Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 63 50% afsláttur 50% afsláttur 50% afsláttur Danskir fjölmiðlar fara þessadagana fögrum orðum um ís- lenska tónlist og hrósa sérstaklega útgáfufyrirtækinu 12 tónum fyrir áhugaverða útgáfu. Kallar danska tímaritið Gaffa m.a. geislaplötu Skúla Sverrissonar kvikmyndalega hljóðmynd sem hrífi eyrun og gefur henni fjórar stjörnur af sex mögu- legum. Lost in Hildurness (Hildur Guðnadóttir) fær sömu einkunn hjá Gaffa, sem segir að sá hlustandi sem ekki hrífist að sellóleik hennar hljóti að vera gerður úr hraungrjóti. Gaffa hrífst ekki eins af tónlist Péturs Ben, gefur tónleikum hans í tónleikasalnum Loppen í Kristjaníu í síðustu viku aðeins þrjár stjörnur og segir hann ekki jafn tilrauna- kenndan og kraftmikinn og lista- menn á borð við Björk, Sigur Rós og Mugison. Tímaritið Diskant er hins vegar á öðru máli og gefur tónleikunum 9 stig af 10 mögulegum. Gagnrýnandi þar segir tónlist Péturs persónulega með undarlegum íslenskum hljómi sem skapi stemningu vetrar, myrk- urs og innileika.    Fyrrum aðstoðarkona söngkon-unnar Britney Spears, Felicia Culotta, hefur opinberað gremju sína og áhyggjur af hegðun og framkomu söng- konunnar að und- anförnu. Culotta vann fyrir Spears í níu og hálft ár og var aðstoðar- og fylgdarkona hennar og náinn vinur. Hún hefur nú hætt störfum hjá henni og segir í bréfi sem birt er á netsíðunni tha- totherblog.com að það hafi verið sparkað svo oft í hana að hún hafi hreinlega gefist upp. Þá segir hún nánustu ættingja og vini söngkon- unnar hafa gert allt sem í þeirra valdi standi til að fá hana til að fara í áfengismeðferð. „Ég elskaði að vera með Britney undanfarin níu og hálft ár. Ég naut þess að taka þátt í draumi hennar. Ég met öll þau stórkostlegu tæki- færi sem ég fékk vegna starfs míns hjá henni og ég er vonsvikin/ sorgmædd/örvingluð yfir því hvern- ig líf hennar hefur þróast,“ segir hún í bréfinu. „Ég vil að þið vitið að við (þ.e. fjölskylda hennar og nán- ustu vinir sem ekki eru lengur á launaskrá hjá henni) gerum allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa Britney. Við gerum líka allt sem í okkar valdi stendur til að mýkja ekki lendingu hennar, þannig að þegar hún nær botninum, geti hún staðið upp og gengið í burtu frá öllu þessu klúðri, sem ný, sjálfsörugg, breytt og metnaðargjörn Britney eins og hún var þegar við þekktum hana og elskuðum.“ Þá segist hún hafa gefist upp á að reyna að tala við Britney þar sem hún vilji ekki vera meðvirk með henni og hún geti aldrei elskað hana nóg fyrir þær báðar eða fengið hana til að elska sjálfa sig.    Og meira um Britney Spears þvíbeiðni hennar um Heather- ette-handtösku eftir hönnuðinn og fyrirsætuna Lydiu Hearst var hafn- að vegna „óvirðulegrar ímyndar“ söngkonunnar. Framleiddur er tak- markaður fjöldi af þessum hand- töskum. Dagblaðið New York Daily News hefur eftir heimildamanni: „Britney bað um að fá að fara baksviðs á Heatherette-sýningunni á tískuvik- unni í New York og fá þar tösku gegn því loforði að halda á töskunni er hún gengi til sætis síns á fremsta bekk þar sem myndir yrðu teknar af henni með töskuna. En það voru aðeins 100 töskur til og beiðni henn- ar var kurteislega hafnað.“ Hearst sagði: „Ég gef töskuna aðeins konum sem hafa náð árangri og hafa jákvæð áhrif á heiminn. Þetta eru konur sem ég lít upp til og ber virðingu fyrir, eins og Gwy- neth Paltrow, Sarah Jessica Par- ker og Anne Hathaway. Þær eiga það sameiginlegt að koma vel fram og láta gott af sér leiða.“ Undanfarið hafa birst myndir af Britney lufsulegri og þrútinni úti að skemmta sér. Eftir að beiðni henn- ar um töskuna var hafnað lét hún ekki í sér heyra í lok tískusýning- arinnar. Talsmaður Britney segir að þess- ar fregnir séu allar úr lausu lofti gripnar.    Mannréttindasamtökin AmnestyInternational hafa heiðrað leikkonuna Jennifer Lopez vegna nýjustu kvikmyndar hennar sem nefnist Bordertown. Myndin gerist í mexíkóska bænum Ciudad Juarez þar sem hrottaleg ofbeldisverk gegn ungum kon- um hafa verið framin, og eru fjölmörg málanna óleyst. Lopez, sem er einn framleið- anda mynd- arinnar, leikur rannsókn- arblaðakonu sem fjallar um fjöldamorðin. Hún hlaut svokölluð „Artists for Amnesty“- verðlaun áður en myndin var frum- sýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín á miðvikudaginn. Lopez, sem er 37 ára gömul, kvaðst vera auðmjúk þegar hún tók á móti verðlaununum, en það var forsætisráðherra Austur-Tímor, Jose Ramos-Horta, sem afhenti henni þau. Enginn veit með vissu hversu mörg morð hafa verið framin í Ciu- dad Juarez frá því morðaldan hófst árið 1993. Amnesty segir hinsvegar að þau séu yfir 400 talsins. Lögreglan hefur handtekið nokkra aðila vegna málsins en morðin hafa ýmist verið tengd fjöldamorðingjum, fíkniefna- hringjum eða heimilisofbeldi. Þá hefur verið minnst á nokkur glæpagengi í tengslum við glæpina. Það virðist sama þótt lögreglan lýsi yfir fögnuði í hvert sinn sem einhver er handtekinn eða dæmdur í fangelsi í tengslum við málið því ekki líður á löngu þar til nýtt morð hefur verið framið. Að sögn Lopez er ástandið í bæn- um skelfilegt, truflandi og glæpur gegn mannkyninu en hefur fengið litla sem enga umfjöllun. Fólk folk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.