Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 23
AUSTURLAND
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Hvanneyri | Stofnað hefur verið á
Hvanneyri Landbúnaðarsafn Ís-
lands. Stefnt er að því að safnið fái
gamla fjósið á Hvanneyri, svonefnt
Halldórsfjós, til afnota sem safn- og
sýningarhúsnæði.
Landbúnaðarsafn Íslands er
sjálfseignarstofnun, stofnuð af
Landbúnaðarháskóla Íslands, sveit-
arfélaginu Borgarbyggð og Bænda-
samtökum Íslands. Auk stofnend-
anna eiga þjóðminjavörður og
landbúnaðarráðherra fulltrúa í
stjórn safnsins.
Áhersla á tæknibreytingarnar
Landbúnaðarsafn Íslands mun
byggja meðal annars á nær 70 ára
tilveru Búvélasafns á Hvanneyri en
Bjarni Guðmundsson, prófessor við
Landbúnaðarháskólann sem unnið
hefur að stofnun safnsins og mun
veita því forstöðu, segir að hlutverk
þess verði mun víðtækara. „Það
verður gerð grein fyrir fleiri þáttum
í þróun landbúnaðarins, fleiri en vél-
um, tækjum og tækni í þrengstu
merkingu þess orðs. Sýnt verður
hvernig kvikfjárrækt breyttist á 20.
öldinni, jarðrækt, úrvinnsla afurða
og jafnvel félagskerfi og menningar-
landslag sveitanna,“ segir Bjarni.
Spurður hvort þetta nýja safn yrði
í líkingu við byggðasöfnin kvað hann
nei við. „Við ætlum ekki að fara inn á
svið byggðasafnanna sem gera lífs-
háttum á fyrri tíð góð skil. Við helg-
um okkur meira tuttugustu öldinni
sem spannar meginhluta tækni-
breytinganna, raunar alveg frá 1880
þegar þekkingarbyltingin hófst með
upphafi búnaðarfræðslu. Það hafa
orðið miklar breytingar á þessum
tíma, við þurfum ekki að hugsa
lengra aftur en til 1960 til að átta
okkur á því,“ segir Bjarni.
Hlutverk Landbúnaðarsafns Ís-
lands er söfnun og varðveisla muna,
minja og verkþekkingar, rannsóknir
á landbúnaðarsögu og loks miðlun og
fræðsla. Bjarni óttast ekki verkefna-
skort hjá Landbúnaðarsafninu, segir
frekar vandamálið að velja úr og
setja upp á sýningar þannig að safnið
segi söguna.
Áhugavert verkefni
Landbúnaðarháskóli Íslands hef-
ur ákveðið að ráðstafa tveimur
þriðju hlutum af vinnutíma Bjarna
til safnsins á næstu þremur árum.
„Jú, mér finnst það. Ég lít á það sem
forréttindi að fá að glíma við þetta,“
segir Bjarni þegar hann er spurður
hvort ekki sé áhugavert fyrir hann
að fá meiri tíma til að sinna safninu.
Landbúnaðarsafn Íslands fær
væntanlega gamla fjósið á Hvann-
eyri til afnota sem safn- og sýning-
arhúsnæði. Fjósið er teiknað af Guð-
jóni Samúelssyni húsameistara og
byggt 1928 í tíð Halldórs Vilhjálms-
sonar skólastjóra. Þetta var 80 kúa
fjós og eitt af stærstu fjósum lands-
ins á þeim tíma. Bjarni segir að
vissulega þurfi að leggja í mikinn
kostnað við endurbætur og breyting-
ar á húsinu til að það geti þjónað
nýju hlutverki en hann segir að það
þurfi hvort sem er að leggja í kostn-
að við að varðveita þetta merka hús
vilji menn ekki láta það eyðileggjast,
og þá sé gott að nota það til þarfra
hluta.
Stofndagur Landbúnaðarsafns Ís-
lands var valinn 14. febrúar til heið-
urs Halldóri Vilhjálmssyni sem var
fæddur þennan dag. Eftir að fulltrú-
ar stofnendanna höfðu gengið frá
samningum fóru þeir ásamt gestum
til Halldórsfjóss þar sem Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
vann fyrsta verkið á vegum hins nýja
safns. Hann dreifði úr sauðataðs-
hrúgu og bar þar með skarn á hóla.
Þessi athöfn vísar til framfara sem
Njáll stóð fyrir á Bergþórshvoli og
þótti frásagnarvert í Njálssögu.
Landbúnaðarsafn
líklega í Halldórsfjósi
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Skarn á hóla Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra vann fyrsta verkið á
vegum hins nýstofnaða Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri.
Í HNOTSKURN
»Landbúnaðarsafn Íslandsá Hvanneyri leggur
áherslu á tímabil þekkingar-,
tækni og markaðsvæðingar
landbúnaðarins, aðallega á
tuttugustu öldinni.
»Sett verður upp sýningsem ætlað er að segja
þessa sögu.
»Landbúnaðarháskóli Ís-lands, Borgarbyggð og
Bændasamtök Íslands stofn-
uðu safnið.
LANDIÐ
Kárahnjúkar | Búið er að flytja sér-
stakan lokubúnaður inn í aðrennsl-
isgöng Kárahnjúkavirkjunar sem
liggja milli Hálslóns og Fljótsdals.
Verður hann á gangamótum þar
sem göng úr Ufsarlóni tengjast að-
rennslisgöngunum.
Landsvirkjun hefur nú ráðið átta
starfsmenn í Fljótsdalsstöð, stöðv-
arhús virkjunarinnar í Fljótsdal, en
alls munu ellefu manns vakta þar
orkuframleiðslu í framtíðinni.
Undanfarið hafa staðið yfir próf-
anir á vélum virkjunarinnar, búið
er að spennusetja Fljótsdalslínur
sem flytja munu rafmagnið til ál-
versins á Reyðarfirði og setja á þær
vöktunarbúnað, sem er nýjung. Þá
er lokið við að tengja Kröflulínu inn
á tengivirkið í Fljótsdal.
Ljósmynd/Bernhard Leist
Jötnar Þessir ábúðarmiklu félagar vinna að uppsetningu lokubúnaðar.
Lokubúnaður á
gangamótum
Vopnafjörður | Fyrir nokkrum dög-
um fékk björgunarsveitin Vopni á
Vopnafirði afhentan nýjan Toyota
Landcruiser 120-jeppa á 39,5" dekkj-
um.
Það var Toyotaverkstæðið sem sá
um breytingar á bílnum en Radioraf
sá um alla rafmagnsvinnu.
Bíllinn er vel tækjum búinn, en
auk GPS-tækis er hann með PC-
tölvu, Iridium-gervihnattasíma,
Tetra-talstöð, VHF-talstöð, NMT-
síma o.fl.
Einnig fékk sveitin öflugt Hag-
glund-beltatæki sem styrkir sveitina
enn frekar. Það verður búið öllum
helstu tækjum sem þarf að hafa til
komast um við verstu aðstæður.
Nokkrir aðilar hafa styrkt Vopna
til bílakaupanna en kaupverð á
Toyota-bílnum er um 7.500.000 kr.
og Hagglundinn kostar um 1.000.000
kr. Jeppinn hefur þegar spreytt sig
við erfiðar aðstæður því sl. helgi var
Vopni beðinn um að svipast eftir
fólki sem ætlaði frá Egisstöðum um
Hellisheiði til Vopnafjarðar. Fannst
fólkið í svokölluðum Jökuldal uppi á
Hellisheiði. Reyndist nýja björgun-
artækið frábærlega við erfiðar að-
stæður en snjórinn var upp á húdd
þar sem hann var mestur.
Nýr björgunarbíll
Vopna reynist vel
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Hörkutæki Vopni fékk nýjan björgunarbíl afhentan á 112-daginn.
Kárahnjúkar | Mál vegna vangold-
inna launa starfsmannaleigunnar
2b til 13 pólskra verkamanna verða
send verkalýðsfélaginu Hlíf í Hafn-
arfirði til úrlausnar. Mennirnir
störfuðu fram til áramóta fyrir 2b
en nú fyrir Arnarfell við virkjunina.
2b segist ekki skulda þeim laun þar
sem þeir hafi rift ráðningarsamn-
ingum sínum með því að fara yfir til
Arnarfells og hafi mennirnir und-
irritað skjöl þar sem þeir afsali sér
rétti til launa frá 2b. Yfirtrúnaðar-
maður við Kárahnjúka segir 2b
skulda hverjum mannanna á annað
hundrað þúsund krónur í laun.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Beðið Hvort hann bíður eftir laun-
um eða öðru þessi er ekki vitað.
13 pólskir verkamenn
vilja laun sín án refja