Morgunblaðið - 04.04.2007, Page 11

Morgunblaðið - 04.04.2007, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 11 FRÉTTIR VERÐ á matvælum í fjórum lág- vöruverðsverslunum lækkaði um 6,4 – 11% frá febrúar til mars. Þetta eru niðurstöður viðamikilla verð- mælinga verðlagseftirlits ASÍ í mat- vöruverslunum. Henný Hinz, hag- fræðingur ASÍ, segist vera nokkuð ánægð með niðurstöðurnar. Lækk- un virðisaukaskatts á matvælum hafi skilað sér í þessum verslunum. Eftir páska verða birtar tölur um verðbreytingar í fleiri verslunum. Henný segir að verðlækkanir í lágvöruverðsverslunarkeðjum í tengslum við lækkanir á virðisauka- skatti og vörugjöldum þann 1. mars sl. hafi verið í samræmi við útreikn- inga Hagstofunnar á tilætluðum áhrifum aðgerðanna. „Í heildina held ég að við getum verið nokkuð ánægð með þetta. Verslanirnar eru að skila þessari lækkun alveg ágæt- lega. Þetta er aðeins mismunandi eftir verslunarkeðjum og eftir vöru- flokkum, en þegar búið er að reikna þetta eftir vörukörfum skila lág- vöruverðsverslanirnar þessu býsna vel,“ sagði Henný og bætti við að ASÍ væri ekki að bera saman verð á einstökum vörum milli búða heldur hvernig þær skiluðu lækkuninni. Gosdrykkir lækkuðu mest Til þess að fylgjast með verðþró- un í verslunum fyrir breytinguna hóf verðlagseftirlitið verðmælingar í desember 2006. Frá desember 2006 til febrúar 2007 hækkaði verðlag í lágvöruverðsverslunum á bilinu 0,2– 2,2%. Vegin verðhækkun á því tíma- bili var mest í verslunum Krón- unnar en minnst í verslunum Bón- uss. Þegar skoðaðar eru verðbreytingar á tímabilinu frá febrúar til mars 2007, þegar op- inberar álögur á matvörur voru lækkaðar, kemur í ljós að verðlag lágvöruverðsverslananna lækkaði á bilinu 6,4 – 11%. Vegin verðlækkun var minnst í verslunum Nettó en mest í verslunum Krónunnar. Þegar skoðaðar eru breytingar á einstökum vöruflokkum má sjá að mest verðlækkun varð á gosdrykkj- um, söfum og vatni í kjölfar lækk- ana á virðisaukaskatti og vörugjöld- um. Þá lækkaði verð á vörum í flokki sykurs, súkkulaðis og sæt- inda næstmest. Hagstofa Íslands áætlaði í upp- hafi árs að lækkun á virðisauka- skatti mundi lækka verð á mat og drykkjarvörum um 7,4% og niður- felling á vörugjöldum um 1,3% til viðbótar. Lækkun á virðisauka- skatti átti að skila sér í vöruverði til neytenda þegar um sl. mánaðamót þegar breytingin tók gildi en hins vegar getur það tekið lækkanir vegna niðurfellingar á vörugjöldum 1–2 mánuði að skila sér að fullu út í vöruverð. Verðmælingar verðlagseftirlits ASÍ voru gerðar í verslunarkeðj- unum um land allt og stóðu yfir í um vikutíma í senn í desember, febrúar og mars. Rétt er að taka fram að ekki er um verðsamanburð á milli verslanakeðja að ræða held- ur er hér einungis lagt mat á verð- breytingar innan hverrar keðju fyr- ir sig. Við útreikninga á verðbreytingum verslana er reiknuð út vegin breyting á verði vörukörfu í hverri verslunarkeðju. Grunnur að vog vörukörfunnar er byggður á þeirri vog sem Hagstofa Íslands notar til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Skattalækkunin skilaði sér í lágvöruverðsverslunum Morgunblaðið/Ásdís Lækkun Hagstofan reiknaði með að lækkun virðisaukaskatts á matvælum ætti að leiða til 7,4% lækkunar á verði mat- og drykkjarvara. Niðurstaða verðlagseftirlits ASÍ er að verðið hafi lækkað um 6,4-11% frá febrúar til mars. )!''"(! *$( +! ,$ ' ' - !''  ."/ 0 1'(! 2&!''  3' "(! * ''' 0 '''"         !        4'5'326 71 7  "#  8 8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8 71 7  $#  8 8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8 71 7  $ #  8 8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8 71 7  % #  8 8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8  8                ! 8 ! 8 ! 8 ! 8  8  8  8  8     & '(  FERÐAFÉLAG Íslands hefur keypt Baldvinsskála á Fimmvörðu- hálsi af Flugbjörgunarsveitinni í Skógum. Fyrirhugað er að endur- nýja skálann og bæta aðstöðu. Bald- vinsskáli er vel staðsettur á Fimm- vörðuhálsi og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir göngumenn. Flugbjörgunarsveitin í Skógum og sérstaklega Baldvin Sigurðsson unnu mikið starf við uppbyggingu skálans á sínum tíma, segir í frétta- tilkynningu, en skálinn ber nafn Baldvins. Hann var reistur 1974 og er 42 fermetrar, en á síðustu árum hefur skálinn látið nokkuð á sjá und- an óblíðum náttúruöflum og eins mun umgengni sumra ferðamanna lítt til fyrirmyndar. Útivist rekur Fimmvörðuskála og í tilkynningunni er haft eftir Páli Guðmundssyni formanni FÍ að fé- lagið hafi sett sig í sambandi við Úti- vist og gert grein fyrir áformum FÍ, sem vilji eiga gott samstarf um þjón- ustu og uppbyggingu á þessari vin- sælu leið, fín gistiaðstaða sé í Fimm- vörðuskála og FÍ muni hiklaust vísa á hana. FÍ kaupir Baldvins- skála Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Sigketill á Fimmvörðuhálsi. SKIPSTJÓRI togbáts frá Rifi hafði samband við vaktstöð siglinga um kl. 22:00 í gærkvöldi. Hann hafði fengið torkennilegan hlut í veiðarfærin og sett á land í höfninni á Rifi. Hann var ekki viss um að þetta væri sprengja en taldi réttast að hafa samband við sprengjusérfræðinga Landhelgis- gæslunnar. Eftir að skipstjórinn hafði lýst hlutnum fyrir sprengjusérfræðing- unum grunaði þá strax að um sprengju væri að ræða. Þeir höfðu þegar samband við lögregluna á Rifi, sem fór á staðinn, tók myndir og sendi Landhelgisgæslunni. Mynd- irnar sýndu að þetta var djúp- sprengja. Lögreglan ákvað að vakta höfnina þannig að enginn kæmi nálægt sprengjunni þar til sprengjusér- fræðingar Landhelgisgæslunnar kæmu á staðinn. Þeir komu til Rifs rétt fyrir kl. tvö í fyrrinótt. Við rann- sókn á sprengjunni kom í ljós að hún var full af sprengiefni en kveikibún- aðinn vantaði á hana. Sprengjan var flutt á afvikinn stað þar sem sprengjusérfræðingarnir eyddu henni. Sprengja gerð óvirk á Rifi Ljósmynd/Sigurður Ásgrímsson Þingeyjarsveit | Þrír svartir lambhrútar sem gengið hafa úti í allan vetur fundust í vikunni í Garðsárdal rétt við Gönguskarð. Þeir voru ótrúlega vel á sig komnir miðað við aðstæður en þó að snjólétt hafi verið í byggð hefur verið mikill vetur á þessu svæði allt síðan í nóv- ember í haust. Það voru feðgarnir Haukur Þórhallsson, bóndi á Kambsstöðum, og Hermann Hauksson sem fóru á sleð- um suður Vaðlaheiði til þess að líta eftir kindum. Fé þeirra gengur jafnan á Bleiksmýrardal en aðeins vant- aði upp á að allt féð skilaði sér í haust. Fóru þeir þess vegna í leiðangur þennan, en þegar þeir sáu svo hrút- ana reyndist ekki auðvelt að ná þeim. Þeir hringdu þá á tvo aðra bæi til þess að fá hjálp og þegar hún barst var þar kominn nægur liðsafli til þess að handsama hrútana og náðust þeir í snjóskafli þar sem erfitt var fyrir þá að hlaupa. Tveir þessara hrúta voru tvílembingar frá Kambs- stöðum og hafði ærin, móðir þeirra, skilað sér í haust. Þriðji hrúturinn var frá Fjósatungu og höfðu þeir greinilega haldið sig þarna um tíma. Ekki reyndist auð- velt að koma hrútunum upp Kolgrafargil vegna þess hve bratt það er, auk þess sem það var nær ófært vegna snjóleysis. Þeir voru því teymdir langa leið, en menn voru fegnir þegar hægt var að aka þeim á sleðunum uppi á Vaðlaheiðinni. Þá var sigurinn unninn og allir höfðu ánægju af ferð þessari þó að erfið væri. Fnjóskdælir finna útigöngufé Morgunblaðið/Atli Vigfússon Mörg handtök Kolgrafargilið var erfitt yfirferðar á sleða og því þurfti að teyma hrútana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.