Morgunblaðið - 25.05.2007, Side 32

Morgunblaðið - 25.05.2007, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Emma KatrínGísladóttir fæddist í Reykjavík 3. júlí 1998. Hún lést á Barnaspítala Hringsins 16. maí 2007. Foreldrar Emmu Katrínar eru Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks sjálf- stæðismanna, f. 25.7. 1966, og Gísli Hjartarson, verk- taki, f. 15.4. 1960. Bræður Emmu Katrínar eru Baldvin Hugi, f. 15.8. 1991, og Greipur Þorbjörn, f. 5.4. 2002. Foreldrar Grétu eru Þorbjörg Daníelsdóttir, f. 15.8. 1938, og Ingþór Haraldsson, f. 17.11. 1932, d. 26.10. 1999. For- eldrar Gísla eru Hjörtur Haraldur Gíslason, flugvirki, f. 24.10. 1923, d. 22.11. 2005, og Gerða Friðriks- dóttir, hjúkrunar- fræðingur, f. 4.10. 1927. Emma Katrín var nemandi í 3. bekk í Hamraskóla. Hún lærði söng í vetur og lauk í vor 1. bók í Suzuki- píanónámi. Emma Katrín verður jarðsung- in frá Grafarvogskirkju í dag kl. 13. Ó Jesú bróðir besti og barnavinur mesti. P.J. Hversu heitt var beðið og nafn þitt ákallað, af svo mörgum, elsku Jesús. Við glöddumst þegar vonir voru vaktar um að allt færi vel og þökk- uðum með bæn til þín af heilu hjarta. Síðan vildum við ekki trúa, gátum ekki trúað að þú hefðir ekki heyrt bænir okkar, að þú yrðir ekki við ákalli okkar. Nei, Drottinn Jesús Kristur, ég veit að okkur ber aðeins að þakka fyrir það sem okkur er gefið, fyrir allt í hversdeginum sem oft og tíðum þykir svo sjálfsagt en mest af öllum eigum við að þakka fyrir börnin okk- ar. Emma Katrín var dýrmæt gjöf og yndisleg manneskja, gleðigjafi til síðustu stundar. Af einhverjum ástæðum, sem við getum ekki skilið, var henni ekki ætlaður lengri tími í þessu lífi en ég held þú hafir þrátt fyrir allt heyrt bænir okkar Jesús. Þú bænheyrðir okkur með því að gefa henni sjálfri órtúlegt þolgæði og æðruleysi í veikindum hennar, og með því að gefa foreldrum hennar og stóra bróður styrk og óendanlega þolinmæði og takmarkarlaust ástríki í umönnun sinni. Þú varst sannar- lega nálægur á sjúkrastofunni, góði Jesús. Þú breiddir blessun þína á barn- æsku litlu Emmu Katrínar og nú bið ég þig að blessa og varðveita Greip Þorbjörn, litla bróður hennar sem er of lítill til að geta tjáð söknuð sinn svo mjög í orðum en skilur og veit meira en okkur hin grunar. Blessaðu foreldrana, Grétu og Gísla, og elsku- legan stóra bróður, Baldvin Huga. Blessaðu okkur öll. Megi ljós himinsins opnast fyrir Emmu Katrínu Gísladóttur. Þorbjörg (amma Lilla). Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðar kraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka mér yfir lát þú vaka þinn engil svo ég sofi rótt. (Foersom – Sveinbjörn Egilsson) Þessi sálmur er mér afar hugfólg- inn nú, er ég kveð kæra vinkonu mína, elsku litlu stúlkuna hana Emmu Katrínu, sem einungis var á níunda ári er hún kvaddi þetta líf. Henni og fjölskyldu hennar kynntist ég er ég átti því láni að fagna að vera dagmóðir á heimili þeirra frá því Emma Katrín var á fyrsta ári. Ótal minningar streyma fram sem ég mun geyma sem gull í mínu hjarta. Vegir guðs eru órannsakanlegir en ef til vill er okkur, sem eftir lifum, einhver huggun í þeim orðum að þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Elsku Gréta, Gísli, Baldvin og Greipur. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið þess heitt og innilega að góður Guð styrki ykkur og styðji á þessum erfiðu sorgartím- um. Lísa Pálsdóttir. Hann er þagnaður söngfuglinn og syngur ei meir. Hún Emma Katrín, litla frænka, gladdi okkur með söng sínum og glaðværð í tæp níu ár. Hún lifði hratt og örugglega, mátti engan tíma missa, svo mikið lá henni á að fræðast. (Þetta blasir við í nýju ljósi þegar ljóst er að henni var ekki hug- að lengra líf.) Emma kunni alla staf- ina tæplega tveggja ára gömul, flug- læs fjögurra ára og hafði í hendi sér öll helstu tækniatriði við tölvunotkun svo sem að klippa og líma og sækja myndir af netinu til að nota í sögur löngu áður en skólaganga hennar hófst. Allt var þetta gert af miklu ör- yggi og mikilli yfirvegun, svo að margur fullorðinn hefði getað glaðst ef tölvukunnáttan væri eitthvað ná- lægt getu hennar. En það var tónlist- in og söngurinn sem átti hug hennar allan og þar gátum við frænkurnar setið að skrafi. Þessum samveru- stundum var þó stýrt harðri hendi af litlu frænku því oftar en ekki lá henni á að komast lengra í píanóbókinni sinni, lengra en kennarinn hafði sett henni fyrir og fannst líklegast að hægt væri að dobla frænku til að komast á næsta stig spilamennsk- unnar, því auðvitað var það kannski ekki vinsælt og ekki einmitt það sem kennarinn hafði ætlað sér en Emmu lá bara alltaf svo mikið á. Á átta ára afmæli sínu síðasta sumar hafði það dottið í hana að hún yrði að kunna af- mælissönginn á píanóið og þá kallaði hún aftur á stóru frænku og bað um hjálp. Í þetta sinn var mér það þvert um geð því ekki vildi ég spilla fyrir náminu hennar með því að kenna henni glamrið í mér sem ekki getur undir neinum kringumstæðum flokkast undir spilamennsku. Emma hafði lag á því að þykjast ekki skilja orðið nei, held að það hafi bara ekki verið til í orðasafni hennar. Það skal engan undra að þennan dag fékk ég ekki heimfararleyfi fyrr en afmæl- isbarnið spilaði afmælissönginn villulaust. Eftirminnilegar eru líka stundirnar þegar Emma settist fyrir framan píanóið á heimili okkar á síð- ustu aðventu, þegar hún og Greipur bróðir hennar fengu að gista hjá okkur sem stundum fyrr. Þá var hún búin að æfa jólalögin á píanóið og þau sungu ásamt dætrum mínum jólalögin fullum hálsi. Lífsglöð börn að syngja um jólasveinana að ganga um gólf – fegurri minningar er ekki hægt að óska sér. Nú syngur Emma ekki meir en söngur hennar og minn- ing lifir í hjörtum okkar og nærir okkur um ókomna tíð. Elsku Gísli, Gréta, Baldvin og Greipur. Megi góður Guð styrkja ykkur og hugga á þessum erfiðu tím- um. Dagrún Hjartardóttir. Engillinn er floginn. Þessi litli ljósi engill með fallegu bláu augun og hvíta hárið. Mikið lá honum á, aðeins átta ára. Eftir sitjum við hin í sorg- inni. Í sorginni felast spurningar, söknuður, skilningsleysi og reiði en líka þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa Emmu þennan tíma, kynnast henni og umgangast. Af vanmætti langar mig að minn- ast bróðurdóttur minnar, Emmu. Hún var afburðaskýr og vel gefin, hörkudugleg, eftirtektarsöm, glett- in, vinaleg, æðrulaus og mikil dama. Öll þessi einkenni fylgdu henni allt til síðustu stundar. Emma tengdist Evu dóttur minni ólýsanlegum vináttuböndum, þótt tæp tuttugu ár skilji að. Hún sóttist eftir nærveru hennar og að fá að gista hjá henni og Stefáni manni hennar. Þar fékk hún óskipta athygli fólks sem kann að hlusta og fræða. Eitt af því sem þær gerðu saman var að horfa á teiknimyndir. Þar voru vinsælir Pat og Mat (klaufabárðarn- ir). Dætur mínar færðu henni nokkra diska af þáttaröðinni á spít- alann en hún var ófáanleg til að horfa á einn diskinn, ætlaði að geyma hann og horfa á hann með Evu og Stefáni heima hjá þeim. Seinustu daga Emmu var Eva komin að barnsburði og fylgdist Emma spennt með. Hún bað Evu um að fá að sjá barnið fyrst allra og var það auðsótt. Óskir okkar fáum við ekki allar uppfylltar og svo fór að Emma kvaddi nokkrum dög- um fyrir fæðingu nýju prinsessunn- ar sem hún hlakkaði svo mikið til að sjá og að fá að passa. Ég er fullviss um að Emma mun passa hana og að nýja prinsessan eigi sér verndar- engil. Emma var meira að segja búin að gefa Evu hugmyndir að nafni fyr- ir hana en hún taldi víst að barnið yrði stúlka. Viljastyrkurinn og hug- urinn lýsir sér vel í því sem hún sagði við mig kvöldið áður en hún kvaddi. „Benni, áttu ekki eitthvert fallegt mjúkt efni?“ „Jú, það hlýtur að vera,“ sagði ég. „Ég ætla nefnilega að sauma buxur á Evu.“ Að því sögðu gerði hún ráðstafanir til að fá sauma- vél. Í brúðkaupi Evu og Stefáns var hún dolfallin. Stóð tímunum saman fyrir framan langborðið og starði á Evu. Eftir brúðkaupið hóf hún að skipuleggja brúðkaup foreldra sinna. Stjarnan vildi sitja í hásæti við langborðið. Emma kunni alla söngtexta. Sama hversu gamlir þeir voru og alltaf var hægt að hafa ofan af fyrir henni með því að fá hana til að syngja. Þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm hélt hún alla tíð reisn, glæsileika og var dama. Rakel, dóttir mín, lakkaði á henni neglurnar með bleiku lakki sem Emma valdi og var svo stolt af. Í hvert sinn sem hnökrar komu á lakk- ið bað hún um að það yrði lagað, því hún vildi líta vel út. Sjúkdómur Emmu hefur opnað augu mín fyrir hetjum. Foreldrar hennar hafa staðið sig með ólíkind- um og ekki síður Baldvin stóri bróðir sem gaf henni allt sem hægt er að gefa. Guð blessi Gísla, Grétu, Bald- vin og Greip, veri með þeim og styrki í sorginni. Allir sem kynntust Emmu eru ríkari eftir og geyma og varð- veita minningu hennar í hjarta sér. Benedikt frændi. Ástkær frænka okkar, Emma Katrín tæplega níu ára, var tekin burt úr þessu jarðlífi óskiljanlega snemma. Það er stutt síðan hún var eld- hress og í sínu eðlilega formi. Með leikrit, samið á staðnum, í holinu heima hjá sér að leikstýra fjögurra ára bróður og frænku, eða að finna upp á einhverju fyrir þau að gera. Emma Ká, eins og við kölluðum hana, var nefnilega þannig. Hún var aldrei á staðnum án þess að allir tækju eftir því og allir tækju þátt í því sem hún skipulagði. Hún var driffjöðrin þótt það væri ekki endi- lega alltaf friður um hennar vilja meðal yngri barnanna og fór ekki heldur alltaf hljótt um athafnirnar. Þannig er það meðal barna sem hafa sterkan vilja, fjörugt ímyndunarafl og skoðun á öllu. Allt þetta hafði Emma K. í ríkum mæli, en að auki var hún einkar bráðgert barn til orðs og æðis, og engum datt annað í hug en að hún myndi vaxa og dafna með þessum einkennum sínum. Það var leiðtoga- efni í fjölskyldunni sem við ætluðum að fylgjast vel og lengi með. Diplómatískir hæfileikar Emmu K. komu fljótlega í ljós. Hún var á öðru ári og undirrituð frænka hafði það fyrir sið að kúga hana til að segja alltaf „Lauga er best“ þegar við hitt- umst. Kúgunartækið var sleikipinni sem var haldið fyrir aftan bak, allt þar til hún sagði lykilorðið. En ein- hverju sinni sá Arna Sigrún sér leik á borði og ætlaði að skáka móður sinni í vinsældum. Tvær flírulegar frænkur stóðu nú fyrir framan Emmu K., hvor með sinn sleikjóinn fyrir aftan bak, og spurðu: „Hver er best?“ Nú hefði getað verið úr vöndu að ráða fyrir tveggja ára snót, en hún brosti sínu blíðasta, benti á hundinn og sagði: „Tinna.“ Hún fékk tvo sleikjóa í það skiptið. Í veikindum Emmu K. hefur okk- ur opnast ný sýn á það hvað það er að vera manneskja í þeirri erfiðustu raun sem hægt er að leggja á for- eldra og barn. Við höfum lært margt af Grétu og Gísla sem hafa vakað yfir barninu sínu vikum saman og reynt að gera hvern dag glaðlegan. Af Baldvini bróður hennar, sem sýndi systur sinni óendanlega mikinn kær- leik allt þar til hún dró síðasta and- ann, höfum við lært að ekki þarf há- an aldur til að geta verið þroskaður einstaklingur. Við höfum lært ósér- hlífni af hjúkrunarliði spítalans sem hefur farið út yfir allar starfsskyldur til að gera Emmu K. lífið bærilegra. Einnig höfum við notið kunnáttu sr. Vigfúsar Bjarna sjúkrahúsprests, sem með ljúfu fasi og hlýju virtist geta róað erfiðar stundir og linað óbærilega sorg. Vinir og ættingjar slógu skjaldborg utan um þau öll. En mest af öllu höfum við lært af Emmu K. sjálfri. Óbilandi trú hennar á hið jákvæða og framtíðina gleymist aldrei. Allt fram á síðasta dag var hún á leiðinni heim og reiðubúin að takast á við lífið á nýjum forsendum. En nú er búið að taka Emmu frá okkur og enginn skilur hvers vegna. Að einmitt þetta líf hafi verið tekið án skiljanlegrar ástæðu, vegna sjúk- dóms sem gerði ekki boð á undan sér og ekkert gagn gerir í okkar jarð- bundnu vitund. Kannski er einhver að kalla á hjálp á öðru tilvistarstigi og telur sig hafa valið vel. Það er örugglega rétt en við hefðum viljað að þessi einhver hjálpaði sér meira sjálfur. Allt þar til augun lokuðust í hinsta sinn hélt Emma K. hinum einstaka persónuleika sínum. En nú er hún farin yfir á annað tilverustig, litla stúlkan okkar með hlýja hjartað og litríka persónuleikann. Ástin hennar mömmu sinnar, undrabarnið og prinsessan hans pabba. Hún, sem var svo fylgin sér en samt svo blíð, svo ákveðin en einnig svo viðkvæm. „Svo geðrík,“ eins og Lísa sagði. Við sem eftir sitjum skiljum ekki þessa tilhögun. Silja litla skilur heldur ekki neitt. „Hvenær hættir Emma að vera dáin?“ spurði hún. Við reynum að útskýra að nú líði Emmu K. vel og að hún sé orðinn engill. Eitt kvöldið þegar við buðum góða nótt með orð- unum „Góða nótt og guð geymi þig og Emmu“ svaraði hún: „Nú passar Emma okkur.“ Haraldur og Guðlaug. Elsku Emma. Ég sakna þín svo mikið að mér er illt í hjartanu mínu. Það var nefni- lega svo margt sem við áttum eftir að gera saman. Manstu þegar við vor- um saman í söngskólanum og ætl- uðum að verða söngkonur og syngja saman tvær? Þú áttir líka að fá að koma með mér næst í helgarferð til Akureyrar en þá varst þú orðin svo veik að þú gast það ekki. En ég veit að þú verður með mér í hjartanu næst þegar ég fer þangað og þá ætla ég að hugsa fallega til þín. En við gerðum líka margt skemmtilegt saman og þeim minningum ætla ég að muna eftir, við lékum okkur oft saman bæði í skólanum og eftir skóla. Við vinkonurnar brölluðum margt skemmtilegt saman, fórum í heita pottinn og bökuðum piparkök- ur. Okkur stelpunum fannst líka ótrúlega gaman að vera hjá þér, sér- staklega þegar pabbi þinn var að leika við okkur og Greipur fékk að vera með. Manstu þegar mamma þín snyrti á okkur neglurnar? Þá vorum við ótrúlegar pæjur. Ég man eftir öllum leikritunum sem við bjuggum til, okkur fannst það báðum mjög skemmtilegt. Ég mun líka aldrei gleyma því þegar þú bauðst mér og Oddnýju með þér á X-factor, það var geðveikt og við skemmtum okkur all- ar alveg hrikalega vel. Eftir að þú varst orðin veik þá heimsótti ég þig oft á spítalann og þá horfðum við saman á vídeó eða fórum í tölvuna. En nú veit ég að þú ert engill á himn- um og veistu hvað Emma, ég held að þú sért fallegasti engillinn. Þessa bæn fer ég með fyrir þig á hverju kvöldi: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þú verður alltaf hjá mér í hjartanu mínu elsku besta Emma. Þín vinkona Katrín Hrund. Ó, mín kæra fallega frænka. Ég veit ekki hvar ég á að byrja. Það er ekki annað hægt en að elska þig og dýrka. Þú hefur alltaf verið svo mikill snillingur. Mér þótti alltaf æðislegt að passa þig, þú varst alveg svakalegur orkubolti en alltaf samt svo ljúf og góð. Þú vældir aldrei, bjargaðir þér bara sjálf. Það hefur alltaf setið svo fast í mér þegar þú varst þriggja ára og langaði alveg svakalega í nammi sem var í skáp í eldhúsinu, ofarlega. Ég sagði nei Emma það er ekki nammidagur í dag. En þig langaði svo svakalega og beiðst bara eftir færi þegar ég fór fram til að ná í eitthvað. Þegar ég kom til baka hafðir þú náð í stól og ætlaðir að príla til að ná þér í. Mér fannst þetta svo æðislegt, að þú hafir bara ætlað að fara sjálf og ná í nammið, í stað þess að orga og grenja. Þú varst svo fljót að læra að lesa og svo þegar þú kunnir að lesa á hvolfi, það þótti mér svo fyndið, þú varst alltaf að sýna mér að þú gætir lesið eitthvað á hvolfi – og ef það var ekki á hvolfi settir þú bara hausinn á hvolf. Ég var svo heppin að fá þig á leikjanámskeið til mín þar sem ég var að vinna. Þú keyrðir úr Grafar- voginum og niður í miðbæ til að koma. Það þótti mér mjög vænt um. Fyrst var ég smástressuð yfir því að þú héldir að þú myndir fá einhverja sérmeðferð þar sem þú værir frænka mín. Þú varst nú meiri engillinn allan tímann. Þú komst mér svo á óvart hvað þú varst hlýðin og góð, ég vissi það svo sem, en átti samt von á að þú yrðir einhvern tímann óþekk, en það varð held ég aldrei. Alltaf mætt í röð- ina strax og gerðir alltaf eins og þú áttir að gera. Eitt sinn þegar það átti að passa þig heima hjá mér þá komst þú fær- andi hendi til mín. Ég veit ekki af hverju en þú vildir gefa mér gjöf, þú gafst mér þrjár krónur sem þú hafð- ir sett borða um og krullað borðann. Ég á þær ennþá. Elsku Emma mín, vona innilega að þér líði betur núna. Thelma Hrund Benediktsdóttir. Hvernig skrifar maður minningar- grein um hana Emmu sem var ekki orðin níu ára og taldi dagana til níunda afmælisdagsins, sem var al- veg að koma. Maður trúir því ekki enn að hún sé farin og býst alltaf við því að hún komi inn úr næsta her- bergi og að mann hafi dreymt þetta allt saman. Emmu Katrínu hitti ég fyrst ný- fædda á fæðingardeildinni. Á þeim tíma var ekki öðrum hleypt inn í heimsóknir á deildina en nánum ætt- ingjum. Þegar ég stalst inn með Emma Katrín Gísladóttir Elsku Emma Katrín, takk fyrir að vera góð vinkona. Það var svo gaman þegar við lékum okkur saman, urðum samferða í skólann og þegar ég hjálpaði þér að læra að hjóla. Núna ertu fallegasti engillinn á himninum, ég á eftir að sakna þín mikið. Þín vinkona, Oddný Lind. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.