Morgunblaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 18
|föstudagur|13. 7. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Það hafa ekki allir leitt hugann
að því en svo einfalt verk sem
það er að slá garðinn getur ver-
ið slæmt fyrir umhverfið. » 21
vistvænt
Það er alltaf gaman að kynnast
matarmenningu annarra þjóða
og sú kínverska er vinsæl hér
sem annars staðar. » 20
matur
Austurrísk og ítölsk hvítvín
eiga vel við á sólríkum íslensk-
um sumardögum segir Stein-
grímur Sigurgeirsson. » 21
vín
Sumrin eru Seyðisfjarðartími, a.m.k.fyrir heimameyna Björt Sigfinns-dóttur sem skundar austur um leið ogskólanum í Reykjavík sleppir á vorin.
Þar starfar hún á upplýsingamiðstöðinni yfir
sumartímann og við skipulagningu LungA,
Listahátíð ungs fólks Austurlandi, sem einmitt
hefst núna um helgina.
„Dæmigerð helgi hjá mér felst í afslöppun –
að eyða góðum tíma með vinum og kannski
kíkja á kaffihús eða á völlinn,“ svarar hún innt
eftir því hvað drífur á daga hennar um helgar.
„Á föstudagskvöldum hittumst við vinirnir
gjarnan í heimahúsi og hlustum á góða tónlist.
Á eftir kíkjum við kannski út á lífið og þá verð-
ur lókalbarinn, Kaffi Lára, oft fyrir valinu.“
Ís á Egilsstöðum
Vinnan stýrir því hvort Björt sefur lengur
um helgar en aðra daga. „Ef ég er í fríi þykir
mér rosalega gott að sofa út eða leggjast út í
sólbað og kúra þar aðeins lengur. Á eftir fer
ég oft í góðan göngutúr með vinunum, til
dæmis upp í fjall að tjörninni sem þar er eða
út með firðinum. Stundum kíkjum við upp á
Egilsstaði og kaupum okkur ís. Þannig að
maður reynir að vera dálítið menningarlegur
og njóta náttúrunnar hérna meðan maður hef-
ur hana.“
Matur er ofarlega á lista hjá Björt yfir
frídagana. „Við krakkarnir höfum stundað það
að fara út að borða saman á laugardags-
kvöldum enda eru tveir alveg stórkostlegir
matsölustaðir hérna á Seyðisfirði. Í rauninni
eru þrjú kaffihús og einn bar að auki þannig
að það er úr nógu að velja.“
Hún játar því að talsverður munur sé á
Seyðisfirði og stórborgarlífinu fyrir sunnan.
„Þú getur rétt ímyndað þér,“ segir hún með
áherslu. „Maður er svo frjáls hér fyrir austan
og það er náttúrlega ein af ástæðunum fyrir
því að maður kemur sumar eftir sumar eftir
sumar.“
Sjötíu gestir frá sex löndum
Önnur ástæða er LungA, því Björt hefur
verið viðriðin hátíðina frá upphafi en hún var
fyrst haldin árið 2000. Um er að ræða alhliða
listahátíð þar sem ungt fólk tekur þátt í skap-
andi listasmiðjum og nýtur listviðburða af öllu
tagi. „Núna er undirbúningur á algjöru loka-
stigi því setningarathöfnin er á sunnudag,“
segir Björt en hátíðin varir í viku. „Í dag tök-
um við á móti fyrstu erlendu þátttakendunum
en við eigum von á sjötíu krökkum frá sex
löndum. Þetta er því formlega orðin alþjóðleg
hátíð.“
Björt verður því í gestgjafahlutverki um
helgina, ekki síst í dag og á morgun eða þar til
hátíðin verður sett og mun m.a. fara með hina
erlendu gesti í gönguferð á laugardag í Skála-
nes, sem er við opið á Seyðisfirði. Aðspurð
segist hún ekki eiga von á því að hátíðin snúist
upp í einhvers konar útihátíð. „Við höfum sent
frá okkur fréttatilkynningu um unglinga-
drykkju því við kærum okkur ekki um krakka
undir aldri, blindfulla upp um alla veggi,“ seg-
ir hún ákveðin. „Við höfum gert vissar ráðstaf-
anir og það verður t.a.m. foreldrarölt og mikil
gæsla því við viljum gera allt sem við getum til
að þetta fari á besta veg. Enda snýst LungA
fyrst og fremst um menningu og kynningu á
listum – að kveikja neistann hjá þessum
krökkum. Aðalatriðið er að njóta lista saman.“
Að kveikja neistann
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Annríki Það er mikið að gera hjá Björt við skipulagningu listviðburða á Seyðisfirði. Tími vannst þó til
myndatöku um miðnæturbil eitt kvöldið í vikunni eftir konsert í Seyðisfjarðarkirkju.
FJÖLMARGAR tískusýningar eru haldnar
víða um heim og þó það sé nú oftast fatn-
aðurinn sem ætlað er að vera miðpunktur
athyglinnar er tískusýningum vissulega
stundum einnig ætlað að vekja athygli á
annars konar málefnum.
Þannig var t.d. með flíkurnar á mynd-
unum hér til hliðar sem sýndar voru á
tískusýningu sem haldin var á frjósemis-
ráðstefnu er efnt var til í Peking, höfuðborg
Kína, nú vikunni.
Því þótt þessir kjólar kunni að virðast
hefðbundnir við fyrstu sýn þá er ekki hægt
að segja annað en að efniviðurinn sé harla
óvenjulegur. Kjólarnir eru nefnilega svo
gott sem eingöngu búnir til úr smokkum.
Og gúmmíverjan virðist bara koma nokkuð
vel út í þessu nýja hlutverki, þótt ekki hafi
borist neinar fregnir af þægilegheitum
þessa frumlega klæðnaðar.
Öryggið sett
á tískuoddinn
Reuters
Allt í hvítu Stuttur hvítur kjóll með pífupilsi
og efniviðurinn – smokkar.
Litríkur og sumarlegur Rauðir og gulir litir
gefa þessum verjukjól rómanskt yfirbragði.
Hefðbundinn stíll Sniðið er e.t.v. að hefð-
bundnum kínakjól en efnið er gúmmí.
tíska
Gönguferðin Ganga í Skálanes
á góðviðrisdegi.
Bíóhúsið Mini Ciné á Seyðis-
firði sem er minnsta bíó í Evr-
ópu. www.thefreedomcoun-
cil.com.
Menningin Heimsókn í Menn-
ingarmiðstöðina Skaftfell á
Seyðisfirði, Bistro og
internetcafé í anda Dieter
Roths, gallerí og lista-
mannaíbúð. www.skaftfell.is.
Gistingin Hótel Aldan í hjarta
Seyðisfjarðar. Þar má einnig
fá hágæða mat af bestu gerð.
www.hotelaldan.is.
Sportið Að skella sér á fót-
boltavöllinn á Seyðisfirði og
sjá myndarlegasta knatt-
spyrnulið landsins, Hugin,
leika.
Björt mælir meðÞær helgar sem Björt Sigfinns-
dóttir er ekki upptekin við að
svara á útlensku fyrirspurnum
um Seyðisfjörð og nágrenni nýt-
ur hún þess að slappa af og hitta
góða vini. Hún sagði Bergþóru
Njálu Guðmundsdóttur frá
frelsinu fyrir austan.
Með logana á lofti Þessi eldspú-
andi ungmenni komu fram á
opnunarhátíð LungA í fyrra.
Ljósmynd/Börkur Jónsson