Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ AÐALMEÐFERÐ Í BAUGSMÁLINU Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SAKSÓKNARI hélt í gær áfram ít- arlegum spurningum sínum til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem svaraði oft einnig ítarlega og endurtók á stundum eða ítrekaði fyrri svör. Um- fjöllunarefnið í gær var fyrst og fremst meintur fjárdráttur í tengslum við rekstur skemmtibátsins Thee Vik- ing og samskipti og viðskipti Jóns Ás- geirs og föður hans við Jón Gerald Sullenberger. Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson eru í ákærulið 18 sakaðir um að hafa á ár- unum 2000–2002 látið Baug greiða 32 milljónir til að fjármagna eignarhlut Gaums í bátnum. Þetta hafi verið gert með því að láta Baug greiða reikninga frá Nordica sem hljóðuðu upp á styrk vegna markaðsstarfa sem báru yfir- skriftina „contract fee for retail serv- ices commissions finders fees and consulting work“. Líkt og von var á voru saksóknar- inn og Jón Ásgeir varla sammála um einn einasta hlut sem laut að þessum ákærulið. Jón Ásgeir sagði að Gaum- ur hefði aldrei eignast hlut í þessum bát heldur hefði félagið lánað Jóni Gerald til kaupanna, bæði á Thee Vik- ing og forvera hans. Spurði hann sak- sóknara oft hvort einhvers staðar væri til skjal sem staðfesti eignarhlut- inn en því var ekki svarað. Aðspurður sagði Jón Ásgeir að aldrei hefði verið gerður skriflegur lánasamningur enda hefði verið mikill vinskapur á milli manna og einfalt handtak dugað en það hefði síðan heldur betur breyst. Út af þessum báti urðu árið 2003 málaferli í Bandaríkjunum sem sner- ust um kröfur Baugsfeðga á hendur Jóni Gerald um að eignarhlutur þeirra í bátnum yrði viðurkenndur. Sigurður Tómas vísaði ítrekað í fram- burð Jóhannesar Jónssonar fyrir hin- um bandaríska dómstóli og sagði hann í verulegu ósamræmi við það sem kom fram hjá Jóni Ásgeiri í gær. Hjá Jóhannesi hefði m.a. komið fram að Gaumur hefði kostað viðhald, af- borgarnir af lánum og öll útgjöld. Jón Ásgeir sagði að stundum hefði hann persónulega greitt einhvern kostnað en yfirleitt hefðu öll framlög verið í formi lána. Síðar hefði hann sótt að lánum yrði breytt í eign en því hefði Jón Gerald þverneitað og að lokum selt bátinn að honum forspurðum. Hann neitaði annars að mestu að tjá sig um framburð Jóhannesar og sagði að saksóknarinn gæti spurt hann síð- ar. Var Myramar til? Drjúgur tími fór í að spyrja um bankaábyrgð vegna kaupa á fyrsta bátnum á Flórída sem saksóknarinn sagði að Bónus sf. hefði verið látinn veita til bátakaupanna en hún væri fyrir sömu fjárhæð og lán sem Jón Gerald hefði tekið á sama tíma, hjá sama banka fyrir bátnum. Jón Ásgeir sagði ábyrgðina alls ekki vera vegna bátsins heldur ábyrgðar vegna vöru- kaupa. Lagði hann fram skjal frá um- ræddum banka máli sínu til stuðnings sem hann sagði að sýndu glögglega fram á þetta, ábyrgðin hefði verið vegna yfirdráttarheimildar vegna vörukaupa. Þessa gagns hefði ríkis- lögreglustjóri ekki hirt um að afla, jafnvel þó að það hefði kostað litla fyr- irhöfn. Þetta væri reyndar dæmigert fyrir rannsóknina. Sigurður Tómas benti m.a. á að skilmálum ábyrgðarinnar hefði verið breytt og hún gerð almennari en svo að hún næði aðeins til vörukaupa. Jón Ásgeir ítrekaði fyrri svör og spurði hvort það væri verið að ákæra vegna bankaábyrgðar. Því neitaði saksókn- arinn og bætti við: „Það er verið að reyna að sýna fram á að þú sért að segja ósatt.“ Meðal þeirra gagna sem saksóknari vísaði til var skjal sem fannst í tölvu Tryggva Jónssonar með yfirskrift- inni: „Talvert þarf að gera“ og snerti bollaleggingar um hvernig ætti að skipta eignarhlut í Thee Viking á milli Jóns Ásgeirs, föður hans og Jóns Ger- alds. Saksóknarinn sagði að í skjalinu kæmi fram að senda ætti reikninga vegna bátsins til „b/g“ með sama texta og notaður var til að innheimta greiðslur frá Baugi þ.e. „contract fee for retail services commissions find- ers fees and consulting work“. Spurð- ur hvort þetta væru hugmyndir hans, sagði Jón Ásgeir að hann hefði ekki búið þetta skjal til og ítrekaði að hvað sem stæði á þessu skjali hefði hug- myndum sem þar kæmu fram aldrei verið hrint í framkvæmd. Í skjalinu var sömuleiðis rætt um að hlutur Jóns Ásgeirs og Jóhannesar yrði færður til eignarhaldsfélags á Bahamas sem héti Myramar. Jón Ásgeir benti á móti á að hann hefði engin skjöl séð sem bentu til þess að Myramar hefði orðið til. Tjónið nam 260 milljörðum Þegar kom að spurningum verj- anda til Jóns Ásgeirs var farið ítar- lega yfir eðli viðskipta Baugs við Nordica, fyrirtæki Jóns Geralds. Jón Ásgeir sagði að sams konar starfsemi hefði verið innt af hendi í Danmörku af hálfu annars fyrirtækis og greiðslur til þeirra hefðu verið fylli- lega sambærilegar og raunar með sambærilegum texta og í reikningun- um frá Nordica sem ákært er fyrir. Lögregla hefði hins vegar ekkert grennslast fyrir um þau viðskipti. Ítarlega var farið yfir vinslit og lok viðskipta við fyrirtækið og sagði Jón Ásgeir m.a. að þegar kom fram á árið 2002 hefði yfirmaður innkaupa hjá Baugi talið óverjandi að halda við- skiptunum áfram þar sem þau borg- uðu sig ekki. Jón Ásgeir kvaðst hvorki hafa þrýst á að þeim yrði haldið áfram né þeim hætt en á þessum tíma hefði vinskapurinn súrnað, einkum vegna þess að ekki náðist samkomulag um að Gaumur ætti hluti í Thee Viking. Endanlega hefði slitnaði upp úr við- skiptunum vorið 2002 og vísaði Jón Ásgeir til tölvubréfs frá Jóni Gerald til Tryggva Jónssonar hinn 8. maí 2002 þar sem hann sagðist standa uppi með tvær hendur tómar eftir 10 ára viðskipti við feðgana. Í skjalinu hefðu einnig verið drög að samningi sem Jón Gerald hefði virst hafa fallist á. Síðan hefði Fréttablaðið leitt í ljós að sama dag hefði Jónína Benedikts- dóttir sent Styrmi Gunnarssyni, rit- stjóra Morgunblaðsins, tölvubréf um að Jón Gerald væri illur út í feðgana og hvort Davíð væri til í að hringja í hann. Þarna hefði atburðarás farið af stað sem hefði leitt til húsleitarinnar í aðalstöðvum Baugs sem hefði m.a. kostað félagið um 260 milljarða þar sem það hefði orðið af yfirtöku á Ar- cadia. Gestur Jónsson las einnig upp tölvubréf frá Jóni Gerald þar sem Jón Ásgeir er sakaður um að reyna að fara á fjörurnar við eiginkonu Jóns Ger- alds. Þetta væri kolrangt, sagði Jón Ásgeir en sýndi að af hálfu Jóns Ger- alds hefðu það ekki verið viðskipti sem skiptu máli undir lokin. Morgunblaðið/ÞÖK Dæma Héraðsdómararnir Arngrímur Ísberg dómsformaður og Jón Finnbjörnsson ásamt Garðari Valdimarssyni meðdómara ganga í réttarsal. Eignaðist ekki bátinn Í HNOTSKURN Dagur 4 » Saksóknari heldur áfram ít-arlegri yfirheyrslu sinni yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, nú um skemmtibát, Thee Viking. » Jón Ásgeir og TryggviJónsson eru ákærðir fyrir fjárdrátt með því að hafa á tímabilinu 20. janúar 2000 til 11. júlí 2002 látið Baug greiða 32 milljónir til að fjármagna eignarhlutdeild Gaums í bátn- um. » Jón Ásgeir neitar sök ogsegir Gaum aldrei hafa eign- ast hlut í bátnum þótt sóst hefði verið eftir því að lánum yrði breytt í eign. » Saksóknarinn vísar m.a. ískjal sem fannst í tölvu Tryggva Jónssonar með yfir- skriftinni: „Það sem þarf að gera“ sem hann telur sýna að ákveðið var að Baugur greiddi kostnað við bátinn. » Jón Ásgeir segir húsleitríkislögreglustjóra í höf- uðstöðvum Baugs hafa orðið til þess að Baugur missti af 260 milljarða hagnaði af Arcadia. » Jón Ásgeir bendir enn ádæmi sem hann segir sýna að lögregla kannaði ekki ábend- ingar sakborninga. Bátur á Flórída, upphaf Baugsmálsins og eignarhaldsfélag sem ekki er til „ÞAÐ er við engan að sakast nema settan ríkissaksóknara,“ sagði Arngrímur Ísberg dóms- formaður eftir að hann hafði stöðvað yfirheyrslu saksóknarans yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í gær. Saksóknarinn mótmælti harðlega en dómarinn sagði málið útrætt. Þinghaldið í gær hófst klukkan 13 og um klukkan 14.45 spurði Arngrímur Ísberg dómsformaður Sigurð Tómas, settan ríkis- saksóknara, hversu langan tíma hann teldi að það tæki hann að klára yfirheyrsluna og fékk það svar að líklega væru um þrír klukkutímar eftir. Arngrímur til- kynnti þá að saksóknari yrði að ljúka spurningum sínum klukkan 16.15, þá yrði gert 15 mínútna hlé og síðan gætu verjendur spurt til klukkan 18. Sigurður Tómas mót- mælti þessu harðlega og kvað þetta geta stefnt sönnunarfærslu sinni varðandi lið 18, sem varðar meintan fjárdrátt í tengslum við rekstur Thee Viking, í tvísýnu. Dómarinn stóð við ákvörðun sína og stöðvaði Sigurð Tómas í miðri spurningu klukkan 16.15. Enn mótmælti Sigurður Tómas og sagðist eiga þriðjung spurning- anna varðandi ákærulið 18 eftir. Krafðist hann þess að skýrslutöku af ákærða myndi a.m.k. ljúka áður en vitni kæmu fyrir dóminn til að gefa skýrslu en það verður 26. febrúar. Arngrímur var hvass og minnti á að það hefðu verið málflytjend- urnir, þ.e. saksóknari og verj- endur, sem hefðu búið til dag- skrána. Því miður hefði hún farið úr böndunum og það væri alvar- legt mál. Ætlaði saksóknarinn sér að yfirheyra vitni með sama hætti og Jón Ásgeir væri t.d. ljóst að yf- irheyrsla yfir Jóhannesi Jónssyni tæki ekki 100 mínútur heldur tvo daga. Aðeins degi áður hefði verið gengið út frá því að lokið yrði við yfirheyrslur klukkan 18. Aftur mótmælti Sigurður Tóm- as og sagði að það hefði aðeins verið dómarinn sem hefði nefnt að ljúka ætti við skýrslutökur í heild, þ.á m. spurningar verjenda, klukkan 18. Arngrímur stóð fast við ákvörðun sína og gaf verjanda Jóns Ásgeirs orðið. Í gærkvöldi höfðu saksóknari og verjandi ekki komist að nið- urstöðu um hvenær skýrslutöku yfir Jóni Ásgeiri verður haldið áfram. Í dag klukkan 9.15 hefst yfirheyrsla saksóknarans yfir Tryggva Jónssyni. Saksóknarinn stöðvaður í miðri spurningu Morgunblaðið/Sverrir Stöðvaður Sigurði Tómasi Magnússyni tókst ekki að ljúka yfirheyrslunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.