Morgunblaðið - 13.07.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 15
Taktu flátt í grillleik MS og flú gætir
unni› glæsilegt Weber grill. Kauptu dós af
s‡r›um rjóma frá MS, far›u á www.ms.is,
slá›u inn lukkunúmeri›
sem er í lokinu og flú
fær› strax a›
vita hvort
flú hefur
unni›.
Grill-leikur
me› s‡r›um rjóma!
GALLERÍ Dvergur hefur áunnið
sér orðspor fyrir litlar en áhuga-
verðar sýningar, nú sýnir þar finn-
landsmenntaði myndlistarmaðurinn
og hönnuðurinn Halldór Úlfarsson.
Hann sýnir verk sitt Dórófóninn, ný-
stárlegt hljóðfæri sem er hans eigin
uppfinning og hann hefur verið að
þróa undanfarin ár. Hljóðfærið fær
hljóm sinn af endur-rafómi sem fleiri
þekkja undir heitinu feedback, og
óma tónar þess í hljóðhringrás sem
einnig dregur dám af rýminu þar
sem spilað er. Tæknilega séð er
mögulegt að spila tóna á hljóðfærið
sem er strengt líkt og selló. Dóró-
fónninn var smíðaður hjá gítarsmið í
Finnlandi, Kari Nieminen, en Hall-
dór hefur smíðað fleiri hljóðgripi,
einn þeirra er í eigu hljómsveitar-
innar Múm.
Víðar skírskotanir
Sýning Halldórs byggist fyrst og
fremst á hljóðfærinu sjálfu, í rýminu
má líka sjá upptöku frá opnuninni
þar sem Halldór spilaði fyrir áhorf-
endur og svaraði spurningum. Lista-
maðurinn kemur í verki sínu inn á
nokkra þætti sem eru ofarlega á
baugi í samtímalistum, á mjög svo
persónulegan máta. Samruni mynd-
listar og tónlistar gengur hér ágæt-
lega upp því hljóðfærið bæði gefur
frá sér tóna sem fylla rýmið og eru í
samspili við það en hefur auk þess
eiginleika skúlptúrs hvað varðar
form og efni, mjúkar bogalínur
minna á hönnun frá Art Deco-tíma-
bilinu en rafmagnaðir þættir tengja
gripinn nútímanum. Sýning Hall-
dórs vegur salt milli tónleika og
myndlistarsýningar, listamaðurinn
er til staðar meðan opið er og spilar
og spjallar við þá sem hafa áhuga.
Ímynd hans er einnig í anda upp-
finningamanna og listamanna með
áhuga á vísindum, allt frá uppfinn-
ingum Leonardos til ótrúlegra uppá-
tækja belgíska listamannsins Pan-
amerenkos. Áhugaverður þáttur í
sköpun Halldórs er það gráa svæði
sem hann starfar á milli myndlistar
og tónlistar, hann tilheyrir báðum og
hvorugu og fellur þarafleiðandi utan
hefðbundinna skilgreininga.
Myndlistarhljóðfæri
MYNDLIST
Gallerí Dvergur, Grundarstíg 21
Opið fös. til sun. frá kl. 18-20. til 15. júlí.
Halldór Örn Úlfarsson - Dórófónn # 5
Áhugavert „ [...] nýstárlegt hljóð-
færi sem er hans eigin uppfinning
og hann hefur verið að þróa undan-
farin ár,“ segir m.a í dómnum.
Ragna Sigurðardóttir
ÉG VEIT ekki hvort skammtíma-
minni veldur, en ég varð vitni að ein-
hverjum fallegasta tenórsöng Íslend-
ings á tónleikum í Ketilhúsinu á
föstudaginn var. Tenórinn Hlöðver
Sigurðsson söng með miklum ágæt-
um. Hans þétta, jafna, blæfagra
rödd, borin uppi af næmri tilfinningu
fyrir túlkun, var af því tagi að maður
var hrifinn í hæðir og ég held þétt
setinn salurinn með. Hlöðver var í
góðum félagsskap með Þórunnar
Marinósdóttur sópransöngkonu og
Antoníu Hevesi píanóleikara á Siglu-
firði, en Antonía var fyrsti söngkenn-
ari Hlöðvers og hvatti hann til dáða,
vel sé því! Tenórinn ungi er að verða
býsna vel verseraður og búinn að
læra auk á Siglufirði í London, Salz-
burg og er nú ásamt Þórunni nem-
andi Kristjáns Jóhannssonar á Ítal-
íu. Þrátt fyrir að lögin sem Hlöðver
flutti væru fjarska hefðbundin náðu
hann og Antonía að gefa þeim frísk-
an blæ. Íslensku lögin voru of róleg
að mínu mati, en ítölsku aríurnar
glansandi þar sem sem bæði ljóðræn
og dramatísk raddtök voru í full-
komnu jafnvægi. Þórunn er með háa
og litríka rödd. Hún þarf að gæta sín
á að ofgera ekki röddinni og styðja
betur tóninn. Flutningur hennar á
aríu Margrétar úr óperunni Faust
var mjög sannfærandi. Samsöngur í
dúettum var afar góður og sviðs-
framkoma af besta tagi. Þáttur Ant-
oníu á píanóið átti ekki síst þátt í að
tónleikarnir voru hinir glæsilegustu.
Glansað í Ketilhúsinu
TÓNLIST
Hljómleikar
Íslensk einsöngslög eftir Karl O. Runólfs-
son, Sigfús Einarsson og Sigvalda Kalda-
lóns. Óperuaríur og dúettar eftir Doni-
zetti, Gounod, Lehar og Puccini.
Flytjendur: Hlöðver Sigurðsson – tenór
Þórunn Marinósdóttir – sópran
Antonía Hevesi – píanó
Listasumar á Akureyri föstudaginn 6. júlí
2007 kl. 12 í Ketilhúsinu Jón Hlöðver
SÝNING Guðrúnar Veru Hjartar-
dóttur í Gallery Turpentine er að
mörgu leyti ólík síðustu sýningum
hennar þar sem upphafnar andlegar
verur hafa leikið aðalhlutverk. Ver-
urnar eru iðulega mótaðar úr hör-
undsbleikum vaxleir og bera oftast
svip barnslegs hreinleika.
Ein innsetning Guðrúnar Veru í
Turpentine, Biðjarar, er enn í þess-
um anda þar sem hárlausar barns-
legar fígúrur sem minna á dúkkur
með lokuð augu sitja saman í þyrp-
ingu. Hér eru fígúrurnar komnar í
klæði, ljósblá skikkju eða bænateppi
sem er sveipað um hverja þeirra.
Stærri innsetningin sem saman-
stendur af þremur stærri fígúrum
sem hafa hver um sig áberandi per-
sónueinkenni í andlitssvip og líkams-
myndmáli. Þrátt fyrir að titill sýn-
ingarinnar sé Hamingjudagar þá
verður ljóst af texta sýningarinnar
að hún fjallar um
græðgina í sinni
verstu mynd.
Persónurnar
þrjár eru á ein-
kennilegan hátt
kunnuglegar
fígúrur. Klukku-
fígúran sem situr
á stalli í svartri
skikkju og með
líkama leikbrúðu
minnir á hinn
ágjarna Gollrir í Hringadróttins-
sögu. Bjöllufígúran er akfeit svo lík-
aminn sem er ein allsherjar appels-
ínuhúð lekur niður sívalninginn sem
hann situr á. Bros þessarar fígúru
minnir á hinn viðkunnanlega Shrek
úr ævintýrinu en tómu augun vísa til
þess að hér sé falskt bros á ferðinni.
Hangandi fígúra sýnir ljótan skítug-
an kall með loðnar svartar augabrýr
hangandi í poka. Þetta gæti verið
ímynd aurapúkans.
Í sýningarskrá skrifar Hildur Eir
Bolladóttir um eðli græðginnar og
baráttu gegn þeirri lúmsku lygi.
Beinast liggur því við að álykta að
ljótu fígúrurnar þrjár eigi að sýna
ásýnd græðginnar en barnslegu
biðjararnir andstæðuna. Ef svo er
þá er einnig stillt upp sem andstæð-
um einstaklingnum og hópnum sem
hliðstæðu eigingirnis og samsemdar.
Sú list að túlka persónuleg ein-
kenni í svip og látæði manna er ekki
ný af nálinni og er óspart notuð í
leikhúsi og fyrri tíma myndlist. Það
er ekki langt síðan að andlitsfall
glæpamanna og geðvillinga var
mælt og skrásett til að finna út sam-
nefnara í útliti slíkra manna. Reglan
hefur verið að fallegt fólk er ímynd
þeirra góðu en hið ljóta og stór-
skorna þeirra vondu.
Þrátt fyrir einstakan metnað við
gerð verkanna þá líður sýningin fyr-
ir svo klisjulegar hugmyndir um
ásýnd græðginnar. Í dag er það fólk
í yfirþyngd sem er líklegast til þess
að þjást af næringarskorti í vest-
rænni menningu og langt síðan fita
var ígildi velsældar. Ljótu kallarnir
á sýningunni virðast í raun ekkert
eiga skylt við ásýnd þeirrar valda-
græðgi sem talað er gegn í texta
sýningarinnar heldur tilheyra
staðaltýpum sem hafa orðið til í
menningunni.
Þóra Þórisdóttir
Ásýnd græðginnar
MYNDLIST
Gallery Turpentine
Sýningin stendur til 21. júlí. Opið þriðju-
daga til föstudaga kl. 12-18 og laugar-
daga kl. 11-16.
Guðrún Vera Hjartardóttir – Skúlptúr
Græðgi Sýningin
líður fyrir klisju-
legar hugmyndir.
UM helgina verður Erró-sýning í félagsheim-
ilinu Klifi í Ólafsvík í tilefni 75 ára afmælis lista-
mannsins. Erró, skírður Guðmundur Guð-
mundsson, fæddist í Ólafsvík 19. júlí 1932 en bjó
fyrstu æviárin á Kirkjubæjarklaustri.
Lista- og menningarnefnd stendur fyrir sýn-
ingunni og fékk Þorbjörgu Gunnarsdóttur til
þess að vera sýningarstjóri, en hún vann lengi
hjá Listasafni Reykjavíkur og sá meðal annars
um Erró-safnið. Verkefnið er styrkt af Menn-
ingarráði Vesturlands og Sparisjóði Ólafsvíkur
auk Snæfellsbæjar. Myndirnar á sýningunni eru
úr safni Listasafns Reykjavíkur. Þorbjörg segir
þetta að mestu leyti grafík og vatnslitamyndir
auk tveggja málverka og ná verkin allt frá árinu
1969 til 2006. Meðal mynda á sýningunni er
Saga popplistarinnar sem var mikil lykilmynd á
ferli Errós og Enginn maður skal sæta pynding-
um, grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi
meðferð eða refsingu, sem nefnd er eftir fimmtu
grein Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna, en Erró var einn nokkurra listamanna
sem fengnir voru til þess að myndskreyta hann.
Sýningin er opin laugardag og sunnudag frá
kl. 13-17.
Ólafsvíkingurinn Erró
Morgunblaðið/Sverrir
Afmæli Erró verður 75 ára eftir tæpa viku og af því tilefni verður opnuð Erró-sýning í Klifi.
Í HNOTSKURN
»Þegar Kjarval kom austur að málaá sumrin stillti hann iðulega upp
málverkum í skólahúsinu eða á bónda-
bænum og átti það til að gefa Erró
hálftómar litatúpur og léreftsbúta.
»Erró málaði fyrst undir lista-mannsnafninu Ferró en felldi síð-
ar F-ið út þegar franskur listamaður
hótaði málssókn því nöfnin þeirra
voru of lík.
»Hann hóf nám í Myndlistar- oghandíðaskólanum í Reykjavík og
hélt svo til Noregs þar sem hann lærði
við Listaháskólann í Ósló árin 1951-
54. Eftir það fór hann til Flórens á
Ítalíu og fór þaðan til Ravenna þaðan
sem hann lauk prófi í gerð mósaík-
mynda.
»Árið 1957 flutti Erró svo til París-ar en nú dvelur nú til skiptis í Taí-
landi, París og Mallorca.