Morgunblaðið - 03.03.2007, Side 4

Morgunblaðið - 03.03.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is STARFSMENN Samkeppniseftir- litsins framkvæmdu húsleit hjá fimm aðilum í ferðaþjónustunni í gær- morgun auk Samtaka ferðaþjónust- unnar og lögðu hald á gögn vegna gruns um ólögmætt samráð. Um var að ræða skrifstofu Samtaka ferða- þjónustunnar, Heimsferðir, Terra Nova, Plúsferðir og Úrval Útsýn og Ferðaskrifstofu Íslands. Að sögn Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins var um eðlilegt og hefðbundið eftirlit stofnunarinnar að ræða. Að sögn hans fékk Samkeppnis- eftirlitið húsleitarheimild frá Hér- aðsdómi Reykjavíkur en samkvæmt úrskurðinum er til rannsóknar hvort samráð hafi átt sér stað milli ferða- skrifstofa innan Samtaka ferðaþjón- ustunnar (SAF) sem hafi hamlandi áhrif á samkeppni. „Aðgerðirnar gengu ágætlega fyr- ir sig,“ segir Páll Gunnar. „Þarna var um eðlilega eftirlitsaðgerð að ræða af hálfu Samkeppniseftirlitsins.“ Húsleitarheimild héraðsdóms fékkst á fimmtudag og var farið á vettvang daginn eftir. „Við sendum húsleitarbeiðni til héraðsdóms sem tók afstöðu til beiðninnar og gaf út heimildina. Nú er málið í athugun hjá Samkeppniseftirlitinu en það er ekki hægt að tímasetja nákvæmlega hvenær rannsókn lýkur. Framundan er að vinna úr gögnunum og taka af- stöðu til framhaldsins,“ segir Páll Gunnar. Flókið hjá veitingahúsunum Að sögn Ernu Haukstóttur fram- kvæmdastjóra SAF taldi Samkeppn- iseftirlitið að meint lögbrot hefði fal- ist af hálfu SAF í því að setja í fréttabréf leiðbeiningar um hvernig farið væri að því að reikna matar- verðslækkun út frá virðisaukaskatt- slækkuninni. „Það telja þeir trúlega brot á samkeppnislögum,“ segir hún og segir ekki hafa verið rætt á sínum tíma hvort það myndi orka tvímælis að setja þessi skilaboð í fréttabréfið. „Það eru allir að koma þessu á fram- færi,“ bendir hún á. „ASÍ, Neytenda- samtökin og fleiri eru að koma því á framfæri að matur eigi að lækka um 6% og gos um 14%,“ segir hún er hún tilgreinir vsk-lækkunina. „Aftur á móti er þetta mjög flókið hjá veit- ingahúsunum vegna þess að á sama tíma fellur niður endurgreiðsla sem þau hafa haft. Við vorum því með ákveðna formúlu fyrir hvern og einn. Þetta telur Samkeppniseftirlitið vera lögbrot en við vorum með þessu að auðvelda mönnum matarverðs- lækkunina sem ríkisstjórnin leggur áherslu á að skili sér Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands, sem er eig- andi og rekstraraðili ferðaskrifstof- anna Úrvals-Útsýnar, Viðskipta- ferða ÚÚ, Plúsferða og Sumarferða, segir að starfsmenn Samkeppniseft- irlitsins hafi komið á skrifstofur Úr- vals-Útsýnar og Plúsferða og fengið gögn. Að sögn Þorsteins virðist þetta vera arfleifð frá fyrri eigendum þar sem núverandi eigendur Ferðaskrif- stofu Íslands hafi aldrei verið aðilar að SAF. En að sögn Þorsteins bein- ist rannsókn málsins að ferðaskrif- stofum innan SAF. Samkvæmt vef SAF eru á fjórða tug ferðaskrifstofa aðilar að Samtök- um ferðaþjónustunnar. Þvertaka fyrir samráð Í tilkynningu sem Heimsferðir og Terra Nova sendu frá sér í gær er því alfarið vísað á bug að þau hafi átt þátt í ólögmætri háttsemi og hefur starfsfólk fyrirtækjanna reynt eftir megni að aðstoða starfsfólk sam- keppniseftirlitsins við rannsóknina, að því er segir í tilkynningu. Í tilkynningu frá Ferðaskrifstof- unni Sumarferðum segir m.a. að fyr- irtækið hafi alla tíð verið í harðri samkeppni í sólarlandaferðum við aðra aðila á markaðnum. Markmiðið hafi alltaf verið að bjóða bestu mögu- legu verð neytendum til hagsbóta. „Í fréttaflutningi dagsins hefur nafn Sumarferða verið dregið að ósekju inn í umræðu um samráð. Sumarferðir keyptu fyrir rúmu ári síðan Ferðaskrifstofu Íslands, sem á ferðaskrifstofurnar Úrval-Útsýn og Plúsferðir af FL Group, áður Flug- leiðum. Samkeppnisstofnun fór ítar- lega yfir hvort þau kaup stæðust samkeppnislög. Niðurstaðan var að öll skilyrði þar að lútandi væru upp- fyllt og að kaupin myndu stuðla að aukinni samkeppni á markaði fyrir sólarlandaferðir.“ Ferðaskrifstofur grunað- ar um ólögmætt samráð Morgunblaðið/Ásdís Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is MIKILVÆGT verður að tryggja fiskvinnslu- fólki verulega hærri laun í næstu kjarasamn- ingum. Þetta kom fram í setningarræðu Að- alsteins Á. Baldurssonar, formanns Matvælasviðs Starfsgreinasambands Íslands (STG), á tveggja daga ráðstefnu sem lauk á Akureyri í gær. Aðalsteinn segir einnig að rétt sé að menn velti því fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til að leggja niður kaupaukakerfi í fiskvinnslu og hækka þess í stað tímakaupið samsvarandi. Undirbúningur fyrir mótun kröfugerðar „Kjarasamningar eru lausir um næstu ára- mót og má segja að Starfsgreinasambandið hafi hafið þá vinnu sem framundan er við mót- un kröfugerðar með þessum fundi hérna á Ak- ureyri,“ segir Aðalsteinn í samtali við Morg- unblaðið. Hátt í 70 manns tóku þátt í ráðstefnunni, þar á meðal hópur trúnaðar- manna starfsfólks í fiskvinnslu. Meðal gesta sem töluðu á ráðstefnunni voru Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, og Guðbjörg Linda Rafns- dóttir, forstöðumaður hjá Vinnueftirlitinu, sem fjallaði um vinnuverndarmál. Þau mál eru að verða sífellt þýðingarmeiri í fiskvinnslunni, að sögn Aðalsteins. Hann segir að vinnuvernd og starfsmenntun vegi hvað þyngst hjá fiskvinnslufólki í dag. T.d. skili tæknin sem notuð er í fiskvinnslunni sér ekki með þeim hætti að bæta líðan starfsfólks- ins. Störfin séu einhæfari og reyni á ákveðna líkamshluta. ,,Menn munu einnig velta fyrir sér á næstu vikum hvaða áherslur við verðum með um kaupaukakerfið í næstu samningum,“ sagði hann. „Erum við á réttri leið að viðhalda þessu kaupaukakerfi í fiskvinnslu en þetta kerfi þekkist varla í öðrum atvinnugreinum. Það þarf að lyfta upp launum fiskvinnslu- fólks verulega til að fólk fáist til að vinna þessi störf.“ Hann bendir á að Íslendingum fækki jafnt og þétt í fiskvinnslu. Á síðasta ári hafi það í fyrsta skipti gerst að fleiri erlendir starfsmenn en íslenskir fóru á kjarasamningsbundin nám- skeið á vegum Starfsfræðslunefndar fisk- vinnslunnar fyrir nýliða í fiskvinnslu. Flest bendi til að þessi tala fari hækkandi á þessu ári, því hlutfall erlendra starfsmanna á námskeið- um sé þegar komið í 64%. Framhaldið ákveðið á fundi í fram- kvæmdastjórn STG eftir helgi Heilmikill undirbúningur er framundan vegna næstu kjarasamninga. Eftir helgina verður haldinn fundur í framkvæmdastjórn STG þar sem farið verður yfir þessi mál og framhaldið ákveðið, að sögn Aðalsteins. Vilja verulega hækkun launa Matvælasvið Starfsgreinasambandsins undirbýr mótun kröfugerðar fyrir næstu kjarasamninga Morgunblaðið/Kristján Bónusinn? Rætt var hvort tími væri kominn til að leggja niður kaupaukakerfið. ERNA Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), bendir á að eftirlitsaðila sé alltaf heimilt að skoða málin ef grunur gefur tilefni til, þótt á hinn bóginn telji hún fráleitt að samráð hafi átt sér stað hjá ferðaskrifstofum innan samtakanna. „Við veittum þeim þá aðstoð sem við gátum, því á okkar vettvangi hefur aldrei verið um neitt ólögmætt samráð að ræða,“ segir hún. Starfsfólk SAF fékk plagg frá starfsmönnum Samkeppniseftirlitinu þar sem ýmislegt var tiltekið sem þótti renna stoðum und- ir meint ólögmætt samráð. „Þeir höfðu fyrir nokkru síðan óskað eftir fundargerðum, sem þeir fengu í hvelli,“ segir Erna. Eitt og annað hafi síðan verið til- tekið af hálfu eftirlitsaðila á vettvangi að sögn Ernu. „Aldrei um ólögmætt samráð að ræða“ Starfsmenn Samkeppn- iseftirlitsins lögðu hald á gögn hjá ferðaþjón- ustuaðilum í gær og SAF sem heldur því fram að ekkert samráð hafi átt sér stað milli ferðaskrif- stofa. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu, að íslenska ríkið sé skaðabótaskylt gagnvart konu, sem sýktist af lifr- arbólgu C við blóðgjöf árið 1990. Tel- ur dómurinn að ríkið hafi bakað sér einhverja skaðabótaskyldu þar sem konan fékk ekki vitneskju um smitið fyrr en árið 1999. Konan var til meðferðar á Rík- isspítölum í september 1990, vegna nýrnasjúkdóms er hún átti þá við að stríða. Konan fékk endurteknar blóðgjafir vegna sjúkdómsins, sem voru henni lífsnauðsynlegar. Við þessar blóðgjafir smitaðist konan af lifrarbólgu C úr sýktri blóðeiningu sem hún fékk. Fram kemur í dómnum, að haustið 1993 vann Sigurður B. Þorsteinsson, smitsjúkdómalæknir, ásamt nemum í læknisfræði, að rannsókn á Land- spítala sem fólst í því að skimaðar voru afturvirkt blóðgjafir hjá Blóð- bankanum. Kom þá í ljós að 9 blóð- einingar reyndust hafa lifrarbólgu C mótefni. Í kjölfarið var sannreynt að alls 63 blóðeiningar af sýktu blóði hefðu verið í umferð. Ríkið hefur miðað við að tekist hafi að finna 24 einstaklinga sem sannanlega hafi fengið sýkt blóð. Af þeim hafi 21 reynst sýktur af lifrarbólgu C. Símon Sigvaldason héraðsdómari dæmdi málið. Ríkið borgi bætur vegna lifrarbólgu HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands hef- ur dæmt karlmann á sextugsaldri í níu mánaða fangelsi, þar af sex mán- uði skilorðsbundna, fyrir vörslu á barnaklámi. Í dómi héraðsdóms kemur fram að maðurinn hafði undir höndum 11.382 ljósmyndir og tíu hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klám- fenginn hátt. Þar af voru ríflega 1.200 myndir sem fundust í tölvu sem ákærði hafði til umráða á vinnu- stað sínum, en hann var grunnskóla- kennari. Mikill hluti myndanna var af grófasta tagi þar sem koma fram svívirðilegustu kynferðisbrot gegn börnum, segir m.a. í dómnum. Maðurinn játaði brot sitt og var það honum til málsbóta, auk þess sem hann hefur leitað til sálfræðings vegna sjúklegrar klámfíknar. Benedikt Bogason héraðsdómari kvað upp dóminn. Björn Þorvalds- son settur saksóknari flutti málið af hálfu ákæruvaldsins en Bjarni Lár- usson hdl. varði manninn. Með gróft barnaklám í grunnskóla ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.