Morgunblaðið - 30.03.2007, Page 28
menntun
28 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Spínat- og kotasælufylltar
tortillakökur með tómat-
salsa
fyrir 4–6
4 tortillapönnukökur
1 poki spínat
2 msk. kryddsmjör með krydd-
jurtum (má nota ólífuolíu)
1–2 dósir kotasæla
m/hvítlauk og án
2 msk. mascarpone-ostur
salt og pipar
sýrður rjómi eftir smekk
nokkur blöð Romaine-salat
Steikið spínatið á pönnu og saltið
og piprið. Hrærið saman masc-
arpone og kotasælu og piprið. Sigtið
spínatið og blandið saman við ostinn.
Gerið fyllinguna á pönnu, látið leka
af henni í sigti og fyllið tor-
tillapönnukökurnar með henni. Ofn-
bakið með ögn af pítsuosti og kota-
sælu og piprið yfir. Bakið í ofni
220°C í um 10 mín. Berið fram með
salsa og sýrðum rjóma.
Tómatsalsa
1 box kirsuberjatómatar
1 lítill vorlaukur
1 hvítlauksrif
safi úr 1 lime
1⁄3 búnt saxað basil
100 ml jómfrúarólífuolía
salt og pipar eftir smekk
ögn af chili
Blandið saman skornum tómöt-
um, smátt söxuðum lauk, hvítlauk,
smávegis af chili og extra virgin
ólífuolíu.
Kryddið með lime, salti, pipar og
ferskri kryddjurt, til dæmis basil
eða kóríander.
Lax með mangósalsa og
ferskri jógúrtsósu
fyrir 4
fjórar laxasteikur, um 160 g hver
salat að eigin vali
Flakið, beinhreinsið og skerið fit-
una af laxinum. Saltið og piprið.
Þurrsteikið öðrum megin á grill-
pönnu og rétt lokið honum hinum
megin í lok steikingartímans. Fram-
reiðið með salsa, salati og jógúrtsós-
unni.
Mangó- og sætkartöflusalsa
50 ml jómfrúarólífuolía
1 hvítlauksrif
½ fínt saxað kjarnhreinsað chili
1 hvítur laukur
safi úr einum lime-ávexti
1⁄5 búnt eða nokkur lauf af fersku
kóríander
salt og pipar
1 mangó
1–2 sætar kartöflur
1 papríka
Mangó er skorið í bita ásamt lauk,
chili og hvítlauk. Öllu blandað saman
við ólífuolíu, papríku og léttsoðnar
sætar kartöflur í álíka stórum bitum
og mangóið. Kryddað með fersku
kóríander og saltað og piprað eftir
smekk.
Jógúrtsósa
1 dós hreint jógúrt
2–4 tsk eða eftir smekk mangó-
kryddsulta (chutney)
Blandið saman jógúrt og góðri
mangókryddsultu.
Hollt og gott Spínat- og kotasælufylltar tortilla kökur. Lax með mangósalsa Tilvalið í helgarmatinn.
Ferskir réttir og framandi
Matreiðsluhefðir nokk-
urra landa eru samein-
aðar í réttunum sem
kokkarnir galdra fram að
þessu sinni.
Meistaramatur
VEFVARP mbl.is
meistaramatur
Þ
að er oft mikið púsluspil
að púsla dögunum sam-
an svo vel sé. Það er þó
bót í máli að ekki er
langt á milli skólanna
okkar tveggja, grunnskólans annars
vegar og framhaldsskólans hins veg-
ar. Við hlaupum bara á milli eftir
Digranesveginum, en auk þess þarf
náttúrlega að sinna íþróttunum,
músíkinni og félagslífinu. Það væri
nefnilega hræðilegt að sitja öllum
stundum yfir lærdómnum. Maður
verður líka að kunna að skemmta
sér. Mestu máli skiptir að geta
skipulagt tímann sinn vel,“ sagði
Guðmundur Már Guðmundsson í
samtali við Daglegt líf, sem brá sér í
stærðfræði 303 í Menntaskólann í
Kópavogi til stærðfræðikennarans
Jóns Eggerts Bragasonar.
Í skólastofunni var þétt setinn
bekkurinn af nemendum á öðru ári í
framhaldsskóla, en auk þeirra sat
Guðmundur Már á fremsta bekk
ásamt skólasystrum sínum úr tíunda
bekk í Kópavogsskóla, þeim Jó-
hönnu Andreu Hjartardóttur og Evu
Hrund Hlynsdóttur.
Í samræmi við getu og vilja
Menntaskólinn í Kópavogi hefur
undanfarin fimm ár verið í nánu
samstarfi við grunnskóla Kópavogs
um kennslu nemenda. Í upphafi ein-
skorðaðist þessi kennsla við áfanga í
stærðfræði og ensku, en nú taka
grunnskólanemendur framhalds-
skólaáfanga í spænsku, dönsku,
frönsku, þýsku, ensku og stærðfræði
auk verkfræði. Einkum hafa það þó
verið nemendur, sem sýnt hafa góð-
an námsárangur og ástundun, sem
hafa getað sótt í þessa áfanga, að
sögn Helga Kristjánssonar,
aðstoðarskólameistara MK.
Síðastliðið haust var tekið enn eitt
skrefið í áttina að því að brúa bilið
milli grunn- og framhaldsskóla þeg-
ar nemendum bauðst að kynnast
þeim samningsbundnu iðngreinum,
sem kenndar eru í skólanum, það er
bakstri, kjötiðn, framreiðslu og mat-
reiðslu. Ásóknin fór fram úr björt-
ustu vonum og stunda nú um áttatíu
grunnskólanemendur nám í verk-
náminu auk þeirra, sem sækja
áfanga í hefðbundnu bóknámi. Sam-
anlagt sækja því nú á þriðja hundrað
grunnskólanemendur einstaka
áfanga í MK, en þess má geta að inn-
an við fimm hundruð nemendur eru í
tíunda bekk í grunnskólum Kópa-
vogs.
„Markmiðið er að nemendur séu í
sínu félagslega umhverfi í grunn-
skólunum og sæki einstaka áfanga í
MK. Þannig fá þeir að njóta sam-
vista við jafnaldra um leið og þeir fá
að takast á við nám í samræmi við
getu og vilja,“ að sögn Helga.
24 framhaldsskólaeiningar
Þau Guðmundur Már, Jóhanna
Andrea og Eva Hrund koma til með
að útskrifast úr grunnskólanum sín-
um í vor, en munu á sama tíma hafa
lokið allt frá fimmtán og upp í 24 ein-
ingum í framhaldsskóla. Að sögn
Helga tekur meðalframhaldsskóla-
nemandi 17,5 einingar á önn. Guð-
mundur Már, sem lokið hefur 24
framhaldsskólaeiningum, er því
langt kominn með fyrsta mennta-
skólaárið um leið og hann útskrifast
úr grunnskóla.
Guðmundur hóf menntaskóla-
námið í áttunda bekk grunnskóla og
hefur í vor lokið níu einingum í
stærðfræði, níu einingum í ensku,
þremur einingum í þýsku og þremur
í dönsku.
Þegar hann er spurður hvaða nám
hann stefni á svarar hann því til að
þetta sé skelfileg spurning, sem
hann eigi örugglega eftir að liggja
andvaka yfir. „Það er þó margt sem
bendir til þess að búið sé að ákveða
það fyrir mig því foreldrar mínir
báðir eru bæði kennarar og prestar.
Og ég á upphafsstafina GMG sem
Maður verður líka að kunna að skemm
Morgunblaðið/Golli
Skipulagningin Stundaskráin vill stundum fara í algjöra kássu, segja tíundu bekkingarnir Jóhanna Andrea Hjart-
ardóttir, Guðmundur Már Guðmundsson og Eva Hrund Hlynsdóttir, sem hér eru í stærðfræðitíma í MK.
Í HNOTSKURN
»Um helmingur af tæplegafimm hundruð nemendum
í tíunda bekk í grunnskólum
Kópavogs sækir áfanga við
Menntaskólann í Kópavogi.
» Fimm ár eru liðin síðansamstarf grunnskóla
Kópavogs og MK hófst eftir að
grunnskólarnir fóru þess á leit
að boðið yrði upp á úrræði fyr-
ir „góða“ nemendur.
» Nemendum á grunn-skólastigi, sem sýna góðan
námsárangur og ástundun,
býðst að taka einingar á fram-
haldsskólastigi í stærðfræði,
ensku, dönsku, þýsku,
frönsku, spænsku og verk-
námi.
Um helmingur tíundu
bekkinga í grunnskólum
Kópavogs er jafnhliða
grunnskólanáminu að
flýta fyrir sér með því að
sækja sér einingar í
Menntaskólann í Kópa-
vogi. Jóhanna Ingvars-
dóttir sat stærðfræðitíma
í MK með fjölmörgum
framhaldsskólanemum á
öðru ári og þremur
grunnskólanemum.