritstjorn@mbl.is    EITT magnaðasta málverk myndlistarsögunn- ar heitir „Garður hins jarðneska unaðar“ og var málað af Hieronymus Bosch í upphafi 16. aldar. Þetta er þrískipt altaristafla (triptych). Fyrsti hlutinn dregur mynd af Adam og Evu og upp- runalegu syndinni í paradís. Fyrir miðju er svo unaðsgarðurinn þar sem aragrúi af nöktum nautnaseggjum baðar sig í ávöxtum jarðar (af syndsamlegri ánægju) og þriðji hlutinn sýnir svo syndgarana hljóta „makleg málagjöld“ í helvíti þar sem þeir eru að eilífu kvaldir af djöfl- um og púkum. Bosch málaði nokkrar altaris- töflur sem enduðu á kvalafullum hryllingi í víti, en „Garður hins jarðneska unaðar“ er sú þekkt- asta. Eitt sem fræðimenn hafa velt fyrir sér varðandi þetta málverk Bosch eru efnistökin, en áferðin er grófgerðari en tíðkaðist í þá daga þar sem slétt yfirborð átti að fela alla mannlega viðkomu í málverki. Bosch faldi ekki mannlega viðkomu sem í sjálfu sér rímar við umfjöllunar- efnið sem snýst um freistingar og syndir holds- ins en ekki upphafinn guðdóm og því rökrétt að hafa málverkið áþreifanlegt eða holdlegt. Ómar Stefánsson, sem margir þekkja sem meðlim hljómsveitarinnar Inferno 5 (Víti 5), á margt sammerkt með Hieronymus Bosch. Hann hefur löngum unnið olíumálverk þar sem efniskenndin er áþreifanleg eða holdleg og á sýningu hans sem nú stendur yfir í Listhúsi Ófeigs sé ég ekki betur en að umfjöllunarefnið sé einhverskonar helvíti. Hann málar innrásir, stríð, aftökustaði og ýmiss konar subbugang sem hann færir í fremur furðulegan myndheim. Fígúrur virðast oft lekandi og skvapholda, margar hverjar ekki mannlegar, kannski djöfl- ar, og stundum greinir maður ekki fígúrur frá formum, enda sumar þeirra innfallnar eða sokknar í efnið. Víti eins og Ómar sýnir er ekki biblíulegt líkt og hjá Bosch heldur virkar það sem helvíti á jörðu. Að því gefnu er mér hugsað til hugmynda þýska spámannsins og dulspek- ingsins Jakobs Lorbers (1800–1864) um að heimurinn hafi í fyrstu verið eingöngu til á and- legu sviði sem er samtvinnað guðdómnum, eða allt þangað til hópur andlegra vera (engla) hafi viljað ná yfirráðum með þeim afleiðingum að þær urðu aðskildar þessu andlega sviði og þar með hafi efnisheimurinn orðið til. Hinn fallni engill hefur síðan tækifæri til að hljóta upp- reisn æru lúti hann vilja Guðs af öllu hjarta. Annars þjáist hann að eilífu í efni. Samkvæmt Lorber er mannkynið afsprengi þessa falls. Í málverkum Ómars virkar efnið einmitt sem þjáning eða dragbítur þeirra sem búa í því. Það er slepjulegt og yfirgengilegt og eftir því sem myndirnar eru stærri og meira ofhlaðnar form- um og fígúrum, því betur nær hann að skapa þetta öngþveiti sem er, fyrir mitt leyti, áhrifa- mest við málverk listamannsins. Í smáum myndum nær hann ekki slíkum áhrifum. Hins vegar leynist í myndunum svartur húmor, hvort sem þær eru stórar eða smáar, sem gam- an er að skoða. En Ómar sækir fígúrasjón sína í heim teiknimyndasagna. Myndröðin „Nakinn hádegisverður“ er t.d. meinfyndin og ósmekk- leg. Engu að síður eru það 3–4 stærstu mál- verkin sem bera uppi sýninguna og því spurn- ing hvort ekki sé kominn tími á umfangsmeiri sýningu frá listamanninum hér á landi. Jón B.K. Ransu Syndir holdsins MYNDLIST Listhús Ófeigs Opið á verslunartíma. Sýningin stendur til áramóta. Aðgangur ókeypis. Ómar Stefánsson Morgunblaðið/ÞÖK Hugleiðsla „Í málverkum Ómars virkar efnið sem þjáning eða dragbítur þeirra sem búa í því.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.