Morgunblaðið - 13.07.2007, Qupperneq 6
FLUGMÁLAFÉLAG Íslands heldur
sitt árlega flugmót, Allt sem getur
flogið, á Helluflugvelli á morgun,
laugardag. Fisvélar, vélflugvélar,
svifflugur, þyrlur, módelflug og
fallhlífastökk eða allt sem helst í
loftinu með einhverjum hætti verð-
ur kynnt á laugardeginum milli kl.
14 og 16 og er almenningi þá vel-
komið að fylgjast með. Lendingar-
keppni verður haldin milli kl. 16 og
17. Boðið verður upp á útsýnisflug
og kynnisflug fyrir gesti.
Fjölbreytt flug-
mót á Hellu
6 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
M. KRISTINSSON Danmark A/S,
sem er í eigu Magnúsar Krist-
inssonar eiganda Toyota á Íslandi,
hefur fest kaup á danska fyrirtæk-
inu Krogsgaard-Jensen, stærsta
söluaðila Toyota í Danmörku.
Krogsgaard-Jensen er rótgróið
fjölskyldufyrirtæki og er stærst og
umsvifamest af þeim 30 fyrirtækjum
sem selja Toyota-bifreiðar í Dan-
mörku og rekur fimm útsölu- og
þjónustustöðvar á Kaupmannahafn-
arsvæðinu. Þá mun fyrirtæki Magn-
úsar eignast 100% í fasteignafélagi
KKJ Ejendommen, og fasteignum
sem eru í eigu Krogsgaard Holding.
Kaupverð er trúnaðarmál en velta
Krogsgaard nam um fimm millj-
örðum íslenskra króna í fyrra og eru
starfsmenn um 130 talsins.
Krogsgaard-Jensen seldi um
1.560 nýja bíla í fyrra sem er um 8%
af nýskráðum Toyota-bifreiðum í
Danmörku en til samanburðar má
geta þess að Toyota á Íslandi seldi
5.285 nýja bíla á síðasta ári.
Spurður um ástæðu útrásar til
Danmerkur svarar Magnús Krist-
insson því til að sér hefði verið ljóst
að mjög erfitt yrði að auka markaðs-
hlutdeild Toyota á Íslandi enda fyr-
irtækið með 25% markaðshlutdeild.
„Ég fór því að líta í kringum mig í
Evrópu og Skandinavíu. Fyrir
nokkrum mánuðum kom það upp að
það væri mögulegt að kaupa þetta
fyrirtæki í Danmörku og þá lagði ég
mikla áherslu á að komast yfir fyrir-
tæki í Kaupmannahöfn.“
Magnús segir að stefnan sé að efla
Krogsgaard-Jensen á allan mögu-
legan máta og gera það í Danmörku
sem hafi gengið vel á Íslandi. „Hér
hljóta að vera nokkur tækifæri þar
sem Toyota er ekki með nema 8-9%
markaðshlutdeild þannig að við ætl-
um að reyna að gera betur.“
Spurður um hugsanleg frekari
kaup erlendis svarar Magnús því til
að hann geti trauðla fullyrt að hann
sé hættur og viðurkennir að auðvit-
að væri skemmtilegt að komast yfir
Toyota í einhverju öðru landi og þá
kannski helst í Skandinavíu.
Magnús kaupir stærsta
söluaðila Toyota í Danmörku
Samningur í höfn Magnús Kristinsson og Kresten Krogaard-Jensen
brostu breitt í gær þegar þeir höfðu skrifað undir samninginn.
EKKI þurfa þessi ungmenni að kvarta undan vatns-
skorti þrátt fyrir mikla þurrka undanfarið en þau virð-
ast skemmta sér konunglega í Þjórsá á meðan hund-
urinn horfir forvitnislega á.
Veðrið hefur leikið við landann í sumar en þessir
krakkar hættu sér þó ekki í jökulána í sundfötunum
einum fata. Í baksýn með hvítan koll stendur Hekla
vörð um komandi kynslóðir.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Buslað í Þjórsá í veðurblíðunni
BÍLAUMBOÐIÐ Brimborg hefur
náð samningum við olíufélagið Olís
um innflutning á etanólblöndunni
E85 í tilraunaskyni. Blandan er 85
prósent etanól og 15 prósent bensín
og hyggst Egill Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Brimborgar, bíða við-
bragða stjórnvalda sem eigi eftir að
ákveða hvaða gjöld þau hyggist
leggja á hið nýja eldsneyti.
Að sögn Egils hefur metangasið
verið án gjalda og telur hann það
sama eigi að gilda um etanólbíla, sem
losi allt að 75 prósent minna koldíox-
íð í andrúmsloftið en sambærilegir
bensínbílar. Hefur umboðið þegar
pantað eitt eintak af Volvo C30 og
Ford C-Max bifreiðum. Brimborg
hefur áhuga á að flytja inn etanólbíla
í miklu magni en til að svo megi
verða þarf að byggja upp dreifikerfi
fyrir etanólið. Nýja eldsneytið þarf
líka að vera samkeppnishæft í verði.
Samið um
innflutn-
ing etanóls
Brimborg vill flytja
inn etanólbíla
BORGARRÁÐ
Reykjavíkur
samþykkti í gær
tillögu borg-
arstjóra um
ráðningu Magn-
úsar Þórs Gylfa-
sonar viðskipta-
fræðings í stöðu
skrifstofustjóra
borgarstjóra til
eins árs. Magnús
Þór gegnir starfinu í leyfi Kristínar
A. Árnadóttur sem utanríkisráðu-
neytið hefur ráðið til að leiða fram-
boð Íslands til öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna.
Borgarráð samþykkti einnig að
Magnús Þór gegndi starfi borg-
arritara þar til ráðið hefur verið í
stöðuna. Umsóknarfrestur um hana
hefur verið auglýstur til 28. ágúst
nk.
Magnús Þór Gylfason er 33 ára
viðskiptafræðingur frá Háskól-
anum í Reykjavík. Hann gegndi
starfi skrifstofustjóra og verkefn-
isstjóra á skrifstofu borgarstjóra
síðasta vetur og situr í starfshópi
borgarstjóra um bættan rekstur
Reykjavíkurborgar. Hann var
framkvæmdastjóri borgarstjórn-
arflokks Sjálfstæðisflokksins á ár-
unum 2002 til 2006 og fram-
kvæmdastjóri Sambands ungra
sjálfstæðismanna á árunum 2000 til
2002. Magnús Þór er kvæntur Elvu
Dögg Melsteð, framkvæmdastjóra
Magg ehf., og eiga þau tvö börn.
Nýr skrifstofu-
stjóri og borg-
arritari ráðinn
Magnús Þór
Gylfason
ALGER spreng-
ing hefur orðið í
svokölluðum
götumálum á
þessu ári hjá
fíkniefnadeild
lögreglunnar og
eru nú ákveðnir
menn undir eftir-
liti vegna gruns
um að dreifa
fíkniefnum til
ungra neytenda. Nýlega barst
Morgunblaðinu ábending um tiltek-
inn aðila í einu hverfi í austurborg-
inni sem hefur komið sér upp
tengslaneti ungs fólks á aldrinum
15 til 17 ára og hefur lögregla stað-
fest að viðkomandi sé með undir
eftirliti eins og ýmsir aðrir vegna
götudreifingar á fíkniefnum til ung-
linga.
Til að uppræta götudreifingu hef-
ur lögreglan haft menn í að fylgjast
með tónleikum, partíum og öðrum
áþekkum samkomum ungs fólks
þar sem grunur er um fíkniefna-
dreifingu og á þessu ári hafa lög-
reglumenn tekið nærri tvö kíló af
hassi, hálft kíló af amfetamíni, 100
skammta af LSD auk fleiri efna.
Lögreglan er á varðbergi gagn-
vart sumartímanum vegna þess að
sölumenn fíkniefna beina sjónum
sínum að ungu fólki sem er að ljúka
grunnskóla eða í upphafi mennta-
skólanáms.
„Við vitum að það er verið að
nálgast krakka á aldrinum 15-17
ára og bjóða þeim fíkniefni,“ segir
Karl Steinar Valsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn. „Og við þessu erum
við að reyna að bregðast.“
Salan fer þannig fram að fólk ek-
ur um á bílum og hittist á
ákveðnum stöðum fyrir viðskiptin.
Karl Steinar segir að þessir sölu-
menn velji staði með það í huga að
hafa víðsýnt til allra átta til að geta
fleygt efnum frá sér ef þeir sjá ein-
hvern nálgast, einkum lögreglu.
Stór bílastæði eru notuð í þessum
tilgangi eða önnur bersvæði, rétt í
útjaðri borgarinnar.
Fjölmargir hafa verið handteknir
á þessu ári fyrir að selja unglingum
fíkniefni á götunni.
„Markmiðið er að gera fíkniefna-
sölu á götunni eins erfiða og mögu-
legt er,“ bendir Karl Steinar á.
Fíkniefnasölu-
menn vaktaðir
Karl Steinar
Valsson
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær tvo menn af ákæru
fyrir tilraun til að smygla tæpum 4
kg af kókaíni til landsins seint á síð-
asta ári. Dómurinn viðurkennir að
við fyrstu sýn kunni framburður
mannanna að virðast ótrúverðugur
og jafnvel reyfarakenndur á köflum,
en það var hins vegar mat dómsins
að svo væri ekki. Mennirnir voru
sýknaðir þar sem ekki voru nein
gögn sem ættu að leiða til þess að
við sönnunarmat ætti að hafna
framburði mannanna.
Málið hófst þegar tollverðir fundu
kókaínið falið í Benz-bíl sem hafði
verið fluttur til landsins með Helga-
felli frá Cuxhaven í Þýskalandi.
Sími annars mannanna var hleraður
og gerviefni sett í stað fíkniefnanna.
Hinn 7. febrúar 2007 annaðist annar
ákærði tollafgreiðslu bílsins sem
fluttur var á tiltekinn stað og tveim
dögum síðar nálguðust báðir
ákærðu bílinn og þá var gerviefnið
fjarlægt úr bílnum en mennirnir
báru hvor á sinn hátt um þann þátt
málsins. Báðir hafa mennirnir sætt
gæsluvarðhaldi vegna málsins, ann-
ar frá 9. febrúar og hinn frá 1. mars.
Báðir neituðu sök og sagðist annar
þeirra ekki hafa haft hugmynd um
að fíkniefni væru í bílnum. Við
handtöku hefði hann áttað sig á að
hann hefði verið svikinn í viðskipt-
um vegna bílsins sem ónafngreind-
ur maður bauð honum sumarið
2006. Ákærði þorði ekki að taka
áhættu sem því fylgdi að nafngreina
manninn er stæði að baki smyglinu.
Áfrýjun til athugunar
Meðákærði sagðist hafa fjarlægt
gerviefnin úr bílnum en ónafn-
greindur maður hefði beðið hann
um það þar sem ekki væri hægt að
afhenda eiganda bílinn með gervi-
pakkningum í. Maðurinn hefði sagt
að fíkniefni hefðu verið flutt inn
með bílnum en lögreglan þá búin að
skipta á þeim og gerviefnum. Auk
þess sagðist ákærði hafa lesið í DV
að búið væri að taka fíkniefnin og
sagðist viss um að hann væri að
fjarlægja gerviefni og vitað að það
væri ekki saknæmt. Ríkissaksókn-
ari skoðar hvort málinu verður
áfrýjað.
Guðjón St. Marteinsson héraðs-
dómari dæmdi málið.
Sýknaðir í stóru
kókaínmáli SVEINN Andri
Sveinsson, verj-
andi annars sak-
borninganna í
kókaínmálinu,
átelur réttar-
kerfið fyrir að
láta umbjóðanda
sinn sæta gæslu
mánuðum sam-
an í ljósi þess að
dómurinn
dæmdi loks sýknudóm.
„Það hefur verið vikið fulllangt
frá þeirri meginreglu að enginn
skuli fara í fangelsi nema hafa
fengið refsidóm,“ segir hann.
„Ríkissaksóknari hefur mótað
einhverja stefnu í þessum málum
um að það varði almannahags-
muni að menn sem tengjast
stórum fíkniefnamálum sæti
gæsluvarðhaldi uns dómur geng-
ur. Og undir þetta hafa dóm-
stólar tekið. Þarna var allt of
langt gengið og það þarf að
hugsa þetta upp frá grunni. Lög
gera ráð fyrir að menn geti sótt
bætur í ríkissjóð en peningar
bæta ekki allt þegar venjulegir
menn hafa verið sviptir frelsi
sínu mánuðum saman,“ segir
Sveinn Andri.
„Allt of langt
gengið“
Sveinn Andri
Sveinsson