Morgunblaðið - 13.07.2007, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 17
LANDIÐ
Eftir Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur
Hvolsvöllur | Opnuð hefur verið
sýning á ljósmyndum Ottós Ey-
fjörð í Sögusetrinu á Hvolsvelli.
Ottó er sannkallaður alþýðulista-
maður og náttúrubarn.
Áhugi Ottós á ljósmyndun er
sprottinn af þörf hans fyrir að
teikna og mála. „Þegar ég var
strákur í Vestmannaeyjum var ég
sífellt að teikna og mála. Ég eign-
aðist mína fyrstu myndavél um 11
ára gamall í þeim tilgangi að taka
myndir af mótívum til að mála eftir.
Áhuginn á ljósmyndunum óx síð-
an með árunum og mig fór að langa
til að eignast alvöru myndavél,“
segir Ottó sem dó ekki ráðalaus. Á
þessum árum var hann farinn að
keyra fyrir Kaupfélagið og hóf að
safna rafgeymum á sveitabæjun-
um. Vinur hans fór síðan með þá til
Þýskalands og keypti forláta
myndavél fyrir Ottó.
Fermingarmyndir í uppáhaldi
„Þetta var Vogländer-vél sem ég
eignaðist þarna og má segja að
þetta hafi verið mín fyrsta alvöru
myndavél, hún var með sérstökum
takka til að hægt væri að spóla
nógu hratt svo hægt væri að taka
margar myndir á skömmum tíma.
Seinna eignaðist ég Hasselblad,
samskonar vél og farið var með til
tunglsins. Ég tók mest á þessa vél
og man ég að eftir að ég fór að taka
myndir fyrir Morgunblaðið fannst
mér alltaf að mig vantaði aðdrátt-
arlinsu. Ég hafði ekki ráð á að
kaupa slíka linsu og sagði Matthíasi
Johannessen ritstjóra frá þessu.
Hann sagðist myndu útvega mér
linsuna, ég tæki bara myndir fyr-
ir.“
Ottó ferðaðist mikið um hálendi
Íslands með ferðafélagi sem hét
Áfangar. Tók hann þá mikið af
myndum af hálendinu. Hann tók
einnig myndir af öllum sveitabæj-
um í Rangárvallasýslu og er hægt
að kaupa þær myndir af honum á
geisladiskum. Mannlífið á Hvols-
velli var aðalmyndefni Ottós árum
saman og á hann þúsundir mynda
af ýmsum atburðum í gegnum tíð-
ina, bæði opinberum viðburðum og
einkasamkvæmum, og víst er að
margir hafa gaman af að upplifa
gamla tíma í gegnum myndir hans.
Aðspurður um uppáhaldsmynd-
efni sagðist Ottó alltaf hafa haft
gaman af því að taka mannamynd-
ir, en hann rak stúdíó heima hjá sér
árum saman. „Fermingarmyndirn-
ar voru mitt uppáhald, ég hafði
gaman af því að taka myndir af
fermingarbörnum bæði í kyrtlun-
um og í fermingarfötunum og
reyndi alltaf að vanda mig sérstak-
lega við þessar tökur og taka marg-
ar myndir svo nóg væri að velja
úr.“
Ottó hefur ekki aðeins tekið
myndir, hann framkallaði alla tíð
sjálfur, svarthvítar myndir, lit-
myndir og litskyggnur. „Ég fram-
kallaði litskyggnur á þeim tíma
sem slíkt var aðallega gert í útlönd-
um, þetta var mjög flókið en ég
held að ég hafi haft þetta á þrjósk-
unni. Ef eitthvað mislukkaðist hélt
ég bara áfram því ég vissi að úr því
það var hægt að gera þetta ætti ég
líka að geta gert þetta. Þannig
tókst mér að þreifa mig áfram og
læra tæknina.“
Stafræn bylting
Í dag hefur Ottó tekið stafrænu
tæknina í sínar hendur. Hann tek-
ur enn dálítið af myndum heima hjá
sér en mest er hann að laga gamlar
myndir, t.d. fyrir Byggðasafnið á
Skógum. „Ég á fullkominn skanna
og hef skannað nokkuð af filmu-
safni mínu, einnig á ég góðan lita-
prentara og get prentað út myndir
allt að A3. Þetta er svo mikil bylt-
ing að það er ekki hægt að bera
þetta saman. Eftir að stafræna
tæknin kom til sögunnar fór ég á
námskeið og lærði að taka stafræn-
ar myndir og vinna í Photoshop,“
segir hinn síungi Ottó sem lætur
Elli kellingu ekki bíta á sér en hann
verður áttræður á næsta ári. Sýn-
ing Ottós í Sögusetrinu stendur til
20. júlí.
Safnaði rafgeymum fyrir
fyrstu myndavélinni
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Myndavélasafn Ottó varðveitir fjölmargar myndavélar og önnur ljós-
myndatæki sem hann hefur eignast um ævina og sýnir í Sögusetrinu.
Í HNOTSKURN
»Ottó Eyfjörð Ólason erfæddur í Vestmannaeyjum
á árinu 1928. Hann fluttist í
Landsveitina um fermingu og á
Hvolsvöll 1947.
»Hann starfaði hjá kaup-félaginu á Hvolsvelli í hálfa
öld, lengst af sem bílstjóri.
Hlúa betur að
yngri flokkum
Sauðárkrókur | Landsbanki Íslands mun
styðja Knattspyrnudeild Ungmenna-
félagsins Tindastóls næstu þrjú árin, sam-
kvæmt
samningi
sem gerður
hefur verið.
Ásta Pálma-
dóttir, úti-
bússtjóri
Landsbank-
ans, og
Vanda Sig-
urgeirsdóttir, formaður deildarinnar,
undirrituðu samninginn að viðstöddum
nokkrum af yngri leikmönnum félagsins.
Ásta sagði að með þessu væri bankinn
að auka stuðning sinn við knattspyrnuna á
landsbyggðinni. Vanda sagði að stuðning-
urinn gerði félaginu kleift að sinna enn
betur yngri flokkunum og ekki síður stelp-
unum sem stunduðu knattspyrnu, en allir
flokkar nytu mjög þessa samnings. Þá
mun bankinn standa að Landsbanka-
mótinu á Sauðárkróki en það er fyrir alla
yngri flokka kvenna og er haldið í júní.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Stokkseyri | Bryggjan á Stokkseyri fær
nýtt hlutverk um helgina. Hún mun verða
lendingarpallur fyrir þyrlu Landhelgis-
gæslunnar sem kemur í kvöld í heimsókn á
Bryggjuhátíð.
Bryggjuhátíðin er nú haldin í fjórða
skipti og stendur fram á sunnudag. Há-
punktur hátíðarinnar er í kvöld en þá
verður varðeldur og bryggjusöngur undir
stjórn Árna Johnsen, auk heimsóknar
þyrlunnar.
Dagskrá er að finna á stokkseyri.is.
Meðal atriða má nefna tónleika unglinga-
hljómsveita á laugardag og dansleiki á
kvöldin. Hagsmunafélag hesteigenda á
Stokkseyri verður með dagskrá á sunnu-
dag í tilefni 30 ára afmælis.
Þyrlan lendir
á Bryggjuhátíð
AUSTURLAND
Djúpivogur | Fiskurinn steinsuga
barst á land á Djúpavogi síðastlið-
inn þriðjudag. Slæddist hún með
afla sem fjórmenningarnir á Auði
Vésteins lönduðu. Hún hafði sogið
sig fasta við þorskræfil en það er
einmitt á þann hátt sem steinsuga
nærist. Kemur þetta fram á vef
Djúpavogshrepps.
Steinsugan er kjálkalaus fiskur
með tenntan hringlaga munn sem
virkar líkt og sogskál. Flestar
steinsugur sjúga sig fastar við
aðra fiska og nærast á blóði
þeirra. Steinsuga er því ekkert
sérstaklega vinsæl meðal annarra
sjávartegunda en hún er til dæmis
ein af fáum óvinum beinhákarls-
ins. Stundum er hægt að sjá
beinhákarl reyna að losa sig við
slík sníkjudýr með því að kasta sér
upp úr sjónum eða nudda sér við
hafsbotninn, að því er fram kemur
á vísindavef Háskóla Íslands.
Steinsugunni var komið fyrir í
kari fullu af sjó og meðferðis fékk
hún matarbita í formi ýsutitts.
Hún virtist þó engan áhuga hafa á
ýsunni en menn gátu sér þess til
að hún vildi hafa matinn sinn lif-
andi.
Steinsuga
slæddist á land
á Djúpavogi
Eftir Gunnar Gunnarsson
Eiðar | Níutíu norrænir myndlist-
arkennarar tóku þátt í námskeiði
sem Félag íslenskra myndlistar-
kennara stóð fyrir á Eiðum í síð-
ustu viku. Tengsl myndlistar og
náttúru var efni námskeiðsins.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
voru Rúrí, Páll Steingrímsson,
Björn Sigurbjörnsson og Helgi
Hjaltalín Eyjólfsson. „Páll Stein-
grímsson sýndi heimildarmynd
sína um Kjarval og Eiríkur Þor-
láksson listfræðingur flutti fyrir-
lestur um Kjarval svo við höfum
kynnst honum vel,“ segir Guðný
Jónsdóttir, formaður Félags ís-
lenskra myndlistarkennara.
„Rúrí var með hugmyndavinnu á
bókaformi, Páll með kvikmynda-
list, Bjarni lét fólk sulla með alls
konar efni. Hann kom til dæmis
með jarðleir úr Krísuvík og frá
Hveravöllum. Úti máluðu menn
verk á stóran striga og létu rigna
á hann og gerðu tilraunir með
áhrif veðursins á efnið. Helgi var
með fjölbreytilega vinnu, frá hug-
mynd að verki. Hjá honum voru
menn að smíða og gera allt mögu-
legt.“
Þátttökumet slegið
Námskeiðið er haldið einu sinni
á ári og skiptast Norðurlöndin á
um að halda það. Flestir þátttak-
endurnir voru frá Danmörku, um
þrjátíu talsins, en Íslendingarnir
voru um tuttugu. „Það er metþátt-
taka. Við gátum ekki tekið á móti
fleirum. Námskeiðin eru alltaf vel
sótt þegar þau eru haldin á Ís-
landi, fólki þykir spennandi að
koma hingað.“
Þema námskeiðsins voru tengsl
myndlistar og náttúru en yfirskrift
þess var „myndlist í náttúrunni,
náttúra í myndlistinni.“ Kennar-
arnir fóru í vettvangsferðir, bæði
upp á hálendið og eins á Seyð-
isfjörð og á Kjarvalsslóðir á Borg-
arfirði eystri.
„Listamennirnir og staðsetning-
in, þar sem við erum nálægt nátt-
úrunni, voru valdir með þemað í
huga. Við fórum einn daginn upp á
hálendið og þar var mikið tekið af
myndum og málað.“
Vinna fram á nætur
Guðný segir að kennararnir hafi
haft nóg að gera á námskeiðinu.
„Menn hafa verið að vinna fram á
nætur. Námskeiðið er liður í end-
urmenntun kennara. Þeir þurfa að
halda sér við og bæta við sig nýj-
um vinklum og tækni. Það er
nauðsynlegt fyrir kennarann að
fara sjálfur í spor listamannsins og
nemandans og spreyta sig sjálfur,“
segir Guðný.
Fjallað um tengsl
myndlistar og náttúru
Morgunblaðið/Gunnar Gunnarsson
Myndlist og náttúra Þátttakendur á námskeiði fyrir norræna myndlistar-
kennara túlkuðu náttúruna hver með sínum hætti í sameiginlegu verkefni
sem veður og vindar höfðu einnig sett mark sitt á.
Níutíu norrænir
myndlistarkenn-
arar tóku þátt
í námskeiði
Fréttir á SMS
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Gjafir jarðar Ingólfsstræti 2,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Maður Lifandi Hæðarsmára 6,
Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Í dagsins önn
Náttúrulegt B-vítamín ásamt magnesíum
og C-vítamíni í jurtabelgjum
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri, sími 462 3505.
Opið mánud. - föstud. kl 10-18 laugard. 10-16
ÚTSALA - ÚTSALA
Christa