Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 29
María Bragadóttir | 3. apríl
Starf í þjónustu eldri
borgara er skemmti-
legt starf
UMRÆÐA um mál-
efni eldri borgara hef-
ur haft tilhneigingu til
að vera neikvæð þar
sem hún hefur ein-
kennst af umræðu um
biðlista, skort á hjúkrunarrýmum og
manneklu. Sjaldan eða aldrei kemst
í umræðuna hversu skemmtilegt og
gefandi starf með eldri borgurum er.
Meira: mariabragadottir.blog.is
Tómas G. Gunnarsson | 3. apríl
Frá kennslu
að kolefnisbindingu
SJÁVARLEIRUR
myndast þar sem fín-
gert set safnast fyrir í
skjólsælum víkum og
vogum. Hlutdeild líf-
ræns efnis og korna-
stærð setsins ráða
mestu um eiginleika leirunnar og
hversu aðlaðandi hún er fyrir líf-
verur. Leirur eru eitt mikilvægasta
búsvæði margra fuglategunda sem
sækja í mergð hryggleysingja, eink-
um orma, smávaxin skeldýr og mý-
flugulirfur.
Meira: tomasggunnarsson.blog.is
Reynir Vilhjálmsson | 3. apríl
Um aga og tillitssemi
Á DÖGUNUM las ég athyglisverða
forystugrein í Morg-
unblaðinu um agaleysi
í íslensku þjóðfélagi.
Tilefni greinarinnar
var meðal annars of-
beldisfull árás tveggja
stúlkubarna á stall-
systur sína. Ég er greinarhöfundi
mjög sammála en ég vildi gjarnan
bæta því við að agaleysinu fylgir
ábyrgðarleysi sem ég held að sé
áberandi í íslensku þjóðfélagi og ég
geng meira að segja svo langt að
halda því fram að ábyrgðarleysið sé
hér meira en í mörgum öðrum þjóð-
félögum. En þessu þarf ég að færa
rök fyrir.
Meira: reynirv.blog.is
Ólafur Þ. Hallgrímsson | 3. apríl
Smánarblettur
HÚN var ekki uppörvandi myndin,
sem blasti við sjón-
varpsáhorfendum
skömmu fyrir jól sem
sýndi hóp fólks norp-
andi í krapaslyddu
framan við húsakynni
Fjölskylduhjálpar Ís-
lands í von um að fá matarpakka út-
hlutaða fyrir jólin. Rætt var við
fimm barna móður í sjónvarpinu.
Hún kvaðst engin önnur úrræði hafa
en leita á náðir hjálparstofnana.
Meira: olafurhallgrimsson.blog.is
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir | 3. apríl
Þrettándagleði 2007
ÞRETTÁNDINN, 6.
janúar ár hvert, hefur
alltaf verið hátíð-
isdagur í minni fjöl-
skyldu, ekki eingöngu
vegna þess að þá
kveðjum við jólin form-
lega, heldur er þetta afmælisdagur
systur minnar og upp á hann hefur
alltaf verið haldið með pomp og
prakt. Það voru því einstaklega
ánægjulegar fréttir sem bárust
snemma morguns hinn 6. janúar í ár.
Meira: eyruningibj.blog.is
Magnea Björk Valdimars-
dóttir | 3. apríl
Ég skammast
mín fyrir
að vera
Íslendingur
ÖLLUM íbúum þessa lands var
skömm að því þegar íslensk stjórn-
völd tóku þátt í innrásinni í Írak.
Sem hefur margsýnt sig að var ekk-
ert annað en glæpur sem varð til
þess að mörg þúsund saklausra
borgara hafa látið lífið. Ástandið er
miklu verra en áður en Bandaríkja-
menn og bananalýðveldi á borð við
Ísland fóru að skipta sér af.
Meira: magneabvaldimarsdottir.blog.is
Hallgrímur Hróðmarsson | 3. apríl
Þingmenn sem þora
OFT hefur manni blöskrað hve
skoðanalausir og leiði-
tamir þingmenn flokk-
anna eru. Þeir láta
flokksforingja sína og/
eða ráðherra segja sér
fyrir verkum í öllum
málum sem nokkru
skipta en geysast svo fram með
miklar skoðanir og stefnur í titt-
lingaskítnum. Tveir þingmenn þykir
mér þó skera sig úr hvað þetta varð-
ar en það eru þeir Kristinn H. Gunn-
arsson og Pétur H. Blöndal.
Meira: hallgrimurhrodmarsson.blog.is
Lúðvík Júlíusson | 3. apríl
Neytendur hafa völdin
ÞAÐ er ekkert óeðlilegt við neyslu.
Hún er nauðsynleg
vegna þess að heimilin
framleiða lítið sjálf og
við þurfum að kaupa
það sem okkur vantar,
við stundum ekki leng-
ur sjálfsþurftabúskap.
Með því að hætta sjálfsþurftabúskap
og taka upp meiri verkaskiptingu,
sérhæfingu og öðlast meiri menntun
og þekkingu hefur okkur tekist að
bæta lífskjör okkar.
Meira: ludvikjuliusson.blog.is
Gísli Hvanndal Jakobsson | 3. apríl
Ísland eða Grútarland
ÉG VERÐ að segja að ég hlakka
ekki mikið til að
ferðast um Ísland með
fjölskyldu mína í fram-
tíðinni. Ég samþykki
ekki alveg lautarferð
úti í náttúrunni með ál-
ver og/eða -virkjun fyr-
ir framan mig. Mengun og skemmd-
arverk með fuglasöng í eyrum á ekki
við mig. Ég hugsa til baka og horfi á
myndir úr fortíðinni þegar fossar
fengu að streyma, fuglar fengu að
verpa, grasið fékk að spretta og við
fengum að njóta. Kraftur Íslands
leyndi sér ekki.
Meira: gislihvanndal.blog
Leifur Þorsteinsson | 3. apríl
Nú er uppi sú kenning
...
FULLYRT er að mað-
urinn sé að tortíma
sjálfum sér, nú með
tækniframförum, áður
var það syndsamlegt
líferni og prédikarar
voru duglegir að nota
kenningar um hreinsunareldinn til
mylja undir kirkjuna völd og auð.
Nú eru það náttúruprédikarar og
stjórnsýslumenn sem nota vanþekk-
ingu almennings sjálfum sér til
framdráttar.
Meira: lth.blog.is
Ólafur Björnsson | 3. apríl
Var enginn í brúnni
á Wilson Muuga?
Í MORGUNBLAÐINU 16. janúar
síðastliðinn birtist grein eftir Odd-
berg Eiríksson, skipa-
smið, undir fyrirsögn-
inni „Hinsta för Wilson
Muuga“. Greinin er
með skáldlegu ívafi, og
segir þar meðal annars,
„Ugglaust hefur skipið
verið sjófært, það er að
segja innan hafnargarða, en haffært
var það ekki til siglinga um norð-
urhöf að vetrarlagi“. Það rétta er, að
þetta skip hefur verið í föstum ferð-
um allan ársins hring um mörg und-
anfarin ár, með hráefni til Járn-
blendiverksmiðjunnar, og alltaf siglt
til baka galtómt eins og í þetta sinn.
Meira: olafurbjornsson.blog.is
Sigurfljóð Skúladóttir | 3. apríl
Góðgerðarstarf hjá
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs
KOSINN var nýr for-
maður Mæðrastyrks-
nefndar Kópavogs,
Sigurfljóð Skúladóttir,
í maí 2006 á aðalfundi
KSK. Fyrir hönd
nefndarinnar langar
mig til að segja ykkur aðeins frá
starfi hennar. Kópavogur er orðinn
næststærsta bæjarfélag á landinu.
Mæðrastyrksnefndin var stofnuð af
Kvenfélagasambandi Kópavogs
1968 og starfar innan vébanda þess.́
Meira: sigurfljod.blog.is
Hallgrímur Guðmundsson | 3. apríl
Orkuverð, samkeppni
og samráð
HVERNIG má það vera að olíu-
og bensínverð breytist ekki neitt á
sama tíma og krónan styrkist og
styrkist? Ef ég man rétt um einar
5 til 6 krónur á síðustu þremur til
fjórum vikum. Heimsmark-
aðsverðið það lækkaði og lækkaði,
skýringar sem voru bornar á borð
fyrir okkur voru bág staða gengis
og agalega lítið svigrúm til lækk-
unar hér á landi.
Meira: hallgrimurg.blog.is
Eyrún Björg Magnúsdóttir | 3. apríl
Fyrirmyndarríkið
Í OKTÓBER og nóvember, á fjög-
urra ára fresti, fer
maður vanalega að
finna lyktina af kom-
andi alþingiskosn-
ingum. Það sem byrj-
aði að minna á
kosningar í þetta sinn
var umræðan um hagvöxt og stöðu
launafólks. Mikil umræða hefur átt
sér stað í fjölmiðlum undanfarið um
það og hversu illa við stöndum efna-
hagslega gagnvart nágrannaríkjum
okkar.
Meira: eyrunbjorg.blog.is
Fréttir á SMS
Sigurjón Skæringsson | 3. apríl
Á hvaða leið er
mannkynið?
UPP á síðkastið hafa síend-
urteknar fréttir af ýmsum mis-
gjörðum manna fengið mig til að
hugsa: Hvað er eiginlega að ger-
ast í henni veröld? Er ekkert heil-
agt, er hvergi skjól, er enginn
óhultur lengur? Það þarf ekki að
lýsa þeim viðbjóði sem hin svo-
kallaða barnagirnd vekur hjá
manni, eða sorginni sem gagn-
tekur mig þegar ég frétti af því sí
og æ hvernig menn misnota
traustið frá misveikum skjólstæð-
ingum sínum.
Meira: sigurjonskaerings.blog.is
Fréttir í tölvupósti