Morgunblaðið - 04.04.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.04.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 93. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is PLASTIÐ BURT OLÍUSÓUN OG UMHVERFISSPJÖLL. GAMLA TUÐRAN KEMUR AFTUR >> 6 HALLGRÍMSPASSÍA FRUMFLUTT PÍSLARSAGA REIÐI OG SORG >> 18 FRÉTTASKÝRING Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is STJÓRNENDUR Alcan og álversins í Straumsvík hafa ekki ákveðið hvernig brugðist skuli við niðurstöðu íbúakosning- arinnar í Hafnarfirði, að sögn Hrannars Pét- urssonar upplýsingafulltrúa. Undirbúningur að stækkun álversins hefur staðið í átta ár og hefur þegar kostað 800–900 milljónir króna. Engin varaáætlun er til að bregðast við þeirri stöðu sem nú er komin upp. Hrannar telur að þegar um hægist eftir íbúakosningu og páska muni Alcan skoða hvaða kostir séu í boði. Alcan hefur sagt að stækkun álversins í Straumsvík sé forsenda þess að fyrirtækið haldi velli í samkeppni við önnur álver. Framleiðslugetan er nú um 180 þúsund tonn á ári en hagkvæmustu álverin eru umtals- vert stærri og framleiðslukostnaður þeirra á hvert áltonn mun lægri en í Straumsvík. Hugmyndir hafa skotið upp kollinum um að reisa mætti afkastameiri kerskála í stað þeirra sem nú eru í Straumsvík og auka þannig framleiðslugetuna innan ramma gild- andi deiliskipulags. Í Straumsvík eru þrír kerskálar og tvær raðir rafgreiningarkerja langsum eftir hverjum skála. Rafmagn er leitt milli kerja í hverjum skála og mynduð straumlykkja. Nýju kerskálarnir sem Alcan hugðist reisa áttu að vera með einni röð þverstæðra kerja hvor og straumurinn leiddur í hring milli skálanna. Því verður að reisa skála af þeirri gerð í pörum. Bygging nýrra kerskála í stað þeirra gömlu myndi því krefjast lokunar álversins að stórum hluta í nokkur ár. Undirbúningur Alcans vegna stækkunar fólst m.a. í kaupum á landi af Hafnarfjarð- arbæ 2003 og gerð umhverfismats sem lauk árið 2002 og gildir í 10 ár. Eins aflaði Alcan starfsleyfis og samdi um útvegun raforku til stærri verksmiðju. Alcan og OR gerðu samning 11. maí 2006 sem tryggði Alcan um 40% af orkuþörf stækkunarinnar. Gert var ráð fyrir að orkan kæmi frá jarðvarmavirkjunum á Hellisheiði. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins getur Alcan horfið frá samkomulaginu en þarf samt að inna af hendi ákveðnar greiðslur. Alcan og Landsvirkjun undirrit- uðu samkomulag 15. desember 2006 sem framlengdi fram á mitt þetta ár viljayfirlýs- ingu um gerð samnings vegna 60% raforku til stækkunarinnar. Einnig fólst í því stað- festing á samkomulagi um rafmagnsverð. Þá var samið um skiptingu kostnaðar vegna undirbúnings virkjana í neðrihluta Þjórsár. Alcan skyldi greiða 2⁄3 af kostnaðinum en fá hann endurgreiddan að fullu ef af stækkun álversins yrði. Morgunblaðið/Ómar Framtíð Hagkvæmustu álver í dag eru umtalsvert stærri en Alcan í Straumsvík. Óviss framtíð „VIÐ eigum það til að gera of mikl- ar kröfur til okkar vegna þess að við vitum ekki hvers við getum vænst af okkur sjálfum. Við getum farið að starfa á vinnustöðum þar sem við leyfum fólki að fara yfir mörk okkar af því við þekkjum þau ekki sjálf. Til að geta náð árangri í skóla eða í vinnu verðum við að geta gefið fólki í kringum okkur skilaboð.“ Þannig lýsir Sigríður Jónsdóttir því að vera fullorðin með ofvirkni. Hún veitir nú öðrum í sömu spor- um ráðgjöf. Athyglisbrestur með ofvirkni er vangreind röskun meðal fullorð- inna því í 50–70% tilvika eldist hún ekki af börnum og unglingum. Rannsóknir benda til að allt að 7,5% barna séu með athyglisbrest með ofvirkni og hluti læknast en gera má ráð fyrir að allt að tíu þús- und Íslendingar undir fimmtugu eigi við þessa röskun að stríða. Mikil ásókn hefur verið að und- anförnu í greiningu og meðferð við athyglisbresti með ofvirkni hér á landi og að sögn Sóleyjar Drafnar Davíðsdóttur sálfræðings á geð- sviði Landspítalans er svo komið að fullorðnir þurfa að bíða í allt að tvö ár eftir greiningu. Sigríður segir að opin rými geti reynst erfið fólki með athygl- isbrest með ofvirkni og sömuleiðis geti mikið áreiti reynst erfitt. Sigríður segir fullorðið fólk með ofvirkni eiga erfitt með að ljúka verkefnum og hafa yfirsýn yfir þau. Fólk getur verið seint með verkefnaskil og almennt gengur fólki með ofvirkni illa að hafa stjórn á lífi sínu. | 26 Þekkja ekki eigin mörk DULMAGNAÐA birtu lagði frá Viðey í gær- kvöldi frá friðarsúlu Yoko Ono sem geymir hætti í átt til borgarinnar og, að mati Yoko Ono, um alla heimsbyggðina. óskir fólks víðsvegar að úr heiminum. Frið- arsúlan stafaði birtu sinni með táknrænum Morgunblaðið/Kristinn Loftsjónir yfir sundunum TÆPLEGA fimmtugur karlmaður særðist lífshættulega í hnífstungu- árás í gærkvöldi og var fluttur á slysadeild þar sem hann gekkst undir aðgerð. Fjórir menn voru handteknir vegna árásarinnar og hefur einn þeirra viðurkennt verknaðinn. Að sögn læknis á slysa- deild Landspítalans í gærkvöldi var maðurinn með lífshættulega áverka. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- geymslu en strax lá fyrir viður- kenning eins þeirra á verknaðinum. Hinn særði missti mikið blóð. Við vettvangsrannsókn var hald lagt á hnífinn sem notaður var en þar er um að ræða eldhúshníf. Mennirnir hafa allir komið við sögu lögreglunnar vegna annarra af- brota. Þeir eru fæddir á bilinu 1956 til 1967. Frumrannsókn málsins er hafin og má leiða líkur að því að málið verði rannsakað sem tilraun til manndráps eða sérstaklega hættu- leg líkamsárás. inu segir að fimm menn hafi setið heima hjá einum þeirra í íbúð við Hátún en aðdragandinn að árásinni sé óljós. Einhverra hluta vegna hafi þó einn þeirra sótt sér hníf inn í eld- hús og skipti engum togum að hann stakk manninn í brjóstið. Hringdu sjálfir í lögregluna Sjálfir hringdu mennirnir í lög- regluna og létu vita hvað hefði átt sér stað og sendi lögreglan meðal annars sérútbúna lögregluþjóna í hlífðarvestum. Mennirnir voru allir handteknir og settir í fanga- Stunginn í brjóstið  Fjórir handteknir og einn viðurkennir hnífsstunguna  Maður um fimmtugt er lífshættulega slasaður Morgunblaðið/Júlíus Árás Sérútbúnir lögregluþjónar í hlífðarvestum voru kallaðir út. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.