Morgunblaðið - 04.04.2007, Page 31

Morgunblaðið - 04.04.2007, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 31 bænum. ér- af stað vigras- ð koma nni. Við lög í það tak í gging rs staðar, rvogi og í iðfangs- að gengið verði til samninga við íþróttafélögin Fylki og Fjölni um uppbyggingu fimleikahúsa hjá þeim félögum, að sögn hans. Að því er stefnt að í tengslum við byggingu fimleikahúss Fylkis verði reist áhorfendastúka við húsið sem muni einnig nýtast knattspyrnuvellinum. Hjá Fjölni er frekari uppbygging á döfinni sem eftir er að útfæra frekar í samstarfi við félagið, að sögn Björns Inga. „Við höfum átt viðræður við félagið um m.a. körfuboltaaðstöðu og margskonar aðstöðu í Gufunesi, sem er nýtt svæði sem ÍTR hefur fengið til ráðstöfunar og getur falið í sér mörg spennandi tækifæri.“ Stærra íþróttahús í Mjódd Eitt stærsta verkefnið sem fram- undan er á tímabilinu eru fram- kvæmdir hjá ÍR en í tengslum við 100 ára afmæli félagsins á dögunum var ákveðið að taka upp samning sem gerður var við félagið fyrir einu og hálfu ári. Hann gerði ráð fyrir byggingu íþróttahúss í Suður-Mjódd fyrir um 800 milljónir kr. „Það hefur komið í ljós að félagið telur að fjár- munir sem gert var ráð fyrir séu ekki nægilegir fyrir þá þjónustu sem stendur til að bjóða,“ segir hann. Hafa ÍR-ingar sýnt það frumkvæði að koma til móts við borgina og lýsa yfir að félagið sé reiðubúið að gefa eftir land sem tilheyrt hefur félaginu í Mjódd. „Borgin er að skipuleggja það svæði með möguleika á atvinnu- lóðum meðfram Reykjanesbrautinni og síðan íbúðum í Suður-Mjódd, til dæmis fyrir aldraða. Í staðinn fyrir þetta fær félagið aukna fjármuni til uppbyggingar og við erum að ganga til samninga við ÍR um mun stærra íþróttahús en hingað til hefur verið gert ráð fyrir. Þar yrði öll starfsemi félagsins á einum stað og sannkölluð lyftistöng fyrir allt félagslíf í Breið- holtinu vegna þess að það er líklega stærsta hverfi borgarinnar en hefur kannski ekki verið með nægilega góða íþróttaaðstöðu. Við viljum gera bragarbót þar á. Þarna verður mjög fullkominn salur m.a. fyrir körfu- knattleik, handbolta og auk þess dansíþróttir, sjálfsvarnaríþróttir og fleira. Til hliðar er svo hinn glæsilegi gervigrasvöllur sem við vígðum á 100 ára afmælinu um daginn.“ Björn Ingi segir borgaryfirvöld auk þessa hafa mikinn áhuga á að fara í margskonar uppbyggingu á göngustígum í borginni. „Þar er margt hægt að gera, bæta merking- ar, setja upp kort fyrir göngu- og hlaupaleiðir og við höfum áhuga á að fara í slíkt í samvinnu við þá sem nota þessa stíga mest, þ.e.a.s. göngugarpana og hlauparana í borg- inni.“ framkvæmda il ársins 2010 Morgunblaðið/Ómar ð sundlaug og vatnsrennibrautum í Úlfarsárdal á næstu árum. Hreyfing Reisa á heilsuræktarstöð við hlið Vesturbæjarlaugar. Börn í sunddeild KR bregða á leik eftir sundæfingu í Vesturbæjarlaug í gær. Á ÞESSUM orðum endar landamerkjalýsing Stafafells í Lóni í vísitasíu Brynjólfs biskups Sveinssonar frá 1641. Vatnaskil voru eðlileg viðmið út frá land- nýtingu um mörk milli jarða, hreppa og sýslna. Þau mynda í aðalatriðum mörk Stafafells að vestan við Nes, norðan við Fljóts- dal og austan við Álftafjörð. Þessi mörk eru einnig hreppamörk og að hluta sýslumörk. Engar heim- ildir eru um hver ákvað eða hvernig hreppa- og sýslumörkin urðu til, en svo er ætlast til að landeigendur Stafafells geti rakið skýra og samfellda lýsingu á mörkum jarðarinnar allt til land- náms. Í síðari vísitasíum biskupa er ítrekað og endurtekið að Stafafell eigi Kollumúla og Víði- dal. Þessi hluti jarð- arinnar liggur lengst frá byggð og var í haust úrskurðaður sem þjóðlenda af Hæstarétti. Rétt- urinn virðist ekki skilja í dómi sínum til hvers er verið að vísa með örnefn- unum tveimur. Kollumúli er fjall- lendið milli Jökulsár og Víðidalsár, sam- anber Kollumúla- heiði sem liggur að vatnaskilum. Austur- hluti Kollumúla myndar vest- urhlíðar Víðidals, en eystri hluti dalsins myndast af hlíðum sem liggja að vatnaskilum við inndali Álftafjarðar og Víðidalsdrög liggja að vatnaskilum við Fljóts- dal. Þessi lýsing passar við lýs- ingu Sveins Pálssonar úr ferðum 1792–1794, en þar segir hann að Kollumúli sé „hátt fjall fjórar míl- ur norður af prestsetrinu Stafa- felli og gengur austasta tota jök- ulsins fram á múlann“. Hér er vísað til þess að Kollumúli liggi inn að jökli sem er framan við Geldingafell nálægt vatnaskilum. Í frásögn Þorvalds Thoroddsens frá 1882 segir „Víðidalur er fjalla- dalur upp af Lóni, milli Hofsjök- uls að austan og Kollumúla að vestan. Dalurinn er alllangur 15– 20 kílómetrar alls“. Hann lýsir ferð sinni og að riðið hafi verið „upp á hraunin upp af Víðidals- drögunum efstu. Þar sem Víði- dalsá fellur niður af hálsþrepinu er sameinar Hnútu og Kollumúla er í henni foss …“. Hér er glögg lýsing á því hvernig Víðidalur og Kollumúli sameinast uppi á grýtt- um melum sem á Austurlandi nefnast „hraun“. Jafnframt sam- ræmast þessar lýsingar og skiln- ingur á örnefnunum skrifum Sig- urðar Gunnarssonar, prófasts á Hallormsstað, sem lýsir þessu svæði og miðhálendi Íslands. Nákvæmari útfærsla Upplýsing og áhersla á mennt- un varðaði leiðina inn í nýja öld um aldamótin nítján hundruð. Jafnframt voru sett lög um ná- kvæma skráningu landamerkja. Séra Bjarni Sveinsson, prestur á Stafafelli, skráði nákvæma lýs- ingu á mörkum jarðarinnar 1886, sem er samstiga lýsingu séra Jóns Jónssonar frá 1914. Jarða- mörk voru síðan samþykkt og uppáskrifuð af aðliggjandi jörð- um, en að sjálfsögðu ekki að norðan og austan þar sem ekki var hefð fyrir að fá staðfestingu jarða í öðrum sýslum. Mörk jarð- arinnar falla að lýsingu á Kollu- múla og Víðidal hér að ofan, vatnaskilum, hreppa og sýslu- mörkum. Séra Jón Jónsson var annálaður nákvæmnismaður og vandvirkur um alla skjalavörslu prestssetursins. Hann setti sig mjög vel inn í alla sögu jarð- arinnar og svæðisins. Hann var tengdasonur séra Sigurðar Gunn- arssonar á Hallormsstað sem var manna fróðastur um hálendi Ís- lands um miðja nítjándu öldina. Með breytingum á lögum árið 1907 verður heimilt að selja kirkjujarðir. Skömmu síðar er ákveðið að leggja af prestsetur á Stafafelli. Í framhaldi sækir séra Jón Jónsson um að kaupa jörðina. Skipaðir eru matsmenn til að gæta hagsmuna ríkisins og sala Stafafells í Lóni með gögnum öll- um og gæðum á 25.000 kr. er undirrituð af ráðherra árið 1913. Rétt er að taka fram að hið mikla fjalllendi jarðarinnar varð aldrei afréttur annarra en kirkjustað- arins, hjáleiga á Stafafellstorfunni og fjallabýla. Því er jörðin land- fræðileg og söguleg heild. Þessa heild ber að varðveita, óháð því hver er eigandi að landinu. Seljandi og sækjandi Árið 2001 gerir Geir H. Haarde, þáverandi fjármálaráð- herra, eignarkröfur í mestan hluta jarðarinnar, hátt í 300 fer- kílómetra. Þetta ger- ist tæpum hundrað árum eftir að áð- urnefndur ráðherra ríkisins hafði und- irritað samninginn um sölu jarðarinnar til séra Jóns. Á þessu tímabili höfðu verið gerðir margir samn- ingar, gerð fjallskil og greiddir skattar af jörðinni þar sem til- teknir lögaðilar voru ætíð óvéfengdir eig- endur landsins. Hluti af þessum sam- skiptum voru við ríkið, sem stjórnsýslulega viðurkenndi margsinnis einkaeignarrétt á því landi sem það hafði selt. Opinber- ir aðilar viðurkenndu rétt land- eigenda við brúargerð, skála- byggingar, náttúruvernd, hreindýraveiðar, miðhálend- isskipulag, aðalskipulag og stefnumörkun um heildar- uppbyggingu jarðarinnar sem úti- vistarsvæðis. Í greinargerð með friðlýsingu á hluta jarðarinnar segir að friðlandið fylgi jarða- mörkum Stafafells. Ljóst er að af friðlýsingu hefði ekki getað orðið nema með velvild eigenda lands- ins. Reyndar óttaðist einn aðili að friðlýsingin gæti falið í sér til- hneigingu ríkisins til eignaryf- irtöku og var því sett ákvæði í samninginn um endurskoðun að tuttugu árum liðnum. Að þeim tíma liðnum óskuðu landeigendur eftir endurskoðun á friðlýsing- unni en því miður hefur ríkið ekki staðið við friðlýsingarsamninginn frekar en sölusamninginn frá 1913. Ef ríkið hafði áhuga á að eign- ast landið að nýju, þá hefði verið sæmandi að óska eftir beinum viðræðum við landeigendur um möguleg kaup. Í stað þess er sótt að þessu eina formi eignarréttar í landinu af ríkisstjórn sem hefur þá opinberu stefnu að selja rík- isjarðir. Það má áætla gróflega að kostnaður ríkisins af málarekstri um eignarhald á umræddri jörð, sem það hafði áður selt, nemi yfir tuttugu milljónum. Þar er mikill kostnaður í heimildaleit, til starfsmanna óbyggðanefndar, ferðalög, vettvangsskoðanir, mál- flutning fyrir óbyggðanefnd, hér- aðsdómi og hæstarétti, þar með talin kostnaður dómara og verj- enda. Eftir allan þennan mála- tilbúnað ríkisins kemst Hæsti- réttur upp með að tala um „þrætuland“ í dómi sínum. Þræt- urnar takmörkuðust þó algjörlega við ósvífnar kröfur ríkisins. Eng- inn hafði nokkurn tíma áður efast um eignarrétt Stafafells á því landi sem var dæmd þjóðlenda. Landnáma eða mannréttindi Málavafstur ríkisins og nið- urstaða Hæstaréttar eru óskilj- anleg. Það sem upp úr stendur er að við ákvörðun eignarréttar á landi er viðhaldið ákveðinni teg- und af þjóðrembu sem felst í því viðhorfi að æðsti sannleikur um jarðeignir liggi í frásögnum af landnámi. Því er það mikilvægara við ákvörðun eignarlands hvort og hverjir kveiktu elda eða fóru um með kvígur í taumi fyrir rúm- um þúsund árum, heldur en að ríkið virði eigin samninga um sölu lands. Hæstiréttur virðist fastur í að elta skottið á sjálfum sér, sem rekja má til Geirlandsdóms og fleiri dóma. Því sitjum við uppi með dóm sem að er ekki réttlátur og langt frá því að vera rök- réttur. Dregur ekki úr rétt- aróvissu heldur eykur hana. Stafafell skiptist nú í eignarland, friðland, þjóðlendu og einkaaf- rétt. Fyrir utan eignarlands- hugtakið þá er staða hinna mjög óljós. Landeigendur unnu málið fyrir héraðsdómi en töpuðu því fyrir Hæstarétti. Allir áhugamenn um textagerð geta skoðað þessa tvo dóma og kannað hvorn þeir skilja betur. Flæði í rökfærslum og tengsl þeirra við niðurstöðu dómsins. Niðurstaða Hæstaréttar er; „Hvað varðar land norðan og austan Jökulsár var komist að þeirri niðurstöðu að ekki fengi stoð í eldri heimildum að það hefði verið innan landamerkja Stafafells fyrir gerð landamerkja- bréfsins 1914“. Niðurstaða hér- aðsdóms var; „Með hliðsjón af framangreindum gögnum og fyr- irliggjandi upplýsingum um stað- hætti, gróðurfar og nýtingu, telur dómurinn að árið 1913 hafi kaup- andi Stafafells haft réttmæta ástæðu til að ætla að það svæði sem lýst er í landamerkjabréfinu 1914 væri fullkomin eign hans“. Ljóst er að Hæstiréttur setti vafa um landnámið sem útgangspunkt og tortryggir síðan aðra þætti málsins sem benda til beins eign- arréttar. Eignarsaga Stafafells í fleiri hundruð ár og sala ríkisins er afbökuð til að bakka upp rök- semdina um skort á heimildum um landnám. Jafnvel er gengið svo langt að þjófkenna séra Jón Jónsson á Stafafelli. Því er haldið fram að hann hafi útfært mörk jarðarinnar mjög frjálslega og komist þannig yfir stórt land. Þessi einstaki og óvænti skiln- ingur á eignarsögu Stafafells byggir ekki á neinum heimildum, en gefur Hæstarétti svigrúm í niðurstöðu sinni til að dæma rík- inu ríflega helming lands (200 ferkílómetra lands) sem ríkið hafði áður selt! Í dag 11. mars 2007 hefst ferð með þetta mál til Mannréttinda- dómstólsins í Strassborg. Sex ár- um eftir að ríkið kom fram með sínar ágengu kröfur, þurfa þing- lýstir eigendur Stafafells að fara með málið nýja slóð í leit að rétt- læti. Ljóst er að landeigendur hafa heiður að verja og allt skal gert til að hin landfræðilega og sögulega heild verði ekki sund- urslitin. Jafnræðisregla hefur verið brotin við meðferð þessa máls, því margar jarðir með mun veikari sögulegar heimildir um eignarrétt hafa verið dæmdar eignarlönd. Stafafell sem kirkju- staður með sínar vísitasíur, hefur óvenju mikið af skjölum sem styðja beinan eignarrétt, ásamt samningnum um sölu ríkisins á jörðinni. Hin milda ásjóna hug- taksins „þjóðlenda“ er einungis pólitískt útspil, réttara er að tala um „ríkislendur“. Samanber þá staðreynd að fyrir liggja tillögur um að ríkið selji Landsvirkjun hluta af þjóðlendu á Suðurlandi. Það er von okkar að skilningur í Strassborg á réttindum ein- staklinga snúist um eitthvað bita- stæðara en frásagnir af eld- stæðum og ferðalögum með kvígur úr íslenskum fornbók- menntum. Stafafell á Víðidal allan Eftir Gunnlaug B. Ólafsson »Málavafstur ríkisinsog niðurstaða Hæstaréttar eru óskilj- anleg. Gunnlaugur B. Ólafsson Höfundur er kennari. ufunes. , - Morgunblaðið/Ómar Friðriksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.