Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 27
matur MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 27 Þ egar fólk er búið að þrífa grillið vel undan vetri er um að gera að bjóða vinum og vandamönnum í grill- veislu. Stefán Magnússon, mat- reiðslumeistari á Argentínu steik- húsi, segir að hafi fólk góða sósu eða marineringu og kunni réttu handbrögðin við grillið þá geti þessi eldamennska ekki klúð- rast. „Þegar fólk er að grilla eru helstu mistökin í eldamennskunni að það snýr steikunum of oft. Lykillinn að vel heppnaðri steik er að hafa grillið á háum hita þegar byrjað er að nota það, pensla kjötið eða fiskinn með góðri olíu og snúa matnum sjaldan." Stefán segir að það sé mjög gott að pensla matinn með olíu sem búið er að setja í ferskt krydd eins og timjan eða rósmarín. Þá fær maturinn keim af kryddinu. „Stundum blanda ég olíu og smjöri saman því smjörið gerir steikinni bara gott á grillinu. Það dregur fram frábært bragð. Þá er líka gott að blanda smávegis rauðvíni í olíu. Nú síðan gerir saltið mikið fyrir steikina og ég mæli persónulega með Maldon sjávarsalt- inu. Það borgar sig að salta kjötið á grillinu áð- ur en það brúnast svo saltið nái að fara inn í kjötið. Ef fólk á síðan uppskrift að góðri mar- ineringu sem hægt er að pensla kjötið með þá er tilbreyting í því.“ Kjarnhitamælir gerir gæfumuninn Stefán talar um að margir viti ekki hversu lengi eigi að grilla kjötsneiðar. „Langbesta ráðið er að kaupa kjarnhitamæli. Mælinum er stungið í kjötið og síðan er hægt að fylgjast með hitastiginu sem er mismunandi eftir því hversu mikið á að steikja kjötið.“ En hvað með grænmeti á grillið? „Það er tilvalið að þræða á pinna kúrbít, eggaldin og stóra sveppi. Þá er grænmetið penslað með olíublöndu eða smjör- blöndu og piprað og saltað. Hér koma nokkrar útgáfur af sósum og lögum til að marinera í sem Stefán segir að séu mjög bragðmiklar og góðar. Matsuhisa dressing Þessi hentar einstaklega vel með brakandi fersku salati og með t.d. grilluðum fiski, önd eða einfaldlega góðri steik. Borið fram sem sósa með matnum. 1 saxaður laukur 2 dl Kikkoman sojasósa 2 msk. sykur 2 tsk. dijon sinnep 1 tsk. sjávarsalt 1/2 tsk. fínt malaður pipar 1 dl vatn 2 tsk. sesamolía Skolið laukinn upp úr köldu vatni, í um eina mínútu. Þurrkið hann síðan og setjið í mat- vinnsluvél ásamt sojasósu, sykri, sinnepi, salti, pipar og vatni. Maukið. Þá er þessi dýrind- issósa tilbúin. Ber að hafa í huga að best er að laga þessa dressingu daginn áður en hún er notuð. Sósa frá Miðausturlöndum Þessi sósa eða marinering er tilvalin með öllu til að grilla. Rosalega bragðmikil en alls ekki of sterk. Hentar einstaklega vel með kjúklingi, svíni og lambi en má nota á nautakjöt og sjávarafurðir. Þessi sósa er pensluð á kjötið en má nota sem marineringu í lengri tíma ef fólk vill. Þá verður bragðið sterkara. . 1 búnt flöt steinselja 1 heill jalapeno með vökvanum 12 hvítlauksgeirar 280 g engifer 3–6 msk. dijon sinnep 400 g hunang 6 dl olía Allt saman sett í matvinnsluvél og maukað saman og olíu hellt út í síðast. Austurlensk sósa Ef fólk er mikið fyrir bragðmiklar sósur þá er þessi algjört æði og ekki erfitt að laga hana. Þessi sósa er borin fram köld eða heit eftir smekk og gott er að láta hana malla í svona eina klukkustund á pönnu eða potti til að fá sem mest bragð út úr henni. 150 g sykur 120 g fínt saxaður engifer 120 g fínt saxaður skalot-laukur 1 msk. sesamolía 1 l kjúklingasoð 2–3 msk. af sætri chilisósu 2 sítrónugrös 2–3 dl af Kikkoman sojasósu smá sósulitur þykkt með maizena smávegis kjötkraftur. Sykurinn er brúnaður á pönnu, öllu grænmeti blandað saman við og svo vökva. Bragðbætt og soðið í um eina klukkustund eins og áður segir. Sósulit bætt út í til að dekkja hana aðeins. Spánskt kartöflusalat 500 g forsoðnar kartöflur 2 rauðlaukar, fínt saxaðir 1 rauð paprika flöt steinselja eftir smekk 50 g sólþurrkaðir tómatar 20 g kapers salt og pipar eftir smekk 1 dl af sólblómaolíu paprikuduft Þetta salat er ferskt og gott og frábært að bera það fram með grillmat. Þá er allt sett í skál og að lokum er olíunni bætt við og litað með paprikudufti. Gott salat Klettasalat Lollo rosso, eikarlauf eða frisse Fræ úr gran- ateplum Matsuhisa sósa Blandið salati í skál og stráið fræjum úr granateplum yfir. Berið fram með Matsuhisa- sósunni sem uppskrift er að hér að ofan. Grillað góðgæti í tilefni vorsins Morgunblaðið/Golli Ráð Stefán Magnússon yfirmatreiðslumeistari segir að algengustu mistökin sem fólk geri við grillið sé að snúa steikinni alltof oft og vera ekki með kjarnhitamæli. Gott Grillaður humar með klettasalati, hvít- lauksspírum, tómötum og matshuhisu- dressingu. Ljúffengt Nauta T-bein steik pensluð með grillsmjöri sem búið er að blanda oliu saman við, grillað grænmeti og sósu frá Miðausturlöndum. Freistandi Nauta Rib-eye með aust- urlensku sósunni, klettasalati og mat- suhisu-dressingu. Granada-epli og grill- aðir kirsuberjatómatar ofan á. Það er kominn tími til að dusta rykið af útigrillinu. Stefán Magnússon, yfirmatreiðslu- meistari á Argentínu, kenndi Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur nokkur góð ráð við grillið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.