Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ SENDUM Í PÓSTKRÖFU www.simnet.is/heilsuhorn Spektro Multivítamín, steinefnablanda ásamt spirulinu, Lecthini, Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum Ein með öllu Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889, fæst m.a. í Lífsins Lind í Hagkaupum, Maður Lifandi Borgartúni 24, Maður Lifandi Hæðarsmára 6, Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi, Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum, Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka, Krónan Mosfellsbæ Nóatún Hafnarfirði Morgunblaðið/RAX Umdeild Notkun nagladekkja er mjög útbreidd yfir vetrartímann. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is DOFRI Hermannsson, varaborgar- fulltrúi Samfylkingarinnar, segir einkar brýnt að draga úr notkun nagladekkja á höfuðborgar- svæðinu, öryggi þeirra sé ofmetið og halda þurfi herferðum gegn notkun þeirra áfram fram eftir vetri. Dofri leggur jafnframt áherslu á að naglarnir eigi stóran þátt í svif- ryksmyndun í borginni, sem hafi í för með sér margháttaðan heilsufars- kostnað fyrir samfélagið. Hann segir herferð gegn notkun þeirra, sem hófst í haust, nýlokið og að flest bendi til að hún hafi borið góðan árangur, nagladekkjanotkun hafi mælst um 40% fyrstu mánuðina. „Þetta hafði semsagt áhrif,“ segir Dofri. „Svo var hætt að leggja áherslu á þetta. Það mátti álykta að kannski væru flestir búnir að ákveða á hvernig dekkjum þeir ætluðu að vera í vetur. Það virðist vera að fólk sé tilbúið að skipta yfir í nagladekkin alveg fram í desember, janúar. Ég álykta því svo að halda þurfi átakinu miklu lengur áfram.“ Gögnin verði á vefsíðunum Eins og Morgunblaðið hefur rakið í umfjöllun sinni um svifryk að und- anförnu eru veðurfarslegar aðstæður og aukið vegslit vegna frostþýðu- sveiflna einnig orsakavaldar í þessu samhengi. Þorsteinn Jóhannsson jarðfræðingur taldi í samtali við blað- ið að magn ryksins sem væri á yf- irborði veganna næði tilteknu há- marki, umframmagnið dreifðist yfir á umferðareyjur og næsta nágrenni. Því væri mikilvægt að binda rykið með saltpækli í þurrum veðrum. Aðspurður um með hvaða hætti hann teldi að draga mætti úr svif- rykinu í höfuðborginni sagði Dofri að fara þyrfti af stað með kynningar- átak til að upplýsa almenning um skaðsemi svifryksins á heilsufar. „Það þyrfti að fá þetta inn á vef Morgunblaðsins, rétt eins og veð- urspá. Það þyrfti að geta um magn svifryksins í andrúmsloftinu í veður- fréttunum. Þá held ég að fólk yrði meðvitaðra. Ég held líka að fara þurfi af stað með auglýsingaherferðir sem yrðu unnar af okkar ágæta fagfólki á umhverfissviði. Mér dettur í hug að það mætti auglýsa „nagladekkja- lausa bílinn“ til að hvetja fólk frekar til að nota þá bíla sem eru ekki á nagladekkjum og jafnvel hvetja það til að skipta snemma yfir á sumar- dekkin eða heilsársdekk. Það mætti gera þetta sýnilegra, fræða almenning um skaðsemi svif- ryksins og tala um það í útvarpinu í veðurfréttum eins og til dæmis er tal- að um frjókornamagn í lofti þegar sá tími ársins rennur upp. Næsta skref er að draga mjög úr notkun nagladekkjanna. Þau eru úr- elt og veita falskt öryggi.“ Dýrt að þrífa leigubílana Dofri vék að ofangreindum hug- myndum í tveimur tillögum sem hann lagði fram á fundi Umhverfis- ráðs Reykjavíkurborgar á mánudag. Vikið er að kostnaðinum samfara nagladekkjanotkun í þeirri síðari og segir Dofri, spurður um þá hlið, að naglarnir hafi í för með sér veruleg útgjöld fyrir samfélagið. Hann tekur dæmi af leigubílstjórum í borginni sem hafi tjáð honum að kostnaðurinn við þrif bifreiða aukist mjög þegar nagladekkin komi í umferð. Upplýsingar um rykið með veðurfréttunum Í HNOTSKURN »Dofri telur koma til álitaað leggja skatt á notkun nagladekkja samkvæmt svo- kallaðri mengunarbótareglu. »Skatturinn myndi minna áþau samfélagslegu útgjöld sem notkun þeirra leiðir til. Dofri Hermannsson vill að gögn um svifryksmengun í borginni verði gerð meira áberandi og aðgengilegri Dofri Hermannsson KJÖR íþróttamanns Seltjarnarness fór fram þriðjudaginn 23. janúar sl. að viðstöddu fjölmenni. Kjör íþrótta- manns Seltjarnarness hefur verið árviss viðburður síðan 1993 og er í umsjón æskulýðs- og íþróttaráðs (ÆSÍS). Tilnefnd til íþróttamanns Sel- tjarnarness 2006 voru Finnur Ingi Stefánsson, handknattleikur, Hrafn Jónsson, knattspyrna, Kári Steinn Karlsson, frjálsar íþróttir, Katrín Ómarsdóttir knattspyrna, Lilja Jónsdóttir, blak og Skúli Jón Frið- geirsson, knattspyrna. Fyrir valinu urðu Lilja Jónsdóttir og Kári Steinn Karlsson. Formaður ráðsins Lárus B. Lár- usson færði formanni fimleikadeild- ar Gróttu, Þóru Sigurðardóttur, af- reksstyrk að upphæð 200.000 kr. fyrir góðan árangur árið 2006. Ásamt kjöri íþróttamanns ársins voru efnilegu íþróttafólki veittar viðurkenningar. Félagsmálafrömuðir Veittar voru viðurkenningar fyrir vel unnin störf í þágu æskulýðs- og tómstundamála. Þau sem hlutu við- urkenningarnar að þessu sinni voru Kristín Helga Magnúsdóttir og Kristinn Arnar Ormsson. Lárus B. Lárusson, formaður ÆSÍS, færði þeim Sif Pálsdóttur fimleikakonu og Guðjóni Val Sig- urðsyni handknattleiksmanni og íþróttamanni ársins 2006 bókargjöf frá bæjarfélaginu. Guðjón Valur æfði með Gróttu á sínum yngri árum og Sif hefur æft fimleika hjá Gróttu undanfarin ár. Erla Guðmundsdóttir tók við bók- argjöfinni fyrir hönd Guðjóns Vals. Íþróttir Kári Steinn Karlsson langhlaupari og Lilja Jónsdóttir blakkona. Íþróttamenn heiðr- aðir á Seltjarnarnesi ELSTA starfandi sólbaðsstofa landsins, Stjörnusól á Akureyri, er 20 ára um þessar mundir og af því tilefni er öllum boðið á afmælis- hátíð sem haldin verður í Sjallanum á morgun, laugardagskvöld, frá kl. 24. Boðsmiðar verða afhentir í af- greiðslu Stjörnusólar til kl. 19 á morgun. Eigendur Stjörnusólar eru Rósa Sveinbjörnsdóttir og Gunnar Sig- tryggsson. Fyrirtækið hefur frá upphafi verið til húsa í Geislagötu 12. Afmælishátíð Stjörnusólar AKUREYRI ÆFINGAR eru hafnar af fullum krafti á Lífinu – notkunarreglum, nýju leikriti Þorvaldar Þorsteins- sonar, hjá Leikfélagi Akureyrar í hans gamla heimabæ. Þetta er fyrsta verkið sem Þorvaldur skrifar fyrir LA. Sýningin er samstarfsverkefni leiklistardeildar Listaháskóla Ís- lands og LA en það er útskrift- arárgangur leiklistardeildarinnar sem leikur í verkinu ásamt fastráðn- um leikurum félagsins. Magnús Þór Jónsson, Megas, hef- ur samið tónlist við verkið en þar er m.a. að finna 10 ný sönglög við texta Þorvaldar. Magga Stína útsetur, stýrir tónlistinni í sýningunni og tek- ur þátt í flutningi verksins. Einn reyndasti leikstjóri landsins, Kjartan Ragnarsson, leikstýrir sýn- ingunni. Leikskáldið Þorvaldur hannar sjálfur leikmynd og búninga og er það í fyrsta skipti sem hann tekst á við það í leikhúsi, þótt hann sé þekktur myndlistarmaður. Leikarar í sýningunni eru Guðjón Davíð Karlsson, Ólafur Steinn Ing- unnarson, Páll Sigþór Pálsson, Þrá- inn Karlsson, Vignir Rafn Valþórs- son, Sigrún Huld Skúladóttir, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Sara Marti Guðmundsdóttir, Magnús Guð- mundsson, Kristín Þóra Haralds- dóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Anna Svava Knútsdóttir og Hallgrímur Ólafsson. Frumsýning verksins verður 17. mars í Rýminu. Æfa notkunarreglur Þorvaldar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lífið Hópurinn sem setur verkið upp. Megas er lengst til vinstri í fremri röð og Þorvaldur lengst til hægri. Í HNOTSKURN »Fyrsta verk ÞorvaldarÞorsteinssonar fyrir LA. Þorvaldur hannar í fyrsta skipti leikmynd og búninga. »Megas semur í fyrstaskipti tónlist við heilt leik- rit. Magga Stína útsetur og stjórnar tónlistarflutningi. NORÐURVEGUR, eins og hann hefur verið kynntur af hálfu fyrir- tækisins Norðurvegar ehf., er fráleit hugmynd að mati stjórnar Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi. „Það sem eitt og sér útilokar slík- an veg er að veglína hans sker í miðju Friðlandið í Guðlaugstungum sem var friðlýst með reglugerð í des- ember 2005,“ segir í ályktun stjórn- ar. SUNN leggjast auk þess gegn áformum um gerð Norðurvegar um Kjöl, frá Gullfossi að Silfrastöðum í Skagafirði, m.a. vegna þessa:  Framkvæmdin er í hróplegu ósamræmi við hugmyndir um lítt snortin víðerni á hálendinu og þá upplifun sem ferðalag í óbyggðum milli jökla veitir ferðafólki. Endur- bætur á Kjalvegi koma til greina ef þær framkvæmdir falla að landinu. Helber ósvífni  Sú stytting sem næst með þessari vegtengingu milli Reykjavíkur og Akureyrar er ekki nema um 22 kmsé tekið tillit til styttinga sem áform- aðar eru á hringveginum auk þess sem vegur, sem á meirihluta leiðar- innar er yfir 500 m yfir sjávarmáli, er varhugaverður að vetrarlagi.  Veglínan er ný mestalla leiðina, bæði um hálendið og á leiðinni upp úr Skagafirði, þar sem hún fer yfir verðmæt landsvæði, m.a. votlendi. „Það er helber ósvífni af hálfu stjórnarformanns Norðurvegar að halda því fram að tveggja til þriggja metra hár vegur sé afturkræf fram- kvæmd. Dettur einhverjum heilvita manni í hug að slíkum vegi verði ekið aftur í námur?“ spyr stjórn SUNN. Norðurveg- ur er fráleit hugmynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.