Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Aktu ekki svona hratt, maður, það má ekki vera of langt á milli fyrir blessaðar skjáturnar. Séra Geir Waage í Reykholti ogSigursteinn Másson tókust á í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í fyrra- kvöld um afstöðu kirkjunnar til samkynhneigðra. Orðum Sig- ursteins, um að kirkjan væri á skjön við almenn- ingsálitið, svar- aði séra Geir þannig: „[Þ]að hafa komið tíma- bil, sem kirkjan hefur kannski verið of veik fyrir því að elta almennings- álitið. Ég nefni nú bara þann stóra hluta þýzku kirkjunnar, sem elti nazistana. Það þykir nú heldur betra núna að kirkjan í heild elti þá ekki. Þá var nú almenningsálitið knýj- andi. Ég ætla bara rétt í lokin, ef ég má, minna á það að kirkjan, íslenzka kirkjan, starfar á forsendu fagn- aðarerindisins um Drottin Jesúm Krist.“     Þegar þáttarstjórnandi Kastljóss-ins spurði séra Geir hvort hann legði að jöfnu samkynhneigð og nas- isma, hreytti hann út úr sér: „Vertu ekki að snúa út úr fyrir mér. Ég var að segja það að meginhluti kirkj- unnar í Þýzkalandi, sem hallaði sér að almenningsálitinu þá og elti það, hefði betur látið það vera. Ég er ekki að segja neitt annað.“     Ætli séra Geir átti sig ekki á því aðafstaða prestastefnunnar hefur valdið mörgum samkynhneigðum og aðstandendum þeirra verulegum sárindum? Hvernig í ósköpunum dettur hinum ágæta kirkjunnar manni í hug að tala um nazisma í Þýzkalandi í sömu andrá og þá skoð- un meirihluta íslenzku þjóðarinnar, að samkynhneigð pör eigi að fá að gifta sig í kirkju? Er fólki ekki kennt í guðfræðideildinni að nálgast málin af meiri nærgætni?     Ekki er ósennilegt að einhverjirsamkynhneigðir búi í Reykholts- prestakalli. Ætli þeir telji svona mál- flutning eitthvað í ætt við fagnaðar- erindi Krists? STAKSTEINAR Séra Geir Waage Fagnaðarerindi séra Geirs                      ! " #$    %&'  (  )                *(!  + ,- .  & / 0    + -                  12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (    !   " ##$%%&    $%%$         :  *$;< ###                     ! " #  $     #      *! $$ ; *! ' (  ) #  #( #     * =2 =! =2 =! =2 ' ) %$ #+ %&,#-$%.  <> $         6 2  ?   /)$#.0  $# # #() #( %  1#%# %% #"   2 3 % ##( 2 ;  4 )$# 1# #$#&   #" &  #  #( #'!#$#4! *%&% 1 %#.  ( #5!#$#6! %&#$#   ##( 2 /       '4# ! #,1# (   #'5!  2#7 !  ##6!#$#4! %&1#%#  #* #$#&   #() #*  ( #'!#$#5! %&2##/  ##( 1  #( # #  ## $#6!#$#4! %&2 80$$ ##99 %$##5  #+ %& 3'45 @4 @*=5A BC *D./C=5A BC ,5E0D ).C 2 1 2 2    2  2     2 2  2    2  2 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1            VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Guðsteinn Haukur| 25. apríl Skynsemi ræður ríkjum! Ég var mjög feginn að sjá þessa frétt, með fullri virðingu fyrir samkynhneigðum þá gengur þetta þvert á kristinn boðskap og gildi. Þetta atriði hefur haldið aftur af mér lengi við að ganga aftur í þjóð- kirkjuna, þetta kemur eflaust mörg- um af mínum vinum á óvart, en ég segi það hér og nú, ég er genginn aftur í hana!! Meira: zeriaph.blog.is Jenný Anna Baldursdóttir | 25. apríl Á morgun segi ég mig úr þjóðkirkjunni! Ég segi mig úr þjóð- kirkjunni á morgun og húsbandið sagði að það lægi við að hann skrif- aði sig inn í þessa aumu stofnun bara til að geta gengið úr henni samstundis aftur. Ég vonaði svo innilega að þessir sjálfskipuðu umboðsmenn Guðs á jörðinni myndu nú sýna alvöru kristilegt hugarfar [...] Meira: jenfo.blog.is Ingólfur Ásgeir Jóhannesson | 26. apríl Hjónaband – samvist Nú hefur það gerst að þjóðkirkjan hefur fellt tvær tillögur um málið en samþykkt eina: Prestum verður leyft að blessa samvist homma- og lesbíupara. Fellt var að vígja eða gefa saman [...] Fyrir okkur óinnmúruð í þjóðkirkj- una skiptir harla litlu hvort er bless- að, vígt eða gefið saman. En fyrir trúaða homma og lesbíur mun það ekki vera svo. Meira: ingolfurasgeirjohanesson.blog.is Sóley Tómasdóttir | 26. apríl Ég vil kvenfrelsi! Í athugasemdum hér að neðan kemur fram að þó nauðgun geti aldrei verið á ábyrgð kvenna, verði konur samt að axla þá ábyrgð að gæta sín eftir fremsta megni, eins og því verður við komið. Ef það væri nú svo einfalt. Flestar nauðganir eru framdar í heima- húsum af karlmönnum sem konur treysta. Eiga konur þá að hætta að treysta körlum? – Ég spyr. Fram til þessa hefur ábyrgð á kynferðisofbeldi verið á herðum kvenna. Konum hefur verið kennt að gæta sín á þessu og hinu, passa upp á þetta og hitt og vera ekki svona og hinsegin. Það eru örfá ár síðan farið var að beina sjónum að gerendum ofbeldisins, að það væri þeim sem þyrfti að breyta. Því er fásinna að halda því fram að konur axli ekki ábyrgð. Konur eru alltaf á varðbergi og meðvitaðar um þá ógn sem að þeim stafar á þessu sviði. Konur eru svo meðvitaðar að þær sem hafa orðið fyrir nauðgun upplifa langflestar skömm og sekt- arkennd. Sektarkennd yfir að hafa ekki getað komið í veg fyrir glæpinn. – Rétt eins og það hafi verið í þeirra verkahring … Meira: soley.blog.is BLOG.IS Kolbeinn H. Stefánsson | 26. apríl Æi, ekki ... Ég er forfallinn aðdáandi harðs og þungs rokks frá 8. og 9. áratugunum og Sabbath og sumar plötur Ozzys rata reglulega á fóninn. Látum liggja á milli hluta hvort Ozzy hafi getað samið tónlist undir áhrifum (umdeil- anlegt en á endanum smekksatriði). Það er bara eitthvað svo dapurlegt þegar gamlar rokkstjörnur gefa út nýja diska eftir langa þögn. Það er einfaldlega svo sjaldgæft að tónlistin verði áheyrileg enda reyna þeir yf- irleitt annaðhvort að halda sig við sinn gamla stíl, og hljóma því út- brunnir, eða þeir reyna fyrir sér í ein- hverju nýju til að vera aðgengilegir nýjum hlustendahópum og valda þar með gömlum aðdáendum von- brigðum auk þess sem það gerist of oft að menn ná ekki tökum á því nýja. Útbrunninn og ófær um að ná tök- um á hinu nýja … hljómar eins og Ozzy sé framsóknarmaður. Meira: khs.blog.is PARKET & GÓLF • ÁRMÚLA 23 SÍMI: 568 1888 • FAX: 568 1866 WWW.PARKETGOLF.IS PARKET@PARKETGOLF.IS ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF ClickBoard BYLTINGARKENNDAR VEGG- OG LOFTPLÖTUR Parket & Gólf býður einstaka lausn fyrir vegg- og loftplötur frá þýska framleiðandanum Parador HDF plöturnar frá Parador hafa nær engin sýnileg samskeyti og eru einstaklega auðveldar í uppsetningu. KOSTIRNIR ERU AUGLJÓSIR Hagkvæm og ódýr lausn • einföld uppsetning - 50% fljótlegra höggþolið • auðvelt að þrífa • lítil eða engin sparslvinna losnar við allt ryk • 50 kg. burðarþol á skrúfu stílhreint og nútímalegt útlit • 10 ára ábyrgð Komdu við í verslun okkar og kynntu þér þessa einstöku lausn - við tökum vel á móti þér ka ld al jó s 20 06

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.