Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 19 LANGAFASTA hefst í næstu viku, á öskudegi, en hér áður var hún tími íhugunar og góðrar breytni. Þá átti fólk að neita sér um ýmsar lystisemdir, t.d. kjötát, og því var efnt til ýmissa ærsla, svokallaðra kjötkveðju- hátíða, áður en fastan gekk í garð. Öskudagurinn heitir svo vegna þess að þá var siður að kasta ösku yfir kirkjugesti en askan táknar hið forgengilega auk þess að búa yfir heilnæmum krafti. Víða um heim, einkum í kaþólskum löndum, eru kjötkveðjuhátíðirnar að hefjast en þessi mynd var tekin í Köln í gær. Reuters Kjötið kvatt á hátíð í Kölnarborg Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is RÉTTARHÖLD hófust í Madríd í gær yfir 29 manns sem sakaðir eru um aðild að mannskæðum sprengju- tilræðum í járnbrautarlestum í mars 2004. Sprengjurnar, sem voru faldar í bakpokum, sundruðu vögnum í fjórum jarðlestum. Einn af fjórum mönnum sem taldir eru hafa verið höfuðpaurarnir í ódæðinu, Rabei Osman Sayed Ahmed, er gengur undir gælunafninu „Mohammad Egypti“, sagðist vera alsaklaus. Flestir hinna ákærðu eru innflytj- endur frá Marokkó. Osman, sem var handtekinn á Ítalíu, sagðist „for- dæma skilyrðislaust“ tilræðin en neitaði með öllu að svara spurning- um ákæruvaldsins og í fyrstu einnig spurningum verjenda sinna. „Með fullri virðingu þá viðurkenni ég ekki réttmæti nokkurra af ákær- unum eða fordæmingunum,“ sagði Osman sem er með sítt skegg og var klæddur ljósbrúnum jakka og dökkri golftreyju. „Ég mun ekki svara nein- um spurningum, ekki heldur spurn- ingum verjenda.“ Honum snerist þó hugur og ákvað að svara spurning- um verjendanna. Réttarhöldin valda því að margir rifja nú upp hræðilegar minningar, auk þeirra sem fórust særðust nær 2.000 manns, og margir þeirra eru nú örkumla. Voru sálfræðingar til taks í réttarsalnum til að veita fólki áfallahjálp. Djamila Benselah, blæjuklædd múslímakona frá Mar- okkó, missti 13 ára gamla dóttur sína í tilræðunum. „Dóttir mín tók lestina klukkan sjö um morguninn. Ég á aldrei eftir að sjá hana aftur, sárs- aukinn er mikill,“ sagði hún. „Það er mjög erfitt að horfast í augu við morðingja dóttur sinnar. Ég vona að morðingjarnir verði dæmdir.“ Fleiri áttu erfitt með að hemja til- finningar sínar. „Fæturnir skjálfa, ég er hrædd og með hnút í magan- um,“ sagð Pilar Manjon sem missti tvítugan son sinn. Manjon er for- maður samtaka sem aðstoða fórnar- lömbin. Hún varð þjóðþekkt á Spáni þegar hún kom fyrir rannsóknar- nefnd þingsins í desember 2004 og sakaði stjórnmálamenn um að láta hagsmuni flokkanna vega þyngra en aðstoð við fórnarlömbin. Ódæðismenn fyrir rétti Sakaðir um tilræðin í Madríd 2004 Í HNOTSKURN »Alls lét 191 lífið í tilræðunumí Madríd og nær 2.000 manns særðust. Ódæðismennirnir eru sagðir hafa orðið fyrir áhrifum af áróðri al-Qaeda. »Tilræðin voru þau umfangs-mestu á Vesturlöndum frá árásunum á Bandaríkin 2001. »Könnun sýnir að 23% þeirrasem lifðu af hafa ekki enn getað stundað vinnu. HUGO Chavez, forseti Venesúela, hefur hótað að þjóðnýta mat- vöruverslanir í landinu en hann sak- ar þær um að selja kjöt og aðra mat- vöru á hærra verði en ríkisstjórnin hefur ákveðið. Ríkisstjórnin heldur því fram, að verslanir hafi verið hækkað verðið með ýmsum hundakúnstum en tals- menn þeirra benda aftur á, að í gildi sé fjögurra ára gömul verðstöðvun, sem neyði verslanir til að selja með miklu tapi. Segja þeir, að stjórnvöld hafi lokað einni verslun fyrir að selja kjöt á hærra verði en þeim þóknaðist og vegna þess hafi margar verslanir hætt að vera með kjöt, mjólk og syk- ur. Chavez sagði nýlega á fundi með eftirlaunaþegum í höfuðborginni, Caracas, að hann biði bara eftir „til- efni“ til að þjóðnýta verslanir. Veld- ur það eigendum einkafyrirtækja áhyggjum og ekki aðeins það, heldur líka fyrirskipanir stjórnvalda um, að almennt starfsfólk eigi að fá tíma í vinnunni til að stúdera sósíalisma. Chavez vill þjóðnýta matvöruverslanir Sjálfvirk hnakka- púðastilling, aðeins í Stressless – Þú getur lesið eða horft á sjónvarp í hallandi stöðu. Ótrúleg þægindi. Sérstakur mjóbaks- stuðningur samtengdur hnakkapúða- stillingu. Þú nýtur full- komins stuðnings hvort sem þú situr í hallandi eða uppréttri stöðu. Ármúla 44 108 Reykjavík Sími 553 2035 www.lifoglist.is THE INNOVATORS OF COMFORT ™ Réttu sætin fyrir heimabíóið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.