Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 45

Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 45
OPINN fundur verður haldinn í Félagsheimili Samtakanna ’78, Laugavegi 3, á morgun, laug- ardag, undir yfirskriftinni Vernd- un mannréttinda. Á honum verð- ur fjallað um réttindi samkynhneigðra í ljósi bættrar lagalegrar réttarstöðu hér á landi, en kveikjan að honum er áhyggjur af auknu ofbeldi í garð samkynhneigðra og transgender fólks sem orðið hefur vart við að undanförnu, segir í fréttatilkynn- ingu. Fundurinn hefst kl. 13 og eru allir velkomnir. Erindi flytja Þor- valdur Kristinsson bókmenntarit- stjóri, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, Arna Schram, formaður Blaðamanna- félags Íslands, Frosti Jónsson, formaður Samtakanna ’78, og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. Að fram- söguerindum loknum verða um- ræður. Mannréttindi rædd á fundi Samtakanna ’78 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 45 Krossgáta Lárétt | 1 ræma, 8 mergð, 9 dáin, 10 kraftur, 11 ávinnur sér, 13 fyrir inn- an, 15 reifur, 18 á langt líf fyrir höndum, 21 verk- færi, 22 kyrru vatni, 23 ókyrrð, 24 farangur. Lóðrétt | 2 guðlega veru, 3 líkamshlutar, 4 tölustaf, 5 selurinn, 6 æsa, 7 rösk- ur, 12 bors, 14 goggur, 15 hrósa, 16 ráfa, 17 and- varpi, 18 óþefur, 19 slægjulands, 20 strá. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skjól, 4 gefur, 7 bólan, 8 öngul, 9 dáð, 11 anna, 13 urra, 14 urtan, 15 hlýr, 17 gafl, 20 enn, 22 saddi, 23 amman, 24 renna, 25 norpi. Lóðrétt: 1 subba, 2 jólin, 3 lind, 4 glöð, 5 fagur, 6 rolla, 10 áttin, 12 aur, 13 ung, 15 hosur, 16 ýldan, 18 armar, 19 lundi, 20 eira, 21 nafn. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Komdu þér í rétta gírinn því þú munt brátt koma á áhrifaríkum sam- böndum sem hækka kaupið. Ef þér tekst ekki selja það sem þú hefur upp á að bjóða reyndu þá betur. Þú skalt umgang- ast gjafmildan tvíbura. (20. apríl - 20. maí)  Naut Heimtaðu þína sneið af kökunni! Ef þú ert verðbréfasali skaltu fara eld- snemma á fætur – þetta verður frábær dagur. Ef ekki, skaltu samt fjárfesta. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er erfitt að binda sig félaga eða maka. Þú hefur hins vegar á tilfinn- ingunni að þetta sé rétti aðilinn, bæði í viðskiptum og ástum. Það er rétt. Brostu! (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Í heiminum er ósýnilega hringrás gjafa. Þú þarft að vera tilbúinn til að bæði gefa og þiggja. Um leið og ein gjöf fer frá þér kemur önnur til þín. Þetta er yndis- legt. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þegar samningar ganga ekki eins og þú vilt finnst þér það engir samningar. En þessi mun ganga svo vel að þú trúir hvorki augum né eyrum. Glæsilegt! (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Aðdáendur þínir láta boð út ganga um hversu frábær þú sért. Þegar yfir- maður hælir þér er það ekki að ástæðu- lausu. Peningar og ferðalög eru mögu- leiki. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Vinnan og ferðalög keppast um at- hygli þína. Þú finnur leið til að sinna við- skiptum í skemmtiferðum og skemmta þér á viðskiptaferðalögum. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú leitar ráða hjá félaga sem reynist skemmtileg blanda af speki og hnyttni. Kannski að möguleikar þínir liggi nú víðar og verði áhugaverðari. (22. nóv. - 21. des.) Bogamaður Þar sem þú kemur fyrstur auga á vandamál, sér fólk þig sem þann sem getur leyst það. Taktu hlutverkinu fagnandi. Það mun draga að gott fólk. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það felst andlegt jafnvægi í því að bjóða sérþekkingu sína fram handa yngri og óreyndari manneskju. Gefðu kunnáttu þína og hún margfaldast. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Af litlum neista verður oft mikið bál. Og þegar logar glatt verður þú að gera upp við þig hvað þú vilt í raun. Mun þessi manneskja létta þér lífið eða ekki? (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þegar þú opnar munninn og gefur flæðinu frelsi, koma tilfinningar og hugs- anir þínar í ljós. Sumar léttvægar, en hvað með það? Mestu skiptir að á þig er hlustað. stjörnuspá Holiday Mathis 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 Db6 5. cxd5 cxd5 6. a3 Rc6 7. b4 e6 8. e3 Be7 9. Bd3 O-O 10. Bb2 Dd8 11. Hc1 Bd7 12. O-O a6 13. Ra4 Ra7 14. Rc5 Bxc5 15. dxc5 Bb5 16. Rg5 g6 17. Df3 Re4 Staðan kom upp á alþjóðlegu minn- ingarmóti Þráins Guðmundssonar sem er nýlokið í Skákhöllinni í Faxafeni 12. Björn Þorfinnsson (2.348) hafði hvítt gegn Ingvari Ásbjörnssyni (2.016). 18. Rxh7! Dh4 svartur hefði einnig tapað eftir 18. … Bxd3 19. Rf6+ Rxf6 20. Bxf6 Be4 21. Df4. Í framhald- inu er sókn hvíts óstöðvandi. 19. Rf6+ Rxf6 20. Bxf6 Dh5 21. g4 Dh6 22. Hfd1 Ba4 23. Hd2 Bc6 24. g5 Dh4 25. Dg3 Dh7 26. Bxa6 og svartur gafst upp þar sem eftir 26. … bxa6 27. Hd4 er fátt um fína drætti. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Gæfa og gjörvuleiki. Norður ♠Á9 ♥K10 ♦G96 ♣G108752 Vestur Austur ♠DG65 ♠10873 ♥9 ♥G86532 ♦KD10873 ♦Á4 ♣D4 ♣9 Suður ♠K42 ♥ÁD74 ♦52 ♣ÁK63 Suður spilar 5♣ Þegar litið er eftir NS-línunni sést að fimm lauf er tæknilega besta geim- sögnin, ekki síst ef vestur hefur sagt frá tíglinum sínum. En það er sitthvað gæfa og gjörvuleiki. Einn keppandi Ís- landsmótsins, sem meldaði stoltur upp í fimm lauf, lenti í eftirfarandi óförum: Vörnin tók tvo fyrstu slagina á tígul og vestur spilaði þeim þriðja, sem austur trompaði með níu. Það kostar sagnhafa hátt tromp að drepa níuna og þá er vestur kominn með þriðja slaginn á laufdrottningu. Þessi vörn fannst al- mennt ekki, en AV gátu vel við unað að halda spilinu sléttu, því á flestum borð- um voru spiluð þrjú grönd með tveim- ur yfirslögum. Suður vakti þá á grandi, vestur kom inn á þremur tíglum … og norður skaut á gröndin þrjú. Tígul- kóngur út og stífla! BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Hver málaði altaristöfluna í Húsavíkurkirkju, semmynd birtist af í Morgunblaðinu í gær? 2 Hvað er nafnið á kolefnissjóðnum sem stofnaður vará síðasta ári að frumkvæði Skógræktarfélags Ís- lands og Landverndar? 3 Skipulagsmál í Kópavogi hafa verið í brennidepli síð-ustu daga. Hvað kallast svæðið sem deilur snúast um? 4 Hverjir urðu Íslandsmeistarar karla í ísknattleikleik? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Íslensku lýðheilsuverðlaunin voru veitt á þriðjudag. Hver fékk þessa við- urkenningu? Svar: SAMAN-hópurinn, samstarfsvettvangur frjálsra fé- lagasamtaka, sveitarfélaga og stofn- ana sem láta sig varða velferð barna. 2. Hvað hét rússneski forsetinn fyrr- verandi sem borinn var til grafar í Moskvu í gær? Svar: Borís Jeltsín. 3. Manchester United vann AC Milan í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meist- ardeild Evrópu í knattspyrnu á þriðjudaginn. Tveir ungir knatt- spyrnumenn gerðu tvö mörk hvor í leiknum. Hvað heita þeir? Svar: Wayne Rooney fyrir Mancester og Kaka fyrir AC Milan. 4. Hvaða fræga leikkona prýðir málverk Andy Warhol sem verður boðið upp á á Hótel Sögu á sunnudag? Svar: Elizabeth Taylor. Spurter… ritstjorn@mbl.is dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig STARFSMANNAFÉLAG Reykja- víkurborgar í samstarfi við SFR – stéttarfélag og Hitt húsið heldur fund fyrir ungt fólk í Tjarnarbíói á laugardaginn 28. apríl kl. 16–18. Á fundinum fær ungt fólk á aldrinum 16-25 að spyrja, úr sal, fulltrúa frá öllum framboðum spjörunum úr. Fundarstjórar verða þau Halla Gunnarsdóttir og Sölvi Tryggva- son. Fundurinn verður tekinn upp og hann sendur út á Netinu. Fulltrúar flokkanna verða: Guð- jón Ólafur Jónsson frá Framsókn- arflokki, Valdimar Leó Friðriksson frá Frjálslynda flokknum, Margrét Sverrisdóttir frá Íslandshreyfing- unni, Ágúst Ólafur Ágústsson frá Samfylkingunni, Birgir Ármanns- son frá Sjálfstæðisflokki og Katrín Jakobsdóttir frá Vinstri grænum. Kosningafundur fyrir ungt fólk RÓNARDALURINN í Frakklandi býður upp á nokkur af frægustu vínum heims og er svæðið m.a. þekkt fyrir kraftmikil vín, segir í fréttatilkynningu. Chapoutier er meðal vín- framleiðenda í Rónardalnum og verður veitingastaðurinn Grillið á Hótel Sögu með sérstakan Cha- poutier-matseðil dagana 25. – 28. apríl. Sérvalin Chapoutier-vín verða borin fram með hverjum rétti. Vínhefð Rónardalsins á Grillinu HREISNUNARÁTAK verður í Garðabæ dagana 28. apríl–4. maí nk. Átakið hefst formlega laugardaginn 28. apríl kl. 10.30 þegar bæj- arfulltrúar og bæjarstjóri hittast við Hofsstaðaskóla og hefja hreinsun Arnarneslækjar með því að tína upp rusl úr og meðfram læknum. Átakið stendur alla næstu viku og eru bæjarbúar í fréttatilkynningu hvattir til að fara út og hreinsa nær- umhverfi sitt. Nágrannar, félög, skólar eða aðrir hópar geta tekið sig saman og hreinsað tiltekið svæði í nágrenni sínu og fengið til þess hvatningarstyrk, t.d. til að halda grillveislu að verki loknu. Starfs- menn bæjarins verða á ferðinni þessa dagana, hirða upp alla poka og annað eftir ruslatínslu bæjarbúa, hópa eða einstaklinga. Lokahátíð hreinsunarvikunnar verður haldin á Garðatorgi föstu- daginn 4. maí kl. 16–18. Bæjarstjórn hreinsar Arnarneslæk Á STJÓRNARFUNDI SÍBS 24. apr- íl var eftirfarandi ályktun sam- þykkt samhljóða: Stjórn SÍBS hvetur stjórnvöld til að afnema tekjutengingu bóta vegna launatekna eldri borgara og öryrkja. „Svo virðist samkvæmt rannsókn Rannsóknarseturs verslunar við Háskólann á Bifröst að afnám tekjutengingarinnar valdi rík- issjóði óverulegum kostnaði og gæti, ef vel tekst til, stuðlað að því að 1–2 þúsund manns fari út á vinnumarkaðinn sem ekki eru þar núna. Með þessu gæti skapast leið til að auka bæði tekjur og lífsham- ingju þess fólks sem nýtt gæti sér þetta,“ segir í greinargerð með ályktuninni. Ályktun frá SÍBS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.