Morgunblaðið - 16.02.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 35
UMHVERFISRÁÐ Reykjavík-
urborgar bókaði einróma mánudag-
inn 12. febrúar um loftgæði í
Reykjavík. Þar voru tíunduð nokkur
verkefni svo sem aðgerðir til að
draga úr notkun nagladekkja þar
sem í ljós hefur komið að svifryk,
sem að meginhluta er komið til
vegna áhrifa nagladekkja, hafði
nokkuð oft farið yfir heilsuvernd-
armörk í borginni. Í bókuninni segir
m.a. „Reykjavíkurborg hefur verið í
forystu um aðgerðir til minnkunar
svifryks og svo mun verða áfram. Í
þessu mikilvæga máli er nauðsyn-
legt að Reykjavíkurborg og ríkið
vinni sameiginlega að markmiðum
um minnkun svifryks í þéttbýli,
borgarbúum og öllum landsmönnum
til heilla.“ Reykjavíkurborg hefur
m.ö.o. sett ýmsar aðgerðir í gang og
aðrar í undirbúningi til að draga úr
svifryksmengun í borginni.
Ákvarðanir tengdar
loftmengun
Umræða hefur verið undanfarið
um loftmengun í Reykjavík og því
ber að fagna. Umræðan um svifryk
er tiltölulega ný af nálinni og það var
ekki fyrr en á síðasta áratug sem yf-
irvöld t.d. í Svíþjóð og Noregi gripu
til sérstakra ráðstafana hennar
vegna. Það hefur Reykjavíkurborg
einnig gert og má fullyrða að borgin
hafi verið í fararbroddi á Íslandi í
umræðum og aðgerðum um um-
hverfis- og loftslagsmál.
Mikilvægast er að fá borgarbúa til
liðs við yfirvöld í þeirri viðleitni að
draga úr svifryksmengun. Reykja-
víkurborg hefur því lagt sig fram um
að vekja athygli á því hvernig borg-
arbúar geti sjálfir lagt sitt af mörk-
um til að draga úr loftmengun. Enn-
fremur hefur borgin hvatt til
aukinnar notkunar almennings-
vagna og reiðhjóla og munum við á
næstunni enn bæta okkur á þeim
vettvangi eins og fram kemur í mál-
efnaáherslum nýs meirihluta í borg-
inni.
Reykjavíkurborg hafa starfrækt
vinnuhóp um notkun nagladekkja í
Reykjavík og lagt til víðtækt samráð
við hagsmunaaðila, fræðslu og upp-
lýsingar um nagladekk og takmark-
anir á notkun negldra hjólbarða.
Ákveðið hefur verið að þessi vinnu-
hópur starfi áfram til að fylgja að-
gerðum eftir.
Í haust stóð borgin fyrir fræðslu-
átaki til að draga úr svifryki og var
sjónum sérstaklega beint að nagla-
dekkjum. Yfirvöld í Reykjavík munu
halda áfram á þeirri braut, þá er fyr-
irhugað að fjölga mælitækjum enn
og upplýsa almenning betur.
Ákvarðanir borgarinnar í vega-
málum hafa verið teknar með hlið-
sjón af svifryksmengun, þannig
skipti það verulegu máli þegar
ákveðið var að setja Sundabraut í
göng því að með því móti er hægt að
takmarka svifrykið sem af þeirri
umferð hlýst. Eins eru stokkalausnir
á gatnamótum Kringlumýr-
arbrautar og Miklubrautar og ná-
grenni þeirra hugsaðar með þetta í
huga.
Reykjavíkurborg hefur unnið öt-
ullega að því að fræða almenning um
loftmengun og leiðir til að draga úr
henni. Athyglinni hefur sérstaklega
verið beint að leikskólum, t.d. með
auglýsingaherferðum, fræðslu og
skiltum sem sett voru upp við
skólana með beiðni um að drepa á
bílnum. Námskeið hefur verið haldið
fyrir fjölmiðlafólk um loftgæði og
loftslagsbreytingar. Aukinn kraftur
hefur verið lagður í að hreinsa götur,
standa fyrir talningum á nagla-
dekkjum og gera tilraunir t.d. með
salt.
Mælingar
á loftgæðum
Reykjavíkurborg
hefur með öðrum orð-
um verið í forystu um
aðgerðir til að draga
úr svifryksmengun og
svo mun verða áfram.
Borgin heldur uppi öfl-
ugustu loftgæðamæl-
ingum á landinu og
getur upplýst um loft-
gæði nánast hvar sem
er í borginni. Mæli-
stöðvar eru við gatna-
mót Grensásvegar og
Miklubrautar og í Fjöl-
skyldu- og hús-
dýragarðinum í Laug-
ardal. Borgin hefur enn
fremur haft litla mæli-
stöð sem einfalt hefur
verið að nota til sam-
anburðarmælinga vítt
og breitt um borgina.
Borgaryfirvöld eru því
mjög meðvituð um loft-
gæði í borginni frá degi
til dags með mælingum
á þeim og þegar loft-
mengun fer yfir heilsu-
verndarmörk er send út sérstök til-
kynning til fjölmiðla.
Meirihluti og minnihluti í borg-
arstjórn takast á um ýmis mál og
hafa alltaf gert en þegar kemur að
loftgæðum í borginni hefur borg-
arstjórn hins vegar í öllum aðal-
atriðum verið samstiga enda öllum
ljóst hversu viðamikið vandamálið er
– og að það verður ekki leyst nema
með samstilltu átaki allra borg-
arbúa.
Svifrykið í borginni
Gísli Marteinn Baldursson
skrifar um aðgerðir Reykjavík-
urborgar gegn loftmengun
»Meirihluti og minni-hluti í borgarstjórn
takast á um ýmis mál en
þegar kemur að loft-
gæðum hefur borg-
arstjórn hins vegar ver-
ið samstiga.
Gísli Marteinn
Baldursson Höfundur er formaður
umhverfisráðs Reykjavíkurborgar.
Fréttir á SMS