Morgunblaðið - 13.07.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 13
ERLENT
PAKISTANSKI
herinn segir að
konur og börn
hafi ef til vill ver-
ið meðal þeirra
sem féllu í um-
sátrinu um
Rauðu moskuna í
höfuðborginni
Islamabad. Vitað
sé með vissu að
86 manns hafi
fallið í átökunum, þar af 11 her-
menn. Sjónvarpsstöðvar hafa sýnt
myndir af geysilegu magni vopna
og alls kyns búnaðar sem uppreisn-
armenn höfðu í fórum sínum. Einn-
ig voru þar sprengjubelti sem
sjálfsvígsmenn íslamista nota.
Útför nokkurra uppreisnar-
manna fór fram í gær, þ.á m. næst-
æðsta klerksins, Abdul Rashid
Ghazi. Átta manns féllu í tilræðum í
landinu í gær, talið er að þau hafi
verið hefnd vegna töku moskunnar.
Börn sögð
hafa fallið
Harmur Frá einni
útförinni í gær.
ÓÞEKKTUR maður hefur á síðustu
15 dögum komið fyrir pökkum á
salernum karla víðsvegar í Japan
þar sem finnanda er óskað lukku og
innihalda þeir 10.000 jen hver.
Gjafirnar hafa fundist í 18 héruðum
af 48, alls rúmlega 2 milljónir kr.
Gjafmildur Japani
FJÓRIR líbanskir hermenn féllu í
gær í hörðum árásum hersins á
vopnaða íslamista sem hafast enn
við í flóttamannabúðum Palestínu-
manna, Nahr al-Bared. Talið var að
herinn myndi freista þess að taka
stöðvar mannanna sem eru í sam-
tökunum Fatah al-Islam.
Ráðist á íslamista
SPÆNSKA lögreglan tók í gær
skip á vegum bandaríska fyrirtæk-
isins Odyssey en það var á leið frá
Gíbraltar. Leitað verður í því á
Spáni. Spánverjar telja að mikill
fjársjóður sem Odyssey-menn
fundu hafi ekki verið á alþjóðlegu
hafsbotnssvæði heldur spænsku.
Tóku skip
SKIP með rúmlega 6.000 tonn af olíu lagði í gær af
stað frá Suður-Kóreu til Norður-Kóreu en eitt af
því sem norðanmenn fá í staðinn fyrir að loka
kjarnorkuveri sínu í Yongbyon er milljón tonn af
olíu. Fulltrúar Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar, IAEA, munu á laugardag koma til
N-Kóreu og byrja eftirlit sitt með lokuninni. Yfir-
maður IAEA, Mohammed ElBaradei, varaði menn
hins vegar við bjartsýni og sagði að framkvæmdin
tæki langan tíma. N-Kórea rak fulltrúa IAEA frá
landinu 2002 og ræsti þá á ný tilraunaverið. Plúton
úr því er talið hafa verið notað til að smíða kjarn-
orkusprengjur.
Hefja á ný eftirlit með
kjarnorkuveri N-Kóreumanna
Olíuskip Landfestar
leystar í S-Kóreu.
London. AFP. | Tvær sextán ára
stúlkur frá Bretlandi voru nýlega
handteknar á alþjóðaflugvellinum í
Afríkuríkinu Gana með mikið af
kókaíni, að sögn breskra embættis-
manna í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum breskra tollvarða er sölu-
andvirði efnisins metið á 610.000
Bandaríkjadollara, nær 37 milljónir
króna.
Stúlkurnar, sem báðar eru í
framhaldsskóla, munu hafa verið á
leið til London með vél British Air-
ways. Þær eru taldar hafa verið
„burðardýr“ en ekki er álitið að
þær hafi komið að skipulagningu
glæpsins.
„Það sýnir ákaflega vel ófyrir-
leitnina hjá glæpagengjunum sem
stunda eiturlyfjasmygl að þau skuli
nota svo ungar stúlkur sem burðar-
dýr,“ sagði Tony Walker, yfirmað-
ur í bresku tollgæslunni. Walker
stýrir sameiginlegri áætlun Breta
og Ganverja um að berjast gegn
eiturlyfjasmygli.
Unglingar smygluðu kókaíni
FÉLAGAR í kvennasveit Tamíla-Tígranna á Srí Lanka
á leið til bækistöðva sinna í Kilinochchi í gær. Tals-
menn Tígranna viðurkenndu að stjórnarherinn hefði
tekið stöðvar uppreisnarliðsins á austurhluta eyjar-
innar á miðvikudag en sögðu að því yrði svarað með
skæruliðabaráttu.
Reuters
Herskáar konur á Srí Lanka
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@mbl.is
„ÞEGAR við byrjum að draga okkur
út úr Írak verður það vegna þess að
hernaðarsérfræðingar okkar segja
okkur að gera það, ekki vegna þess að
skoðanakannanir segi okkur að það
væri skynsamleg pólitísk ákvörðun,“
sagði George W. Bush Bandaríkja-
forseti á blaðamannafundi í gær, þar
sem á honum dundi spurningaflóð
vegna Íraksstríðsins.
Bush sagði að það að kalla herliðið
heim of snemma jafngilti því að láta
Írak í hendur al-Qaeda samtakanna.
Þá myndi þurfa að senda bandaríska
hermenn aftur á sama vettvang síðar,
til þess að mæta enn hættulegri óvini.
Þrátt fyrir þetta samþykkti fulltrúa-
deild bandaríska þingsins seint í gær-
kvöld að kalla herinn heim fyrir
næsta vor. Bush hefur sagst ætla að
beita neitunarvaldi á niðurstöðuna.
Vill efla stríðsreksturinn
Bush sagði að hann vissi að banda-
ríska þjóðin væri orðin langþreytt á
stríðsrekstrinum, enda væri þetta
ljótt og langvinnt stríð. Hann sagði
þó að hann tryði því að stríðið gæti
unnist, og yrði að vinnast. „Ef við
aukum stuðning okkar við herliðið
núna, þá flýtum við fyrir því að það
komi heim,“ sagði forsetinn, en í
næstu viku er gert ráð fyrir því að
öldungadeild þingsins kjósi um
breytingar á hermálafjárlögum.
Blaðamannafundurinn í gær var
haldinn í kjölfar þess að skýrsla
Bandarísku leyniþjónustunnar, CIA,
um al-Qaeda var birt. Í henni var því
haldið fram að hryðjuverkasamtökin
hefðu nú náð sama styrk og þau
höfðu yfir að ráða í september árið
2001, árið sem árásirnar voru gerðar
á Tvíburaturnana í New York. Í
skýrslunni var sagt að höfuðpaurar
samtakanna væru búnir að koma sér
notalega fyrir í fjalllendinu í Pakistan
og væru betur búnir en nokkru sinni
til þess að ráðast gegn Vesturlönd-
um. Bush sagði þetta fjarstæðu.
Miðar hægt í Írak
Annað málefni fundarins var
skýrsla sem birt var í vikunni um ár-
angur Íraksstjórnar við að ná þeim
markmiðum sem Bandaríkjastjórn
hafði sett henni. Í skýrslunni kom
fram að innan við helmingur þeirra
markmiða, sem sett voru, hefði náðst.
Bush sagði að það væru ljósir punkt-
ar í skýrslunni, en viðurkenndi að enn
væri mikið verk fyrir höndum í Írak
svo að mætti ná pólitískum og efna-
hagslegum markmiðum. Hann ítrek-
aði einnig að lokaskýrsla um málið
yrði ekki tilbúin fyrr en í september
og því myndi hann ekki láta þessa
skýrslu hafa áhrif á framgöngu
Bandaríkjamanna í Írak.
Bandaríski herinn
ekki á förum frá Írak
George W. Bush vill berjast þar til stríðið er unnið
Í HNOTSKURN
»Á síðustu fimm árum hafaríflega 3.000 bandarískir
hermenn fallið í Írak, í stríði
sem hefur kostað Bandaríkin
um 10 milljarða dala, eða rúm-
lega 600 milljónir króna, á
mánuði.
»Ljóst er að tugir, ef ekkihundruð þúsunda Íraka
hafa fallið og milljónir eru á
vergangi.
»Stuðningur við stríðið erdvínandi í Bandaríkjunum.
Reuters
Staðfastur Bush á fundinum í gær.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
HÆGT væri að koma í veg fyrir
meira en 3.000 dauðsföll vegna
hjarta- og æðasjúkdóma í Bretlandi
ef lagður yrði virðisaukaskattur á
fjölmargar tegundir matvara, að
sögn vísindamanna í Oxford-há-
skóla. Í frétt á vefsíðu breska út-
varpsins, BBC, kemur fram að um
sé að ræða mat með mikilli fitu, salti
og sykri og er fullyrt að 17,5% skatt-
ur myndi fækka áðurnefndum
dauðsföllum um 1,7%.
„Fituskattur“ var til umræðu í
Bretlandi árið 2004 en þáverandi
forsætisráðherra, Tony Blair, fannst
hugmyndin bera of mikinn keim af
því að menn vildu láta ríkisvaldið
hafa vit fyrir fólki, ríkið yrði í „barn-
fóstruhlutverki“, með nefið niðri í
hvers manns koppi. Niðurstaðan
gæti jafnvel orðið til að fæla fólk frá
því að neyta hollustuvöru.
Vísindamennirnir notuðu hag-
fræðileg gögn til að reikna út hvaða
áhrif verðhækkun vegna skattsins
myndi hafa á neysluna og hvað fólk
myndi þá borða í staðinn. Niðurstöð-
urnar voru síðan notaðar til að
kanna hver áhrifin yrðu á heilsufar
almennings í Bretlandi. Til að byrja
með er gert ráð fyrir að vikulegur
matarreikningur fjölskyldunnar
myndi hækka um 4,6%.
Fyrst var kannað hvað myndi ger-
ast ef eingöngu yrði lagður skattur á
mjólkurafurðir sem innihalda mikið
af mettuðum fitusýrum, smjör og
ost, einnig bakaðar vörur og búð-
inga. En niðurstaðan var að þá
myndi fólk einfaldlega skipta yfir í
annan óhollan mat, þ. á m. vörur sem
innihalda mikið af salti, og það gæti
jafnvel aukið tíðni dauðsfalla vegna
blóðrásarsjúkdóma.
Næst var notast við aðra tegund
mælinga á hollustuáhrifum matvöru
en þá eru gefin stig fyrir magn af
alls átta tilteknum næringarefnum í
hverjum 100 grömmum af fæðu.
Með því að taka margar vöruteg-
undir inn í dæmið var hægt að fækka
dauðsföllunum um 3.200.
Einn vísindamannanna, Mark
Rayner, mælti með því að varasami
maturinn yrði skattlagður en einnig
mætti beita niðurgreiðslum til að
auka neyslu hollustuvöru.
Vilja stýra neytendum frá fitunni
Nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðyrkjubænda.
VELDU ÍSLENSK SUMARBLÓM, SÉRMERKT ÞÉR.
„Íslensk blóm
eru harðgerð,
kröftug og fersk“
Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
G
B
3
81
65
0
6/
06