Morgunblaðið - 13.07.2007, Side 12

Morgunblaðið - 13.07.2007, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi hækkaði um 0,4% í gær í 8.759 stig og hefur aldrei áður verið hærri. Gengi bréfa Century Aluminium, sem skráð er á First North- markaðinn, snarhækkaði eða um 9,8% í kjölfar þess að Morgan Stanl- ey breytti vogun sinni á félaginu úr markaðs- í yfirvogun vegna breyttrar langtímaspár um álverð að því er fram kom í Vegvísi Landsbanka. Af úrvalsvísitölufyrirtækjunum hækkaði gengi bréfa Actavis mest eða um 1,16% og bréf Teymis hækk- uðu um 1,1%. Gengi bréfa Føroya Banka lækkaði mest eða um 2,1%. Krónan styrktist um tæp 0,4% í gær og kostar evran nú 82,85 krón- ur, dalurinn 60,12 og sterlings- pundið 122 krónur. Aldrei hærri ● VELTA í dag- vöruverslun jókst um 10,9% í júní miðað við sama tíma í fyrra, á breytilegu verð- lagi. Hækkunin nam 16,6% á föstu verðlagi og að teknu tilliti til árstíðaleiðréttinga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknar- setri verslunarinnar. Veltuaukningin er ekki rakin til hærra verðlags þar sem verðlag mat- vöru er sagt hafa lækkað á sama tíma um 2%, samkvæmt dagvöru- hluta neysluverðsvísitölu Hagstofu Íslands. Velta dagvöruverslunar jókst um 0,8% á milli maí og júní en verð dagvöru lækkaði um 0,3% á sama tímabili, samkvæmt tilkynning- unni. Aukin velta í dag- vöruverslunum ● FRAMBOÐ á olíu á heimsmarkaði er meira en nóg og það eru því ekki grundvallarþættir markaðarins sem valda hinu háa verði á gullinu svarta. Þetta segir Ali Naimi, olíu- málaráðherra Sádi-Arabíu, en að hans sögn eru það heimspólitískur órói og skortur á olíuhreins- unarstöðvum sem valda háu verði. Frá þessu er greint í Financial Tim- es. Ummæli Naimi, sem eru þau fyrstu um olíumarkaðinn sem borist hafa frá Sádi-Arabíu um nokkurra mánaða skeið, eru talin til marks um að landið muni ekki auka fram- leiðslu sína á olíu til þess að slá á verðhækkun síðustu vikna. Svip- aðar vísbendingar hafa einnig bor- ist frá Samtökum olíufram- leiðsluríkja, OPEC, en aðalritari þeirra hefur þó gefið í skyn að auk- ist eftirspurn á markaði muni sam- tökin íhuga framleiðsluaukningu. Nægt framboð af olíu RÚSSNESKA orkufyrirtækið Gazprom hefur valið franska fyrir- tækið Total of France til samstarfs um gasvinnslu á Shtokman-svæðinu svokallaða í Barentshafi norðan við Kola-skaga. Þar er að finna einhverj- ar mestu gaslindir á jörðinni. Gazprom hafði verið í viðræðum við norsku fyrirtækin Statoil og Norsk Hydro og bandarísku fyrir- tækin Chevron og ConocoPhillips auk hins franska Total. Fram kemur í tilkynningu frá Gazprom að Total muni ráða yfir 25% í fyrirtæki sem stofnað verður um gasvinnsluna á Shtokman-svæð- inu. Gazprom muni fara með 51% hlut en öðrum aðilum muni standa til boða 24% hlutur. Aðkoma kannski síðar Í frétt á fréttavef norska blaðsins Aftenposten segir að Gazprom hefði áður gefið til kynna að fyrirtækið hefði áhuga á samstarfi við norsku fyrirtækin, Statoil og Norsk Hydro, sem ákveðið hefur verið að sameina. Norsku fyrirtækin hafi þótt álitlegir kostir vegna reynslu þeirra á norð- lægum slóðum. Talsmenn Gazprom segi hins vegar að ekki sé útilokað að norsku fyrirtækjunum muni standa til boða aðkoma að verkefninu síðar. Gasvinnsla Gazprom á Shtokman svæðinu verður umsvifamesta orku- vinnsla sem rússneskt fyrirtæki hef- ur ráðist í til þessa. Frá því hefur verið greint áður að Rússar stefni að því að flytja gasið frá Shtokman- svæðinu í leiðslum til viðskiptavina í Evrópu en ekki í fljótandi formi með skipum til Ameríku. Gazprom ákveður að velja franskan samstarfsaðila Margir vildu samstarf við Rússa um vinnslu í Barentshafi þar sem Alusuisse hafði þá ekki tök á að stækka álverið þar. Þá áttu fulltrúar iðnaðarráðuneytisins á svipuðum tíma einnig viðræður við Rio Tonto möguleikann á því að reisa hér kísilmálmverksmiðju. Rio Tinto er með námavinnslu í sex heimsálfum en það varð til við samruna enska fyrirtækisins Rio Tinto plc. og ástralska fyrirtækisins Rio Tinto Limited. Breski hlutinn var stofnaður 873 til að vinna kopar á suðurhluta Spánar en sá ástralski árið 1905, og hét þá The Consolidat- ed Zinc Corporation og vann sink í Nýja Suður-Wales í Ástralíu. Rio Tinto með mun hærra tilboð en Alcoa Stjórn Alcan hefur mælt með að tilboði Rio Tinto verði tekið Morgunblaðið/Ómar Ísland Alcan í Straumsvík verður hugsanlega hluti af Rio Tinto. ENSK-ÁSTRALSKA námafélagið Rio Tinto hefur lagt fram yfirtöku- tilboð í kanadíska álfyrirtækið Al- can, móðurfélag Alcan á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík. Hljóðar tilboðið upp á 38,1 milljarð Banda- ríkjadala, eða liðlega 2.300 milljarða íslenskra króna. Í yfirlýsingu frá Rio Tinto kemur fram að stjórn Alcan hafi samþykkt tilboðið. Talsmenn Alcan á Íslandi vilja að svo stöddu ekki tjá sig um þann möguleika að verða hluti af Rio Tinto. Alcoa dregur tilboð sitt til baka Tilboð Rio Tinto er um 33% hærra en fjandsamlegt yfirtökutilboð bandaríska álfyrirtækisins Alcoa, móðurfélags Fjarðaáls á Reyðar- firði. Alcoa lagði upphaflega fram til- boð í allt hlutafé Alcan í maímánuði síðastliðnum. Það átti að renna út í þessari viku en var framlengt til 10. ágúst næstkomandi. Stjórn Alcan hafnaði tilboði Alcoa á sínum tíma. Sérfræðingar á fjármálamarkaði voru á því að það myndi reynast erf- itt fyrir Alcoa að bjóða betur og þeir höfðu rétt fyrir sér því seint í gær- kvöldi tilkynnti Alcoa að það hefði dregið tilboð sitt til bak. Fram kemur í frétt á fréttavef breska blaðsins Daily Telegraph að verði af samruna Rio Tinto og Alcan verði það stærsti samruni náma- félaga í heiminum til þessa. Samein- að fyrirtæki, sem muni væntanlega heita Rio Tinto Alcan, verði stærsta álfyrirtæki í heimi, stærra en United Company RusAl, sem varð til í mars síðastliðnum við samruna rússnesku álfyrirtækjanna RusAl og Sual og svissneska hráefnisfyrirtækisins Glencore International. Alcoa verði því þriðja stærsta álfyrirtækið. Viðræður við Rio Tinto Rio Tinto hefur raunar komið við sögu hér á Íslandi en seint á níunda áratugnum áttu íslensk stjórnvöld viðræður við erlend fyrirtæki um stóriðju á Íslandi og var Rio Tinto eitt þeirra og var þá einkum horft til þess að reisa nýtt álver í Straumsvík KAUPÞING banki hefur verið valinn besti bankinn á Norðurlöndum og einnig besti bankinn á Íslandi af al- þjóðlega viðskiptatímaritinu Euro- money. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupþings Singer & Friedlander, tók við verðlaununum, fyrir hönd bank- ans, við hátíðlega athöfn í Lundúnum í gærkvöldi. Fram kemur í tilkynningu frá Euromoney að verðlaunin séu þau virtustu í hinum alþjóðlega banka- heimi. Í rökstuðningi fyrir útnefning- unni er vísað til mikils vaxtar Kaup- þings banka í fyrra og glæsilegrar arðsemi eiginfjár. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings banka, segir í tilkynningu bankans að það sé sérlega ánægjulegt að hljóta þessi verðlaun á alþjóðleg- um vettvangi. „Þau eru viðurkenning á því sem við erum að gera. Staða okkar í Norð- ur-Evrópu hefur verið að styrkjast og verðlaunin efla okkur til frekari sókn- ar á þessum markaði. Þetta eru verð- laun sem allir starfsmenn bankans hafa unnið fyrir; sem liðsheild náum við árangri,“ segir Hreiðar Már. Kaupþing banki valinn besti bankinn á Norðurlöndunum VIÐSKIPTI með hlutabréf Teymis hf. voru felld nið- ur í Kauphöll OMX á Íslandi í fyrradag. Um- rædd viðskipti voru á verðinu 6,10 kr. en verð á bréfum Teymis var rúmar 5,40 kr. á svipuðum tíma, bæði fyrir og eftir, í gær. Í tilkynningu kauphallarinnar segir að niðurfellingin hafi verið gerð á grundvelli aðildarreglna NOREX. Regla 5.7.3 sem vísað er í fjallar um heilindi markaðarins við óvenjulegar aðstæður. Úr samhengi Páll Harðarson, aðstoðarforstjóri Kauphallarinnar, segir verðið hafa rokið upp úr samhengi á skömmum tíma í gær og því hafi markaðs- eftirlit þeirra ákveðið að grípa til aðgerða. „Með heilindum er átt við að verðið endurspegli mat markaðar- ins,“ segir Páll. „Niðurfelling við- skipta er auðvitað alltaf matsatriði en við töldum verð þessara við- skipta ekki endurspegla markaðs- verð og töldum því rétta að fella þau niður.“ Tilvik af þessu tagi koma að sögn Páls fyrir öðru hvoru. Oft er um að ræða mannleg og jafnvel augljós mistök, t.d. vegna innsláttarvillu. Slík mál fara í gegnum ákveðið greiningarferli og eru þá leiðrétt í samráði við viðkomandi aðila. Viðskipti með Teymi felld niður Páll Harðarson      !"#$% &' (!)*     )*  &+" )   &+" , - &+" . +" /0 &+" (   +" " ! &1( '(  2* (   &+" $&3  +" 0  '( +" 4  */+ +" ! ,5/5""+" 6 ! +" 7+"     89:+" )( *+" )(  *;  ( !;</  , /(  &+" /= , 2* (  * &+" 4 (+" >?+  +" 6 ! - +" (- +"      @ )(! !@ " ,  +" !&  +" ! "#   !"" #"" !"" #" #" # " #" "#" "" #" !"" ! # "!""  "  "!"" !#"" ! ""  #" #" # " # """ "" #"                                                          &    6 ( (  A $& ( B9C"9D8 B"CE:"EDF D9"88E"GCG CH9"HBE"B8H H9E"GBF"FFB B"9GE"FDF"C99 B"BGG":E: HC"EH9"9BG C"89B"CD9"CHC C"FHD"FCC":CG C"F8F"FFF C"9:F"D:B"89F HGB"9G8"F9B 9"D8C"CG8 C"88C":BG B"8BG":CC ECH9GHHED: H8"H:F"BC9 8G":FG"DG8 B"CEE":EB C"CBC"GHG"CFF D9GF DGH EF9F 8G8: HG9F HGBF 8G8F 8FD: CH88FF 8GEF CEFF HHE: ::B CF9:F 88D :DC CFEFFF EHGFF CD9 H8:FF 98: G8FF 8GH: 8GBFFF DD9F DG8 ECFF 8G:F HGDF HGB: 8G9F 8CFF CH89FF 8GDF CEHF HHDF :9C CFEFF 8BH :DD CFE:FF E8:FF CDD H8DFF 9BB G8HF H8FF 8G9F 8GBBFF CHFF 9GF /-(   & B : H8 BD 8C CF8 D G GH BG H CCB CC G 8 C8 C9 H: C8 B GC I     "  CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CC"E"HFFE CH"E"HFFE CH"E"HFFE CC"E"HFFE CH"E"HFFE CF"E"HFFE CH"E"HFFE CC"E"HFFE CH"E"HFFE H:"9"HFFE CH"E"HFFE H"E"HFFE HF"9"HFFE 4J 4J " "! $" $    4J &,J  # # $  $    I KL  >  !" $ $ #   /6  I)J # " $  $"   4J'C: 4JBF !#  " $" $ !  

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.