Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Spennandi störf í boði! í hópinn Við bjóðum ykkur velkomin Vaktstjórar - Laus störf vaktstjóra í verslunum Nóatúns í Austurveri, Grafarholti og Furugrund Kópavogi. Afgreiðsla í kjötborð (kvöld og helgarvinna) - Laust starf í kjötborði Nóatúns Grafarholti, kvöld og helgarvinna. Starfsfólk í kjötborð - Laust starf í kjötborð Nóatúns Nóatúni, unnið er á vöktum. Menntun og/eða reynsla í kjötiðn eða matreiðslu skilyrði. - Laust starf í kjötborð Nóatúns Hafnarfirði, frá kl 12 – 20 virka daga, helgarvinna skv. samkomulagi. - Laust starf í kjötborði Nóatúns Furugrund, frá 9 – 17 virka daga. Reynsla ekki skilyrði, ítarleg starfsþjálfun í boði. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Nóatúns, www.noatun.is eða sendið til skrifstofu Kaupás, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík merkt rekstrarstjóri Nóatúns. Sölumaður fasteigna Óskum eftir að ráða vanan sölumann á rót- gróna og reyklausa fasteignasölu, vel staðsetta í Reykjavík. Vinsamlega skilið inn umsóknum til auglýs- ingadeildar Mbl. eða á box@mbl.is merktum: ,,S - 19556’’. Raðauglýsingar 569 1100 StyrkirTilkynningar Uppboð Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Berjarimi 6, 204-0225, Reykjavík, þingl. eig. Herdís Kristjana Her- vinsdóttir, gerðarbeiðandi Dagsbrún hf., þriðjudaginn 20. febrúar 2007 kl. 10:30. Frakkastígur 16, 200-6257, Reykjavík, þingl. eig. Endurreisn verktakar ehf., gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og Trygginga- miðstöðin hf., þriðjudaginn 20. febrúar 2007 kl. 14:00. Freyjugata 15, 200-7685, Reykjavík, þingl. eig. Sturla Sighvatsson, gerðarbeiðendur Byko hf. og Glitnir banki hf., þriðjudaginn 20. febr- úar 2007 kl. 13:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 15. febrúar 2007. Félagslíf Í kvöld kl. 20.30 heldur Hall- dór Haraldsson erindi sem hann nefnir: ,,Heimspekiprófessor skoðar viðhorf J. Krishnamurtis” í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús. Kl. 15.30 heldur Guðlaug Ragnarsdóttir erindi: ,,Frásögn af ferð til Lourdes.” Á fimmtudögum kl. 16.30 - 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bókmennta. Starfsemi félagsins er öllum opin. http://www.gudspekifelagid.is I.O.O.F. 12  18721681/2  9.0. I.O.O.F. 1  1872168  81/2.I.* Fáðu sms-fréttir í símann þinn af mbl.is MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Svanborgu R. Jónsdóttur, sem var fundarstjóri á opnum fundi í félagsheimilinu Árnesi sl. sunnudag. Er þessi at- hugasemd vegna kvartana Landsvirkjunar yfir því að vera meinað að tala á fundi gegn áformum um virkjanir í neðri Þjórsá og umræðna á Alþingi í sömu veru: „Hér skal á það bent að á fundi í Árnesi í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi sunnudaginn 11. febrúar síðastliðinn var engum bannað að tala. Hins vegar flutti fundarstjóri skýr skilaboð fundarboðenda um það að þeir sem tækju til máls virtu til- gang fundarins. Einungis þrír aðilar óskuðu eftir að taka til máls á umræðuhluta fundarins og var þeim öllum leyft að tala og innihald ræðu þeirra ekki ritskoðað. Hér á eftir eru orðrétt þau skilaboð sem ég sem fundarstjóri las á fundinum, fyrst í upphafi fundar og síðar við upphaf umræðna: Samkvæmt fundarboði Sólar á Suðurlandi og Náttúru- verndarsamtaka Suðurlands er tilgangur fundarins að kynna viðhorf og skoðanir sem eru gegn áformum Landsvirkjunar um virkjanir í neðri hluta Þjórsár. Við munum því á fyrri hluta fundarins hlýða á frummælendur sem skýra frá sjón- armiðum sínum varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir og rök fyrir því að þær sé óréttmætar. Í lok fundarins gefst fundarmönnum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum og ábendingum er varða andstöðu við umrædd virkjunaráform. Fundarstjóri bendir á að þessi fundur er ekki rökræðufundur um tilgang virkjananna held- ur fundur sem gefur þeim röddum sem eru andvígar fram- kvæmdunum tækifæri til að heyrast. Þannig munu fund- arboðendur ekki sitja fyrir svörum á fundinum en taka við ábendingum og tillögum um farsæla friðun Þjórsársvæð- isins. Þeir sem óska eftir að taka til máls undir liðnum: orðið er laust eru beðnir að koma miða með nafni sínu til fund- arstjóra. Ræðutími er takmarkaður við 2 mínútur. Eftir innlegg frummælenda: Fundarstjóri ítrekar tilgang fundarins sem er að láta heyrast viðhorf gegn virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Fund- arboðendur telja að Landsvirkjun og áhangendur þeirra hafi haft næg tækifæri til að koma áformum sínum á framfæri og telja sig ekki þurfa að halda og bera kostnað af fundi sem einu sinni enn gefur þeim tækifæri til að viðra skoðanir sínar og fyrirætlanir. Þessi fundur er til að mótmæla áformum Landsvirkjunar og óskað er eftir því að þeir sem taka til máls hér á eftir virði þennan tilgang fundarins. Það var því engum bannað að taka til máls en ég skal við- urkenna að það hefði þurft talsverðan kjark til að koma upp og tala gegn þessum óskum fundarboðenda, en þó sér- staklega í ljósi þeirrar stemningar sem var á fundinum. Við sem undirbjuggum fundinn töldum okkur ekki hafa bolmagn til þess að kosta og skipuleggja fund fyrir Landsvirkjun til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og leyfðum okkur að nota þessar tvær klukkustundir af eilífðinni til að láta þær raddir hljóma sem höfðu ekki fengið að heyrast fyrr. Það er hægt að þagga niður raddir á ýmsan hátt, einn þann sem hefur verið viðhafður sem er að tala þannig að það sé svo sjálfsagt að virkja að það þurfi ekki einu sinni að hlusta á aðrar skoðanir. Núna tókum við okkur tvær klukkustundir til þess að viðra skoðanir okkar og það er greinilega of mikið að mati Landsvirkjunarmanna. Gott að vita að raddir okkar heyrðust og mig grunar að þær hafi þann hljómgrunn núna að þær eigi eftir að enduróma og magnast með undirtektum margra annarra sem nú eru farnar að heyrast.“ Athugasemd vegna kvartana Landsvirkjunar ♦♦♦ BANDALAG kvenna í Reykjavík, Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands standa fyrir opnu húsi á Hall- veigarstöðum á konudaginn sunnudaginn 18. febrúar kl. 15– 17. Dagskráin hefst með því að Þórey Guðmundsdóttir, lektor og fyrrverandi formaður BKR kynnir Hallveigarstaði og þá starfsemi sem þar fer fram. Einnig flytja erindi þær Ingveldur Sigurðardóttir, formað- ur Bandalags kvenna í Reykjavík, Sigurlaug Garðarsdóttir, forseti Kvenfélagasambands Íslands, Þorbjörg Inga Jóns- dóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, Kristín Ást- geirsdóttir, sagnfræðingur og Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sál- fræðingur. Fundarstjóri verður Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður KRFÍ. Opinn fundur á konudaginn Á NÆSTA skólaári verður kennt samkvæmt nýrri náms- skipan í Kennaraháskóla Íslands. Námið verður kynnt á há- skóladaginn 17. febrúar í húsakynnum Kennaraháskólans við Stakkahlíð. Menntamálaráðherra opnar formlega nýja náms- og kennsluskrá í Skriðu, fyrirlestrasal skólans, klukkan tólf. Ólafur Proppé, rektor KHÍ, flytur ávarp. Kennaraháskólinn verður opinn gestum frá klukkan 11 til 16 síðdegis. Kennarar og nemendur við skólann munu kynna grunnám og framhaldsnám sem boðið er uppá. Einnig verður veitt innsýn í einstök fræðasvið í náminu. Formleg hátíðardagskrá hefst klukkan 12 í Skriðu, fyr- irlestrasal skólans í Hamri. Áætlað er að henni verði lokið klukkan 12.30. Kennaraháskólinn kynnir nýja námsskipan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.