Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 21 LANDIÐ Eftir Björn Björnsson Sauðárkrókur | Oft hafa Skagfirðing- ar tekið lagið um Sæluviku eða af hverju öðru tilefni sem gefist hefur og eitt af því sem í áranna rás hefur verið sagt einkenna þá er sönghefð og söng- gleði. Lengstum hafa menn sungið hver með sínu nefi, en einnig skipu- lega innan kóra og sönghópa. Ein er þó sú grein innan sönglistarinnar sem ekki hefur verið áður stunduð innan þessa söngelska héraðs, en það er óp- eruflutningur, en nú er að verða breyting þar á, því að við upphaf Sæluviku í ár mun Skagfirska óperan flytja hina þekktu óperu La Traviata og eru það heimamenn úr Skagafirði og Húnavatnssýslum ásamt Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar og í leikstjórn Guðrúnar Ásmundsdóttur sem standa að uppfærslunni. Úkraínsk óperusöngkona Fyrir tveim árum flutti ásamt fjöl- skyldu sinni til Hofsóss, ung úkraínsk óperusöngkona Alexandra Cherny- shova og er hún frumkvöðullinn að þessum tónlistarviðburði en að sögn hennar var það í september á síðasta ári sem sú hugmynd kviknaði hvort ekki væri unnt að kom þessu á lagg- irnar. Eftir viðræður og mjög jákvæð- ar undirtektir hjá Guðmundi Óla Gunnarssyni, hljómsveitarstjórnanda á Akureyri, var lagt upp í þessa ferð og undirbúningur hafinn. Sagði Alex- andra að fljótlega hefði verið búið að finna söngfólk í flest hlutverk og byrj- að að æfa í desember, jafnframt áheyrnarprófum fyrir kórinn. Spurð um aðkomu Guðrúnar Ás- mundsdóttur leikstjóra, sagði Alex- andra að Guðrún hefði komið á tón- leika til sín í Salnum í Kópavogi þar sem þær hittust og myndaðist á milli vinátta sem leiddi til þess að beint lá við að leita til hennar þegar vantaði leikstjórn að verkinu. Alexandra segir að það sé ótrúlegt hvað allt hafi geng- ið vel og það sem mest sé um vert, og svo gífurlega mikilvægt, sé að fá jafn reyndan og fjölhæfan leikstjóra og Guðrún er til þess að leikstýra verk- inu. Guðrún Ásmundsdóttir segir La Traviata vera eina sína uppáhalds- óperu og því hafi hún ekki þurft að hugsa sig um tvisvar þegar beiðni kom um þetta verkefni, hinsvegar er listakonan með mörg járn í eldi og því þurfti að hagræða og skipuleggja til þess að unnt yrði að koma þessu fyrir. Guðrún segist þegar á fyrstu tónleik- um með Alexöndru hafa heillast af persónu hennar og frábærri söng- rödd, milli þeirra hafi tekist kynni og vinátta. Guðrún segist ekki hafa vitað við hverju hún bjóst hér í Skagafirði þeg- ar hún tók leikstjórnina að sér, ef til vill ekki svo miklu, en hinsvegar hafi komið á daginn að hér var frábært söngfólk í öllum burðarhlutverkum, kórinn mjög góður, og hún segir það vera ótrúlega gefandi að starfa með svona áhugasömu fólki og fá að upp- lifa þann dugnað og áhuga sem það sýnir. Og allir hjálpast að, „þú mátt vel segja frá því að núna fór Alex- andra til þess að taka á móti móður sinni sem var að koma alla leið frá Úkraínu og hún kom nú aldeilis fær- andi hendi, því að hún kom með alla búninga sem nota þarf í uppfærsl- unni, á kórinn og allt, og gaf óper- unni,“ og þegar ég spurði Alexöndru hvort foreldrar hennar væru milljóna- mæringar brosti hún og sagði: „Nei, en þeim þykir bara vænt um mig.“ Hreinu ævintýri líkast Þær Alexandra og Guðrún eru sammála um að þessi tími hefur verið erfiður og erilsamur, en hreinu æv- intýri líkastur, og taka jafnframt fram að ekki megi gleyma að nefna nafn Thomasar R. Higgerssons píanóleik- ara sem hafi unnið með þeim allan tímann og skilað frábæru starfi. Þeg- ar spurt er hvort áframhald verði á óperuuppfærslum í Skagafirði er aug- ljóst að eitthvað hefur verið rætt og Guðrún segist vera þess fullviss að Skagafirska óperan sé komin til að vera, „en hvað og hvenær, það verður að bíða, það bara verður að koma í ljós.“ Frumsýningin er á sunnudag, 29. apríl, kl. 16, í Íþróttahúsinu í Varma- hlíð. La Traviata verður flutt í upp- færslu Skagfirsku óperunnar Fyrsta skipti sem ópera er sett upp í Skagafirði Tónlist Sinfóníuhljómsveit Norðurlands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar á æfingu ásamt kórnum. Í HNOTSKURN »Ung úkraínsk óp-erusöngkona búsett á Hofsósi, Alexandra Cherny- shova, er frumkvöðullinn að þessum tónlistarviðburði. Guðrún Ásmundsdóttir leik- stýrir verkinu »Móðirin kom færandihendi frá Úkraínu því að hún kom með alla búninga sem nota þarf í uppfærslunni, á kórinn og allt, og gaf óp- erunni. Sauðárkrókur | Fyrirtækið Verið Vís- indagarðar ehf. hefur verið stofnað á Sauðárkróki. Eitt af markmiðum Versins er að stuðla að uppbyggingu atvinnulífs, efla rannsóknir og námsframboð svo og verðmætasköpun í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu. Síðastliðinn miðvikudag var opinn kynningarfundur haldinn í húsakynnum Versins og á fjölmennri ráðstefnu, þar sem Gísli Svan Einarsson framkvæmda- stjóri bauð gesti velkomna, var fjallað um rannsóknir fyrir atvinnulífið, og síðan um framtíð Versins og þau áform sem uppi eru um næstu skref í uppbyggingu fyr- irtækisins. Þá ávarpaði Einar K. Guð- finnsson sjávarútvegsráðherra ráðstefnu- gesti. Störfum fjölgað á landsbyggðinni Í ávarpi sínu sagði ráðherrann að Verið Vísindagarðar væri farsæl leið til upp- byggingar atvinnulífs á svæðinu, einkum í matvælaiðnaði. Þá sagði hann ráðuneytið hafa lagt kapp á að fjölga störfum hjá stofnunum sínum á landsbyggðinni, en þeim hefur fjölgað um 25 á síðustu miss- erum og að álíka fjölgun hið minnsta væri fyrirsjáanleg innan tíðar. „Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hversu mikilvægt er að fjölga atvinnu- tækifærum fyrir háskólamenntað fólk á landsbyggðinni og sömuleiðis námsmögu- leikum, og þetta er liður í því. Ég bind miklar vonir við Verið Vísindagarða og hef fundið fyrir miklum áhuga heimamanna og matvælafyrirtækja sem hyggjast stór- efla iðnað og verðmætasköpun á svæðinu enn frekar á næstu árum. Það eru því spennandi tækifæri framundan hér í Skagafirði, sem nýtt verða öllum til hags- bóta,“ sagði ráðherra í ræðu sinni. Um rannsóknir fyrir atvinnuvegina fjölluðu Rannveig Björnsdóttir, verkefnis- stjóri Matís, Ólafur Sigurgeirsson, Há- skólanum Hólum, Ragnar Jóhannsson, Matís og Helgi Thorarensen, Háskólanum Hólum. Um framtíð Versins fjölluðu Jón E. Friðriksson, FISK Seafood, Sjöfn Sig- urgísladóttir, forstjóri Matís, Skúli Skúla- son, rektor Háskólans Hólum, og Gunnar Sveinsson, frá Sveitarfélaginu Skagafirði. Verið annast rekstur kennslu og rann- sóknaraðstöðu í formi vísindagarða í tengslum við Háskólann á Hólum, Mat- vælarannsóknir Íslands, Matís, FISK Seafood og fleiri aðila. Félagið stefnir að enn frekari uppbyggingu á því sviði með því að skapa aðstöðu og vettvang til aukins samstarfs atvinnulífs, innlendra og er- lendra háskóla og rannsóknaraðila. Ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri Versins, Gísli Svan Einarsson, en hann starfaði áður sem útgerðarstjóri hjá FISK Seafood á Sauðárkóki. Verið Vísindagarðar eru nú rekið í 1.500 ferm. húsnæði að Háeyri 1 við Sauðár- krókshöfn. Þar er Háskólinn á Hólum með aðstöðu fyrir kennslu og rannsóknir í fisk- eldi, fiskilíffræði, sjávar- og vatnalíffræði. Þá er Matís þar með starfsemi fyrir fyr- irtækið Iceprotein sem framleiðir prótein úr fiskiafskurði. Sjávarútvegsráðherra sagði að þátttaka Matís í rannsókna- og þróunarstarfi í Verinu hefði það meðal annars að mark- miði að búa í haginn fyrir atvinnulífið og stuðla að frekari fjárfestingu og atvinnu- sköpun. Það ætti einnig við um starfsemi rannsóknarstofnana sem heyrðu undir sjávarútvegsráðuneytið víða um land. Þá sagði hann vísindagarða eins og þá sem hér væru teknir í notkun hafa verið stofn- aða við fjölmarga háskóla erlendis, því reynslan sýndi að slík starfsemi væri öflug leið til að efla byggðir og samfélög með víðtæku háskólastarfi í nánu samstarfi við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Vegna mikils áhuga þeirra sem koma að Verinu Vísindagörðum og fleiri, eru þegar uppi áform um að bæta verulega við nú- verandi húsnæði, svo sem rannsóknarað- stöðu og frekari vinnuaðstöðu fyrir nem- endur, kennara og rannsóknarfólk. Stjórnandi ráðstefnunnar var Guð- mundur Guðlaugsson sveitarstjóri. Verið Vísindagarðar stofnað Fundir Nokkur fjöldi var á kynningarfundi Versins á Sauðárkróki nú í vikunni. „Farsæl leið til at- vinnuuppbyggingar“ Í HNOTSKURN »Það eru því spennandi tækifæriframundan hér í Skagafirði, sem nýtt verða öllum til hagsbóta. »Vegna mikils áhuga þeirra semkoma að Verinu Vísindagörð- um og fleiri eru þegar uppi áform um að bæta verulega við núverandi húsnæði.Höfn í Hornafirði | Starfsstöð Þekkingarnets Austurlands hefur verið formlega opnuð í Nýheimum á Höfn í Horna- firði. Fyrir er Þekking- arnetið með starfsstöð á Eg- ilsstöðum og í Neskaupstað. Einnig var undirritað sam- komulag milli Þekking- arnetsins og Háskólans á Ak- ureyri um að fjarnám í hjúkrunarfræði megi stunda á Hornafirði. Sex nemar hafa þegar skráð sig í námið en Háskólinn á Akureyri er einnig með fjarnema í hjúkr- unarfræði á Ísafirði, í Reykjanesbæ, Vest- mannaeyjum Neskaupstað og á Egilsstöðum. Hjalti Þór Vignisson, bæj- arstjóri Hornafjarðar, sagði í ávarpi þessa viðbót á náms- framboði mjög ánægjulega og mikilvæga. Hann sagði fjölmarga af kennurum og leikskólakennurum á Horna- firði hafa sótt sér menntun í fjarnámi. Með tímanum myndu útskrifast hjúkr- unarfræðingar sem myndu styrkja kjölfestuna í þessari grein á svæðinu. Á myndinni undirrita Guð- rún Reykdal, fram- kvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands, og Hermann Óskarsson, deildarforseti heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri, samkomulag um kennslu í hjúkrunarfræði í fjarnámi Morgunblaðið/Sigurður Mar Þekkingarnet Austurlands með starfsstöð á Höfn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.