Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Daði Halldórs- son fæddist á Akranesi, 3. ágúst 1959. Hann lést 19. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans eru Bára Daníelsdóttir, f. 18. febrúar 1935 á Akranesi, d. 26. ágúst 1975, og Hall- dór Karlsson, f. 22. desember 1932 á Bassastöðum í Strandasýslu. Systkini Daða eru: a) Dröfn, f. 19. apríl 1955. Fyrri maður hennar var Sigurfinnur Guðmundsson, f. 12. september 1953, d. 7. júlí 1984. Þeirra synir eru þrír og fjögur barnabörn. Seinni maður hennar er Lárus Hannesson, f. 17. október 1949. Þau eiga einn son. b) Gauti, f. 23. júní 1967, kvæntur Guðrúnu Magnúsdóttur, f. 5. mars 1974. Þau eiga þrjú börn. c) Barði, f. 8. janúar1973, kvæntur Hólmfríði Kristjánsdóttur, f. 28. apríl 1973. Þau eiga þrjá syni. Daði kvæntist 4. apríl 1985 Krist- rúnu Sigurbjörns- dóttur, f. 14. nóv- ember 1961. Foreldrar hennar eru eru Málfríður Ögmundsdóttir og Sigurbjörn Guð- mundsson frá Vest- mannaeyjum. Börn Daða og Kristrúnar eru: a) Bára, f. 5. febrúar 1983, b) Hjalti, f. 1. nóvember 1984 og c) Leó, f. 12. október 1990. Daði stundaði hrognkelsaveið- ar með Karli afa sínum á vorin í mörg ár, og síðar með Guðmundi mági sínum. Hann vann hjá föður sínum í Glerslípun Akraness um tíma og starfaði hjá Landsbanka Íslands á Akranesi frá árinu 1979. Útför Daða fer fram frá Akra- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Elsku pabbi. Það er með mikilli sorg, trega og söknuði sem ég kveð þig. Ég skil ekki af hverju þú þurftir að fara. Þú, þessi góði maður sem gafst svo mikið af þér og varst svo góður við alla. Ég get ekki með neinum orðum lýst skilningsleysinu sem er í huga mín- um á því af hverju þú varst tekinn frá okkur. Í öllu myrkrinu finn ég samt fyrir miklu þakklæti. Þakklæti yfir öllu því sem við áttum saman, gerðum saman og því sem við vorum hvort fyrir annað. Þakklát fyrir það að þú hafir verið pabbi minn. Ótal minningar koma upp í hug- ann sem ég á eftir að geyma í hjarta mínu alla ævi. Ég minnist alls þess sem við fjöl- skyldan gerðum saman. Þú varst svo mikill fjölskyldumaður. Þú varst svo góður pabbi, sá allra besti. Studdir okkur börnin þín í hverju sem við tókum okkur fyrir hendur. Alltaf fylgdist þú með og reyndir að taka þátt eins og þú best gast hverju sinni. Ég hugsa um allar góðu stundirn- ar sem við áttum saman. Allt spjallið og allan hláturinn. Kvöldmatur hérna gat tekið upp í tvo tíma þar sem við vorum öll svo mikið að spjalla. Það verður erfitt að geta ekki tek- ið upp símann og hringt í þig og sagt þér frá hinu og þessu eða spurt þig hvað er best að gera eins og ég gerði svo oft. „Hæ pabbi, ég ætlaði bara að segja þér …“ var algeng byrjun og mér fannst svo mikilvægt að segja þér frá hlutunum í lífi mínu. Við vorum bæði feðgin og vinir. Álit þitt vó alltaf mikið í ákvörðunum mínum. Þú sagðir mér aldrei hvað ég ætti að gera heldur leiðbeindir mér. Þegar ég gerði mistök, sem var þá oftast ef ég fór ekki eftir þínum ráð- um, sagðir þú aldrei né gafst í skyn „ég sagði þér það“. Ég bara vissi að þú vissir. Þér fannst ég oft svolítið fiðrildi og hafðir gaman af en þurftir þó oft að ná mér aðeins niður á jörð- ina. Ég er svo þakklát fyrir spjallið sem við áttum fyrir stuttu. Þá sátum við tvö og spjölluðum um svo margt og m.a. um það sem er framundan í lífi mínu langt fram eftir nóttu og þú tókst þátt í hugleiðingum mínum um hitt og þetta. Elsku pabbi. Ég gæti skrifað endalaust. Minningarnar geymi ég í hjartanu og ég veit að þú átt eftir að fylgja mér áfram í gegnum lífið. Núna ertu hjá ömmu Báru, ömmu Löllu og öllum ástvinum okkar hin- um megin og ég veit að þau hugsa vel um þig. Ég bið þig um styrk góði guð til að styrkja okkur fjölskyldu hans og ást- vini á þessum erfiða tíma. Elsku pabbi, takk fyrir allt! Þín Bára. Ég kynntist Daða fyrir tæpum 3 árum síðan. Mín fyrstu kynni af hon- um voru þegar ég var á leiðinni eitt kvöldið í heimsókn til Hjalta. Ég nánast hljóp Daða niður á leið út í skúrinn í myrkrinu þar sem hann stóð í þvottahúsdyrunum. Ég kreisti uppúr mér vandræðalegt „Góða kvöldið“, bara til að segja eitthvað. Áttaði mig samt ekki alveg á því hver stóð í dyrunum, ef ég hefði gert mér grein fyrir því, hefði ég líklegast hlaupið hinn hringinn í kringum hús- ið til að þurfa ekki að heilsa, enda var ég feimið lítið grey. Samt var það al- gerlega ástæðulaus feimni enda var Daði með eindæmum góður maður og hafði góða nærveru. Hann var mjög stríðinn, hann skammaðist aldrei yfir hinum ýmsu mistökum sem ég asnaðist til að gera eða minntist á það á neinn hátt nema ef hann gæti strítt mér góðlega með því. Sem hann gerði reyndar tölu- vert af, enda var okkur vel til vina. Ég held hann hafi bara haft lúmskt gaman af mistökum mínum sem gáfu tilefni til stríðni og áminninga. Þessu til sönnunar fannst Daða það fyndið og minntist ósjaldan á það þegar ég mætti í fyrsta skiptið í mat og sá að kartöflurnar voru ekki flysjaðar fyr- ir mig eins og ég, dekurdýrið, var vön að fá. Ég reyndi með góðum vilja að flysja sjálf og náði hýðinu af á endanum ásamt meirihluta kartöfl- unnar. Hann fylgdist samt með framförum mínum, litlum framför- um – en framförum þó, í þessari list og stríddi mér auðvitað á því öðru hverju. Um páskana fórum við fjöl- skyldan saman í sumarbústað yfir helgi. Það var mjög notaleg ferð, spilað, spjallað, verið í pottinum og hlustað á misskelfilegar draugasög- ur Krissu í rafmagnsleysinu sem kom á versta tíma. Þá hvarflaði ekki að neinum að þetta væri með síðustu stundum okkar saman. En góðar stundir voru þær. Ég tel mig vera virkilega heppna að hafa fengið að kynnast þér, þó það hafi verið í alltof stuttan tíma og þú munt ávallt lifa í minningu minni, enda gull af manni. Það er mikill missir að þú sért farinn frá okkur og við munum alltaf sakna þín en við vitum að þú fylgist með okkur og verndar. Takk fyrir mig elsku Daði, allt sem þú gafst mér, og allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Hvíl í friði. Kveðja, Elísa Guðrún. Elsku hjartans Daði minn. Hvers vegna þú? Þú sem áttir svo mikið að lifa fyrir, varst hvers manns hugljúfi, fallegur og svo óendanlega góður bróðir. En lífið er eins og ólesin bók, eng- inn veit hvað gerist á næstu síðu, rétt eins og við vitum ekki hvernig dag- urinn endar og lífið virðist oft svo óvægið og án allrar sanngirni. Einhvers staðar las ég það að að- eins væri til ein lífshamingja, það væri að elska og vera elskaður. Kristrún og börnin voru allavega þín lífshamingja og þú varst þeirra. Vel- ferð barnanna var númer eitt og þið Kristrún einstaklega samhent. Heimilið ykkar er alltaf öllum opið og síðustu dagar hafa borið þess merki hversu marga góða vini þið eigið. Söknuður minn er ólýsanlegur og 19. apríl verður aldrei aftur dagurinn minn, heldur dagurinn okkar. Lokið er kafla í lífsins miklu bók. Við lútum höfði í bæn á kveðjustund. Biðjum þann Guð, sem gaf þitt líf og tók græðandi hendi að milda sorgarstund. Ó, hve við eigum þér að þakka margt þegar við reikum liðins tíma slóð. Í samfylgd þinni allt var blítt og bjart blessuð hver minning, fögur, ljúf og góð. Okkur í hug er efst á hverri stund ást þín til hvers, sem lífsins anda dró hjálpsemi þín og falslaus fórnarlund. Friðarins Guð þig sveipi helgri ró. (Vigdís Runólfsdóttir) Þín systir Dröfn. Þagni’ allar klukkur, slítið síma í sundur. Útdeilið gómsætum beinum svo gelti’ enginn hundur. Slaghörpur hljóðni. Við tregandi trumbuslátt berið út kistuna, syrgjendur safnist brátt. Lát kveinandi flugvélar hnita hringi yfir og krota á himin þá fregn: Hann ei lengur lifir. Fannhvítar dúfur með sorgarbönd sveimi um torg. Lögreglumenn klæðist hönskum svörtum af sorg. Mér norðrið og suðrið, austrið og vestrið var hann. Hversdagsleik minn og hvíldardag með sér bar hann. Kvöld mitt og miðnætti, sögu mína og söng. Trú mín að ást væri eilíf reyndist röng. Burt með stjörnurnar, blik þeirra er illa þegið. Pakkið þið tunglinu saman og sólinni fleygið. Tæmið þið úthöfin, ymur skóganna þagni. Því aldrei framar mun neitt verða að neinu gagni. (W.H. Auden, þýð. Hjörleifur Hjartarson.) Elsku Daði. Þessir síðustu dagar hafa verið hræðilegustu dagar ævi minnar. Aldrei hef ég grátið jafn mikið og rosalega á ég eftir að sakna þín og þess að fá ekki að vera með þér. Hvernig getur gerst að einhver sem maður elskar svona mikið sé horfinn svona fljótt? Á öllu öðru átti ég von en þessu. Þú varst alltaf svo ljúfur og traustur og hress, ég gat alltaf reitt mig á þig ef ég þurfti á að halda. Það var svo ótalmargt sem við gerðum saman, þrátt fyrir þann aldursmun sem á okkur var. Að þú skulir hafa nennt að hafa mig, Stubbinn, eins og þú kallaðir mig, með í allar þessar veiðiferðir og ferðalög sem við fórum í lýsir þér ágætlega. Þú varst svo góðhjartaður, örlátur, gerðir aldrei mannamun og tókst öllum sem jafn- ingjum. Síðustu árin spiluðum við svo ófáa golfhringi saman og skemmtum okk- ur konunglega. Fyrst æfðum við okkur á ,,leynivellinum“ okkar uppi á Þórisstöðum, og svo þegar okkur fannst við vera orðnir nógu góðir niðri á Leynisvelli. Elsku bróðir, að ég eigi ekki eftir að sjá þig aftur hryggir mig alveg ólýsanlega. Að eiga ekki eftir að sjá þig taka á móti okkur brosandi og hlæjandi þegar við komum í Furugrundina, að fá ekki að sjá þig gantast og leika við strákana mína sem þótti svo vænt um þig. Stoltið þitt var yndislega fjöl- skyldan þín. Hún Krissa, sem er svo ótrúlega lík þér, góðhjörtuð og ljúf, og þið óluð saman upp falleg, dugleg og blíð börn sem bera hróður ykkar hvar sem þau koma. Elsku Kristrún, Bára, Hjalti og Leó, megi guð varðveita ykkur og blessa og styrkja í þessari miklu sorg. Barði. Margar leiðir liggja um heim. Einn er endir á öllum þeim. Þótt heiman fylgi þér hópur fríður, áfangann hinzta einn þú ríður því er mest um þá þekking vert: Allt hið þyngsta er af einum gert. (H. Hesse, þýð. Magnús Ásgrímsson) Í liðinni viku rann upp sumardag- urinn fyrsti bjartur og fallegur dag- ur sem boðaði sumarkomuna, og gróðurinn tekur að lifna við eftir vetrardvalann. Að kvöldi þessa fyrsta sumardags lést mjög skyndilega mágur okkar og svili Daði Halldórsson. Engan gat órað fyrir svo skyndilegu fráfalli Daða sem var hvers manns hugljúfi í leik og starfi. Daða vorum við sam- ferða í uppvexti okkar á Akranesi og var hann ávallt hrókur alls fagnaðar hvar sem hann sté niður fæti. Daði var grallari í eðli sínu og sá alltaf björtu hliðarnar í lífinu. Daði hóf strax á unglingsaldri störf hjá Landsbankanum á Akranesi þar sem hann ávann sér fljótt virðingu og vin- sældir starfsmanna og viðskiptavina bankans sem aldrei bar skugga á. Hans persónulega nærvera hafði þannig alltaf góð og jákvæð áhrif á viðmælendur hans í leik og starfi. Daði var einstaklega glaðlyndur og barngóður maður og frá honum stafaði slík væntumþykja að börn hændust auðveldlega að honum. Hvergi leið börnunum okkar betur í pössun en hjá Daða og Krissu sem voru alltaf boðin og búin að gæta barnanna okkar þegar svo bar við. Fyrir það erum við ævinlega þakk- lát. Í sumarbyrjun ár hvert breyttist Daði úr dagfarsprúðum fjölskyldu- föður og bankamanni í sjósóknara sem gerði út á grásleppuveiðar með Guðmundi mági sínum en báðir elsk- uðu þeir að komast í snertingu við líf- ið og tilveruna með þessum hætti. Sem fjölskyldufaðir varst þú Daði fyrirmynd okkar, hvernig þú hafðir alltaf nægan tíma fyrir fjölskylduna og varst alltaf vakinn og sofinn yfir velferð barnanna þinna, þú hafðir alltaf tíma til að leiðbeina þeim og að vera vinur þeirra og félagi á hverju sem gekk. Þannig hefur þér tekist gefa börnunum þínum bestu eigin- leika þína til að takast á við lífið á já- kvæðan og uppbyggilegan hátt sem þau munu ætíð búa að og geyma í hjarta sínu. Heimili Daða og Krissu var öllum opið, alltaf höfðu þau næg- an tíma fyrir hvert og eitt okkar og er víst að svo verður áfram. Þó nær- vera Daða verði með öðrum blæ þá verður hann ávallt með okkur hér eftir sem hingað til í huga okkar og hjarta. Við Þökkum þér Daði samfylgdina með allri þeirri birtu og hlýju sem þú gafst okkur, því gleymum við aldrei. Góður Guð styrki Krissu og elsku- leg börnin ykkar þau Báru, Hjalta og Leó sem og ástvini þeirra, en við vit- um að þú munt vaka yfir þeim öllum hér eftir sem hingað til. Elín, Sveinn Arnar, Gerða, Ögmundur. Maður, faðir, drengur. Ég man fyrst eftir þér í skóla, allt- af glettinn og til í glens og grín, tókst lífinu ekki of alvarlega, fékk maður á tilfinninguna, eða var það til að fela hvernig þér virkilega leið? Þetta var á okkar unglingsárum þegar mamma þín dó frá ykkur systkinun- um. Síðar komstu inn í mína fjölskyldu og mamma mín tók þér eins og syni sínum. Mér finnst í dag að hún og Krissa systir hafi lýst þér leiðina áfram til þess að rækta þína góðu eiginleika. Ég man þegar fyrsta barnið ykkar fæddist, hvílíkur sólargeisli, þú ljóm- aðir eins og sólin, við ljómuðum öll. Dóttirin skyldi heita Bára eins og mamma þín hét, það var aldrei spurning. Síðan fæddust drengirnir ykkar Hjalti og Leó, þvílíkir sóma- piltar. Þú varst þeim svo góður faðir og vinur, og tókst svo mikinn þátt í öllum þeirra leik og starfi. Þú varst svo mikill barnakarl að öll börnin okkar systkina löðuðust að þér, þetta var þér svo eiginlegt. Ljúf- ur og greiðvikinn, handlaginn, bankastarfsmaður, sjómaður, íþróttamaður og umfram allt góður eiginmaður og faðir, þú gast allt. Elsku Daði, fyrstur í vinnuna á morgnana, búinn að taka bryggjur- únt og tilbúinn í bankastörfin, þar varstu stýrimaður, og sigldir skút- unni orðalaust, alltaf glettinn og hafðir góða nærveru. Þú gerðir aldr- ei mannamun, allir voru jafnir fyrir þér, þú þoldir ekki snobb og dauðir hlutir skiptu þig ekki máli. Ég veit að þín verður sárt saknað í öllum þínum lífum, alls staðar þar sem þú gekkst stráðir þú góðum fræjum, þú hafðir þennan ljóma í kringum þig. Ljós þitt lifir í börnum þínum og við höld- um öll áfram. Minningin um þig lifir með okkur, minning um ljúfan dreng sem gaf allt sem hann átti og lifði til fulls á líðandi stundu. Elsku Krissa og fjölskylda, okkar innilegustu samúðarkveðjur. María, Guðjón og Pétur Þór. Íslensku vordagarnir eru oft fal- legir. Þannig dagur var sumardag- urinn fyrsti þetta árið. Sól ljómaði á lofti og gaf fyrirheit um gott sumar. En ský dró fyrir – ekki í eiginlegri merkingu, því enn skein sól í heiði, heldur í óeiginlegri merkingu í formi símtals. Daði var kominn á sjúkra- hús. Heit von og bæn um að allt yrði í lagi var þögguð með öðru símtali seinna um kvöldið. Í ýmsum efnum fylgdumst við hjónin og þau hjón Daði og Kristrún að. Við hófum búskap á svipuðum tíma, börnin okkar fæddust öll á svipuðum tíma, fasteignakaup og annað það sem fylgir ungu fólki að hefja lífsgönguna saman. Við héldum góðu sambandi þrátt fyrir að vera búsett sitt í hvorum landsfjórðungn- um. Heimsóknir og sameiginlegar ættarútilegur voru fjölmargar og m.a.s. gistum við hjá þeim á brúð- kaupsnóttina þeirra. Eftir því sem börnin eltust fækkaði heimsóknum í bili en auðvitað héldum við að við hefðum allan heimsins tíma. Margt fer á annan veg en ætlað er. Síðast hittum við Daða í fermingarveislunni hennar Heiðrúnar Söru fyrir tæpum mánuði. Hvern gat órað fyrir því að þá værum við að kveðja hann í hinsta sinn? Með sorg í hjarta og heitum bæn- um um að góður Guð styrki fjöl- skylduna kveðjum við góðan vin. Elsku Kristrún, Bára, Hjalti, Leó, fjölskylda og aðrir aðstandendur – okkar dýpstu samúðarkveðjur. Valgerður og Halldór Páll. Sumardaginn fyrsta bárust okkur hörmuleg tíðindi þess efnis að Daði vinur okkar væri dáinn. Þegar ungir menn í blóma lífsins eru hrifnir á þennan hátt í burtu frá ástvinum og fjölskyldu er erfitt að skilja lífið. Vinskapur okkar hófst fyrir alvöru þegar Daði og Krissa fóru að vera saman, eyddum við mörgum kvöld- stundum saman við að spila, spjalla og hafa gaman. Minnumst við þess þegar Daði og Krissa fengu sitt fyrsta hjónarúm sem þá var orðið gamalt, hjónarúmið máluðu þau í ókláraðri stofu hjá okkur á Reyni- grundinni. Eftir að börnin okkar komu í heiminn sást fljótt hve mikill barnakarl Daði var, ávallt til í að leika, spjalla eða hvað sem var til þess að hafa ofan af fyrir þeim. Daði var alltaf áhugasamur um hvað aðrir voru að gera og fylgdist vel með. Í gegnum tíðina höfum við farið í nokkur skemmtileg ferðlög innan- lands ásamt Daða, Krissu og börn- unum, þær ferðir eru allar eftir- minnilegar – þegar við fórum í Húsafell með börnin lítil og svo þeg- ar við fórum á Akureyri með ung- lingana um verslunarmannahelgi. Þrettándamatur er hefð sem hefur fylgt fjölskyldum okkar í gegnum ár- in en þá komum við saman, borðum og eigum góða stund. Síðast var mat- urinn hjá Daða og Krissu nú í janúar. Enginn hefði getað hugsað sér þá að við myndum ekki öll mæta aftur að ári liðnu. Daði var einstakur maður sem naut þess að vera með fjölskyldu sinni ofar öllu. Hann var áhugasam- ur um allar íþróttir og hafði smitast Daði Halldórsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.