Morgunblaðið - 13.07.2007, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 27
✝ Þórunn Jó-hannsdóttir,
áður til heimilis á
Gránufélagsgötu 7
á Akureyri, fæddist
á Hinriksmýri á Ár-
skógsströnd 4. nóv-
ember 1919. Hún
lést á Dvalarheimil-
inu Hlíð 6. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
Þórunnar voru Mal-
ín Þorsteinsdóttir,
f. 17. apríl 1882, d.
25. júní 1969, og
Jóhann Sigurður
Jónsson, f. 1. júní 1881, d. 30.
október 1956. Systur Þórunnar
samfeðra voru: 1) Sigríður Jóna,
f. 10. ágúst 1903, d. 22. apríl
1982, 2) Gunnfríður, f. 23. janúar
1905, d. 22. nóvember 1980, 3)
Kristín María, f. 24. ágúst 1908,
d. 23. maí 1933, 4) Sigurpálína, f.
20. ágúst 1910, d. 11. maí 1958,
5) Pollý, f. 18. júlí 1912, d. 6. jan-
úar 1967, og 6) Kristín, f. 14. maí
1916, d. 21. mars 1999.
Eiginmaður Þórunnar var
Baldvin Ásmundsson sjómaður, f.
á Brimnesi á Árskógsströnd 17.
maí 1911, d. 13. febrúar 1985.
Börn þeirra eru: 1) Heiðar Rafn,
f. 1. október 1944,
d. 21. janúar 2005.
Fyrri kona hans er
Sigrún Arngríms-
dóttir, f. 15. maí
1943. Börn þeirra
eru Jóhann Rafn,
Arna Kristjana,
Baldvin Þór og
Hafþór. Seinni
kona Heiðars er
Anna Steinlaug
Ingólfsdóttir, f. 2.
júní 1951. Börn
þeirra eru Linda
Hrönn (fóstur-
dóttir), Dagný og Einir. 2) Snjó-
laug Aðalheiður, f. 26. febrúar
1948, gift Guðlaugi Arasyni, f.
14. mars 1947. Börn þeirra eru
Baldvin Ari, Heimir og Þórunn.
3) Jóhann Sigurður, f. 13. nóv-
ember 1951, d. 1. nóvember
1956. Afkomendur Þórunnar og
Baldvins eru komnir á fjórða
tug.
Sambýlismaður Þórunnar á
efri árum var Hjörleifur Jó-
hannsson frá Hrísey, f. 13. sept-
ember 1915, d. 2. október 2001.
Þórunn verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Það fyrsta sem mér dettur í hug
þegar ég hugsa um hana ömmu
mína eru yndislegar móttökur og
flottheit í matargerð. Kannski
áhugi minn á öllu sem tengist mat
sé kominn frá henni. Þegar ég hitti
ömmu var alltaf mikið knúsast,
bæði þegar ég kom og einnig þeg-
ar ég fór. Fyrst fékk ég knús uppi
í stofu, svo annað niðri í forstofu
og eitt svona í lokin úti á stétt. Svo
stóð hún úti og veifaði þangað til
við sáumst ekki lengur.
Þegar ég var lítil fórum við fjöl-
skyldan oft í bæinn. Í hádeginu
biðum við systkinin spennt eftir
því að koma auga á ömmu og afa
koma úr vinnunni. Amma bauðst
strax til að drífa sig heim að yla
handa okkur pylsur. Eftir hádeg-
ismat fórum við að erindast meðan
amma og afi fengu sér blund. Í
kaffitímanum hafði amma svo dýr-
indiskræsingar á boðstólum eins
og upprúllaðar pönnsur með sykri
eða heimalagaðri sultu og troð-
fullar af rjóma. Amma gerði líka
bestu kæfu í heimi sem hægt var
að skera niður í sneiðar. Kæfuna
setti hún ofan á glænýtt flatbrauð
og soðið brauð en mér fannst hún
best ein og sér. Smurbrauðstert-
urnar hennar ömmu voru líka ein-
stakar og fallega skreyttar með
eggjum, gaffalbitum og rauðrófum.
Heita kakóið setti svo punktinn yf-
ir i-ið. Eftir svona „drekkutíma“
stóðu allir á blístri og fékk pabbi
sér oftar en ekki kríu, eins og
hann kallaði það, í sófanum.
Amma útbjó einnig kvöldmat
handa okkur, oftast steik. Í eft-
irmat fengum við svo kaldan
ávaxtagraut með rjóma og þar á
eftir var komið að ísnum. Amma
átti margar sortir af ís og fengum
við systkinin að fara niður í kistu
og velja okkur. Oft var amma með
flottar ístertur sem maður fékk nú
hvergi annars staðar.
Stundum fékk ég að gista í
Gránufélagsgötunni hjá ömmu og
afa. Þá tók afi gestadýnuna fram
og svaf sjálfur á henni í stofunni
en ég fékk að sofa í holunni hans
við hliðina á ömmu. Ég man að
þegar ég var hjá þeim þá fannst
mér ég mjög fullorðin og dugleg.
Ég fékk að raka skeggið á afa og
hjálpa ömmu með augndropana og
stundum fékk ég að labba alein
niður í Turninn niðri á eyri. Þar
keypti ég Thule handa afa, einn
pott af mjólk og pela af rjóma fyr-
ir ömmu og gotterí handa mér. Ég
hef nú grun um að amma hafi stað-
ið úti á stétt og fylgst með mér
svona með öðru að minnsta kosti.
Amma var mikil ballkona og
fannst fátt skemmtilegra en að
dansa. Hún var líka alltaf svo
smart og hafði áhuga á öllu sem
var móðins. Ég man eftir einu
kvöldi sérstaklega því þá var kol-
vitlaust veður og fáir á ferli.
Amma lét það nú ekki stoppa sig
heldur dreif sig á 3 böll það kvöld-
ið. Það var bara ekki nógu mikið
fjör á þeim fyrri. Hún spurði mig í
hvert sinn sem ég heimsótti hana
hvort ég væri ekki búin að fara á
ball og skildi ekkert í mér þegar
ég svaraði henni nánast alltaf neit-
andi.
Amma var búin að vera léleg í
skrokknum og því hafði hún ekki
komist á ball lengi. Ég er viss um
að nú er hún búin að taka fram
ballskóna að nýju.
Ég kveð með söknuði elskulega
ömmu mína sem kallaði mig svo
oft litlu Lóuna sína.
Dagný Heiðarsdóttir.
Elskuleg amma mín er látin.
Með þakklæti í huga minnist ég
hennar nú, sannfærð um að hún sé
komin í samvistir við afa á ný. Ég
er lánsöm að hafa fengið að njóta
samvista við hana og afa í uppvexti
mínum þar sem þau bjuggu í
Gránufélagsgötunni. Í minning-
unni eru ljúfar stundir þar sem
amma ásamt afa sá til þess að sem
allra best færi um nöfnu hennar
hjá henni, hvort sem um væri að
ræða kvölds, morgna eða miðjan
dag. Allt fram til síðasta dags var
henni mjög umhugað um velferð
allra í fjölskyldunni og ekki síst
litlu krílanna sem hún spurði alltaf
eftir. Ég kveð nú ömmu mína í bili
og þakka henni fyrir allt sem hún
gerði fyrir mig. Megi hún eiga
góðar stundir hinumegin.
Dýpsta sæla og sorgin þunga,
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum)
Þín
Þórunn.
Þórunn Jóhannsdóttir
✝ Árni Guð-bergur Guð-
mundsson fæddist
á Neðri-Grund í
Grindavík 8. sept-
ember 1925. Hann
lést á Landspítal-
anum við Hring-
braut 25. júní síð-
astliðinn. Foreldr-
ar hans voru
Eiríka Jóhanna
Oktovía Árnadóttir
símstöðvarstjóri í
Grindavík, f. 2.
október 1901, d.
11. janúar 1973 og Guðmundur
Erlendsson formaður á bát í
Grindavík, f. 29. mars 1898, d.
7. mars 1933. Albróðir Árna er
Erlendur, f. 11. janúar 1930.
Hálfsystur hans, sammæðra,
eru Erla Guðmunda Olgeirs-
dóttir, f. 13. desember 1936 og
Guðborg Kristín Olgeirsdóttir,
f. 20. janúar 1941.
Árni kvæntist 3. apríl 1958
Vigdísi Ágústu Sigurðardóttur,
f. 14. október 1931. Foreldrar
hennar voru Sigurður G. Haf-
liðason, f. 1908, d. 1998 og
Klara Tómasdóttir, f. 1913, d.
1993. Börn Árna og Vigdísar
eru: 1) Klara Sig-
ríður, f. 1952,
maki Jóhann
Kristjánsson, f.
1952, börn þeirra
Adda Sigríður,
Smári Freyr og
Eva Sif. 2) Guð-
mundur Jóhann, f.
1957, maki Ingunn
Jónsdóttir, f. 1959,
börn þeirra Jón
Árni, Guðmundur
Karl, Guðrún Ósk
og Ágúst Ingi. 3)
Sigurður Hafliði, f.
1960, maki Berglind Káradóttir,
f. 1958, börn þeirra Anna Mar-
grét og Atli Gunnar. 4) Jóhanna
Guðbjörg, f. 1965, maki Ingimar
Cizzowitz, f. 1962, börn þeirra
Gísli Þór, Vigdís Bára, Árni
Guðbergur, Daníel Ingi, Jó-
hanna Rut og Ingimar Kristinn.
Árni átti auk þess sjö langafa-
börn.
Árni Guðbergur starfaði í
slökkviliðinu og á trésmíðaverk-
stæði Reykjavíkurflugvallar alla
sína starfsævi eða til 1995.
Útför Árna verður gerð frá
kirkju Óháða safnaðarins í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Elsku pabbi minn. Það er ótrú-
legt að þú skulir vera horfinn úr
þessum heimi og við hin þurfum að
halda áfram án þín.
Þegar ég hugsa til baka man ég
þegar þú fórst með okkur systkinin
upp í Rauðhóla á sunnudagsmorgn-
um, til að sigla bátunum okkar. Á
meðan fékk mamma frið til að elda
sunnudagssteikina. Og öll ferðalög-
in sem fjölskyldan fór saman á
bjöllunni. Það voru góðir tímar.
Þegar þið mamma ákváðuð að
byggja sumarbústað í Kjósinni tók
öll fjölskyldan þátt í því. Það var
yndislegt að vera þar.
Eftir að ég fékk mér mann, hann
Ingimar, sem tók upp á því að kalla
þig tengdakallinn við góðar undir-
tektir og við eignuðumst börnin
okkar 6 vorum við alltaf velkomin í
Kjósina, til afa og ömmu. Krakk-
arnir nutu sín þar, undir þinni leið-
sögn.
Þegar við hjónin fórum að
ferðast sjálf komuð þið mamma oft
með okkur. Það var gaman. Alltaf
varst þú tilbúinn að hjálpa okkur,
þegar þurfti að smíða eitthvað eða
lagfæra. Þú töfraðir fram heilu inn-
réttingarnar. Þar nutu smiðshæfi-
leikar þínir sín til fullnustu.
Við þökkum fyrir þann tíma sem
við fengum með þér. Þín er sárt
saknað.
Við kveðjum þig með lítilli bæn
sem þú kenndir mér þegar ég var
lítil.
Þú, Guð, sem stýrir stjarna her
og stjórnar veröldinni,
í straumi lífsins stýr þú mér
með sterkri hendi þinni.
(Valdimar Briem.)
Þín dóttir,
Jóhanna Árnadóttir og
fjölskylda.
Með örfáum orðum langar okkur
að kveðja hann afa.
Það virðist oft vera þannig að í
minningargreinum líta flestir út
fyrir að vera hálfgerðir dýrlingar,
þrátt fyrir að í raunveruleikanum
séu það fæstir, eða í rauninni eng-
inn! Í huga okkar systkinanna
kemst afi okkar þó næst því. Öll
okkar upplifun af honum er já-
kvæð. Hann var sá sem vildi allt
fyrir mann gera og meira til ef
hann gat. Þrátt fyrir að aldurinn
hafi verið farinn að færast yfir og
heilsunni farið að hraka sló hann
ekki slöku við. Hann var mættur til
okkar með verkfærin sín til að gera
við, laga og græja áður en nokkur
bað um aðstoð. Það er óumdeil-
anlegt að afa leið best þegar hann
hafði nóg að gera, enda var hann
ekki sérlega mikið fyrir að slappa
af. Honum leið best með hamarinn í
hendinni. Hann smíðaði meðal ann-
ars undir styrkri verkstjórn ömmu
eigin sumarbústað, bátaskýli og
árabáta, ásamt ótalmörgu öðru sem
tæki margar blaðsíður að telja upp.
Það eru einmitt endalausar
minningar úr Kjósinni sem rifjast
upp fyrir okkur. Við minnumst til
dæmis afa og ömmu að taka á móti
okkur á nærfötunum í sólinni!
Enda var alltaf gott veður í Kjós-
inni! Hin árlega Kjósarhátíð sem
þau komu á laggirnar, var sérlega
eftirminnileg úr barnæskunni. Oft
var spilað, sungið og trallað fram á
nótt. Þarna upplifðum við margar
ógleymanlegar samverustundir
fjölskyldunnar.
Árnagarður á Vigdísarvöllum,
eins og vinin var kölluð, var klár-
lega aðaláhugamál ömmu og afa,
fyrir utan stórfjölskylduna sem var
alltaf númer 1, 2 & 3. Saman gátu
afi og amma endalaust verið að
dunda sér í ýmsum endurbótum,
stækkunum, viðhaldi og skógrækt
á svæðinu, enda var lóðin orðin
skógi vaxin þrátt fyrir að í byrjun
hafi hún einungis verið urð og
grjót.
Afi var rólyndismaður, vandvirk-
ur og eljusamur. Hann gaf sér allt-
af tíma fyrir þá sem þurftu á hon-
um að halda, hvort sem var til að
spjalla og gefa ráð eða vegna ann-
arra hluta. Hann hafði sterkar
skoðanir á hlutunum en leyfði þó
öðrum að hafa sínar eigin! Undir
það síðasta var hann orðinn heilsu-
lítill en bar sig þrátt fyrir það vel
og reyndi að hafa eins mikið fyrir
stafni og hægt var. Hjá afa var allt-
af stutt í brosið.
Við viljum með þessum fáu orð-
um þakka afa fyrir samfylgdina,
hún var ekkert nema góð. Það
verður skrítið að hafa hann ekki
með okkur áfram. Við erum þó viss
um að hann vakir yfir okkur og
passar upp á okkur eins og hann
hefur ávallt gert.
Fráfall afa verður þó erfiðast
fyrir hana ömmu. Afi og amma
höfðu verið gift í næstum 50 ár og
áttu vel saman þrátt fyrir að vera
mjög ólík. Þeirra styrkur var að
okkar mati hvað þau bættu hvort
annað upp og voru einstaklega gott
lið. Sagt er að tíminn lækni öll sár,
og þó hann geri það ekki þá hlýtur
hann í það minnsta að deyfa þau.
Minningin um yndislegan mann lif-
ir í hjörtum okkar allra um ókomna
tíð. Amma, þú veist að þú átt góða
að og getur ávallt leitað til okkar
sem og annarra í fjölskyldunni.
Adda S. Jóhannsdóttir,
Smári Freyr Jóhannsson,
Eva Sif Jóhannsdóttir.
Afi og langafi. Við minnumst þín
nú og alltaf. Þessi hlýi og trausti
maður, með bros á vör í sólbaði „á
nærbuxunum“ uppi í Kjós að dunda
sér.
Er þú kveður okkur í síðasta sinn
afi og langafi þökkum við þér fyrir
að hafa verið svo stór partur af lífi
okkar allra. Að hafa hjálpað okkur
gegnum súrt og það allra besta að
vera alltaf til staðar öll þessi ár.
Þín á eftir að verða sárt saknað. En
þá minnumst við þess að merkasti
maður allra tíma var og verður
(Árni Guðbergur Guðmundsson)
þú, afi og langafi. Við hefðum viljað
hafa þig lengur með okkur. Takk
fyrir samveruna.
Guð geymi þig uns við hittumst á
ný.
Gísli, Herdís og Karitas Rós.
Árni Guðbergur
Guðmundsson
Ég kveð þig nú, elsku afi
minn, þó þú hverfir núna og
komir ekki aftur, ég kveð þig
nú. Þegar sólin skín inn um
gluggann minn og sendir
geisla á gömlu myndirnar af
þér skal ég minnast þín,
elsku afi minn. Þú verður á
gangi á gullnum stígum,
langt í fjarska. Nú verð ég
bara að kveðja þig, þó að það
sé sárt. Ástarsöknuður.
Kveðja frá hríslunum hans
langafa, Kristu Líf og Eriku
Rós.
Vigdís Bára.
HINSTA KVEÐJA
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
INGIMUNDUR EINARSSON
áður bóndi í Leyni, Laugardal,
Fossvegi 4,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju, laugardaginn
14. júlí kl. 11.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hins látna er
bent á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Lilja Guðmundsdóttir,
Guðrún Ingimundardóttir, Þórir Snorrason,
Svanheiður Ingimundardóttir, Magnús Guðjónsson,
Guðmundur Óli Ingimundarson, Roswitha M. Hammermuller,
Fjóla Ingimundardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR ÁRNI GUÐJÓNSSON,
Sunnubraut 17,
Akranesi,
sem lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 3. júlí,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju, mánudaginn
16. júlí kl. 14.00.
Rafnhildur Katrín Árnadóttir,
Helga Guðmundsdóttir,
Kristinn Guðmundsson,
Guðjón Guðmundsson,
Jónína Guðmundsdóttir,
Þórir Guðmundsson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.