Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn SÆLL! HVERNIG HEFUR ÞÚ ÞAÐ Í DAG MÚS? ÉG HELD AÐ ÞAÐ KOMI ÞÉR BARA EKKERT VIÐ, FITUHLUNKURINN ÞINN! MÝS ERU ALLTAF SVO VIÐKVÆMAR ÁÐUR EN ÞÆR FÁ MORGUNOSTINN SINN MÉR FINNST SKRÍTIÐ AÐ FÁ EKKI PENING ÞEGAR ÉG SKILA INN TÓMUM PELUM ÉG ELTI ÞESSA KONU ÚT UM HÁLFAN DÝRAGARÐINN VEGNA ÞESS AÐ ÉG HÉLT AÐ HÚN VÆRI MAMMA AF HVERJU SKRIFA MÖMMUR EKKI NAFNIÐ SITT Á KÁLFANN Á SÉR TIL ÞESS AÐ KOMA Í VEG FYRIR SVONA MISSKILNING HVAR ÆTLI ÉG SÉ? OG HVAR ÆTLI HOBBES SÉ? ÉG HÉLT AÐ ÉG HEFÐI TEKIÐ HANN MEÐ MÉR HVAR ER KALVIN? AF HVERJU ÞARF ÞETTA ALLTAF AÐ GERAST ÞEGAR VIÐ FÖRUM EITTHVAÐ SAMAN. ÉG ÞARF AÐ VINNA MEIRA UM HELGAR ÞAÐ HLJÓMAR EINS OG ÞAÐ SÉ VILLIDÝR VIÐ ÚTIDYRNAR ENGA VITLEYSU! ÞETTA ER BARA VINDURINN ER VINDURINN MEÐ STÓR, BLÓÐHLAUPIN AUGU ÞAÐ ER NÚ MEIRI HÁVAÐINN Í ÞESSARI OSTRU. ER EKKI HÆGT AÐ ÞAGGA NIÐUR Í HENNI EINHVERN VEGINN? JÚ! ÞETTA ER EIN LEIÐ TIL ÞESS AÐ GERA ÞETTA HÚN HEFÐI SAMT VERIÐ BETRI EF ÉG HEFÐI FENGIÐ EINHVERJA GÓÐA SÓSU MEÐ HENNI ÉG VEIT AÐ ÞAÐ ER EITTHVAÐ AÐ. SEGÐU MÉR HVAÐ ÞAÐ ER EKKERT AÐ ER ÞAÐ EITTHVAÐ SEM ÉG GERÐI? VILTU ÞESS VEGNA EKKI SEGJA MÉR HVAÐ ÞAÐ ER? NEI ADDA! ÞETTA ER EKKI ÚT AF NEINU SEM SNERTIR ÞIG EN ÞÚ JÁTAR SAMT AÐ ÞAÐ SÉ EITTHVAÐ AÐ NEI, ADDA, ÞAÐ ER EKKERT AÐ ÓTRÚLEGT! SVOLÍTIÐ AF BLÓÐINU HANS PARKERS BLANDAÐIST VIÐ SÝKTA BLÓÐIÐ OG SÝKTA BLÓÐIÐ ER AÐ VERÐA AFTUR EÐLILEGT ÞETTA ER NÁNAST KRAFTAVERK ÞETTA Á EFTIR AÐ GERA MIG RÍKAN ÞESSAR litríku vistarverur er að finna á sýningu sem nú stendur yfir í Valencia á Spáni. Efnið sem myndar þetta völundarhús er blásið upp og er það hannað af breskum listahópi sem kallar sig „Architects of Air“ eða Arkitektar loftsins. Reuters Völundarsmíð Háskóladagurinn er ámorgun, laugardag, ogkynna allir háskólarlandsins námsframboð sitt á þremur stöðum í Reykjavík. Guðrún J. Bachman er kynning- arstjóri Háskóla Íslands: „Háskól- arnir halda allir kynningu á sama deginum og sameina þannig krafta sína til að gefa væntanlegum nem- endum sem besta yfirsýn yfir það nám sem er í boði,“ segir Guðrún. Kynningar verða haldnar í Há- skólabíói, Borgarleikhúsinu og húsakynnum Kennaraháskóla Ís- ands: „Í Háskólabíói verða allar 11 deildir Háskóla Íslands og ýmsar þjónustustofnanir með kynningu. Í Borgarleikhúsinu verða Háskólinn í Reykjavík, Listaháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Ís- lands og Háskólinn að Hólum með sínar kynningar, og í Kennarahá- skólanum verður hægt að fræðast um nýtt og endurskipulagt náms- framboð KHÍ,“ segir Guðrún, en kynningardagskráin stendur yfir frá kl. 11 til 16 á öllum stöðum. „Allir háskólarnir leggja áherslu á að gestir á Háskóladeginum eigi kost á að hitta nemendur sem stunda nám við háskólana og hafa reynslu af þeim námsbrautum sem verið er að kynna,“ segir Guðrún. „Að sjálfsögðu eru líka kennarar á staðnum auk námsráðgjafa og al- þjóðafulltrúa og ýmissa þjónustuað- ila. Lykilatriði er að veita persónu- lega ráðgjöf sem ekki næst svo auðveldlega gegnum netið eða kynningarbæklinga.“ Guðrún segir Háskóladaginn bjóða upp á eitthvað fyrir alla sem vilja bæta við sig menntun: „Við eigum von á mörgum framhalds- skólanemendum sem standa frammi fyrir stórri ákvörðun um hvaða leið- ir þeir vilja fara í námi að loknu stúdentsprófi. Það þarf að vanda valið, og margir nemendur í neðri bekkjum framhaldsskóla nota líka tækifærið til að byrja að gera áætl- anir um framtíðina,“ segir Guðrún. „Svo er fjöldi fólks á vinnumarkaði sem vill bæta við sig námi. Í aukn- um mæli eru gerðar kröfur um framhaldsmenntun og margir sem lokið hafa grunnháskólanámi sjá þörf fyrir að bæta við sig aukinni sérhæfingu til að styrkja sig í starfi með viðbótarnámi til starfsréttinda, meistaranámi eða jafnvel dokt- orsnámi.“ Námsframboð háskólanna verður fjölbreyttara með hverju árinu. Guðrún nefnir ýmsar spennandi við- bætur við námið í Háskóla Íslands: „HÍ býður upp á hátt á fjórða hundrað námsleiðir. Næsta vetur bætist m.a. við framhaldsnám í lýð- heilsuvísindum og framhaldsnám í öldrunarfræðum. Þá hefjum við aft- ur rússneskunám og opnum nýja námsbraut í fjölmenningarfélags- ráðgjöf og BA-nám í Austur- Asíufræðum. Í Kennaraháskólanum er verið að kynna alveg nýja náms- skipan í grunn- og framhaldsnámi og fjölmargar aðrar nýjungar verða í boði hjá öðrum háskólum landsins næsta kennsluár.“ Nánari upplýsingar um náms- framboð má fá á heimasíðum há- skólanna. Menntun | Námskynningar í Háskólabíói, Borgarleikhúsi og KHÍ á laugardag Háskóladagur- inn á laugardag  Guðrún J. Bachman fæddist í Reykjavík 1953. Hún lauk stúd- entsprófi frá MH og útskrifaðist sem bókmennta- fræðingur frá HÍ. Hún hefur starfað við kynn- ingar- og markaðsmál um árabil, og einnig við kennslu, m.a. við End- urmenntun HÍ, við þýðingar, ráð- gjöf og fleira. Guðrún var markaðs- og kynningarstjóri Þjóðleikhússins frá árinu 1993 til 2001 þegar hún hóf störf við Háskóla Íslands, þar sem hún er kynningarstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.