Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 28
B
olludagur gefur okkur
árlega ástæðu til að
bera á borð sætar boll-
ur með rjóma, sultu og
allavega gúmmilaði.
Sumir vilja einungis hinar hefð-
bundnu yndislegu bollur sem
mamma eða amma bakaði. Aðrir
eru til í að prófa eitthvað nýtt á
hverju ári og það getur reynst hins
besta dægrastytting nú á dimmum
dögum að raða saman skrautlegum
bollum. Allt er að sjálfsögðu „leyfi-
legt“ og það er bara áhugi og tími
sem setur því skorður hvað á boll-
urnar fer. Hér eru nokkrar smelln-
ar sætar uppskriftir til að gefa hug-
myndir en annars er hægt að nota
allar tegundir sultu sem og kara-
mellu, glassúr, ávexti og ber. Fyrir
þá sem eru frekar að forðast sætu
bollu bomburnar er góð hugmynd
að baka góðar speltbollur og borða
með grænmeti og osti eða öðru
góðu áleggi. Það er ekki það sama,
en engu að síður hægt að taka þátt í
bolludeginum. Önnur góð hugmynd
er svo að baka litlar bollur og setja
á þær mismunandi fyllingar svo
fólk geti smakkað nokkrar tegundir
án þess að „springa“. Nú svo er líka
þægilegt og skemmtilegt að setja
bollur, rjóma og allavega góðmeti á
borðið og leyfa gestum að raða
saman sjálfum.
Bolludagsbollur
20 bollur
40 g smjör, brætt
1 dl matarolía
5 dl mjólk
50 g pressuger, eða 1 pk. þurrger
1½ dl sykur
1 tsk. salt
1 tsk. malaðar kardimommur
14 dl hveiti
Bræðið smjör og setjið volga
mjólk og matarolíu saman við.
Blandan á að vera um 37°C heit.
Setjið gerið út í og leysið upp,
blandið salti, sykri, kardimommum
og hveiti saman við. Hnoðið vel
saman og látið deigið lyfta sér á
hlýjum stað með viskastykki yfir
þar til það hefur tvöfaldast að
stærð, eða í u.þ.b. 45 mínútur.
Mótið deigið í 20 bollur og raðið á
ofnplötu, klædda bökunarpappír.
Látið lyfta sér á ný í 30 mínútur á
hlýjum stað með röku viskastykki
yfir. Penslið með pískuðu eggi .
Bakið í u.þ.b. 10–15 mín við 220°C
eða þar til bollurnar eru bakaðar í
gegn en ekki orðnar dökkar.
Bolludagsbollur eru samkvæmt
gamalli hefð einungis bakaðar úr
hveiti, það má hins vegar alveg
skipta út hluta af hveitinu fyrir
spelt eða heilhveiti en þá er við búið
að bollurnar verði ekki jafnmjúkar.
Þetta eru hinar hefðbundnu bollur
sem fylltar eru með sultu og rjóma
og sett á glassúr eða súkkulaði.
Fyllingar í
bolludagsbollur
1. Látið rúsínur liggja í rommi í
klst. Hrærið þeim saman við þeytt-
an rjóma og setjið inn í bollu.
Bræðið dökkt súkkulaði og setjið
yfir og kókosmjöli stráð á.
2. Setjið kirsuberjasultu (gjarnan
lífræna) neðst, rjóma ofan á og efst
brætt núggat sem söxuðum pekan-
eða heslihnetum er stráð yfir.
3. Skerið Mars-súkkulaði í bita og
setjið í rjómann ásamt jarðar-
berjum. Sett inn í bollu og stráið
kakói yfir.
Brúnar bolludagsbollur
20 bollur
140 g smjör, brætt
5 dl mjólk
50 g pressuger, eða 1 pk. þurrger
1 tsk. salt
1½ dl púðursykur
3 tsk. vanillusykur
1 dl kakó
13–14 dl hveiti
Bræðið smjör og setjið mjólk
saman við, blandan á að vera um
37°C heit. Setjið gerið út í og leysið
upp, blandið salti, púðursykri, van-
illusykri, kakói og hveiti saman við.
Hnoðið vel saman og látið deigið
lyfta sér á hlýjum stað með viska-
stykki yfir þar til það hefur tvöfald-
ast að stærð, eða í u.þ.b. 45 mín-
útur. Mótið deigið í 20 bollur og
raðið þeim á ofnplötu klædda bök-
unarpappír. Látið lyfta sér á ný í 30
mínútur á hlýjum stað með röku
viskastykki yfir. Penslið með písk-
uðu eggi. Bakið í u.þ.b. 10–15 mín.
við 220°C eða þar til bollurnar eru
bakaðar í gegn.
Fyllingar í brúnar
bolludagsbollur
1. Hrærið frosin hindber og hind-
berjasultu saman, setjið rjóma ofan
á, og að síðustu brætt hvítt súkku-
laði.
2. Setjið neðst kókoskrem (svipað
og marsipan), rifsber og rjóma þar
næst og súkkulaðikrem efst (má
nota brúnan flórsykur og vatn
hrært saman).
3. Setjið neðst kirsuberjasultu, þá
rjóma sem hefur verið hrærður
saman við rjómaost og vanillu-
essens og smávegis flórsykur. Strá-
ið flórsykri yfir.
Vatnsdeigsbollur
20 bollur
125 g smjör
2 dl vatn
125 g hveiti
4 egg
Sjóðið saman smjör og vatn og
hrærið hveiti út í þangað til deigið
er samfellt og þykkt. Kælið deigið
svolítið áður en það er sett í hræri-
vélarskál. Þeytið blönduna og setjið
eggin saman við, eitt og eitt í einu
og þeytið vel. Best er að setja ekki
öll eggin út í deigið, frekar brjóta
það síðasta í skál, þeyta létt með
gaffli og hræra svo saman við deig-
ið smátt og smátt þar til deigið er
hæfilega þykkt. Það má ekki vera
mjög þunnt því þá renna bollurnar
út. Formið 20 bollur og setjið á ofn-
plötu klædda bökunarpappír. Bakið
í miðjum ofni við 180°C í um það bil
20 mínútur. Opnið ofninn varlega ef
þarf meðan bollurnar eru að bakast
því að þær geta fallið og helst á
ekki opna ofninn fyrr en í lok bök-
Eitthvað fyrir alla Það er sniðugt að láta hvern og einn setja fyllingu í sínar bollur.
Næstu dagar eru samkvæmt
gamalli hefð e.k. föstuinngangur
en áður fyrr fastaði fólk í sjö vik-
ur fyrir páska og voru því haldn-
ar matarhátíðir síðustu dagana
áður en meinlætatímabilið,
langafastan, hófst. Með tímanum
urðu sprengidagur og bolludag-
ur að hefð sem flestir halda í þó
fáir haldi föstuna. Heiða Björg
Hilmisdóttir lumar á nokkrum
góðum bolludagsuppskriftum.
Litrík og ljúffeng Svona glæsileg bolla sómir sér vel á hvaða veisluborði sem er.
Brúnar bolludagsbollur Hvers vegna ekki að prófa eitthvað nýtt á bolludaginn?
Morgunblaðið/Sverrir
Bolla, bolla
matur
28 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ