Morgunblaðið - 16.02.2007, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 21
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
RANNSÓKNASETUR í fötl-
unarfræðum við félagsvísindadeild
Háskóla Íslands stendur á næstu
vikum fyrir fyrirlestraröð undir
yfirskriftinni Listir, menning og
fötlun.
Í fyrirlestraröðinni verður með-
al annars fjallað um staðalmyndir
og ímyndir fatlaðs fólks í dæg-
urmenningu og hvernig fötlun hef-
ur verið notuð sem uppistaða rit-
verka.
Fyrstu tveir fyrirlestrarnir fara
fram í Norræna húsinu dag, en
fyrirlesarar eru Auður Ólafsdóttir,
listfræðingur og rithöfundur, og
Ingólfur Margeirsson, rithöfundur
og sagnfræðingur. Fyrirlestur
Ingólfs ber yfirskriftina „Ég er
ekki líkami minn“ og hefst kl.
12.30. Fyrirlestur Auðar hefst á
hádegi, en hann ber yfirskriftina
„Hinn frábrugðni verður til“. Þar
mun hún segja frá sköpun og þýð-
ingu fótalausra og mállausra of-
urhetja í skáldsögum sínum, Upp-
hækkuð jörð og Rigning í
nóvember.
„Inntak fyrirlestrarins er að
reyna að útskýra hvernig þessar
fötluðu ofurhetjur urðu til, og þá
hvernig skáldsöguleg nauðsyn réði
því að þær urðu eins og þær eru.
Þarna er um að ræða aðalpersónu
fyrstu skáldsögu minnar, Upp-
hækkuð jörð, sem er fótalaus ung-
lingsstúlka. Svo er það mikilvæg
aukapersóna í skáldsögunni Rign-
ing í nóvember, sem er fjögurra
ára mállaus og heyrnarlaus dreng-
ur,“ segir Auður. „Þegar ég tala
um að það hafi verið hin skáld-
sögulega nauðsyn sem bjó þær til,
eða kallaði á persónur með
ákveðna eiginleika, á ég til dæmis
við að í fyrri bókinni hafði ég
áhuga á að gera hinu þrönga sjón-
arhorni og smáatriðunum hátt
undir höfði. Þess vegna varð til
fótalaus unglingsstúlka, sem er að
vísu ekki alveg án fóta því hún
gengur á hækjum. Hún reynir að
gera smátt stórt í gegnum ímynd-
unaraflið og þessi saga segir svo
frá því hvernig hún hefur sig upp
yfir aðstæður sínar þegar hún
ákveður að klífa fjall,“ segir Auð-
ur.
Karlmennska og kvenleiki
Aðalsöguhetjan í Rigning í nóv-
ember er kona sem talar 11
tungumál. „Þegar hana vantaði
svo ferðafélaga í undarlegt ferða-
lag lá beint við að sá ferðafélagi
yrði mállaus og heyrnarlaus
drengur. Þannig að þau mynda
andstæður og þetta eru andstæður
sem takast á í heimi handan orða,
eins og það var orðað á bókarkáp-
unni. Þetta er kona sem talar of
mörg tungumál og heldur að hún
hafi ekkert vit á börnum þannig
að ég bjó til handa henni mállaust
barn sem ferðafélaga.“
Auður segir meginhlutverk
þessara persóna þó ekki að vera
fatlaðar þótt vissulega séu þær
frábrugðnar. Það sé þó ekki vegna
fótaleysis eða heyrnarleysis held-
ur vegna annarra eiginleika sem í
samhengi sögunnar séu mikilvæg-
ari heldur en fötlunin og geri þær
nógu spennandi til að vera skáld-
sögulega áhugaverðar.
„Þær hafa mjög sterka persónu-
leika og það er verið að benda á
styrk þess sem er veikur og frá-
brugðinn. Heyrnarlausi dreng-
urinn er til dæmis afburðagreint
barn,“ segir Auður, sem ætlar að
leggja út af persónusköpuninni í
fyrirlestrinum. „Barn er alltaf
tákn fyrir framtíðina í bókum og
þessi litli, heyrnarlausi drengur er
framtíðarkarlmaður. Þessi bók
snýst svolítið um hugmyndir um
karlmennsku og kvenleika, sem
eru ekkert endilega einhlítar í
samhengi sögunnar. Karlmenn eru
oft í umönnunarhlutverki og þeir
vilja eignast börn en ekki kon-
urnar,“ segir Auður.
„Ég ætla að sýna fram á hvern-
ig barnið er erkitýpa karlmennsk-
unnar. Svo ætla ég að reyna að
koma því á framfæri að ef þessi
litli, brothætti, agnarsmái, heyrn-
ar- og sjónskerti drengur er fram-
tíðin, þá muni heimurinn komast
vel af. Sá er boðskapurinn.“
Hinn frábrugðni verður til
Frábrugðið Auður Ólafsdóttir heldur fyrirlestur í Norræna húsinu í dag.
www.fotlunarfraedi.hi.is
‘07 70ÁR Á FLUGI
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
W W W. I C E L A N DA I R . I S
MADRID
MINNEAPOLIS
– ST. PAUL
ORLANDO BOSTON
HALIFAX
GLASGOW
LONDON
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLÍN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓ
AMSTERDAM
BARCELONA
MANCHESTER
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
REYKJAVÍK
AKUREYRI BERGEN
GAUTABORG
FLUG OG GISTING Í 4 NÆTUR FRÁ 65.900* KR.
PRIVATEERS WHARF
„Allir sem heimsækja Halifax fá sér gönguferð um hafnarbakkann
og bryggjurnar suðvestanmegin við einstakt hafnarlægið í Halifax.
Þarna má eiga ógleymanlegir stundir á góðum degi og fallegum
kvöldum. Ég mæli sérstaklega með því að rölta um Privateers Wharf
eða Sjóræningjabakkann.“ JÓHANN JÓNSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is
*Á mann í tvíbýli á Delta Barrington eða Delta Halifax **** í Halifax 24.–28. maí og 13.–17. sept.
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting.
Ferðaávísun gildir
BORGMÍN
HALIFAX
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
61
31
0
2
/0
7
NÝR ÁFANGASTAÐUR
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið