Morgunblaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Selfoss | Líknarsjóður hjónanna
Harðar Þorgeirssonar og Unnar
Guðmundsdóttur færði Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands 80 milljónir
króna að gjöf á fimmtudag til að efla
og styrkja sjúkrahúsið á Selfossi.
Líknarsjóðurinn var stofnaður árið
1996. Tilgangur hans er að styrkja
hvers konar líknarstarfsemi á Ís-
landi eftir nánari ákvörðun sjóðs-
stjórnar.
Stofnendur sjóðsins voru hjónin
Hörður Þorgeirsson húsasmíða-
meistari, fæddur 15. júlí 1917 á
Hlemmiskeiði í Skeiðahreppi, og
Unnur Guðmundsdóttir húsmóðir,
fædd 30. júlí 1921 í Túni í Hraun-
gerðishreppi. Hörður lést í Reykja-
vík 28. maí 2006. Stjórn Líknarsjóðs-
ins samþykkti að gefa sjúkrahúsi
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
gjöf til að efla starfsemi þess, bæta
þjónustu þess við íbúa Suðurlands
og til að styðja við framþróun í
sjúkrahúsþjónustu. Í því skyni verði
stofnaður sérstakur styrktarsjóður
við stofnunina í nafni þeirra hjóna.
Ráðstöfun úr þeim styrktarsjóði
getur verið í formi styrkja til að
styðja við tiltekin verkefni eða kaup
á búnaði, sem annars væri ólíklegt
að stofnunin fengi fjárveitingu fyrir
úr ríkissjóði. Um getur verið að
ræða minni eða stærri styrki eftir
því sem stjórnendur stofnunarinnar
telja að geti komið stofnuninni að
bestu gagni hverju sinni.
„Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þakkar af alhug þessa miklu gjöf og
þann góða hug til stofnunarinnar,
sem að baki býr. Það er stofnuninni
afar mikilvægt að eiga jafngóðan
stuðning og þessi gjöf sýnir, frá vel-
unnurum stofnunarinnar,“ segir í
fréttatilkynningu vegna afhending-
arinnar.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
færðar 80 milljónir að gjöf
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gjöf Stjórn Líknarsjóðs Unnar og Harðar ásamt framkvæmdastjórn HSu.
Selfoss | Mikið var um dýrðir í Ár-
borg þegar stór hópur hlaupara með
þroskahömlun frá nokkrum Evrópu-
löndum, ásamt fararstjórum kom í
heimsókn á leið sinni um landið. Um
var að ræða hóp sem tekur þátt í
verkefni á vegum samtakanna „In-
tegrative Meetings and Friends“, en
það eru sjálfboðaliðasamtök með
höfuðstöðvar í Vín í Austurríki.
Tekið var á móti hópnum, 77
manns, á brúarsporði Ölfusár en
þaðan lá leiðin í Félagsmiðstöðina
Zelsíuz. Félagar í Fræðslu- og tóm-
stundaklúbbnum Selnum tóku á
móti félögum sínum ásamt starfs-
mönnum félagsmiðstöðvarinnar.
Í upphafi voru flutt stutt ávörp þar
sem Gréta Sverrisdóttir, forstöðu-
maður félagsmiðstöðvarinnar, og
Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari og
staðgengill bæjarstjóra, buðu hina
erlendu gesti velkomna. Sighvatur
Blöndahl, forstöðumaður Selsins,
kynnti starfsemi klúbbsins og fé-
lagar tóku lagið fyrir gestina. Að því
loknu var gestum boðið upp á hress-
ingu.
Líkamsrækt Hópurinn hefur lagt að baki liðlega 8.000 km um Evrópu á
liðnum átta árum. Hér er hann á hlaupum á Selfossi.
Mikið um dýrðir í Árborg
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
BIFHJÓLASAFN er væntanlegt í
flóru safnanna á Eyjafjarðarsvæðinu
og í dag fer fram sérstök fjáröflun til
styrktar því. Hún fer þannig fram að
haldin er sérstök bifhjólasýning í
Toyota-húsinu á Akureyri á Baldurs-
nesi frá 10-19. Á annað hundrað mót-
orhjóla frá öllu landinu verða til sýn-
is. Að auki verður tekið við frjálsum
framlögum til að setja safnið á fót.
Safnið er stofnað í minningu Heið-
ars Þ. Jóhannssonar sem lést í bif-
hjólaslysi 2. júlí á síðasta ári. „Bif-
hjólasafnið mun spanna hundrað ára
sögu bifhjólsins,“ segir Jóhann Freyr
Jónsson sem unnið hefur að því að
stofna safnið. „Við höfum yfir 50 hjól í
langtímageymslu sem eiga eftir að
fara í safnið, þannig að nú vantar
bara húsnæði undir það. Af þessum
hjólum skildi Heiddi sjálfur eftir sig
ein 22.“
Fannst í Grímsárvirkjun
Á meðal hjóla safnsins er eitt af
gerðinni BSA Lightning 650cc ’71-ár-
gerð, sem áður var í eigu Heiðars Þ.
Jóhannssonar. „Þetta er fyrsta stóra
hjólið sem hann eignaðist og hann
varð frægur fyrir alls konar kúnstir á
því. Hjólið komst bara nýlega í okkar
hendur. Stuttu eftir andlát hans
gerðist nefnilega sú ótrúlega tilviljun
að hjólið fannst í góðu standi í Gríms-
árvirkjun. Þannig að við fengum það
að sjálfsögðu í safnið.“ Hjólið er vel
ökufært og var í gær ekið til Akur-
eyrar fyrir sýninguna.
Meira en hundrað bifhjól
á sérstakri sýningu í dag
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Forngripur Hjólinu var stillt upp á torginu í sólinni í gær. Lengst til hægri
er Jón Dan Jóhannsson, bróðir Heiðars, en Jón ók hjólinu til Akureyrar.
Farið verður í gönguferðir undir
leiðsögn, m.a. upp að Hraunsvatni,
suður í Hraunin og með Öxnadalsá,
og gerð grein fyrir gróðurfari,
sögu og sögnum, örnefnum og
menningarminjum svæðisins. Að
hátíðinni standa Menningarfélagið
Hraun í Öxnadal, Ferðafélag Ak-
ureyrar og Ferðafélagið Hörgur.
FÍFILBREKKUHÁTÍÐ 2007 verð-
ur haldin í dag. Hátíðin hefst kl. 14
með ávörpum og söng. Í kjölfarið
verður hinn nýi fólkvangur: Jón-
asarvangur vígður og fræðimanns-
íbúð opnuð. Jónasarvangur verður
útivistarsvæði fyrir almenning, en
nýverið var hluti jarðarinnar
Hrauns í Öxnadal friðlýstur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Jónasarvangur Boðið verður upp á gönguferðir undir leiðsögn upp að
Hraunsvatni, suður í Hraunin og með Öxnadalsá á Fífilbrekkuhátíð í dag.
Nýr fólkvangur vígður
Ljósmyndasamkeppni
Á ferdalag.is finnurðu ýmiss konar upplýsingar sem tengjast
ferðalögum um Ísland. Kynntu þér fáséðar perlur utan alfaraleiðar
og sjáðu með eigin augum. Safnaðu ljósmyndum og sendu inn í
ljósmyndasamkeppnina okkar. Sú stendur í allt sumar og vegleg
verðlaun eru í boði.
www.ferdalag.is
Förum varlega í akstri um Ísland og höfum hugfast að ferðalagið
er jafnmikil upplifun og áfangastaðurinn. Landið hefur upp á
ótalmargt að bjóða og aldrei að vita hverju þú missir af þegar
farið er um í óðagoti. Stillum hraðanum í hóf, göngum vel um
landið okkar og komum heil heim.
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA