Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 13 FRÉTTIR NÆSTU þrjár vikurnar mega landsmenn búast við heimsóknum grunnskólabarna með söfn- unarbauka ABC-barnahjálpar. Söfnunin hófst formlega í gær þegar vænn hópur úr 5. bekk C í Melaskóla bankaði upp á hjá borgarstjóra á miðjum borg- arráðsfundi í Ráðhúsinu og varð hann fyrstur landsmanna til að setja þúsundkall í einn bauk og bætti síðan við fimm hundruð krónum í annan bauk. Því næst fengu krakkarnir að fara inn í fundarsalinn og var þeim vel tek- ið af borgarráðsfulltrúum sem gáfu í söfnunina. Söfnunin fer fram undir slag- orðinu Börn hjálpa börnum. Markmiðið með söfnuninni að þessu sinni er að byggja heima- vist fyrir skólabörn í Pakistan en þar eru 500 skólabörn á biðlista eftir plássi svo þau geti stundað skólann. Stefnt er að því að kaupa land undir byggingarnar og reisa þær fyrir söfnunarféð. Söfnunarátak ABC er eina stóra söfnun samtakanna hérlendis ár- lega og í fyrra söfnuðust 14 millj- ónir króna og 10 milljónir í hitti- fyrra, að sögn Guðrúnar Margrétar Pálsdóttur, formanns ABC-barnahjálpar. Þrír nýir skólar í fyrra Í Pakistan voru í fyrra vígðir þrír ABC-skólar í desember og er fjórði skólinn í byggingu og verið er að kaupa land undir fimmta skólann. Nálægt 1.000 börn eru komin í ABC-skólana í Pakistan, þar af yfir 200 börn í heimavist, en innan við tvö ár eru síðan ABC-samtökin fengu fyrst beiðni um að koma að hjálparstarfi þar í landi. Mikil áform eru í Pakistan og fleiri löndum og áætla ABC að geta hjálpað þúsundum barna til viðbótar með menntun og helstu nauðsynjar á næstu árum. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson borgarstjóri hrósaði krökkunum fyrir framtak sitt í gær og hvatti alla grunnskóla til að taka þátt í verkefninu. „Ég vil lýsa aðdáun minni á dugnaði ykkar og hvet ykkur til átaka í þessu. Söfnum eins miklu og við mögulega get- um,“ sagði hann og studdi síðan söfnunina. Styðja skólabörn í Pakistan Morgunblaðið/Sverrir Stuðningur Krakkarnir í 5. bekk C í Melaskóla voru ánægðir með viðtökur borgarstjórans í upphafi söfnunar. Söfnun fyrir ABC- barnahjálp hafin VIÐTAKENDUR pósts í nokkrum götum Mosfellsbæjar og Grafar- vogs fengu nýlega stór umslög með bréfum sem póststimpluð voru í upphafi ársins. Morgunblaðinu er kunnugt um viðtakanda sem hafði saknað launaseðils, bankayfirlita og annars glaðnings í ársbyrjun. Hann hafði talið að heimilisfólk hefði óvart fargað póstinum og kvaðst hafa gert nokkurt veður út af því – en allir borið við sakleysi sínu. Í fyrradag barst honum stórt umslag frá Íslandspósti og þar voru bréfin sem hafði verið saknað svo sárt eftir áramótin. Með fylgdi afsökunarbeiðni frá Íslandspósti þar sem sagði m.a. að af óviðráð- anlegum ástæðum hefði ekki verið hægt að koma meðfylgjandi pósti til skila fyrr. „Starfsmaður okkar brást starfsskyldum sínum við útburð en pósturinn fannst óskemmdur fyrir nokkrum dögum,“ sagði m.a. í bréfi Íslandspósts. Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir, forstöðumaður þjónustudeildar Ís- landspósts, sagði að sem betur fer væri þetta algjör undantekning. Viðkomandi bréfberi hefði hætt störfum skyndilega og haft póstinn í sinni vörslu, án þess að koma honum til skila. Ekki hefði verið um mikið magn af pósti að ræða. Gamall póstur borinn út Bréfberi brást skyldum sínum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.