Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Teitur Kjart-ansson, fyrrver- andi bóndi í Flag- bjarnarholti í Landsveit, fæddist í Auðsholti í Hruna- mannahreppi 10. júlí 1918. Hann lést á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu þriðjudaginn 6. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Margrét Jó- hannsdóttir hús- móðir, f. 19. mars 1889, d. 22. október 1951 og Kjartan Stefánsson bóndi og odd- viti, f. 30. júlí 1885, d. 6. apríl 1966. Systkini Teits eru Stefán bóndi í Flagbjarnarholti, f. 17. nóvember 1916, d. 8. apríl 1972, Jóhann Grétar, f. 10. nóvember 1920, d. sama ár, Brynjólfur, f. 15. janúar 1923, d. 25. febrúar 1939, Magnús bóndi í Hjallanesi, f. 5. júní 1924 og Jóhanna húsmóðir í Reykjavík, f. 15. ágúst 1926, d. 11. apríl 1993. Teitur kvæntist 21. febrúar 1953, Ingunni Kjartansdóttur, f. 24. maí 1923, d. 4. september 2000. Foreldrar hennar voru Kristrún Guðjónsdóttir húsmóðir, dóttir 1944. 3) Kristján Þór Han- sen málari, f. 10. júlí 1950, kvænt- ur Sigurbjörgu Egilsdóttur, f. 1. ágúst 1950. Þau búa á Sauð- árkróki. Börn þeirra eru Kristján Örn, hann á tvö börn, Ásdís, hún á tvö börn, Egill Jón, hann á tvö börn, og María, hún á tvö börn. Teitur fór til náms í Héraðs- skólann á Laugarvatni og eftir það vann hann við ýmis störf og m.a. við smíðar og verkamanna- vinnu í Reykjavík á stríðsárunum. Síðan flutti hann aftur til foreldra sinna og tók þátt í bústörfum þeirra. Í heimasveit sinni var hann m.a. þátttakandi í bún- aðarfélaginu, ungmennafélaginu og kirkjukórnum auk þess að sitja í hreppsnefnd um árabil. Teitur stofnaði ásamt fleirum fiskeld- isstöðina Búfisk í Laugum og í kjölfar þess stofnaði hann ásamt nágrönnum sínum hitaveitu, sem starfrækt er í dag og flytur vatn til margra bæja í nágrenninu. Auk hefðbundins alhliða búskapar stundaði hann skógrækt á jörð sinni í allmörg ár og eftir að hann seldi jörð og bústofn skildi hann eftir land þar sem hann byggði sér hús á skógræktarsvæði sínu, þar sem hann bjó, þar til hann flutti alfarinn á Dvalarheimilið Lund á Hellu í október 2003. Útför Teits verður gerð frá Skarðskirkju í Landsveit í dag og hefst athöfnin klukkan 14. f. 10. júní 1895, d. 14. júní 1976 og Kjartan Jónsson trésmiður, f. 21. september 1899, d. 24. mars 1989. Börn Teits og Ing- unnar eru: 1) Brynj- ólfur húsasmíða- meistari, f. 5. apríl 1953, maki Guðrún Svandís Þorleifs- dóttir leikskólakenn- ari, f. 25. júlí 1958. Þau búa í Sønder- borg í Danmörku. Börn þeirra eru Baldvin Ósmann, Ingunn Fjóla og Bryndís Björk. 2) Margrét bókari, f. 30. júní 1954. Hún býr í Reykja- vík. Fyrrv. maki, Valmundur Gíslason bóndi, f. 8. júlí 1953. Börn þeirra eru Gísli, Teitur Ingi, hann á 1 barn, Stefán og Kristrún Ósk. Börn Ingunnar fyrir hjóna- band eru: 1) Kristrún Kjartans saumakona, f. 22. september 1942. Faðir Michael Denning. Gift Að- albirni Þór Kjartanssyni húsa- smíðameistara, f. 8. febrúar 1943. Þau búa í Reykjavík. Börn þeirra eru Katrín Björg, hún á þrjú börn og tvö barnabörn, Kjartan, dreng- ur, andvana fæddur og Þorsteinn, hann á eitt barn. 2) Andvana fædd Mig langar að minnast nokkrum orðum stjúpföður míns, Teits Kjartanssonar, sem ég kynntist níu ára gömul árið 1951, þegar móðir mín, Ingunn Kjartansdóttir, fór sem ráðskona til föður hans, Kjart- ans Stefánssonar, sem þá var bóndi í Flagbjarnarholti. Kjartan hafði þá nýlega misst konu sína, Margréti Jóhannsdóttur. Teitur minntist oft móður sinnar sem hann dáði svo mjög og var sérstaklega kært með þeim. Á þessum tíma var Teitur bónda- sonurinn á bænum og giftust hann og móðir mín fljótlega og ég eign- aðist tvö systkin, Brynjólf og Mar- gréti. Þetta var mikil breyting hjá mér borgarbarninu en ég fann mig fljótt í sveitinni, kannski ekki síst fyrir það að eignast svo góðan stjúpa. Teitur ól mig upp sem sína eigin dóttur sem ég met mikils. Hann ávarpaði mig alltaf „Dúna mín“. Þess vegna segi ég, Teitur minn, þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og gerðir fyrir mig. Það hefði enginn getað gert betur, elsku Teitur minn. Guð geymi þig. Þín Kristrún Kjartans (Dúna). Ástkær tengdafaðir minn Teitur er látinn. Hann lagði þreyttur en sáttur aftur augun hinsta sinni, hinn 6. febrúar sl. Með honum er genginn góður maður. Maður sem lifði í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Elsku Teitur, á þessum tímamót- um er ástæða til að staldra við og rifja upp. Rifja upp allt það góða sem tengist þér. Það var gott að vera tengdadóttir þín og á milli okkar myndaðist dýrmæt vinátta. Eitt af því fyrsta sem ég tók eftir í fari þínu var umönnunareðli þitt. Þú hlúðir að fólkinu þínu, dýrunum og jörðinni þinni af stakri nærgætni og skilyrðislausri ást. Ást þín og virðing fyrir móður þinni, visku hennar og framsýni var þér sterkt leiðarljós. Því náðir þú að miðla til þinna afkomenda. Jákvætt lífsvið- horf þitt og framsýni voru einnig sterkir þættir í þínu fari. Ég hef alltaf dáðst að því að þegar þú hættir bústörfum vegna aldurs ákvaðstu að fara í skógrækt. Það segir mikið til um þá þolinmæði og framsýni sem þér var gefin. Þú varst að þessu fyrir komandi kyn- slóðir því lífið heldur áfram þó við hverfum eitt af öðru úr þessari jarðvist. Veturnir sem við fengum að njóta þess að hafa þig hjá okkur í Sönderborg eru ómetanlegir í minningarsjóði okkar. Þú naust þess að vera hjá okkur, hafa hlut- verk. Það var þér mikilvægt. Hjá okkur sástu um að taka á móti stelpunum úr skólanum, viðra Laugu og sjá til þess að brenniofn- inn fengi nægan eldivið til að hita húsið. Þá var nú gott að við gátum farið í danska skóginn með íslenska skógræktarbóndanum og fellt tré og flutt heim. Já, það þurfti mörg tré þegar þú sást um ofninn. Áhugi þinn á skógrækt var mikill og við höfðum nú smá gaman af því þegar þú fórst í fyrsta skipti að sjá soninn spila fótbolta þá var áhuginn meiri á trjánum umhverfis fótboltavöll- inn. Náttúran var í blóði þínu. Já, þær eru margar góðu minningarnar sem þú gafst okkur. Guð blessi minningu þína. Þín Guðrún. Tengdafaðir minn, Teitur Kjart- ansson, fyrrv. bóndi í Flagbjarn- arholti, Landsveit, lést á Dvalar- heimilinu Lundi á Hellu þriðjudaginn 6. febrúar sl. Hann hafði átt við vanheilsu að stríða síð- ustu misseri, en heilsu hans hrakaði svo fyrir u.þ.b. tveimur vikum og var þá nokkuð ljóst hvert stefndi og veit ég að hann var sáttur orðinn við sitt lífshlaup, hátt í nírætt. Teiti kynntist ég árið 1960, er ég kom í Flagbjarnarholt með konu- efni mínu, Kristrúnu (Dúnu), sem ég hafði kynnst í Skógaskóla, en hún var stjúpdóttir Teits. Ég sá strax hversu hænd hún var að stjúpföður sínum, en hann bar flesta þá kosti sem prýtt geta einn mann. Teitur gekk Dúnu í föður- stað frá fyrstu tíð eins og sínu eigin barni og fann ég aldrei fyrir öðru sem tengdasonur en að þar færu feðgin. Hann bar alla tíð hag okkar fjölskyldunnar fyrir brjósti jafnt sem sinna eigin. Teitur fór ungur til náms í Hér- aðsskólann á Laugarvatni og eftir það stundaði hann ýmsa vinnu, m.a. í Reykjavík á stríðsárunum áður en hann flutti aftur í sveitina til að taka þátt í bústörfum foreldra sinna. Fljótlega eftir giftingu tóku Teitur og Ingunn við búskapnum og bjuggu þar fyrst ein með börn- um sínum og síðar félagsbúi með Margréti dóttur sinni og Valmundi, fyrrverandi eiginmanni hennar. Teitur var farsæll og góður bóndi. Búskapur hans gekk vel og var umönnun bústofns, jarðar, húsakosts og véla til fyrirmyndar. Hann var vel liðinn af sveitungum sínum og starfaði að ýmsum málum í sveitinni. M.a. sat hann í hrepps- nefnd um árabil. Árið 1987 stofnaði hann, ásamt fleirum, fiskeldisstöðina Búfisk í Laugum á bökkum Þjórsár sem að hluta eru í landi Flagbjarnarholts. Frá náttúrunnar hendi er þetta ein- hver besta stöð til seiðaeldis á land- inu. Í kjölfar þess stofnaði hann ásamt nágrönnum sínum hitaveitu sem flytur vatn til húshitunar fjölda bæja í nágrenninu. Að þessu svæði lagði hann síðan veg í félagi við aðra. Á síðustu árum búskapar síns tók Teitur til við að græða landið skógi. Valdi hann til þess landsvæði norð- ur af bænum þar sem meðal annars er kennileiti eitt sem heitir Vörður þaðan sem útsýni er sérlega fagurt til allra átta. Eftir að búskap lauk árið 1998 seldi hann jörð og bú- stofn, en skildi eftir landsvæði þar sem þau hjón byggðu sér fallegt hús í skógarreitnum sem þau gáfu nafnið Vörður. Þar átti að eyða ævi- kvöldinu. En því miður gekk það ekki eftir. Ingunn gekkst undir hjartaaðgerð haustið 1999 sem tókst vel en í kjölfarið veiktist hún af krabbameini og lést í september árið 2000 og var það mikið áfall. Teitur lauk samt smíði hússins og flutti þar inn og hélt áfram hugð- arefni sínu, skógræktinni, af fullum áhuga meðan kraftar og heilsa leyfðu. Léleg lungu urðu honum þó fjötur um fót, að arka um þýfðar grundir með hríslur og verkfæri í höndum auk þess að fylgjast með girðingum og er með ólíkindum hverju hann fékk áorkað svona á sig kominn. Um ókomna tíð mun þetta landsvæði bera Teiti Kjart- anssyni fagurt vitni þar sem hann hefur gróðursett tugþúsundir plantna sem dafna vel. Fljólega eftir að Teitur fór að búa einn í Vörðum keyrði hann nánast daglega niður á Hellu á Dvalarheimilið Lund, 25 km hvora leið, til að hvíla sig frá skógrækt- inni, hitta kunningja og fá sér snarl, því kokkarí var ekki hans sérgrein. Það var síðan 29. október 2003 sem hann flutti alfarið á Lund þar sem hann undi hag sínum vel. Nokkrum sinnum þurfti að flytja Teit á sjúkrahús til Reykjavíkur eða Sel- foss vegna krankleika, en alltaf sneri hann aftur og oft hress sem aldrei fyrr. Nú er minn elskulegi tengafaðir allur og sáttur við guð og menn. Við Dúna og fjölskyldur þökkum hon- um ánægjulega og eftirminnilega samfylgd sem aldrei bar skugga á. Ég vil að lokum geta þess hversu vel börnin hans sáu um hann. Fyrstu árin eftir lát Ingunnar buðu Brynjólfur og Guðrún honum að dvelja hjá sér vetrarlangt í Dan- mörku í tvo vetur þar sem hann undi hag sínum vel. Þá hefur Mar- grét verið dugleg við að heimsækja föður, auk þess að hafa vökult auga með húsinu í Vörðum. Öllu starfsfólki á spítulum sem annaðist hann þökkum við af alhug fyrir frábæra umönnun, en sérstak- lega þó starfsfólkinu á Lundi. Teitur Kjartansson✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐMUNDUR JÓNASSON, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 19. febrúar kl. 13.00. Magnús Guðmundsson, Stella B. Baldvinsdóttir, Ævar Guðmundsson, Guðrún B. Eyjólfsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér og aðstandendum mínum samúð og hlýju við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu minnar, EDITH DAM RAGNARSSONAR, Vík í Mýrdal. Fyrir hönd barna, barnabarna og langömmubarna, Reynir Ragnarsson, Vík í Mýrdal. ✝ Þökkum öllum þeim sem veittu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra ÁSGEIRS ÁRMANNSSONAR bókbindara, Ásgarði 63. Fyrir hönd aðstandenda, Lára Herbjörnsdóttir. ✝ Hjartkær eiginmaður minn, KOLBEINN ÞORGEIRSSON múrari, Víkurbraut 32, Höfn, Hornafirði, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju í Kópavogi mánudaginn 19. febrúar kl. 13.00. Minningarathöfn verður haldin í Hafnarkirkju laugardaginn 17. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á minningarsjóð Skjól- garðs eða Félag aðstandenda Alzheimerssjúkra, sími 533 1088 eða 898 5819. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Jóhanna D. Magnúsdóttir. ✝ Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, BENEDIKTS HÁKONAR INGVARSSONAR frá Ytri Skógum. Sérstakar þakkir til Önnu Mörtu Guðmundsdóttur og séra Ragnheiðar Karitasar Pétursdóttur. Brynhildur Sigtryggsdóttir, Ingibjörg Sigtryggsdóttir, Ólína Sigtryggsdóttir, Jóhanna Sigtryggsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar, frænku, mágkonu og svil- konu, ÖLFU ÞORBJARGAR HJÁLMARSDÓTTUR lyfjafræðings. Sérstakar þakkkir til starfsfólks á deild V3 á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir góða umönnun. Erla H. Hjálmarsdóttir, Hjálmar V. Hjálmarsson, Sigríður Gísladóttir, Áslaug Ásmundsdóttir, Ingveldur Ásmundsdóttir, Kristín Jónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.