Morgunblaðið - 19.04.2007, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ingimar Ingimarsson | 18. apríl
Klárum málið, rektor
og ráðherra
FYRIR réttum tveim-
ur árum var Landbún-
aðarháskóli Íslands
stofnaður. Þetta var
skref sem flestir fögn-
uðu, enda ástæða til að
búa til öflugan skóla á
háskólastigi fyrir landbúnaðinn. Það
var þó einn hængur á, menn kláruðu
ekki málið. Það gleymdist að setja
niður framtíð þeirra stofnana sem
ekki eru staddar á Hvanneyri.
Meira: ingimar.blog.is
Oddgeir Ágúst Ottesen |
18. apríl
Afskipti og
fordómar
stjórnmála-
manna
Á TYLLIDÖGUM hreykja Íslend-
ingar sér stundum af því að vera
framsækin og víðsýn þjóð. Fátt
virðist samt styðja þá ímynd. Ekki
eru nema örfáir áratugir síðan ís-
lensk stjórnvöld fóru þess á leit við
þau bandarísku að blökkumenn í
hernum yrðu ekki sendir til Ís-
lands. Ég þekki einn fyrrverandi
hermann sem er ennþá mjög sár út
í íslensk stjórnvöld fyrir afskipti
þeirra sem leiddu til þess að hann
var sendur til Tyrklands á meðan
félagar hans með annan húðlit fóru
til Íslands.
Meira: oddgeirottesen.blog.is
Ragnheiður Gestsdóttir | 18. apríl
Dægradvöl?
UPP á síðkastið hafa ýmsir lýst í
ræðu og riti þeirri af-
stöðu sinni að auka
beri vægi list- og verk-
greinakennslu í skólum
landsins. Þessi um-
ræða fer ef til vill ekki
hátt, en hún á svo
margar og mismunandi uppsprettur
að jafnvel má tala um hugarfars-
breytingu eða vaxandi þrýsting á
skólasamfélagið.
Meira: raghneidurgestsdottir.blog.is
Þorsteinn Scheving Thorsteinsson |
18. apríl
Ríkisstjórnir með
skipulagða glæpa-
starfsemi?
Þegar Bush stjórnin
loksins hættir störfum
bíður ekkert annað eft-
ir þessum mönnum en
málaferli. Fyrrum ráð-
gjafi Bob Dole og lög-
maður, Stanley Hilton, er einn af
þeim sem hafa stefnt Bush forseta
og hans stjórn. Hann segist hafa
vitni og gögn frá Þjóðarörygg-
isráðinu NSC sem staðfestir að
Bush forseti hafi fyrirskipað 11.
september árásirnar.
Meira: thorsteinnscheving.blog.is
Úrsúla Jünemann | 18. apríl
Ævintýrið Ísland
ÞAÐ eru tæp 30 ár frá því að ég kom
fyrst til Íslands, þá
sem ferðamaður í 16
daga tjaldferð. Á þeim
tíma endaði malbikið
rétt fyrir utan borg-
armörkin, þjóðveg-
urinn var holóttur og
seinfarinn. Leiðsögumaðurinn kall-
aði okkur þrjá félagana sem sátu aft-
ast í rútunni „lustiges Hinterteil“
(káta afturendann) því það heyrðust
iðulega skríkjur í okkur þegar bíl-
stjórinn ók of greitt í holurnar.
Meira: ursula.blog.is
Nú stendur til að úthýsa reyk-
ingamönnum allstaðar nema í þeim
örfáu heimahúsum þar sem enn
finnst umburðarlyndi fyrir þessari
umdeildu nautn. Ég verð að játa að
reykingalykt hefur aldrei truflað
mig á kaffihúsum eða veit-
ingastöðum, en það er víst hverfandi
viðhorf. En þegar nokkrir „fanatí-
kerar“ taka sér slíkt alræðisvald og
banna eitthvað sem er löglegt og
sjálfsagt, þá verð ég áhyggjufullur.
Vissulega eru reykingar heilbrigð-
isvandamál, en svo á einnig við um
margt af því sem ýtt er undir í þessu
samfélagi eins og áfengisneyslu og
skyndibitamenninguna. Nú fer
drukkið fólk oft í taugarnar á mér
(það lyktar, er valt, talar í hringi, er
ágengt, agressíft o.s.frv.) og er einn-
ig stórkostlegt samfélagslegt vanda-
mál, á að gera eitthvað í því? Úthýsa
drykkjumönnum? Þetta hljómar
kannski furðulega, en er sambæri-
legt í mínum huga. Fátt er notalegra
en að reykja inni, og fátt dóp-
istalegra en að norpa úti í kulda og
trekk og reykja úti við húsvegg, það
er fólki bara til minnkunar, og finnst
öllum það bara í lagi? Gott á þetta
pakk!! Nei, auðvitað ekki, fólk er nú
ekki svo smátt almennt. Því legg ég
til að gefið verði leyfi til að stofna
reykhús, þar sem reykingamenn
gætu komið saman, notið samvista
og vana síns, og kannski yrði kaffi í
boði með reyknum, eða eitthvað
annað sem reyknautnafólkinu líkar
að blanda við þessa yndisiðju sína.
Reykhúsin yrðu þá auðvitað ein-
göngu ætluð þeim, sem njóta tób-
aksbrunans, en líta ekki á hann nei-
kvæðum augum og nefjum. En
auðvitað yrðu allir velkomnir og
enginn þyrfti að standa úti í kuld-
anum. Reykhúsin – brosandi og
breysk!
ÓLAFUR GUNNARSSON,
Tjarnargötu 10c, 101 Reykjavík
Tillaga í
markaðs-
heimi fram-
boðs og eft-
irspurnar
Frá Ólafi Gunnarssyni.
Netgreinar á blog.is er vettvangur fyrir aðsendar greinar. Morgunblað-
ið áskilur sér rétt til þess að vista innsendar greinar á þessu svæði,
undir nafni greinahöfunda, hafi ekki tekist að birta greinarnar í
blaðinu vegna plássleysis innan tveggja vikna frá því þær voru send-
ar.
Netgreinar - Umræðan
á blog.is
Við erum að hlaða batteríin!
Kæri viðskiptavinur!
Föstudaginn og laugardaginn 20. til 21. apríl verður fámennt en
góðmennt í flestum deildum B&L vegna árshátíðarferðar starfsfólks.
Af þeim sökum getur afgreiðsla og önnur þjónusta við viðskiptavini
tekið ívið lengri tíma en metnaður okkar stendur til.
Við ætlum okkur hins vegar að koma aftur til vinnu fullhlaðin af orku,
sem mun skila sér í enn betri þjónustu við þig.
Með fyrirfram þökk,
starfsfólk B&L
B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - 575 1200 - www.bl.is Með bílinn handa þér
Tilraunin hefur verið gerð. Nú er
komið að því að draga af henni ein-
hvern lærdóm. Lög og reglur eru til
um þjóðaratkvæðagreiðslur. Setja
þarf einhverjar grunnreglur eða við-
miðanir um borgaralegar kosningar.
Takist vel til um slíkar reglur er opn-
uð leið fyrir frekari nýtingu þessarar
leiðar.
Til þess að koma að þingmanni í
jöfnunarsæti þarf þingflokkur minnst
5% atkvæðamagn af öllu landinu. Er
kannski eðlilegt að úrslit borg-
ararlegra kosninga þurfi að nema
minnst 55% til þess að teljast mark-
tæk eða bindandi fyrir sveitarfélag?
Kosningunni í Hafnarfirði var stillt
upp þannig að þótt kosið væri um
skipulag var af mörgum reynt að etja
saman með- og mótherjum stóriðju.
Var verið að kjósa um skipulag, stór-
iðju eða atvinnumál Hafnfirðinga?
Hvernig hefðu Vestfirðingar kosið?
Skrítið að halda því fram að ein-
hvers konar ,,jöfnuður“ hefði átt að
ríkja í því fjármagni sem aðilar höfðu
til kosningaundirbúnings og áróðurs.
Átti jöfnuðurinn að ná til þriggja að-
ila; álversins, Hafnfirðinga, sem voru
með skipulagstillögunni og svo Hafn-
firðinga sem voru á móti tillögunni?
Hver/hverjir áttu að leggja fé í þessa
kosningasjóði?
Skrítið er líka að pólitíkusar Hafn-
arfjarðar, sem stæra sig af þessu
íbúalýðræðisframtaki, skuli fela sínar
skoðanir í málinu á bak við kosning-
arnar.
GUNNAR TORFASON
er Reykvíkingur
Hafnfirðing-
ar hafa kosið
Eftir Gunnar Torfason
Fréttir á SMS