Morgunblaðið - 04.04.2007, Síða 24

Morgunblaðið - 04.04.2007, Síða 24
|miðvikudagur|4. 4. 2007| mbl.is daglegtlíf Ofvirkni eldist ekkert endilega af börnum og unglingum og í heimi hinna fullorðnu er of- virkni vangreint vandamál » 26 heilsa Það er hægt að auka hollustu í hefðbundnum köku- og eft- irréttauppskriftum án þess að draga úr bragðgæðum » 25 matur Þrír skrautlegir pappírskjólar eru nú á sýningu í Aþenu þar sem leitast er við að kanna hve klæðilegur pappír er » 27 tíska Af hverju eru páskarnirhaldnir hátíðlegir?„Af því að Jesús reis uppfrá dauðum,“ segir Fríða Katrín en hún er ein af fjölmörgum nemendum bekkjar 31 sem hafa rétt upp hönd og gefið þannig til kynna að þeir viti svarið við spurningunni. – En hvernig getur maður risið upp frá dauðum? Geta allir risið upp frá dauðum? „Nei, svarar bekkurinn í kór og nánast allar hendur eru á lofti. Ólöf Ylfa fær að svara. „Nei, út af því að Jesús var sonur Guðs.“ Krakkarnir segjast hafa lært þetta allt í skólanum, líka í fyrra. Og þau hlakka til páskanna. Andrea ætlar að halda upp á afmælið sitt. „Ég á oft af- mæli á páskunum. Ég er búin að eiga afmæli á skírdag, pálmasunnudag og föstudaginn langa. Jú, ég ætla að halda stóra afmælisveislu.“ Berglind ætlar til Breiðdalsvíkur en þangað hefur hún komið nokkrum sinnum. – Eru páskarnir öðruvísi á Breið- dalsvík en í Reykjavík? „Nei, ég held ekki,“ segir hún og brosir feimnislega. Margrét, sessunautur hennar, ætl- ar hins vegar til Svíþjóðar og er alveg viss um að Svíar haldi upp á páskana og borði páskaegg. „En þau eru bara eintóm, sem sagt það er ekkert inni í þeim.“ – Gleyma þeir að setja nammið inn í páskaeggin? „Nei, nei, þetta er bara vani hjá þeim,“ segir Margrét vafningalaust. Kenningar um páskaegg Þegar spurningunni um hvers vegna börn og fullorðnir fái súkku- laðipáskaegg á páskunum er velt upp rekur krakkana í bekk 31 aðeins í vörðurnar en þau eru fljót að smíða kenningar. „Vegna þess að ungarnir, þeir eru gulir og þeir verpa eggjum. Og þess vegna er það kallað páska- egg og ég held nefnilega að Jesús hafi verið eitthvað með unga,“ segir Sara Sif. „Það finnst svo mörgum páska- egg góð,“ segir Ólöf Ylfa og Andrea bætir við: „Við erum svo miklir sæl- gætisgrísir.“ Margrét kemur með góðan punkt: „Líka af því að ungarnir eru gulir og gulur tengist páskunum og ungarnir koma úr eggjum og þess vegna er þetta. Í staðinn fyrir að hafa hvít egg, þá eru þau brún og þess vegna eru þetta páskaegg.“ Fyndist ykkur leiðinlegt ef páska- eggin væru hvít og venjuleg? Bland- aður kór af já-um og nei-um ómar um kennslustofuna, jáyrðin eru þó aðeins hærri. Flest segjast þau fá eitt páska- egg og finnst auk þess að borða það sérstaklega gaman að leita að því. „Pabbi minn faldi einu sinni páska- eggið úti en ég fann það samt,“ segir Hans Jón. „Það er bæði gaman að leita að páskaegginu og borða það,“ segja Tómas Veigar og Halldór Gauti. Sumir segjast jafnvel fara í ratleik. En nú eru þau komin í páskafrí líkt og aðrir grunnskólanem- endur og það verður sko áreiðanlega „ójá“ hjá mörgum eins og einn nem- andinn komst að orði þegar spurt var hvort þau ætluðu ekki að hafa það gott í páskafríinu. Páskar Krakkarnir í bekk 31 í Húsaskóla hafa pælt heilmikið í páskunum og auðvitað líka í páskaeggjum. Flest fá þau eitt páskaegg og sum þeirra þurfa að hafa fyrir því að leita að því. Morgunblaðið/Ásdís Páskadúllur Nemendurnir föndruðu að sjálfssögðu fyrir páskana, m.a. fallegar páskadúllur. Duglegar Þessar bekkjarsystur voru komnar langt með sína páskaunga. Páskapæling- ar barnanna Börn hafa einlæga sýn á lífið og þau smíða líka skemmtilegar kenningar sem falla að heimsmynd þeirra sem er í sífelldri mótun. Unnur H. Jóhannsdóttir pældi í páskunum með krökkum í bekk 31 í Húsaskóla. Nammistelpa Ólöf Ylfa borðar ekki páskaegg en fær svolítið mikið af nammi í staðinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.