Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 49 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9–16.30. Postulínsmálun kl. 9. Gönguhópur kl. 11. Postulíns- málun kl. 13. Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8–16.30 handav. Kl. 9–16.30 smíði/útskurður. Kl. 10–11.30 heilsugæsla. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, há- degisverður, spiladagur, kaffi. Sunnudaginn 22. apríl nk. verður farið að sjá söngleikinn „Ást“. Miðaverð 2.500 kr. Skráning í síðasta lagi 16. apríl. Uppl. í s. 535 2760. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gull- smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10– 11.30. S. 554 1226. Skrifstofan í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 13–14. S. 554 3438. Félagsvist í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félagsvist í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar fara í létta göngu kl. 10. Söngvaka kl. 14 umsjón Sigurður Jónsson og Helgi Seljan. Söngfélag FEB æfing kl. 17. Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30. Glerlist kl. 9.30 og kl. 13. Handavinna kl. 10, leiðbeinandi verður til kl. 17. Félagsvist kl. 13. Bobb kl. 17. Sam- kvæmisdansar kl. 20, línudans kl. 21, Sigvaldi kennir. Myndlistarhópurinn í Gjábakka er með sýningu á vatnslitamyndum til 20. apríl. Sölusýningin er opin virka daga kl. 9–17. Allir velkomnir. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9.05 myndlist, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 postulíns- málun og kvennabrids. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Bridds í Garða- bergi kl. 13, opið hús í Holtsbúð kl. 13, Garðaberg op- ið kl. 12.30–16.30. Lokað á skírdag, föstudaginn langa og annan í páskum. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–12 (ath. breyttur tími) vinnustofur opnar, leiðsögn fellur niður eftir hádegi vegna útfarar sr. Hreins Hjartarsonar. Kl. 10.30 gamlir leikir og þjóðdansar, umsj. Guðrún Nielsen o.fl. frá FÁÍA. Frá hádegi spilasalur opinn. Engin starfsemi um páskana, hefst aftur þriðjud. 10. apríl kl. 9. S. 575 7720. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, silki- og glermálun. Jóga kl. 9–12, Sóley Erla. Samverustund kl. 10.30 lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Gleðilega páska. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, fimmtudag, er keila í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð kl. 10. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkrunarfræðingur kl. 10. Verslunarferð í Bónus. Handavinnustofur kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Hárgreiðslustofa s. 552 2488, Fótaaðgerðarstofa s. 552 4161. Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 9–16.30 opin vinnu- stofa, kl. 10 lesið úr dagblöðum, kl. 9 opin fótaað- gerðastofa, s. 568 3838, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla, fótaaðgerðir. Kl. 9–12 aðstoð v/böðun. Kl. 10–12 spænska – byrj- endur. Kl. 9.15–16 myndmennt–postulín. Kl. 10–12 sund. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í Bónus. Kl. 13–14 spurt og spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn (foreldramorg- unn) kl. 9.30–11.30. Leiksýning kl. 20: Ausa. Umræð- ur að lokinni sýningu. Áskirkja | Samverustund kl. 11 í safnaðarheimili II, hreyfing og bæn. Allir velkomnir. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hug- vekja, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina. Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10–12.30. Léttur há- degisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum má koma á framfæri í síma 520 9700 eða með tölvu- pósti til domkirkjan@domkirkjan.is. Allir velkomnir. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Alt- arisganga og fyrirbænir. Boðið upp á léttan hádeg- isverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir vel- komnir. TTT fyrir 10–12 ára í Rimaskóla kl. 17–18 TTT fyrir 10–12 ára í Korpuskóla kl. 17–18. Lesið úr Pass- íusálmum séra Hallgríms Péturssonar. Í dag les kl. 18 Jón Sigurðsson síðasta passíusálm. Passíusálm- arnir verða svo lesnir í heild sinni á föstudaginn langa og hefst lesturinn kl. 13.30. Fyrrverandi prest- ar og makar þeirra lesa. Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8. Íhugun, alt- arisganga, bænir. Einfaldur morgunverður í safn- aðarsal eftir messuna. Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58–60. Sam- koma í kvöld kl. 20. „Leyndardómur Krists“. Ræðu- maður Haraldur Jóhannsson. Mínar hugsanir: Ragnheiður Guðmundsdóttir. Kaffi eftir samkom- una. Allir eru velkomnir. Laugarneskirkja | Mömmumorgunn kl. 10, umsjón Gerður Bolladóttir. Gönguhópurinn Sólarmegin heldur af stað frá kirkjudyrum kl. 10.30. Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Beðið fyrir sjúkum og hverjum þeim sem þurfa á fyrirbæn að halda og getur fólk komið óskum þar um til prestanna. Einnig er altarisganga. Vegurinn kirkja fyrir þig | Smiðjuvegi 5. Opn- unarsamkoma Fireproof í kvöld kl. 20. Það orð lýsir þér. Þú ert eldvarinn, skotheldur og brynjaður. Skap- aður til að standast raunir og hremmingar, og kom- ast frá þeim sem sigurvegari. Kraftmikill boðskapur. Allir velkomnir. Sjá heimasíðu:www.vegurinn.is. Vídalínskirkja Garðasókn | Foreldramorgunn kl. 10–12.30. Í dag ætlum við að föndra páskaföndur með börnunum. Verum duglegar að mæta. Fönd- urefni á staðnum. Gott tækifæri fyrir mömmur og börn að hittast og kynnast. Allir velkomnir, pabbar og mömmur, afar og ömmur. Heitt á könnunni. 60ára afmæli. Í dag, mið-vikudaginn 4. apríl, er sextugur Magnús Oddsson ferðamálastjóri, Hofgörðum 9, Seltjarnarnesi. MORGUNBLAÐIÐ birtir til- kynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569- 1100 eða sent á netfangið rit- stjorn@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. dagbók Í dag er miðvikudagur 4. apríl, 94. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Enginn er þinn líki, Drottinn! Mikill ert þú og mikið er nafn þitt sakir máttar þíns. (Jeremía 10, 6.) Íkvöld verður haldinn fyrsti aðal-fundur nýs sameinaðs hags-munafélags nemenda með les-blindu, ADHD, Tourette og aðra sértæka námsörðugleika. Fundurinn er haldinn í stofu 103, Lögbergi og hefst kl. 20. Kári Gunnarsson er formaður félags- ins: „Ákveðið var á síðasta aðalfundi fé- lags lesblindra stúdenta að víkka starf- semi félagsins,“ segir Kári. „Bæði birtist lesblinda á ótal mismunandi vegu, og tengist oft öðrum námsörð- ugleikum, en með því að opna félagið öllum námsmönnum með sértæka námsörðugleika erum við ekki hvað síst að sameina hópa sem eiga margt sam- eiginlegt, og styrkjumst í hagsmuna- baráttu okkar.“ Að sögn Kára er mikil þörf á hags- munafélagi af þessu tagi: „Ef aðeins er litið á fjölda lesblindra, þá þiggja um 200 nemendur við Háskóla Íslands sér- staka aðstoð, en talið er að um 10–12% landsmanna séu lesblind, og ættu sam- kvæmt því hlutfalli lesblindir nem- endur að vera milli 700 og 800 við Há- skólann,“ segir Kári og bætir við að margt bendi til að staða námsmanna með ADHD og Tourette sé sú sama. „Það þarf að varpa ljósi á þessa stað- reynd, og vinna gegn miklu brotfalli nemenda með sértæka námsörð- ugleika.“ Hið nýja félag hyggur á metnaðarfull verkefni: „Við viljum meðal annars heimsækja grunn- og framhaldsskóla þar sem háskólanemendur með náms- örðugleika geta deilt reynslu sinni og verið ungum námsmönnum jákvæðum fyrirmyndir. Hverjar sem hamlanir okkar kunna að vera getum við öll náð þeim árangri sem við stefnum að,“ seg- ir Kári. „Einkum viljum við þó standa fyrir öflugri upplýsingamiðlun innan háskólasamfélagsins. Með jafningja- fræðslu geta einstaklingar með sér- tæka námsörðugleika miðlað af reynslu sinni, og styrkt hver annan.“ Kári hvetur alla einstaklinga með námshamlanir að mæta á fundinn: „Þetta er tækifæri fyrir alla að koma sínu sjónarhorni á framfæri, en félagið er opið öllum námsmönnum, við alla skóla, bæði þeim sem stunda nám, hafa lokið námi eða hafa þurft að hverfa frá námi.“ Aðgangur að fundinum í kvöld er ókeypis og öllum heimill. Nánari upp- lýsingar eru á lesblindir.blogspot.com Menntun | Fyrsti aðalfundur nýs hagsmunafélags nemenda Ná markmiðum sameinuð  Kári Gunn- arsson fæddist í Reykjavík 1979. Hann stundaði stúdentsnám við Menntaskólann í Kópavogi og Iðn- skólann í Hafn- arfirði. Hann legg- ur stund á nám í landafræði við Há- skóla Íslands. Kári hefur verið for- maður félags lesblindra háskólanema frá stofnun, og setið í stjórn Félags samkynhneigðra stúdenta. Sambýlis- maður Kára er Dan Martin Johann- essen. Tónlist Fossvogskirkja | Jóhann- esarpassía Bachs Fossvogs- kirkju. Skírdag og föstudaginn langa kl. 17. Kór Áskirkju, Ís- lenska kammersveitin. Kons- ertmeistari Hjörleifur Valsson. Einsöngvarar Ágúst Ólafsson, Bergþór Pálsson, Eyjólfur Eyj- ólfsson, Gunnar Guðbjörnsson, Hallveig Rúnarsdóttir, Jóhanna Ósk Valsdóttir. Stjórnandi Kári Þormar. Skemmtanir Mælifell | Sauðárkróki. Hljóm- sveitin Bermuda byrjar páska- túrinn. Uppákomur Múltí Kúltí | Hjá okkur er hin vikulega styrktarsúpa í hádeg- inu. Kolfinna Baldvinsdóttir kemur til okkar sem okkar viku- gestur en hún er að skipuleggja þjóðardaga í byrjun júní. Allir velkomnir. Súpa, brauð og kaffi kr. 1000. Fyrirlestrar og fundir Borgarbókasafn - aðalsafn | Tryggvagötu 15. Dauðasynd- irnar 7, Valgerður Dögg Jóns- dóttir, heimspekingur fjallar um Öfund í dag kl. 17.15 í fyr- irlestraröð um dauðasyndirnar 7. Sjá nánar á www.borg- arbokasafn.is Krabbameinsfélagið | Skóg- arhlíð 8. Góðir hálsar, stuðn- ingshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með rabbfund í dag miðvikudag, kl. 17. Gestur er Eiríkur Örn Arn- arson, forstöðusálfræðingur á endurhæfingarsviði LSH. Eiríkur ætlar að tala um mikilvægi slökunar. Oddi - Háskóla Íslands | Fyr- irlestur á vegum Félags þjóð- fræðinga í dag kl. 17.15 í Odda, st. 101. Helga Einarsdóttir þjóð- fræðingur kynnir efni MA- ritgerðar sinnar við háskólann í Cork á Írlandi. Fyrirlesturinn mun fjalla um breyttar ímyndir írskra yfirnáttúrlegra kvenna frá heiðnum tíma til nútíma kaþólsks samfélags. Fréttir og tilkynningar Mæðrastyrksnefnd Reykjavík- ur | Matarúthlutun í dag kl. 14- 17. Tekið við hreinum fatnaði og öðrum munum á þriðjudögum kl. 10-15. S. 551-4349. Netfang maedur@simnet.is NÝR forseti, Abdoulaye Wade, tók við stjórnartaumunum í Senegal í gær. Við vígsluathöfn- ina, sem fór fram í höfuðborginni Dakar, dönsuðu þessir skrautlegu menn fyrir viðstadda. Skrautlegir í Senegal Auglýstu atburði á þínum vegum hjá okkur Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1100 • Tónleika • Myndlistar- sýningar • Leiksýn- ingar • Fundi • Námskeið • Fyrirlestra • Félagsstarf • Aðra mann- fagnaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.