Morgunblaðið - 03.03.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 19
ERLENT
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÓVÍST er hvort væntingarnar um mikinn ol-
íugróða Grænlendinga eru reistar á traustum
forsendum. Vísindamenn jarðfræðistofnunar
Bandaríkjanna, USGS, hafa sagt að ef til vill
séu allt að 100 milljarðar tunna af olíu í land-
grunninu út af norðaustanverðu Grænlandi.
En tölurnar eru ótraustar enda byggðar á
ágiskunum jarðfræðinga sem telja að berg-
lögin á svæðinu geti geymt olíu. Hún gæti
verið miklu minni, 40 milljarðar tunna – eða
engin, segir í grein í vikunni í danska blaðinu
Berlingske Tidende. Margir vara því Græn-
lendinga við að fagna of fljótt.
Bandaríkjamenn birtu kenningar sínar fyr-
ir sjö árum. 100 milljarðar tunna er svipað
magn og í Írak sem ræður yfir næstmestu ol-
íulindum í heimi á eftir Sádi-Arabíu.
Aðstoðarforstjóri rannsóknarstofnunar
jarðfræði Danmerkur og Grænlands (GEUS),
Kai Sørensen, bendir á að sannanir skorti
fyrir því að til sé olía í vinnanlegu magni í
landgrunni Grænlands, um sé að ræða óbein-
ar vísbendingar. Niðurstöður Bandaríkja-
mannanna, sem séu að vísu mjög hæfir fag-
menn, séu vafasamar vegna þess að þeir hafi
ekki haft aðgang að mikilvægum gögnum um
svæðið. Þeir sáu t.d. ekki gögn sem olíurisinn
bandaríski, Exxon, hafði undir höndum eftir
að hafa gert kannanir á umræddu hafsvæði.
GEUS getur á hinn bóginn nýtt sér þau
vegna þess að um opinbera, danska stofnun
er að ræða.
Engar tilraunaboranir enn
„Vandinn er að það er ekki búið að gera
bortilraunir á landgrunninu,“ segir Sørensen.
„Hér er eingöngu verið að tala um mat. Þess
vegna er hætta á að það sé engin olía við
Norðaustur-Grænland.“
Sørensen segir að USGS sé nú að meta á
ný hugsanlegar olíulindir á Norðurskauts-
svæðinu og muni eiga samstarf við dönsku
stofnunina um grænlenska hlutann. Hans
segir líklegt að tölurnar verði nú aðrar en
fyrir sjö árum.
En Grænlendingar gera sér einnig miklar
vonir um að olía finnist á Davíðssundi og
Baffinsflóa við vestanvert landið. Berlingske
Tidende segir að tilraunaboranir hafi fram til
þessa ekki borið neinn árangur, ekkert hafi
fundist en á stöku stað berist olía úr und-
irdjúpunum upp á yfirborðið, m.a. á eynni
Diskó. Einnig hefur fundist jarðgas á kan-
adískum svæðum vestan við Grænland og ol-
ía við Nýfundnaland í suðri.
Sørensen segir því skynsamlegt að gera
tilraunaboranir til að kanna hvort þarna sé
olía í nógu miklu magni til að það borgi sig
að vinna hana. Bandarísku stórfyrirtækin
Chevron og Exxon eru sammála því og hafa í
samvinnu við danska fyrirtækið DONG beðið
grænlensk yfirvöld um leyfi til að leita á haf-
svæðunum við Diskó og Nuusuaq-skagann.
Mikil áhætta en einnig ágóðavon
Arne Rosenkrands, sem stýrir rannsóknum
á vegum DONG, segir að Vestur-Grænland
sé skilgreint sem svæði þar sem hættan sé
mikil á að leit verði til einskis en jafnframt
geti ágóðinn orðið mikill ef hún beri árangur
[enska heitið er „high risk-high reward“].
„Við höfum ekki hugmynd um það hvort
þarna er olía. En gerð landgrunnsins er
þannig að líkur eru á lindum,“ segir Ro-
senkrands. „Því miður eru líkurnar heldur
meiri á að þarna sé ekki neitt.“ Leit á erf-
iðum svæðum eins og við Grænland er svo
dýr vegna íss og veðurfars að eigi leit að
borga sig verða að vera milljarðar tunna af
olíu á svæðinu til að menn hagnist á fram-
kvæmdinni.
Þegar eru hafnar deilur um það milli
danskra og grænlenskra ráðamanna hvernig
skipta skuli væntanlegum olíugróða. Søren
Espersen, úr Danska þjóðarflokknum, á sæti
í dansk-grænlenskri nefnd um sjálfsstjórn
Grænlands. Hann ráðleggur þeim að gefa al-
veg frá sér olíudraumana.
„Þeir stara stöðugt á olíuna og eru ótrú-
lega heillaðir af henni,“ segir hann. „En um
leið láta þeir algerlega hjá líða að gera nokk-
uð til að bæta lélega menntun og mörg önnur
vandamál grænlensks samfélags.“
Olíudraumar byggðir á sandi?
Morgunblaðið/Ómar
Olía undir niðri? Kynjamyndir í ísnum á ægifögrum Ammassalik-firði í Grænlandi. Íbúarnir
gera ser vonir um að mikil olía leynist í landgrunninu og hún muni gerbreyta efnahag þeirra.
Í HNOTSKURN
»Grænlendingar fá nú árlega styrkfrá Dönum er nemur þrem millj-
örðum d. króna eða sem svarar um 30
milljörðum ísl. króna. Finnist olía geta
þeir afþakkað styrkinn.
»Þótt olía fyndist gætu liðið áratugiráður en hægt yrði að vinna hana.
Svo gæti farið að olía yrði þá litin horn-
auga vegna mengunar og aðrir orku-
gjafar yrðu búnir að fá yfirhöndina.
Engar sannanir fyrir
olíu við Grænland
Í dag opnar
upplýsingamiðstöð
um stærra og
BETRA ÁLVER
í Firði kl. 13:00
Við bjóðum Hafnfirðinga og aðra áhugamenn um
málefni álversins í Straumsvík velkomna við opnun
upplýsingamiðstöðvarinnar í dag kl. 13:00. Karlakórinn Þrestir
og Lay Low taka lagið og verður hressing á boðstólnum fyrir
börn og fullorðna.
Upplýsingamiðstöðin verður opin á virkum dögum frá
kl. 14 -18 og á laugardögum frá kl. 11-16 þar til kosning um
nýtt deiliskipulag í Hafnarfirði hefur farið fram. Starfsfólk
álversins verður til staðar og veitir upplýsingar og skiptist á
skoðunum við gestkomandi. Lögð verður áhersla á að færa
fram rök fyrir stækkun álversins og sýna fram á hvernig hún
gerir gott álver ennþá betra fyrir eigendur þess, starfsfólk,
Hafnfirðinga og aðra Íslendinga.
straumsvik.is
Sími 555 4260 • info@straumsvik.is