Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 6
Í HNOTSKURN
» 12,5% þeirra sem sögð-ust ætla að kjósa Ís-
landshreyfinguna kusu VG
í síðustu kosningum. 3%
kusu Sjálfstæðisflokkinn.
» Sterkasta vígi Fram-sóknarflokksins er sem
fyrr landsbyggðin og er
stuðningur mestur í Norð-
austurkjördæmi.
» Samfylkingin mælistnú með 28% fylgi í Suð-
urkjördæmi og mælist
fylgi flokksins hvergi
meira.
» Fimmtungur stuðn-ingsmanna VG kaus
Samfylkinguna árið 2003
en 10% þeirra sem ætla að
kjósa Samfylkinguna kusu
VG síðast.
» 18,7% af kjósendumSjálfstæðisflokksins
kusu Framsóknarflokkinn í
síðustu þingkosningum.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
FYLGI Samfylkingarinnar og
Sjálfstæðisflokksins hefur aukist
verulega samkvæmt nýjustu
skoðanakönnun Capacent Gallup
en fylgi Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs dregst saman,
nánast sem nemur fylgisaukningu
Samfylkingarinnar.
Fylgi Framsóknarflokksins
dalar sömuleiðis töluvert milli
kannana og hvorki Frjálslyndi
flokkurinn né önnur framboð
næðu manni inn á þing, yrði nið-
urstaðan í samræmi við könn-
unina.
Skoðanakönnunin var gerð dag-
ana 10.–16. apríl en á þessu tíma-
bili héldu bæði Sjálfstæðiflokkur
og Samfylkingin landsfundi sína.
Mestu tíðindin sem felast í
þessari könnun eru annars vegar
þau að Samfylkingin og VG hafa
haft sætaskipti, ef svo má að orði
komast og hins vegar að ríkis-
stjórnin myndi halda velli með 33
þingmenn, aðeins einum færri en
stjórnarflokkarnir hafa nú saman-
lagt.
Samfylkingarfólk hlýtur að
kætast mjög við þessa könnun því
hún sýnir að fylgi flokksins hefur
aukist um 6 prósentustig, stigið úr
18,1% í 24,1%, en flokkurinn hefur
ekki mælst með svo mikið fylgi um
margra mánaða skeið.
Að sama skapi má búast við nið-
urstöðurnar valdi áhyggjum í her-
búðum VG því fylgi flokksins hef-
ur dregist saman, fallið úr 24,9% í
19,1%. Það er athyglisvert að fylg-
istap VG er nánast jafnmikið og
fylgisaukning Samfylkingarinnar.
Sjálfstæðisflokkur á uppleið
Enn sem fyrr er það þó Sjálf-
stæðisflokkurinn sem ber höfuð
og herðar yfir aðra stjórnmála-
flokka. Flokkurinn bætir raunar
verulega miklu við sig frá síðustu
skoðanakönnun og hefur ekki
mælst með jafnmikið fylgi í vetur.
Með þessu móti myndi Sjálfstæð-
isflokkurinn bæta við sig sex þing-
mönnum, miðað við niðurstöðuna
2003, sem dugar nánast til að vega
upp á móti fylgistapi Framsókn-
arflokksins, þ.e.a.s. ef þessir
flokkar hefðu hug á að mynda
saman ríkisstjórn.
Fylgi Framsóknarflokksins
mælist nú 7,9% sem myndi aðeins
skila fimm þingmönnum í stað
þeirra 12 sem flokkurinn hefur nú.
Samfylkingin fengi 17 þingmenn
og 13 þingmenn kæmu í hlut VG.
Skoðanakannanir Capacent
Gallup hafa sýnt að fylgi Frjáls-
lynda flokksins hefur þokast hægt
niður á við í vetur og engin breyt-
ing verður þar á nú. Flokkurinn
næði engum manni á þing og hið
sama á við um nýju framboðin tvö;
Íslandshreyfinguna, sem mælist
með 3,3% fylgi á landsvísu og Bar-
áttusamtökin, sem mælist með
0,5% stuðning.
Konur að færast til hægri?
Ef litið er til fylgis eftir kjör-
dæmum kemur athyglisverð
mynd í ljós. Þannig er fylgi Fram-
sóknarflokksins áberandi minnst í
Reykjavíkurkjördæmunum
tveimur, eða 2,2% og 2,7%. Þá
mælist stuðningur við vinstri
flokkana sem fyrr töluvert meiri í
Reykjavíkurkjördæmi norður en í
Reykjavík suður sem jafnframt er
sterkasta vígi Sjálfstæðisflokks-
ins. Þar mælist stuðningur við
hann 45,3%, reyndar aðeins litlu
minni en í Suðvesturkjördæmi.
Töluvert hefur verið fjallað um
hvernig kynin skiptast milli
vinstri flokkanna annars vegar og
stjórnarflokkanna hins vegar. Í
könnun sem Capacent Gallup
gerði í febrúar sögðust 55,3%
kvenna ætla að kjósa vinstri flokk-
ana tvo og naut VG töluvert meiri
stuðnings meðal kvenna, eða
29,4% á móti 25,9 hjá Samfylking-
unni. Sjálfstæðisflokkurinn naut
þá stuðnings 30,7% kvenna.
Samkvæmt nýjustu könnuninni
hafa töluverðar breytingar orðið á
þessu mynstri, þær helstar að nú
segjast 26,7% kvenna ætla að
kjósa Samfylkinguna en 23,6%
VG. Þá styðja nú fleiri konur
Sjálfstæðisflokkinn, eða 36,5%.
Þessi könnun er því vísbending
um að vinstri sveifla meðal kvenna
sé heldur að ganga til baka því nú
segjast 48,4% kvenna ætla að
kjósa Samfylkinguna eða VG en
litlu færri, eða 44,3%, styðja
stjórnarflokkana tvo.
Í úrtakinu voru 1.225 manns.
Svarhlutfall var um 62%, eða um
760 manns . Af þeim tóku 80% af-
stöðu, óákveðnir voru 6,6% og
4,3% sögðust ætla að skila auðu.
Samfylkingin eykur veru-
lega fylgi sitt á kostnað VG
! "#$
%!#
!%&
'
(
")
*
!!
!+
!"#
$ !"#
$% !"#
!"#
!"
#
$
!
"
%
& $
( '
,
,
,
,
,
Fylgi kvenna við Sjálfstæðisflokkinn eykst töluvert Framsókn dalar
6 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.islandshreyfingin.is
VIÐ VILJUM
JAFNRÉTTI KYNJANNA
Styðjum nýtt frumvarp til jafnréttislaga sem kveður m.a.á um
að afnema launaleynd, jafna hlutfall kynja í nefndum,
stjórnum og ráðum ríkisins, breytt hlutverk jafnréttisstofu,
breytta málsmeðferð fyrir kærunefnd o.s.frv.
Útrýma kerfisbundnum launamun kvenna og karla.
Fjölga konum á alþingi og sveitarstjórnum.
Kynjasamþætting verði ávallt höfð að leiðarljósi í
stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum.
Berjast gegn kynbundnu ofbeldi með fræðslu, öflugri löggæslu
og betri réttarúrræðum fyrir fórnarlömb kynbundins ofbeldis.
STARFSMENN og stúdentar Há-
skóla Íslands og Kennaraháskóla
Íslands fögnuðu í gær tímamótum í
byggingu Háskólatorgs Háskóla Ís-
lands en samþykkt hefur verið að
bæta við þriðju hæðinni á Há-
skólatorg II; sem rís milli Odda,
Árnagarðs og Lögbergs. Upp-
steypu er nær lokið í Háskólatorgi
II og Háskólatorgi I, sem rís á milli
íþróttahúss og aðalbyggingar HÍ,
en senn verður byrjað að setja þak
á byggingarnar. Háskólatorg mun
hýsa þjónustu- og kennslubyggingu
og verður vígt 1. desember nk.
Morgunblaðið/Kristinn
Háskólafólk fagnaði áfanga
UM 46% veitingahúsa hafa
lækkað verð hjá sér mark-
tækt eftir að virðisauka-
skattur á matvælum var
lækkaður. 54% hafa hins
vegar ekki lækkað verðið.
Þetta kemur fram í könnun
sem Neytendastofa gerði á
verðbreytingum á veitinga-
og gistihúsaþjónustu. Stofn-
unin kynnti efni skýrslunnar fyrir viðskiptaráð-
herra í gær, en hann bað um að hún yrði unnin.
Neytendastofa aflaði sér upplýsinga hjá 84
veitingahúsum um land allt fyrir skattabreyt-
inguna. Stofnunin fékk í mars samtals 360
ábendingar vegna lækkunar á virðisaukaskatti,
þar af 281 vegna veitingahúsa og mötuneyta.
Um miðjan mars sendi stofnunin út fyrirspurnir
til 76 veitinga- og kaffihúsa þar sem vakin var
athygli á skattalækkuninni og jafnframt að
ábendingar hefðu borist stofnuninni um að um-
rætt fyrirtæki hefði ekki lækkað.
Neytendastofu bárust svör frá 43 veitinga-
húsum, en 33 svöruðu ekki. Af þeim sem svör-
uðu sögðust 7 ekki telja sig geta lækkað. Ástæð-
ur sem þau nefndu voru einkum hækkanir frá
birgjum, hærri launakostnaður og að viðkom-
andi veitingahús hefði ekki hækkað verð hjá sér
í langan tíma.
Ef fyrirtæki sem ekki svara og þau sem ekki
ætla að lækka eru tekin saman eru samtals 40
fyrirtæki eða 53% sem ekki lækka. 36 fyrirtæki
eða 47% lækkuðu til samræmis við lækkun virð-
isaukaskatts „að öllu leyti eða að hluta til“ eins
og segir í skýrslu Neytendastofu.
Neytendastofa bar einnig saman verð hjá
veitingahúsum sem stofnunin hafði aflað sér
upplýsinga um fyrir skattalækkunina. Niður-
staðan varð sú sama, að 46% fyrirtækja hefðu
lækkað, en 53% hefðu annað hvort ekki lækkað
eða þá hækkað verð.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér
yfirlýsingu þar sem þau taka fram að verðbreyt-
ingar veitingahúsa séu hægfara ferli. Verslanir
breyti matvöruverði daglega en algengt sé að
veitingahús breyti verðinu á 4-6 mánaða fresti.
1. mars hafi margir veitingastaðir verið með
„uppsafnaða hækkunarþörf“, m.a. vegna þess
að kjöt og fiskur hefur hækkað mjög í verði.
Mörg mötuneyti lækka ekki verð
Neytendastofa kannaði einnig verð hjá mötu-
neytum, en stofnuninni bárust 78 ábendingar
vegna verðs hjá þeim, þ.e. vegna mötuneyta fyr-
irtækja, skóla og stofnana.
Neytendastofa sendi fyrirspurnir til 46 mötu-
neyta, þar af 23 grunnskólamötuneyta. Svör
bárust frá 27 mötuneytum, en þar af töldu 13
sér ekki fært að lækka. Ef tekin eru saman
mötuneyti sem ekki svöruðu og þau sem ekki
ætla að lækka eru það 32 mötuneyti eða 70%
þeirra sem könnunin náði til. | 53
53% lækk-
uðu ekki
verðið
Neytendastofa kannaði
verð á veitingastöðum