Morgunblaðið - 30.03.2007, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Reykjavík | Allar líkur eru á að kjör-
dæmamörkum í Reykjavík verði
breytt á þann veg að Grafarholti
verði skipt á milli Reykjavíkurkjör-
dæmis suður og Reykjavíkurkjör-
dæmis norður. Endanleg ákvörðun
liggur ekki fyrir, en samkvæmt lög-
um á – þegar ákvörðun er tekin – að
miða við íbúafjölda í Reykjavík fimm
vikum fyrir kjördag.
Í kosningalögum segir að miða
skuli við að kjósendur í Reykjavík-
urkjördæmunum „séu nokkurn veg-
inn jafnmargir“. Í greinargerð er
talað um að miða skuli við 2-3% mun.
Íbúabyggð í Reykjavík hefur á síð-
ustu árum þróast á þann veg að íbú-
um í suðurkjördæminu hefur verið
að fjölga, fyrst og fremst vegna þess
að Grafarholtið hefur verið að byggj-
ast upp. Munurinn á íbúafjölda milli
kjördæmanna er því orðinn meiri en
þessi 2-3 prósent sem greinargerð
með frumvarpinu segir til um.
Málið hefur verið rætt innan
landskjörstjórnar og er stuðningur
við að kjördæmamörk skiptist áfram
eftir Miklubraut. Mestar líkur eru
hins vegar á að Grafarholtinu verði
skipt í tvennt. Endanleg ákvörðun
um þetta verður tekin eftir páska.
Samkvæmt lögum á að birta auglýs-
ingu um kjördæmamörk í síðasta
lagi 4 vikum fyrir kjördag.
Kjördæma-
mörkum
breytt
Reykjavík | ÁTVR hefur hug á að
opna tvær nýjar vínbúðir í
Reykjavík. Fyrirtækið auglýsti í
vikunni í Morg-
unblaðinu eftir
húsnæði í hverf-
um 105 og 108.
Sigrún Ósk Sig-
urðardóttir, að-
stoðarforstjóri
ÁTVR, segir að
íbúafjölgun kalli
á opnun nýrra
búða.
„Það er þörf fyrir fleiri búðir
vegna aukins fólksfjölda. Við er-
um ekki með vínbúðir á þessum
svæðum. Þarna búa margir og
þarna eru mjög fjölmenn vinnu-
svæði. Við viljum því koma á
móts við viðskiptavini í þessum
hverfum. Við höfum ekki opnað
búð í Reykjavík í mörg ár.“
Sigrún sagði að þetta væri búið
að vera á döfinni hjá ÁTVR í
talsverðan tíma. Fyrirtækinu
hefði gengið illa að fá húsnæði í
þessum hverfum og þess vegna
hafi verið ákveðið að auglýsa eft-
ir húsnæði.
ÁTVR rekur í dag tólf vínbúðir
á höfuðborgarsvæðinu, þar af eru
sex í Reykjavík. Samtals rekur
ÁTVR 46 útsölustaði á landinu
öllu.
ÁTVR vill
opna tvær
nýjar vínbúðir
HRINGTORG verður í sumar
byggt á mótum Vesturlandsvegar
og Þingvallavegar. Þess er vænst að
framkvæmdin bæti umferðaröryggi
til mikilla muna, en mörg slys hafa
orðið á þessum slóðum.
Búið er að bjóða verkið út og seg-
ir Jón Valgeir Sveinsson, verkefna-
stjóri hjá Vegagerðinni, að útboðin
verði opnuð á þriðjudag í næstu
viku.
Hann segir gert ráð fyrir því að
framkvæmdir við nýja hringtorgið
hefjist í lok apríl eða í byrjun maí.
Jón Valgeir segir að ákveðið hafi
verið að byggja hringtorg á þessum
stað þar eð gatnamótin hafi verið
hætt að bera þá umferð sem þarna
fer um frá Þingvallavegi. „Fólk sem
er að koma ofan að úr dalnum lendir
í bið á gatnamótunum og umferðin
er þung,“ segir Jón Valgeir. Þá sé
mikið um þungaflutninga eftir
hringveginum á þessum slóðum og
umferðarhraðinn sé mikill.
Staðurinn þar sem byggja á
hringtorgið er fjölfarinn, einkum í
kringum helgar á sumrin. Sökum ís-
lensks veðurfars er þessi árstími
hins vegar hentugastur til ýmiss
konar framkvæmda. „Það er mjög
erfitt að vera með framkvæmdir
nema á þessum tíma. Það er ekki
hægt að vinna við malbikun og
hellulagnir og alla þá verkþætti sem
eru viðkvæmir fyrir veðrabreyting-
um nema á þessum árstíma. Við bú-
um við það hérna á Íslandi.“
Jón Valgeir segir að verkið hafi
verið boðið út með þeim skilyrðum
að verktaki megi ekki trufla umferð
frá hádegi á föstudögum og sunnu-
dögum frá og með 29. júní.
Stefnt er að því að hringtorgið
verði opnað fyrir verslunarmanna-
helgina í sumar.
Nýtt hringtorg gert við
Þingvallaveg í sumar
Bætir umferðaröryggi til muna á varasömum stað
" # $ % % " & ' (
! # %H
,
' NEMENDUR á öðru ári í fjölmiðla-
fræði við Háskólann á Akureyri
opnuðu í gær ljósmyndasýningu á
Akureyrarflugvelli í tilefni af 20
ára afmæli skólans. Sýningin ber
nafnið Tuttugu og myndirnar eru
af 20 útskriftarnemendum, og sagt
frá því hvað þeir eru að fást við í
dag. Sýningin verður sett upp á
fleiri flugvöllum síðar. Það er
Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, nemi
á þriðja ári í fjölmiðlafræði, sem
tók allar myndirnar. Hér er hún við
eina þeirra – af Sigrúnu Björk Jak-
obsdóttur bæjarstjóra.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Tuttugu“ á Akureyrarflugvelli
FULLTRÚAR minnihlutaflokkanna
í bæjarstjórn Akureyrar gagnrýndu
á fundi bæjarráðs í gær málsmeð-
ferð vegna samnings við Golfklúbb
Akureyrar um uppbyggingu á æf-
inga- og keppnissvæði hans þó svo
allir fögnuðu uppbyggingunni.
Jóhann G. Bjarnason, Framsókn-
arflokki, segir það vekja „furðu að
íþróttaráð bæjarins kom hvergi
nærri samningsgerð né umfjöllun
um innihald samningsins. Vegna
óska fulltrúa Framsóknarflokksins í
íþróttaráði var samningurinn kynnt-
ur í ráðinu og undirritun frestað þar
til kynningu var lokið.“
Oddur Helgi Halldórsson, L-lista,
fagnaði uppbyggingunni en finnst
„verklag við þessa samningsgerð
ekki til fyrirmyndar og vona að mál-
um verði háttað öðruvísi í framtíð-
inni,“ eins og segir í bókun hans.
Baldvin H. Sigurðsson, VG, lét
bóka: „Nauðsyn er að fagnefndir
fjalli um meiriháttar samninga áður
en þeir eru undirritaðir af embætt-
ismönnum bæjarins og áður en bæj-
arráð samþykkir slíka samninga.“
Gagnrýna
vinnubrögð
meirihluta
Vekur furðu að ÍRA
komi hvergi nálægt
MATÍS á Akureyri hefur tekið við mælingum á
mengunarefnum í matvælum. Um er að ræða nýtt
svið sem mun stórefla starfsemi Matís á Akureyri.
Sviðið mun sinna rannsóknum og mælingum á
mengunarefnum í matvælum, svo sem magni
skordýraeiturs, plöntueiturs og annarra lífrænna
mengunarefna sem safnast upp í umhverfinu.
Á hinu nýja sviði fara fram mælingar á magni
mengunarefna í innfluttu grænmeti, ávöxtum,
fiski, kjöti og öðrum matvælum.
Matís á Akureyri mun því gegna lykilhlutverki í
neytendavernd hér á landi. Auk þess er sviðinu
ætlað að safna gögnum sem sýna fram á hreinleika
íslenskra matvæla. Þessi gögn eru ætluð í gagna-
grunn sem mun nýtast framleiðendum og útflytj-
endum íslenskra matvæla auk kaupenda og neyt-
enda erlendis. Krafa um heilnæmi matvæla hefur
stóraukist og því munu rannsóknir Matís á Ak-
ureyri styðja við íslenskan matvælaiðnað og
tryggja öryggi framleiðslunnar, að sögn forsvars-
manna fyrirtækisins. Þeir kynntu í gær bæjar-
stjóranum, Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, starf-
semina, í tilefni uppbyggingar Matís á Akureyri
og formlegrar opnunar aðstöðunnar.
Hlutafélagið Matís ohf. tók til starfa 1. janúar sl.
Í fyrirtækinu sameinuðust þrjár ríkisstofnanir
sem unnið höfðu að matvælarannsóknum og þróun
í tengslum við matvælaiðnað; Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir Keldnaholti
og Rannsóknastofa Umhverfisstofnunar.
Starfsemi Matís efld til muna
Mælingar á mengunarefnum í matvælum flytjast alfarið til Akureyrar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Matís Sigrún Björk, Ásta Ásmundsdóttir efna-
fræðingur og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri.
PÓSTKORT sem Atlantsolía sendi
á hvert heimili á Akureyri, í tilefni
þess að fyrirtækið opnaði stöð í
bænum, hefur vakið athygli. Kortið
prýðir áratugagömul ljósmynd Eð-
varðs Sigurgeirssonar frá 1934 sem
tekin er af bænum handan úr
Vaðlaheiði og var fólk hvatt til þess
að þekkja tvö skip á Pollinum.
Á myndinni eru annars vegar
skemmtiferðaskip og hins vegar
eftirlits- eða birgðaskip.
Að sögn Huga Hreiðarssonar,
markaðsstjóra Atlantsolíu, hafa
borist tvær skemmtilegar ágiskanir
um fyrra skipið. Annars vegar að
þetta sé Milwaukee, skip sem Adolf
Hitler átti og kom m.a. með Evu
Braun til Akureyrar skömmu áður
en seinni heimsstyrjöldin skall á, og
hins vegar Arandora Star – 16.000
tonna gufuknúið háklassaskemmti-
ferðaskip sem skotið var niður af
þýskum kafbát í júlí 1940 þar sem
hátt í 900 manns fórust – mest
þýskir stríðsfangar.
Er þetta skip
Adolfs Hitlers?
TENGLAR
..............................................
www.atlantsolia.is
SKIPAÐUR
hefur verið
þriggja manna
vinnuhópur til
þess að sjá um
áframhaldandi
framtíð-
arskipulag Ak-
ureyrarvallar.
Samþykkt var í
bæjarstjórn 20.
mars að skipa slíkan hóp, en í hon-
um eru Helena Þ. Karlsdóttir, bæj-
arfulltrúi Samfylkingarinnar,
Fanney Hauksdóttir arkitekt og
Oddur Helgi Halldórsson, bæj-
arfulltrúi L-listans.
Vinnuhópur
vegna vallarins
AÐALHEIÐUR Eysteinsdóttir opn-
ar myndlistarsýningu í Galleríi + í
Brekkugötu 35 á morgun, laug-
ardag, kl. 14.00. Skúlptúrar hennar
hafa vakið verðskuldaða athygli á
síðustu árum.
Aðalheiður í +
AKUREYRI