Morgunblaðið - 16.02.2007, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
STUÐNINGUR við konur og
börn er mikilvægur liður í þróun-
arsamvinnu Íslands sem hefur farið
vaxandi á síðustu árum. Má þar
nefna stóraukinn stuðning íslenskra
stjórnvalda við starfsemi UNIFEM
og farsælt samstarf Íslands og
landsnefndar samtakanna. Mark-
miðið að stöðva ofbeldi
gegn konum í heim-
inum er ekki aðeins
mikilvægt eitt og sér,
heldur er það einnig
mikilvægur þáttur í
því að byggja upp
jafnrétti kynjanna. Þá
hafa reynsla og rann-
sóknir einnig sýnt að
aðstoð við menntun,
heilbrigði og atvinnu-
rekstur kvenna hefur
margfeldisáhrif fyrir
samfélagið.
Íslensk stjórnvöld
hafa lagt áherslu á
stuðning við verkefni sem snúa að
bættri velferð og bættu lífi kvenna
og barna í fátækari ríkjum heims.
Leiðir utanríkisráðuneytisins og
UNIFEM hafa því eðlilega legið
saman, enda má ef til vill segja að
UNIFEM sé eðlilegur samstarfs-
aðili fyrir ráðuneytið í þessum mál-
um. Stuðningur utanríkisráðuneyt-
isins við ofbeldissjóð UNIFEM var
meðal annars þrefaldaður í fyrra og
gert er ráð fyrir enn frekari aukn-
ingu til hans á næstu árum. Sjóð-
urinn veitir mikilvægan stuðning til
aðila og verkefna sem hafa það að
markmiði að berjast gegn ofbeldi
gegn konum í heiminum. Framlag
sjóðsins er því víða ómetanlegt.
Utanríkisráðuneytið hefur einnig
styrkt verkefni á vegum UNIFEM í
Afganistan, sem stuðlar að því að
bæta hag kvenna þar í landi. Þá
hefur Íslenska friðargæslan í vax-
andi mæli komið nálægt verkefnum
tengdum málefnum kvenna og öðru
þróunarsamstarfi og mun svo áfram
verða, enda uppbyggingar- og þró-
unarstarf órjúfanlega tengt friði og
stöðugleika. Í haust fór fram
tveggja vikna námskeið sem frið-
argæslan stóð fyrir í fátækasta hér-
aði Afganistan í samstarfi við Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga.
Stofnunin útvegaði nauðsynlegan
búnað til námskeiðshaldsins, ásamt
því sem hjúkrunarfræðingur frá
Húsavík og ljósmóðir úr Reykjavík
leiðbeindu ljósmæðrum og yf-
irsetukonum í héraðinu um fæðing-
arhjálp og ungbarna- og mæðra-
vernd. Ungbarna- og mæðradauði
er geysilegur í Afganistan og von-
umst við til að reynsl-
an af þessu námskeiði
nýtist við að halda
slíku starfi áfram í
héraðinu.
Fjölbreytt verk-
efnaval er styrkur
Ég hef líka lagt á
það áherslu að verk-
efnaval og markmið
friðargæslunnar taki
mið af kynjasjón-
armiðum. Í starfi okk-
ar á Sri Lanka er til
dæmis helmingur frið-
argæsluliða konur og
við sjáum að starf þeirra og nær-
vera skiptir miklu máli fyrir konur
á eftirlitssvæðum. Við höfum einnig
átt ágætt samstarf við UNIFEM
um undirbúning og þjálfun frið-
argæsluliða í því skyni að gætt sé
að stöðu kvenna á þeim svæðum
sem friðargæsluliðarnir starfa á og
er þannig eftir kostum reynt að
stuðla að auknu jafnrétti í störfum
friðargæslunnar.
Á þessu ári verða þrír frið-
argæsluliðar starfandi með UNI-
FEM í verkefnum sem snúa að því
að byggja upp stjórnsýslu og réttar-
far, annars vegar á Balkanskaga og
hins vegar höfum við hug á að taka
þátt í verkefnum með UNIFEM og
UNICEF í Líberíu og í Palestínu. Í
þessum löndum, eins og á Balk-
anskaga, er mikilvægt að styðja við
uppbyggingu og þróa stjórnkerfið
með hagsmuni beggja kynja í huga
og jafnrétti í forgrunni. Í Líberíu
var nýlega kjörinn kvenforseti og
þar er mikið verk framundan við að
tryggja stöðugleika sem er nauð-
synlegur grundvöllur uppbyggingar
og þróunar á svæðinu.
Ég sé fyrir mér íslenska frið-
argæslu sem hentar báðum kynjum.
Friðargæsluliðar hafa að stærstum
hluta verið karlar undanfarin ár en
um 14-16% að jafnaði úr hópi
kvenna. Síðastliðna mánuði hefur
verið unnið markvisst að nýrri
stefnumótun, aukningu verkefna og
nú þegar er tæplega þriðjungur
friðargæsluliða konur. Betur má ef
duga skal. Með nýjum verkefnum,
breytingu á áherslum og auknum
áhrifum kvenna á stefnumótun í
friðargæslu er takmarkið um nær
jöfn hlutföll kynjanna í friðargæslu
ekki óraunhæft í náinni framtíð.
Það er hluti af stefnumörkun og
breyttum áherslum varðandi upp-
byggingu og friðargæslu á átaka-
svæðum að Ísland geri aðgerða-
áætlun vegna ályktunar
Öryggisráðsins 1325/2000 um kon-
ur, stríð og frið, eins og mörg önnur
vestræn lönd, þar sem lögð er
áhersla á þátttöku kvenna í frið-
aruppbyggingu og ákvarðanatöku.
Vinna við þessa aðgerðaáætlun
stendur yfir og er stefnt að því að
ljúka henni í vor.
Skýr markmið skila árangri
Að mínu mati felast gagnkvæmir
hagsmunir í eflingu samstarfs milli
íslenskra stjórnvalda, UNIFEM og
landsnefndarinnar á Íslandi. Því
ákvað ég í byrjun árs að hefja vinnu
við gerð rammasamnings við lands-
nefnd UNIFEM, sem leggja mun
grundvöllinn að auknu samstarfi og
uppbyggingu á velferð, hag og
áhrifum kvenna í fátækustu ríkjum
heims. Sá samningur er á lokastigi
og stefnt er að undirritun hans fyrir
8. mars n.k., alþjóðlegan baráttudag
kvenna.
Frá Húsavík til Afganistan
Valgerður Sverrisdóttir
fjallar um þróunarsamvinnu
og firðargæslu
» Áætlað er að framlögÍslands til þróun-
arsamvinnu muni nema
0,35% af landsfram-
leiðslu árið 2009 en þá
hafa framlög Íslands
margfaldast á einum
áratug.
Valgerður
Sverrisdóttir
Höfundur er utanríkisráðherra.
LOSUN gróðurhúsalofttegunda
er stærsta tilraun sem gerð hefur
verið og hún er stjórnlaus. Þetta
er skoðun Boga Hansen, færeyska
prófessorsins sem hlaut umhverf-
isverðlaun Norðurlandaráðs nú í
nóvember. Verðlaunin voru ein-
mitt sérstaklega helg-
uð loftslagsbreyt-
ingum að þessu sinni.
Bogi hefur verið
óþreytandi að miðla
þekkingu sinni að
undanförnu, nú síðast
á fundum Norð-
urlandaráðs í Hels-
inki í janúarlok. Boð-
skapur hans er skýr
og um leið ákall til
stjórnmálamanna.
Loftslagsbreyting-
arnar verða ekki
stöðvaðar, en það er
hægt að draga úr
þeim. Tíminn til athafna er núna
strax, en ekki eftir 20–30 ár því þá
verða vandamálin stærri og kostn-
aður við þau meiri.
Fáum dylst nú orðið að lofts-
lagsbreytingarnar eru af manna
völdum. Vísindamenn um allan
heim vinna að rannsóknum og í
útdrætti úr skýrslu Alþjóðlega vís-
indaráðsins um loftslagsbreyt-
ingar (IPCC) sem birtur var á
dögunum var það skilgreint sem
mjög líklegt – að á því væru yfir
90% líkur. Enda blasa staðreynd-
irnar við; meðalhiti hækkar, ís og
snjór bráðnar og sjávarborð
hækkar.
Breytingar verða
í okkar heimshluta
Hvað varðar okkar heimshluta
þá leiðir ACIA-skýrslan frá 2004
um áhrif loftslagsbreytinga á
norðurskautsslóðum líkur að því
að loftslagshlýnun á norðurslóðum
verði tvisvar til þrisvar sinnum
meiri en annars staðar í heim-
inum. Ísinn er 2 milljónum ferkíló-
metra minni nú en fyrir 30 árum.
Bráðnun heimskautaíssins mun
opna siglingaleið á sumrin á 21.
öldinni og opna aðgengi að mikl-
um gas- og olíuauðlindum á svæð-
inu. Margir munu því horfa til
þess sem tíma nýrra tækifæra. En
við blasir önnur alvarlegri stað-
reynd. Sjávarmál hækkar um 20
til 70 sentimetra með hrikalegum
afleiðingum. Frerinn þiðnar á
norðurslóð og enginn veit hvaða
efni eða gastegundir þá leysast úr
læðingi.
Meðaltalshiti á sama tíma mun
hækka á Norðurlöndum um 2–3
gráður og úrkoma aukast um allt
að 10%. Breytingar verða í lífrík-
inu, dýrategundir færa sig til, þar
á meðal fisktegundir. Þetta hefur
áhrif á búsetu og lífsviðurværi
frumbyggja á Norðurslóð. Ekki er
vitað til hlítar hver áhrifin verða á
Golfstrauminn, en hann er eitt af
því sem Bogi Hansen hefur rann-
sakað sérstaklega. Ofviðrum, með
miklum hitum, vindstyrk eða úr-
komu, mun fjölga.
Hvernig skal bregðast við?
Norðurlöndin eru þekkt fyrir
áherslu á umhverfismál og hafa
yfir að ráða þekkingu á því sviði.
Þar sem áhrif loftslagsbreytinga
gætir mikið á norðurslóðum þá er
ljóst að Norðurlöndin verða að
gera ráðstafanir til að stemma
stigu við þróuninni, bæði hvert
fyrir sig og í samstarfi. Í um-
ræðunni í Norðurlandaráði hefur
verið áhersla á ýmsar leiðir til
þess, s.s. vistvænt eldsneyti, skat-
taívilnanir á vistvæn farartæki og
orkusparnað. Loftslagsbreytingar
er alþjóðlegt mál sem takast þarf
á við á alþjóðlegum vettvangi.
Norðurlandaráð hefur ályktað
um aukna áherslu á rannsóknir
og vinnu á norrænum og öðrum
alþjóðlegum vettvangi til að
minnka og koma í veg fyrir lofts-
lagsbreytingar af mannavöldum.
Þrjú Norðurlanda verða með for-
mennsku samfellt í Norðurskauts-
ráðinu, sem er samstarf Banda-
ríkjanna, Kanada,
Norðurlandanna og Rússlands, á
næstu 6 árum og munu beita sér
saman á þessu tímabili fyrir rann-
sóknum og aðgerðum. Norræna
ráðherranefndin hefur lagt fram
samstarfsáætlun um heim-
skautasvæðið fyrir árin 2006–2008
og í henni kemur fram að fylgja
skuli eftir ACIA-skýrslunni, m.a.
með því að setja takmarkanir á
losun gróðurhúsalofttegunda og
auka rannsóknir. Miklar vænt-
ingar eru jafnframt um Al-
þjóðlega heimskautaárið 2008.
Það er nú haldið í þriðja sinn og
Norðurlönd taka mikinn þátt í
því. Síðast var heimskautaár
haldið um miðja síðustu öld. Yfir
60 þjóðir og 50 þúsund vís-
indamenn munu taka þátt í um
200 verkefnum sem valin hafa
verið sem alþjóðaheimskautaárs
verkefni.
Samvinna jafnaðarmanna
Jafnaðarmenn á Norðurlöndum
hafa með sér samstarf og á árs-
fundi jafnaðarmanna og verka-
lýðshreyfinga á Norðurlöndum
hittast formenn jafnaðarmanna-
flokkanna. Á ársfundinum í byrjun
febrúar voru loftslagsbreytingar
og orkumál aðalmálið. Jafn-
aðarmenn líta svo á að orkunotk-
unin og loftslagsbreytingarnar sé
einhver mesta áskorun framtíð-
arinnar. Þetta sé svið þar sem við
getum lært af hvert öðru og að
samstarf Norðurlandanna geti
orðið útgangspunkturinn í þróun
varanlegra orkulausna. Samstarfs-
nefnd jafnaðarflokkanna á þessu
sviði er falið að setja fram sameig-
inlegar hugmyndir að nýrri orku-
stefnu sem leiði til þess að Norð-
urlönd geti staðið sterkt á
alþjóðavísu hvað varðar orkustefn-
una og átakið gegn loftslagsbreyt-
ingunum. Ný sýn í atvinnumálum
sem tekur mið af þessum breyt-
ingum er nauðsynleg. Samfylk-
ingin hefur boðað „nýja atvinnu-
stefnu“ nýjar áherslur í
atvinnumálum sem jafnframt falla
að tillögum flokksins um Fagra
Ísland.
Öllum er ljóst nú að aðgerða er
þörf. Spurningin sem eftir stendur
er hvort Ísland og hin Norð-
urlöndin svari ákalli Boga Hansen
og skipi sér í framvarðasveit þeg-
ar kemur að vinnu við nýja al-
þjóðasamninga eftir að Kyoto-
bókuninni sleppir 2012. Það væri
góð aðferð til að festa í sessi stöðu
Norðurlandanna í fararbroddi á
alþjóðavísu.
Stærsta pólitíska verkefni samtímans
Ásta R. Jóhannesdóttir og
Rannveig Guðmundsdóttir
fjalla um umhverfismál
» Tíminn til athafna ernúna strax því lofts-
lagsbreytingar verða
ekki stöðvaðar.
Rannveig
Guðmundsdóttir
Höfundar eru þingmenn Samfylking-
arinnar og sitja í umhverfisnefnd Al-
þingis, eru fulltrúar í Norð-
urlandaráði, Ásta í umhverfis- og
auðlindanefnd og Rannveig í forsæt-
isnefnd, auk þess sem Rannveig á
sæti í Norðurskautsráðinu.
Ásta R.
Jóhannesdóttir
BYRGISMÁLIÐ svonefnda hef-
ur vart farið framhjá neinum.
Óreiðan, sukkið og spillingin slík að
almenningsálitið kallar eftir ábyrgð
– en hverra?
Þegar Byrgið flutti
frá herskálunum á Suð-
urnesjum, var ráðherra
félagsmála Páll Pét-
ursson. (Sá hinn sami
sem á sinni tíð greiddi
atkvæði móti lita-
sjónvarpi á Alþingi!
Litasjónvarp var of „
hættulegt“ fyrir lands-
menn!) Sá sami Páll
hóf sem félagsmálaráð-
herra að greiða út
milljónir til Byrgisins.
Þá er Páll hætti, tók
annar framsókn-
armaður við félags-
málaráðuneytinu. Sá
var á sinni tíð kallaður
„erfðaprins“ flokksins.
Maðurinn var Árni
Magnússon. Árni gerði
enn betur en Páll –
milljónunum tók að
fjölga til Byrgisins.
Stofnanasamningur
milli ráðuneytisins og
Byrgisins ? – Nei, ónei,
Byrgið neitaði að skrifa undir – en
fjármunir skattborgaranna héldu
áfram að streyma sem aldrei fyrr!
Virtur geðlæknir sendi Land-
lækni bréf árið 2002 þar sem hann
lýsti ömurlegum aðstæðum í Byrg-
inu. Landlæknir á þeim tíma, Sig-
urður Guðmundsson, stakk bréfinu
undir stól. Hver ber ábyrgð á störf-
um Landlæknis? Heilbrigð-
ismálaráðherra.
Staðreyndir eru þá þessar um
ráðherra og embættismenn sem
viðkoma Byrginu: Félagsmálaráð-
herra Páll Pétursson var, og er,
framsóknarmaður. Félagsmálaráð-
herra Árni Magnússon var, og er,
framsóknarmaður. Landlæknir,
sem var Sigurður Guðmundsson, er
framsóknarmaður. Heilbrigð-
isráðherra, sem var Jón Krist-
jánsson, er framsóknarmaður. Heil-
brigðismálaráðherra, sem er Siv
Friðleifsdóttir, er framsókn-
armaður. Fyrrverandi formaður
fjárveitinganefndar og núverandi
félagsmálaráðherra, Magnús Stef-
ánsson, er framsókn-
armaður.
Sá síðastnefndi
staðfestir þessa dag-
ana að hann hafi árið
2003 sem formaður
fjárveitinganefndar
Alþingis, fengið í
hendur skýrslu um
sukkið í Byrginu.
Fjárveitinganefnd
tekið á málinu? Ónei,
sú merka nefnd virð-
ist hafa haldið að sér
höndum.
Þegar ofangreint er
skoðað kemur skýrt í
ljós að framsókn-
armenn voru skip-
stjórar í brúnni á öll-
um þessum stöðum
þegar haföldur spill-
ingarinnar risu.
Sannarlega athyglis-
og umhugsunarvert –
en fnykur af!
Getur verið að afar
slaka útkomu Fram-
sóknarflokksins í
skoðanakönnunum undanfarinna
mánaða megi að einhverju leyti
rekja til þessara mála? Þeirri
spurningu verður ekki reynt að
svara hér.
Hinsvegar er öllum ljóst að sterk
staða Framsóknarflokksins um ára-
tuga skeið sem miðjuflokks í ís-
lenskum stjórnmálum hrundi sem
spilaborg undrafljótt við hrun SÍS
á sínum tíma – já, hrundi á svip-
uðum tíma og spillingarmúr rauða
„sæluríkisins“ í Austur-Berlín – þó
þar væri um gjörólíka Hrunadansa
að ræða. En fnykur Framsóknar er
enn fyrir hendi.
Framsóknar-
fnykurinn
Magnús Erlendsson fjallar um
Framsóknarflokkinn og Byrg-
ismálið
Magnús Erlendsson
»… framsókn-armenn voru
skipstjórar í
brúnni á öllum
þessum stöðum
þegar haföldur
spillingarinnar
risu.
Höfundur er fyrrverandi forseti
bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi.