Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Bragi Sigurðs-son fæddist í Ráðagerði á Sel- tjarnarnesi hinn 25. nóvember 1921. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Þingeyinga 22. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Sigurður Eyjólfsson, f. 12.12. 1892, d. 22.7. 1981, og Þorbjörg Vigfús- dóttir, f. 8.10. 1883, d. 4.3. 1933. Bragi átti fimm bræður, Berg Vigfús, f. 1916, d. 1993; Eyjólf, f. 1919, d. 1998; Einar, f. 1920; Baldur, f. 1923, d. 2000; Skúla, f. 1924, d. 1926, og tvo hálfbræður, Sigþór, f. 1938 og Gylfa, f. 1940, sem Sig- urður átti með seinni konu sinni Maríu Þórðardóttur. Bragi kvæntist 3.1. 1953 Magneu Einarsdóttur frá Klöpp í Sandgerði, f. 4.11. 1932, d. 26.11. 2003. Börn þeirra eru: 1) Þor- björg, f. 23.4. 1954, gift Jóni Sig- urðssyni frá Garði í Kelduhverfi. Börn þeirra eru Brynja Dögg, f. 1983, Bragi, f. 1985, Sigurður, f. 1989, og Sandra Rún, f. 1995. 2) Hlynur, f. 15.4. 1967, kvæntur Sigurfljóð Svein- björnsdóttur frá Mýrarkoti á Tjör- nesi. Börn þeirra eru Magnea Dröfn, f. 1988, Friðbjörn Bragi, f. 1991, og Unnar Þór, f. 2000. 3) Helga Þyri, f. 4.8. 1968, gift Þórði Helgasyni frá Grænavatni í Mý- vatnssveit. Börn þeirra eru Bjarki, f. 1990, Freyr, f. 1991, Sólveig María, f. 1996 og Ari, f. 1997. Bragi ólst upp hjá foreldrum sínum á Fálkagötunni í Reykjavík fyrstu æviárin. Hann lauk vél- stjórnarprófi og var vélstjóri til sjós fram á sjötta áratuginn, en þá kom hann í land og starfaði við vélgæslu í fiskvinnsluhúsum í Sandgerði. Árið 1985 fluttu þau hjónin norður í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu þar sem þau voru með veitinga- og hótel- rekstur í Skúlagarði ásamt því sem Bragi stundaði loðdýrarækt og var með nokkrar kindur. Útför Braga verður gerð frá Garðskirkju í Kelduhverfi í dag og hefst athöfnin klukkan 16. Þegar við kveðjum Braga hinstu kveðju er margs að sakna og margt að þakka fyrir því nú er genginn á braut einstakur og traustur öðlingur sem naut virðingar yngri sem eldri. Það segir mikið um Braga hvernig börn hændust að honum. Það var alltaf gaman þegar hann kom í heim- sókn, hann hafði tíma og áhuga á börnum og mildi hans, alúð, kímni og góðlátleg stríðni hreif okkur öll. Fullorðnir nutu góðvildar hans einnig. Ófáar stundirnar sinnti hann afa og ömmu í Klöpp, spjallaði við þau, smíðaði og lagaði. Maður gat alltaf komið með bílinn sinn til hans þegar eitthvað var í ólagi. Hlýlegt viðmót hans bauð útlenska, mállausa konu velkomna betur en nokkur orð gátu gert. Þolinmæði hans var ein- stök. Þegar óvitaskapur smádrengs bitnaði á honum haggaðist hann ekki. Hvort sem hann var læstur inni á kamri og þurfti að klifra upp og út úr honum eða þegar hann kom að reiðhjólinu sínu vindlausu þá var ekkert verið að skammast eða æsa sig, hnokkanum mætti aðeins skiln- ingur og fyrirgefning, jafnvel bros út í annað. Kynnin af Braga hafa auðgað líf okkar og þakklæti er okkur efst í huga. Við sendum Þorbjörgu, Hlyni, Helgu Þyri, tengdabörnum, barna- börnum og öðrum ástvinum hug- heilar samúðarkveðjur. Einar Valgeir og Karen Elizabeth. Bragi Sigurðsson ✝ Jón VilhelmÁkason fæddist á Djúpavogi 4. mars 1917. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 16. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Áki Kristjánsson, f. á Brekku á Djúpa- vogi í S-Múl. 2. júlí 1890, d. 1. septem- ber 1982 og Áslaug Jónsdóttir, f. á Bæ í Bæjarhreppi 22. maí 1897, d. 3. júní 1966. Systkini Jóns Vilhelms voru Rögnvaldur, f. 1914, d. 1946, Jó- hanna Helga, f. 1915, d. 1986, Kristjana Þórey, f. 1919, d. 1992, Ottó, f. 1921, d. 2005, Þorbjörg, f. 1922, d. 2000, Vilborg, f. 1925, Guðrún Álfheiður, f. 1922, d. 2004, Pálína, f. 1930, Sigurrós Ingileif, f. 1932, Sigmar Bjarni, f. 1933, Erlingur, f. 1935, d. 1971, Fjóla, f. 1940 og Hlífar, f. 1941. Jón Vilhelm kvæntist 12. des- ember 1942 Höllu Jónsdóttur frá Hlíðarenda á Djúpavogi, f. 8. maí 1921. Foreldrar hennar voru Jón Sigurðsson, f. 1896, d. 1975 og Ragnhildur Antoníusdóttir, f. 1901, d. 1977. Jón Vilhelm og Halla eignuðust sjö börn, þau eru: 1) Hanna, f. 6.1. 1942, d. 31.5. 1942. 2) Hanna, f. 7.7. 1943, gift Ingólfi Hrólfssyni, börn þeirra eru a) Hrólfur, f. 1973, í sambúð með Kristínu B. Viðars- Þórólfi Guðmundssyni, dætur þeirra eru Bryndís Rún og Birna Rún. c) Hrefna Rún, f. 1981, í sambúð með Hlina Baldurssyni, sonur þeirra er Kristófer Áki. d) Jón Vilhelm, f. 1986, unnusta Berglind Ó. Pétursdóttir, 6) Jóhann, f. 31.3. 1950, kvæntur Sigríði Jónsdóttur, dætur þeirra eru a) Þorbjörg, f. 1976, í sambúð með Vali Traustasyni, börn þeirra eru Jóhanna Júlía og Hjalti. b) Rannveig, f. 1980, í sambúð með Finni R. Jóhannes- syni, synir þeirra eru Jóhann Gunnar og óskírður. 7) Áslaug Ragna, f. 28.8. 1951, d. 3.8. 1986, var gift Guðmundi Smára Guð- mundssyni, synir þeirra eru a) Hafþór, f. 1973, d. 1989 og b) Jökull, f. 1978, í sambúð með Kol- brúnu H. Matthíasdóttur, börn þeirra eru Ásþór Ísak og Hrafn- hildur. Jón Vilhelm var verkstjóri í frystihúsinu á Djúpavogi fram til ársins 1959 en þá fluttist fjöl- skyldan búferlum til Akraness. Þar hóf hann störf hjá Fiskiver hf. og síðar hjá hjá Þórði Óskars- syni. Hann var síðast yfirfiski- matsmaður Vesturlands, eða þar til hann lét af störfum. Jón Vil- helm var mikill áhugamaður um tónlist og söng hann með Kirkju- kór Akraness í 40 ár. Einnig var hann félagi í Rótarýklúbb Akra- ness. Jón Vilhelm og Halla bjuggu lengst af á Krókatúni 20 en fluttu árið 2005 að Dvalar- heimilinu Höfða á Akranesi. Útför Jóns Vilhelms verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. dóttur, börn Hrólfs úr fyrra sambandi eru Aldís Rós og Auðun Ingi, og b) Silja, f. 1975. 3) Alda, f. 7.7. 1943, gift Eyþóri Guð- mundssyni, börn þeirra eru, a) Halla, f. 1965, gift Gunnari Brynjólfssyni, dóttir þeirra Alda Kristín, synir Höllu úr fyrra sambandi eru Eyþór Bjarni og Kristófer Nökkvi, b) Guðný Gréta, f. 1969, gift Hafliða Sæv- arssyni, synir þeirra eru Bjart- mar Þorri, Jóhann Atli og Berg- sveinn Ás, c) Jón Magnús, f. 1979, í sambúð með Kötlu B. Hauks- dóttur, d) Hrafnhildur, f. 1980, í sambúð með Kristjáni Björnssyni, sonur þeirra er Þórir Freyr. 4) Axel, f. 28.9. 1945, kvæntur Mar- gréti Gísladóttur, börn þeirra eru a) Jón Gunnar, f. 1966 kvæntur Rannveigu B. Gylfadóttur, börn þeirra eru Hrafn, Halla og Ari, b) Guðrún Jóhanna, f. 1969, gift Gústavi J. Daníelssyni, börn þeirra eru Axel Ásþór, d. 1990, Axel Birgir og Margeir Felix og c) Eva Björk, f. 1981. 5) Áki, f. 19.5. 1948, kvæntur Bryndísi Tryggvadóttur, börn þeirra eru a) Margrét, f. 1973, gift Sigurði Þ. Sigursteinssyni, synir þeirra eru Arnór og Ingi Þór. b) Áslaug Ragna, f. 1978, í sambúð með Með þessum orðum viljum við minnast þín, elsku afi, og þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Við vorum einstaklega heppin að fá að vera með þér allan þennan tíma. Þú varst sérstaklega blíður og góður og alltaf var gott að koma til þín og ömmu í Krókatúnið og spjalla um daginn og veginn. Við gleymum seint öllum þeim bíl- ferðum sem við systkinin nutum góðs af hjá þér þar sem þú varst allt- af boðinn og búinn til að skutla okk- ur hingað og þangað, takk fyrir það. Þú og amma voruð einstaklega samrýnd hjón og hugsuðu ávallt vel um hvort annað, þið voruð dugleg að ferðast og áttuð hjólhýsi sem við systkinin munum svo vel eftir. Þeg- ar þið voruð að undirbúa eitthvert ferðalagið fengum við að leika okkur í hjólhýsinu sem okkur fannst meiri- háttar gaman. Á seinni árum ykkar voruð þið dugleg að fara til Kanarí og dvelja þar í nokkrar vikur, alltaf var jafn gott að fá ykkur heim aftur. Þar sem við sitjum og hugsum til þín kemur upp í huga okkar hversu vandvirkur þú varst í einu og öllu. Þegar við hittumst á Krókó á að- fangadagskvöld og opnuðum gjaf- irnar frá ykkur ömmu og þið ykkar gjafir, þá er okkur minnisstætt hversu góðan tíma þú tókst þér í að opna þær. Einnig gastu dundað þér í bílskúrnum þínum, flokkað og púss- að skrúfur. Þú eyddir ófáum tímum í að brytja ofan í fuglana, þeir áttu svo sannarlega góðan vin þar. Gisti- næturnar voru ófáar og gátum við valið hvort við svæfum inni hjá ykk- ur ömmu, í stofunni eða í vinnuher- berginu þínu. Þú og amma pössuðuð vel upp á að halda fjölskyldunni saman með því að bjóða til kleinukaffis á hverj- um laugardegi þar sem amma stóð við kleinupottinn, heimsins bestur kleinur – takk fyrir þær. Síðastlið- inn febrúar þegar við frændsystk- inin hittumst áttum við frábærar stundir með ykkur ömmu þar sem við sungum og skemmtum okkur saman, en þar varst þú á heimavelli enda söngmaður mikill. Takk fyrir allt, afi okkar. Þín verður sárt saknað og minning þín lifir í hjarta okkar. Margrét, Áslaug Ragna, Hrefna Rún og Jón Vilhelm Ákabörn. Ég hef verið svo heppinn að fá að kynnast öllum mínum öfum og ömmum og nokkrum langöfum og langömmum. Þetta var fólk sem steig stóra skrefið úr handverki gamla tímans yfir í tækniheim nú- tímans. Afi var fæddur í litla þorp- inu Djúpavogi austur á fjörðum og alinn upp af bræðrunum á Strýtu. Hann gerði því eitt og annað með gamla laginu og miðlaði sumu til okkar sem yngri vorum. Hann var afskaplega vandvirkur og snyrtileg- ur og kenndi okkur að flana ekki að neinu. Hann tók alltaf tíma í að und- irbúa sig vel áður en hann hófst handa við eitthvert verk, enda var mun þægilegra og fljótlegra að vinna verkið ef allt var í röð og reglu og vinnuaðstæður góðar. Hann salt- aði kjöt sitt, tók upp rófur og kart- öflur og geymdi í sérstakri niður- grafinni geymslu. Hann kenndi mér að svíða hausa og verka þá svo að sómi var að. Þá var ég með honum í að reyta fugl og svíða. Þessum verk- um fylgdu oft sögur; til að mynda um álftina sem Álfheiður, systir hans, hafði soðið í fjórtán tíma en kom engu að síður ólseig upp úr pottinum. Afi var lengi matsmaður en einnig mikill matmaður og var aðdáunarvert að sjá hversu natinn hann var við að taka matinn til á diskinn og gera hann einstaklega lystilegan. Skemmtilegar voru ár- legar ferðir okkar til að selja merki og blað SÍBS í sveitunum sunnan Skarðsheiðar. Afi hafði ungur fengið berkla og studdi því SÍBS. Höfðum við gaman af því að spjalla um fólkið á hverjum bæ og giska á hvað það myndi kaupa af okkur. Fallega minningu á ég um afa þar sem hann kemur röltandi niður Kró- katúnið um miðnætti á aðfangadags- kvöld (með fína hattinn) eftir að hafa sungið við aftansöng. Hann söng tenór í kirkjukórnum lengi. Ein besta gjöfin sem hann gaf mér var að kosta mig í tónlistarskóla þegar ég var yngri, ég kom þá oft niður eftir til afa og ömmu til að æfa mig á fótstigna orgelið sem hann átti. Síð- ustu árin hef ég verið að syngja með kirkjukórnum og má því segja að ég vermi sess hans þar. Afi og amma voru mjög samrýnd. Þegar við stungum inn nefinu var okkur tekið fagnandi og alltaf var meira en velkomið að leyfa börnun- um að vera. Þau fluttust til Akra- ness 1959, til að börnin ættu kost á að mennta sig. Þau fóru samt reglu- lega austur og ég man eftir að hafa verið með þeim í kirkjugarðinum við Djúpavog þar sem þau voru að hlúa að leiði barnanna 3 sem þau misstu sem kornabörn. Erfiðasti missirinn sem þau urðu fyrir var þó vafalaust þegar Áslaug, dóttir þeirra, dó skyndilega 35 ára gömul. Afi fylgdist vel með fréttum og sat löngum við skrifborðið sitt við lestur og skriftir. Hann var vel máli farinn og hafði snotra rithönd. Eftir að hann hvarf af vinnumarkaði var hann mikið í bílskúrnum þar sem hann sýslaði við ýmsa hluti. Þetta gerði hann til að halda sér við lík- amlega og andlega. En gjafir jarðar eru forgengilegar og eins er með skrokkinn okkar. Við barnabörnin, ásamt mökum, áttum góða stund með afa og ömmu fyrr á þessu ári; það er gott að eiga minninguna um hana. Ég á mér þá ósk að lokum að afi minn hvíli í friði. Guð geymi hann og styrki ömmu í sorginni. Jón Gunnar Axelsson. Jón Vilhelm Ákason ✝ Móðir okkar, FANNEY INGA GUÐMUNDSDÓTTIR, Sléttuvegi 17, Reykjavík, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Björn Sigurbjörnsson, Guðrún Sigurbjörnsdóttir. ✝ Ættmóðir okkar, BRYNHILDUR JÓNASDÓTTIR, Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki, áður til heimilis á Hólavegi 3, lést miðvikudaginn 18. apríl. Útför hennar var gerð í kyrrþey þriðjudaginn 24. apríl, að ósk hinnar látnu. Hólmfríður Friðriksdóttir, Jón Karlsson, Hildur Bjarnadóttir, Bjarni Thors, börn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURBJÖRG ÞORVALDSDÓTTIR, Laugarásvegi 62, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 24. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Róslín Jóhannesdóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Sigurður Pálsson, Þorvaldur Jóhannesson, Sonja Hilmars, Anna Sigrún Auðunsdóttir, Sigurbjörg Þorvaldsdóttir, Jóhannes Páll Sigurðarson og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR frá Eskifirði, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað þriðjudaginn 24. apríl. Jarðarförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju mánudag- inn 30. apríl kl. 14.00. Hrafnhildur Björnsdóttir, Guðmundur Þór Svavarsson, Kristján Björnsson, Kristín Bogadóttir, Guðrún Björnsdóttir, Gísli Stefánsson, Friðrika Björnsdóttir, Þorvaldur Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.