Morgunblaðið - 04.04.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 9
FRÉTTIR
SÍÐUMÚLA 11 - 108 REYKJAVÍK - SÍMI 575 8500 - www.fasteignamidlun.is
Pálmi Almarsson
lögg. fasteignasali
Sverrir Kristjánsson
lögg. fasteignasali
Brynjar Fransson
lögg. fasteignasali
Þór Þorgeirsson
lögg. fasteignasali
TRAUST, ÞEKKING, FAGMENNSKA OG REYNSLA ERU OKKAR LYKILORÐ
ERUM TIL ÞJÓNUSTU REIÐUBÚNIR - 100 ÁRA SAMANLÖGÐ REYNSLA
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Glæsilegur
sparifatnaður
fyrir hátíðirnar
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 2. hæð, 105 Reykjavík
Símar: 515 1735 og 898 1720, fax: 515 1717
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingis-
kosninganna 12. maí nk. er hafin.
Kosið er hjá sýslumönnum um allt land. Hjá Sýslumanninum í
Reykjavík, Skógarhlíð 6, er kosið alla virka daga kl. 9.00 – 15.30,
laugardaga, sunnudaga og aðra helgidaga kl. 12-14, en lokað
föstudaginn langa og páskadag.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á
heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýsingavef
dómsmálaráðuneytisins www.kosning.is
Sjálfstæðisfólk!
Látið okkur vita um stuðningsmenn sem ekki verða heima
á kjördag, t.d. námsfólk erlendis.
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Ný sending
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Kjólar við buxur
str. 36-56
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, átti síðastliðinn mánu-
dag viðræður við forystumenn Ohio
ríkisháskólans, stærsta háskóla
Bandaríkjanna. Samkvæmt upplýs-
ingum forsetaskrifstofunnar kom
fram ríkur vilji til að efla samstarf
við íslenska vísindasamfélagið um
rannsóknir á fjölmörgum sviðum.
Rannsóknarverkefni í land-
græðslu, orku og jöklafræðum
Í heimsókninni voru undirritaðir
þrír samningar milli Ohio-háskól-
ans og þriggja íslenskra háskóla,
Háskóla Íslands, Landbúnaðarhá-
skólans og Háskólans á Akureyri.
Við þetta tækifæri voru jafn-
framt mótaðar tillögur um rann-
sóknarverkefni í landgræðslu, orku-
málum, jöklafræðum og um
aðgerðir gegn loftslagsbreytingum.
Í heimsókninni átti forseti einnig
viðræður við nýkjörinn ríkisstjóra
Ohio, Ted Strickland, um fjölþætt
tækifæri sem fólgin eru í aukinni
samvinnu milli Ohio og Íslands á
sviði vísinda, rannsókna og við-
skipta.
Var forseta boðið að flytja opn-
unarfyrirlestur í nýrri alþjóðlegri
fyrirlestraröð sem háskólinn hefur
efnt til. Fjallaði hann þar meðal
annars um framlag Íslands á sviði
alþjóðlegra rannsókna og hvernig
Íslendingar gætu með samvinnu við
fremstu háskóla og rannsóknar-
stofnanir í veröldinni vísað veginn
að nýjum lausnum í baráttunni
gegn loftslagsbreytingum og gróð-
ureyðingu.
Átti viðræður við John Glenn
Ólafur Ragnar átti við þetta
tækifæri einnig viðræður við John
Glenn, fyrrum öldungadeildarþing-
mann og geimfara, en hann var
fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem fór
á braut kringum jörðina. Mikla at-
hygli vakti og fyrir tíu árum þegar
Glenn endurtók leikinn og varð
hann þá jafnframt elsti maðurinn
til fara út í geiminn.
Við Ohio-ríkisháskólann starfar
ný stofnun kennd við John Glenn
þar sem stundaðar eru rannsóknir
á sviði stjórnsýslu, stefnumótunar
og þróunar lýðræðis. Forsetinn og
John Glenn ræddu meðal annars
nýjar aðferðir á vettvangi þjóðmála
og alþjóðlegra samskipta og hvern-
ig þær gætu greitt fyrir lausnum á
mörgum þeirra vandamála sem
helst brenna á heimsbyggðinni.
Í fylgd með forseta í heimsókn-
inni til Ohio voru Sveinn Runólfs-
son, forstjóri Landgræðslunnar,
Ágúst Sigurðsson, rektor Landbún-
aðarháskóla Íslands, Andrés Arn-
alds, aðstoðarforstjóri Landgræðsl-
unnar, Ása Aradóttir prófessor og
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
sérfræðingur hjá Landgræðslunni.
Þau hafa unnið að undirbúningi
viðamikillar alþjóðlegrar ráðstefnu
sem haldin verður á Íslandi í byrj-
un september. Á ráðstefnunni verð-
ur einkum fjallað um það hvernig
hundrað ára reynsla Íslendinga í
landgræðslu og skógrækt getur
lagt grundvöll að verkefnum víða
um heim til að hamla gegn þeim
gríðarlega uppblæstri og gróður-
eyðingu sem ógnar afkomu hundr-
aða milljóna manna, einkum í Afr-
íku og Asíu.
„Slíkar landbætur geta orðið
veigamikið framlag í baráttunni
gegn loftslagsbreytingum enda
beinist athygli heimsbyggðarinnar í
vaxandi mæli að því hvernig gróður
bindur koltvísýring. Slík kolefnis-
binding getur jafnframt orðið
veigamikil undirstaða matvæla-
framleiðslu í þróunarlöndum.“
Fundar með forystumönnum
hjá MIT háskólanum í dag
Í dag mun Ólafur Ragnar eiga
viðræður við forystumenn og pró-
fessora við MIT-háskólann í Boston
(Massachusetts Institute of
Technology) um orku- og umhverf-
ismál.
Í fréttatilkynningu frá háskólan-
um er haft eftir Jefferson Tester,
prófessor við MIT, að Ísland sé í
fremstu röð í heiminum í nýtingu
jarðvarma til orkuframleiðslu og
Bandaríkjamenn geti margt lært af
Íslendingum og þeirri tækni sem
hér er í þróun við vetnisframleiðslu.
Svafa Grönfeldt, rektor Háskól-
ans í Reykjavík, verður í fylgd með
forsetanum. Í frétt MIT-háskólans
kemur fram að Svafa hafi áhuga á
að efla samvinnu við MIT en eins
og fram hefur komið er verið að
hrinda úr vör samstarfi á vegum
HR við MIT um þekkingu og ný-
sköpun.
Víðtækt samstarf
við Ohio-háskóla
Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskólinn og Háskólinn á Ak-
ureyri gera samninga við stærsta háskóla Bandaríkjanna
Ræddu saman Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og John Glenn,
fyrrverandi öldungadeildarþingmaður og geimfari, ræðast við en við Ohio-
ríkisháskólann starfar ný stofnun sem kennd er við John Glenn.
Í HNOTSKURN
»Tillögur voru mótaðar umrannsóknarverkefni í
landgræðslu, orkumálum,
jöklafræðum og um aðgerðir
gegn loftslagsbreytingum.
»Alþjóðleg ráðstefna umlandgræðslu verður á Ís-
landi í september.
»Forsetinn ræddi við rík-isstjóra Ohio um tækifæri
sem fólgin eru í aukinni sam-
vinnu milli Ohio og Íslands á
sviði vísinda, rannsókna og
viðskipta.