Morgunblaðið - 03.03.2007, Qupperneq 29
skemmdust ekkert við að taka þá nið-
ur.“ Þá var nýtt viðargólf lagt yfir
stofurýmið, eldhús og gang.
Alltaf sama heimskan
Afraksturinn er svo opið svæði
með stofu og eldhúsi, fjögur stærð-
arinnar svefnherbergi og baðher-
bergið að ógleymdri heljarinnar
vinnustofu, sem Birgir er að vonum
ákaflega hamingjusamur með. „Það
er alger draumaaðstaða að vera með
góða vinnustofu,“ segir hann. „Marg-
ir myndlistarmenn eru alltaf á hrak-
hólum með vinnuhúsnæði svo það var
frábær lending að sameina þetta
tvennt, íverustað og vinnuhúsnæði.“
Samtals telur íbúðin og vinnustof-
an 270 fermetra en að auki er óinn-
réttað loft yfir hæðinni sem er fullir
80 fermetrar. Þau Birgir og Sigrún
eru nú að láta teikna það rými upp og
vonast til að síðar meir muni það nýt-
ast sem vinnuaðstaða fyrir Sigrúnu
sem og geymslur og þvottahús. Í dag
er það fyrst og fremst notað sem
geymslur. Það verður þó kannski
ekki alveg strax því þau hjúin eru
orðin mett af framkvæmdum – í bili
a.m.k. enda unnið að endurbótunum
að mestu leyti með eigin höndum.
„Við fengum aðstoð með pípulagn-
irnar og rafmagnið en annað höfum
við gert sjálf,“ segir Birgir. „Í raun-
inni er þetta alltaf sama heimskan því
þetta er ekki fyrsta plássið sem mað-
ur gerir svona upp. Maður segir allt-
af þegar þessu lýkur: „aldrei aftur“
en nokkrum mánuðum síðar er mað-
ur búinn að gleyma hvað þetta var
mikið mál.“
Þó að Dugguvogurinn sé hluti af
iðnaðarhverfi skv. deiliskipulagi eru
þó nokkur dæmi um að borgin hafi
samþykkt íbúðarhúsnæði á svæðinu,
að uppfylltum ákveðnum skilyrðum
að sögn Birgis og Sigrúnar. Þau eru í
því ferli núna og eru bjartsýn á að fá
húsnæðið samþykkt enda búin að fá
jákvæð viðbrögð við fyrirspurnum
þess eðlis. „Það hefur verið velvilji
hjá borginni í þá veru að leyfa búsetu
ef maður getur sýnt fram á að hús-
næðið sé bæði vinnuaðstaða og heim-
ili,“ útskýrir Birgir. „Eftir því sem
við best vitum er á teikniborðinu að
þetta verði blandað íbúðahverfi þeg-
ar fram líða stundir og jafnvel verði
opnað frá Vogahverfi og hingað nið-
ureftir. Þannig nýttist Elliðaárdal-
urinn sem útivistarsvæði fyrir Vog-
ana alla. Ég er viss um að þetta
verður eitt af framtíðaríbúðahverfum
Reykjavíkurborgar,“ segir hann og
Sigrún kinkar kolli. „En auðvitað bú-
um við hér í því umhverfi sem er hér
núna – það er aldrei hægt að vita
hvað gerist eftir tíu ár.“
ben@mbl.is
Ólíkt Listaverk úr ýmsum áttum. Stóllinn er hluti stærra verkefnis þar sem Sigrún og kollegi
hennar fengu ólíkt fólk til að skreyta stól að eigin höfði. Grindin með bókunum var áður notuð
til að hala salat niður úr húsnæðinu á þeim tíma sem matvælaframleiðsla var þar starfrækt.
Baðherbergið „Það var alls konar hausverkur sem fylgdi því að byggja í kring um baðið og
innréttinguna,“ segir Birgir og Sigrún samsinnir. „Breiddin þurfti líka að passa við flísarnar
svo eiginlega urðum við fyrst að velja flísar og láta svo smíðina ráðast af þeim.“
Anddyri Litrík ljósakróna tekur á móti gestum sem
koma í heimsókn í Dugguvoginn. Í móttökunefndinni
eru oftast kettirnir Ljóni og Lappi sem hér eru fjarri.
Loftið Ýmiss konar fjársjóður leynist á þakhæðinni sem Sigrún og Birgir stefna á að innrétta
með tíð og tíma. Þar verður sennilega vinnuaðstaða fyrir Sigrúnu, geymslur og þvottahús gangi
allt eftir. „Mæður okkar eru mjög hrifnar af því að við höfum svona fínt þurrkloft,“ segja þau.
Mislitar Listaverk eftir Joby Willi-
amsson sem einnig sýnir á skilti
sem er við innganginn að íbúðinni.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 29