Morgunblaðið - 16.02.2007, Page 30
heilsa
30 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
egar ég lít til baka hef ég
líklega þjáðst af kvíð-
aröskun allt frá barns-
aldri. Ég ólst upp innan
um alkóhólisma og aðra
sjúkdóma. Mjög ung tók ég að mér
hlutverk reddarans, varð mjög fljótt
bullandi meðvirk og er enn að vinna í
því. Kvíðinn fer svo að verða mikið
vandamál á seinni árum. Þrisvar
sinnum hef ég dottið niður í svart-
asta þunglyndi og sjálfsvígshugsanir
sem er það skelfilegasta sem ég hef
upplifað,“ segir Sigþrúður Þorfinns-
dóttir, sem segist nú loksins hafa
fengið sjúkdómsgreiningu á ástandi
sínu og rétta meðferð. Upp frá því
hefur dregið úr svartnættinu í lífinu.
Sigþrúður eða Dúa, eins og hún kall-
ar sig, er 39 ára. Hún útskrifaðist
sem lögfræðingur frá HÍ árið 1994
og vann við lögfræðistörf í nærri tíu
ár áður en „geðveikin“ fór að banka
svona hressilega upp á. Hún á tvö
hjónabönd að baki og býr nú ein með
fimm ára dóttur sinni, Völu Mar-
gréti.
Hrapaði niður á botninn
„Ég fór í fyrsta skipti til geðlækn-
is árið 1998 eftir að ég skildi við fyrri
manninn minn, en auk skilnaðarins
dóu bæði pabbi minn og stjúpi með
stuttu millibili og breytingar urðu í
vinnunni, allt á sama tíma. Ég var
hætt að geta sofið og var komin með
heila lyfjasúpu í lófann á skömmum
tíma enda var þessi fyrsti geðlæknir,
sem ég heimsótti, afskaplega lyfja-
glaður maður. Ég var fljótt komin í
vítahring með öll þessi lyf, fór að
mæta illa í vinnuna og lenti upp á
kant við yfirmanninn. Eftir að ég
eignaðist svo dótturina haustið 2001
skoraði ég mjög hátt á fæðingar-
þunglyndisprófum auk þess sem
komnir voru brestir í mitt annað
hjónaband. Á þessu tímabili var ég í
algjörri afneitun um að eitthvað
væri að og var með bullandi fordóma
gegn þessum veikleikum sjálf. Ég
hlyti að geta höndlað lífið eins og
hver annar. Árið 2003 lenti ég þrí-
vegis í fósturmissi og eitt kvöldið
kom bara þessi ógnvekjandi skelfing
yfir mig. Mér fannst ég vera búin að
klúðra öllu því sem hægt var að
klúðra. Ég hætti í vinnunni og hrap-
aði niður á einhvern botn án þess að
ná fótfestu og spyrna mér upp að
nýju. Ákvað þó að horfast í augu við
þetta. Ég sagði fjölskyldunni frá
þessu, fór á göngudeild geðdeildar
og í sjálfshjálparhóp hjá Geðhjálp,
en fann mig ekki þar því þar innan
um er fólk með mjög alvarlegar geð-
raskanir. Hins vegar var ég á svo
sterkum lyfjum að ég svaf nánast í
hálft ár og kom mér varla fram úr
nema á klósettið í neyð.“
Geðveiki er ógnvekjandi orð
Á meðan samtalið við Dúu varir,
er henni tíðrætt um fordóma sam-
félagsins gagnvart andlega veiku
fólki sem m.a. hafa bitnað á dóttur
hennar. „Geðveiki er ógnvekjandi
orð í hugum flestra enda merkir orð-
ið gjarnan „geggjun“ eða „sturlun“ í
orðabókum og fólk sér fyrir sér
„Þetta er skelfileg upplifun“
Morgunblaðið/ÞÖK
Kvíðaröskun Sigþrúður Þorfinnsdóttir ásamt dóttur sinni Völu Margréti, 5 ára.
„Ég var fljótt komin í vítahring með öll þessi lyf, fór að
mæta illa í vinnuna og lenti upp á kant við yfirmanninn,“
segir Dúa, sem er lögfræðingur að mennt og er nú að
nema mannauðsstjórnun við HÍ.
Kvíðaröskun er sjúklegt
ástand, sem leitt getur til
alvarlegs þunglyndis, eins
og Jóhanna Ingvarsdóttir
komst að í samtali við Sig-
þrúði Þorfinnsdóttur sem
háð hefur harða baráttu
við þennan vágest.
Kvíðaröskun lýsir sér sem viðvarandi og haml-
andi kvíði og óhóflegar áhyggjur af heilsu,
starfi, fjármálum eða fjölskyldumálum og er
óeðlilegt ástand sem skerðir lífsgæðin. Kvíða-
röskun er langvarandi sjúkdómsástand sem
getur varað í nokkur ár eða áratugi fái sjúk-
lingurinn ekki rétta sjúkdómsgreiningu og
meðferð. Kvíðaröskun er sjúklegt ástand sem
hefur hamlandi áhrif á daglegt líf og hefur
iðulega í för með sér líkamleg ónot svo sem
viðvarandi vöðvaspennu, eirðarleysi, mátt-
leysi, ónot í kviðarholi, aukna svitamyndun, yf-
irliðstilfinningu og handskjálfta. Engu líkara
er en líkaminn sé að fá stöðug boð um yfirvof-
andi hættuástand og er sjúklingurinn því stöð-
ugt á varðbergi og líður fyrir margvísleg
ósjálfráð líkamleg einkenni sem fylgja slíku
ástandi.
Aðstæður og erfðir
Talið er að um 5% einstaklinga á Vestur-
löndum þjáist af almennri kvíðaröskun um
lengri eða skemmri tíma og er ástandið tvöfalt
algengara meðal kvenna en karla.
Orsakir kvíðaröskunar eru óþekktar. Þó er
talið að áhrifavalda sé að finna í fjölskyldu-
aðstæðum, umhverfisaðstæðum og erfðum. Al-
mennt versna einkenni þegar sjúklingurinn
gengur í gegnum erfiðleikatímabil.
Mjög mikilvægt er að sjúklingar með kvíða-
röskun fái rétta greiningu á ástandi sínu svo
unnt sé að veita viðeigandi meðferð í formi
fræðslu, lyfjameðferðar og samtalsmeðferðar.
Svokölluð hugræn atferlismeðferð hefur
reynst besta meðferðarúrræðið gegn kvíð-
aröskun samfara reglulegri hreyfingu.
Framtíðin „Loksins er ég komin í öruggar
hendur í læknisfræðilegu tilliti eftir hróp á
hjálp í langan tíma,“ segir Dúa.
Fortíðin „Þrisvar sinnum hef ég dottið niður í
svartasta þunglyndi sem er það skelfilegasta
sem ég hef upplifað,“ segir Dúa.
Fordómarnir „Skilningsleysið og fordóm-
arnir hafa ekki bara bitnað á mér, heldur á
dóttur minni líka,“ segir Dúa.
Hamlandi kvíði og óhóflegar áhyggjur
Nútíðin „Það koma auðvitað ennþá miserf-
iðir dagar, en þá ríður á að missa hvorki tök-
in né stjórnina,“ segir Dúa.
Óþarfa áhyggjur af smáat-
riðum eða málum sem
valda öðrum ekki kvíða.
Nær stöðugur kvíði.
Spenna í líkamanum.
Eirðarleysi.
Úthaldsleysi eða magn-
leysi.
Einbeitingarörðugleikar.
Pirringur.
Svefntruflanir.
Einkennin