Morgunblaðið - 19.04.2007, Page 14

Morgunblaðið - 19.04.2007, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is GLÆSIBÍLAR af Lexus GS300-gerð og Harley Davidson V-ROD mótorhjól verða meðal vinninga hjá Happdrætti DAS á nýju happdrættisári sem hefst 8. maí n.k. Eigi vinningshafar þessara farartækja tvöfalda happdrættismiða fylgir jafnvirði tækjanna í peningum að auki, eða 6,3 milljónir í skotti hvers bílanna og þrjár milljónir í bakpokum sem fylgja mótorhjólunum. Þetta starfsár verður það 53. í sögu Happdrættis DAS. „Við erum komin út í það að vera með bíla, og nú einnig mótorhjól, sem einskonar tákn fyrir viðkomandi happdrættisár – og jafnvirði þeirra í peningum að auki fyrir eig- endur tvöfaldra miða. Það er draumur margra að eignast svona farartæki, en ýmist hefur þorri fólks ekki efni á að láta það eftir sér eða þykir of mikið bruðl að kaupa svona tæki. En það er alveg til í að vinna þau í happdrætti fyrir þúsundkall,“ sagði Sigurður Ágúst Sigurðsson, framkvæmdastjóri Happ- drættis DAS. „Eftir að við byrjuðum með þessa bílavinninga höfum við séð yngra fólk koma inn í mun meiri mæli en áður tíðkaðist. Ég er búinn að starfa hér frá 1990 og þetta er eitt það ánægjulegasta sem ég hef séð gerast frá því ég byrjaði hér.“ Sigurður sagði Happdrætti DAS eiga marga trygga viðskiptavini og að ótrúlega margir þeirra séu búnir að vera með miða allt frá upphafi, 1954. Að búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld Hagnaði af Happdrætti DAS er varið til að „búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld“ svo vitnað sé í þekkt slagorð happdrættisins. Það hefur einkum falist í uppbyggingu Hrafnistuheimilanna þar sem nú búa um 680 heimilismenn. Auk þess að styðja Hrafnistu- heimilin runnu 40% af hagnaði Happdrættis DAS um 25 ára skeið til uppbyggingar dval- arheimila um allt land í gegnum Bygging- arsjóð aldraðra. Tildrög stofnunar Happdrættis DAS 1954 voru þau að Sjómannadagsráð Reykjavíkur og Hafnarfjarðar voru komin í þrot með byggingu Hrafnistu í Reykjavík. Ljóst þótti að ekki tækist að ljúka byggingu Dval- arheimilis aldraðra sjómanna nema ný tekju- lind kæmi til. Happdrættinu var því hrint af stað og tókst svo vel að fyrsti áfangi Hrafn- istu í Reykjavík var tekinn í notkun fyrir réttum 50 árum eða árið 1957. Síðar bættust við nýjar álmur og eins var Hrafnista í Hafnarfirði byggð. Næstu verkefni eru að stækka herbergi heimilismanna á Hrafnistu í Reykjavík og að gera endurbætur á Hrafn- istuheimilinu í Hafnarfirði ásamt ýmsum öðrum stærri framkvæmdum við heimilin. Mikil umskipti með peningahappdrætti Happdrætti DAS var löngum vöruhapp- drætti en í fyrra fékk það leyfi til að greiða vinninga út í peningum. Sigurður segir að það hafi styrkt stöðu Happdrættis DAS í harðnandi samkeppni. Áður þurftu vinnings- hafar að framvísa reikningum fyrir vörum til að fá vinninga greidda út. Auk þess að vera íþyngjandi fyrir viðskiptavinina krafðist þetta fyrirkomulag mikillar vinnu á skrif- stofu happdrættisins. Nú getur happdrættið greitt vinninga inn á bankareikninga vinn- ingshafa með rafrænum hætti, sé þess ósk- að. Talsverð umskipti urðu í rekstri Happ- drættis DAS á fimmtugsafmælisárinu 2004. „Þá vorum við með Chevrolet Bel Air árgerð 1954 í aðalvinning og settum 700 þúsund krónur í skottið. Við höfðum þetta sem af- mælisvinning og hann vakti gríðarlega at- hygli,“ sagði Sigurður. Árið eftir var ákveðið að hafa Ford Mustang sportbíla í vinning og bæta við þremur milljónum í peningum fyrir handhafa tvöfaldra vinningsmiða. Sigurður segir að Ford Mustang hafi þá reynst ófáan- legur hér nema eftir krókaleiðum og staðan því svipuð og 1954 þegar fólk gat ekki keypt sér bíla nema að uppfylltum einhverjum skil- yrðum. Í fyrra voru Hummer H3 jeppar í aðalvinninga og fimm milljónir í skottinu fyr- ir handhafa tvöfaldra miða með hverjum bíl. Sigurður segir að tvöföldu vinningarnir, at- hyglisverður bíll og peningar, hafi laðað marga nýja viðskiptavini að Happdrætti DAS, ekki síst yngra fólk. Heildarverðmæti vinninga í Happdrætti DAS á næsta happdrættisári verður 768 milljónir króna. Auk sex Lexus GS300 bíla og sex Harley Davidson VRSCAW V-ROD mótorhjóla verða dregnir út 40 tveggja millj- óna króna vinningar, eða fjórar milljónir á tvöfaldan miða, og fjöldi smærri vinninga. Í heild verða vinningarnir rúmlega 50 þúsund talsins og er dregið í happdrættinu á hverj- um fimmtudegi. Einfaldur miði hjá Happ- drætti DAS kostar eitt þúsund krónur á mánuði, eða um 230 krónur fyrir hvern út- drátt, og tvöfaldur miði kostar tvö þúsund krónur á mánuði. Harley, Lexus og peningar Morgunblaðið/G. Rúnar Fákur Sigurður Á. Sigurðsson, framkvæmdastjóri DAS, á einu Harley Davidson V-Rod vinnings- hjólanna. Einnig verða Lexus GS300-bílar og peningar meðal vinninga á næsta happdrættisári. Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „ÞESSI viðurkenning hefur geysi- lega þýðingu fyrir íslenskar orku- rannsóknir og þennan stóra hóp sem mér finnst ég vera fulltrúi fyrir. Rannsóknarfólkið, orkufyrirtækin, stjórnvöld og aðra sem hafa komið að þessum málum. Þetta er mikil hvatning til okkar Íslendinga. Per- sónulega er ég ekki alveg búinn að átta mig á þessu, það er svo einfalt.“ Þetta segir Þorsteinn Ingi Sigfús- son, prófessor við Háskóla Íslands, sem er einn þriggja vísindamanna sem hlýtur alþjóðlegu Global Energy-verðlaunin í ár. Pútín Rúss- landsforseti afhendir Þorsteini verð- launin í Pétursborg í júní. Verð- launaféð nemur 10 milljónum rúblna, eða um 27 milljónum ís- lenskra króna. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslend- ingur hlýtur verðlaunin, en þau eru álitin nokkurs konar Nóbelsverðlaun í orkuverkfræði. Verðlaunin vekja jafnan alheimsathygli en þau eru veitt fyrir vísindaleg afrek á sviði bættrar orkunýtingar, þróunar í orkutækni, nýrra orkulinda og nýrra aðferða til orkunýtingar. Auk Þor- steins hlutu verðlaunin í ár breskur og rússneskur vísindamaður. „Margir líta svo á að Ísland geti orðið fyrirmyndarland í vetnis- væðingu heimsins,“ segir Þorsteinn. „Verðlaunin beinast að viðurkenn- ingu á því starfi sem hér er og þeirri forystu sem við höfum á þessu landi.“ Þorsteinn Ingi er í stjórn Ís- lenskrar NýOrku og var stjórn- arformaður uns hann tók við stjórn- arformennsku í IPHE, Alþjóðasam- tökunum um vetnisvæðingu, árið 2003. Rannsóknir í þrjá áratugi Hann segir vetnisrannsóknir í Há- skóla Íslands hafa hafist með vinnu Braga Árnasonar á áttunda áratug síðustu aldar. Á þeim grunni hafi sprotafyrirtækið NýOrka verið stofnað með þátttöku HÍ og fleiri að- ila. Þorsteinn Ingi dvelur drjúgan hluta úr hverju ári erlendis við að bera út boðskap vetnisrannsókna. „Það er svo mikil þörf fyrir átak. Auðvitað erum við ekki búin að leysa orkuvanda heimsins en vetnið er eitt af eggjunum í nýrri körfu og við telj- um að endurnýjanlegar orkulindir þurfi að koma til núna.“ Þorsteinn hefur ekki gert upp við sig hvernig verðlaunafénu verði var- ið. „Ætli maður kaupi sér ekki vetn- isbíl, ég býst við því,“ segir hann. Victor I. Tatarintsev, sendiherra Rússlands á Íslandi, óskaði Þor- steini Inga til hamingju með verð- launin í gær. Hann sagði þau mikinn heiður fyrir Þorstein persónulega og mikla viðurkenningu á íslenskum vetnisrannsóknum. „Verðlaunin eru veitt brautryðjendum á ákveðnum sviðum orkurannsókna,“ segir Tat- arintsev. „Þetta er í fyrsta sinn, frá því verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti árið 2003, sem vetnisrann- sóknir, sem eru einstakar á heims- mælikvarða hér á Íslandi, eru verð- launaðar. Þetta er því mikil alþjóðleg viðurkenning á rann- sóknum Þorsteins.“ Ísland fyrirmyndar vetnis- samfélag framtíðarinnar Morgunblaðið/G.Rúnar Viðurkenning Þorsteinn Ingi Sigfússon fær hamingjuóskir frá Victor I. Tatarintsev, sendiherra Rússlands. Þorsteinn Ingi Sigfússon hlaut virt rússnesk orkurannsóknarverðlaun Tugir vetn- isbíla eru væntanlegir til landsins Vetni Fyrstu bílarnir munu koma nú í sumar frá Daimler-Chrysler. ÞORSTEINN Ingi Sigfússon segir stjórnvöld á Íslandi hafa ákveðið að styrkja næsta skref í vetnisrann- sóknum og að ráðgert sé að fá hing- að á næstu tveimur árum alls um 35–40 vetnisbíla. Fyrstu bílarnir munu koma nú í sumar frá Daimler-Chrysler. Um einkabíla verður að ræða en að auki er von á nýjum vetnisstræt- isvögnum hingað til lands strax næsta haust. „Þeir hafa lært heilmikið af verk- efninu hér,“ segir Þorsteinn um vetnisvagnana sem hingað komu í tilraunaskyni fyrir nokkrum miss- erum. Ísland varð fyrst til að prófa vetnisvagnana og í kjölfarið sóttust níu borgir eftir því að fá slíka vagna. „Við vorum því brautryðj- endur og fleiri fylgdu svo á eftir,“ segir Þorsteinn. Um 100 vetnisbílar eru í notkun í heiminum í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.