Morgunblaðið - 13.07.2007, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 29
„fáðu þér eina vöfflu í viðbót“. Jafn-
vel eftir að veikindin voru farin að
hrjá þig mjög hélst þú áfram að baka
og það skipti okkur engu þótt
kransakökurnar hafi litið út eins og
skakki turninn í Písa og vöfflurnar
verið örlítið brenndar undir lokin.
Þú lumaðir alltaf á sleikipinna, lag-
erinn var raunar svo stór að yngstu
börnin kölluðu þig „sleikjóömmu“.
Að koma í heimsókn til þín og afa
var eins og að stíga inn í undraver-
öld. Þið áttuð alls konar skrautmuni
sem vakti forvitni, eins og grýlan
óhugnanlega sem hristi hausinn og
lampinn sem snerist í hringi og
skipti litum. Þú áttir kistur fullar af
leikföngum, bókum og tindátum,
sem við gátum leikið okkur að og
ósköpin öll af spólum með Tomma og
Jenna sem þú hafðir tekið upp úr
sjónvarpinu. Sum okkar munum eft-
ir risastóra, niðurgrafna baðkarinu
sem var í húsi ykkar í Mosfellsbæ og
við hlökkuðum ævinlega til þess að
komast í bað hjá ömmu og afa. Þú
fylgdist vel með tækninýjungum og
veigraðir þér ekki við því að læra
nýja hluti. Þú tókst bílpróf þegar þú
varst komin langt á fullorðinsár og
eftir að netbyltingin hóf innreið sína
lærðir þú á tölvu og sendir okkur
reglulega tölvuskeyti. Þú varst með
á nótunum á öllum sviðum og hafðir
skoðun á bæði handbolta, stjórnmál-
um og nýjustu fréttum. Þótt oft hafi
verið þungt yfir þér varstu einnig
einstaklega gamansöm að eðlislagi
og ávallt með brandara á vörunum,
alveg fram á síðustu stundu þegar
dauðinn beið handan við hornið.
Við kvöddum þig með tárin í aug-
unum áður en þú yfirgafst þennan
heim um bjarta sumarnótt 21. júní.
Þú skilur eftir þig tómarúm í lífi
okkar en einnig óteljandi góðar
minningar, sem við yljum okkur við í
sorginni. Þú baðst okkur um að vera
góð og sagðist ætla að fylgjast með
okkur öllum. Því viljum við gjarnan
trúa.
Við elskum þig, amma.
Barnabörn og barnabarnabörn.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku amma.
Ég bjó við þau forréttindi að fá að
hanga í svuntunni þinni mín upp-
vaxtarár. Þú áttir endalaust þolin-
mótt eyra og hlýjan faðm sem stóð
mér ávallt opinn. Ég minnist þess
sérstaklega að hafa óspart nýtt mér
það á unglingsárunum þegar veröld-
in varð sífellt stærri og skrítnari. Ég
gat rætt við þig um allt og á ein-
hvern hátt varstu lunkin við að láta
mér líða eins og mikilvægustu mann-
eskju heimsins. Mér fannst þú
kunna ráð við öllum vanda og þau
ráð voru án fordóma og báru með
sér hlýju. Hjá okkur var alltaf stutt í
grínið og af svipbrigðum þínum ein-
um gat ég velst um af hlátri. Því mið-
ur erfði ég ekki frá þér hæfileikann
til handavinnu og kom því iðulega til
þín með skottið á milli lappanna og
hálfklárað handavinnuverkefni í
poka úr skólanum. Á meðan þú klár-
aðir fyrir mig verkið sat ég í mak-
indum og fyllti magann af þínum
dýrindis kleinum og ástarpungum.
Þið afi áttuð stóran og samrýndan
barnahóp og því var ég umvafin
sterkri fjölskyldu með ykkur afa
fremst meðal jafningja. Þótt skugga
hafi borið á samheldnina í seinni tíð
bý ég endalaust að þessum verð-
mætum sem ekki öllum eru gefin.
Varla leið sú vika að fjölskyldan hitt-
ist ekki til að gleðjast. Sögurnar og
uppátækin óteljandi. Hugmyndir
framkvæmdar og hlutum komið í
verk. Samverustundirnar einkennd-
ust af ást, hlýju, eldmóði, hjálpsemi
og síðast en ekki síst af húmor. Með
árunum varð hópurinn ansi stór en
það kom ekki að sök, fjölskyldunni
var bara troðið inn í einhver híbýlin
þannig að fullt var út úr dyrum.
Þröngt mega sáttir sitja.
Fjölskyldan þín var þér dýrmæt
og voru ófáar samræður okkar um
mikilvægi góðra tengsla og sam-
skipta innan hennar. Ég veit að þú
varst afar stolt af þessum harðdug-
lega og hávaðasama barnahópi sem
þú ólst og öllum þeirra afkomendum.
Þú vildir hlúa vel að okkur öllum,
styðja og styrkja. Amma mín, þetta
er arfleifð þín til mín.
Þegar ég eltist og varð fullorðin
var afskaplega gott að heimsækja
þig og Emblu minni, fyrsta barna-
barnabarninu, sýndir þú sömu ást og
blíðu og þú sýndir mér og er ég mjög
þakklát fyrir ykkar kynni.
Styrkur þinn á síðustu mánuðum
lífs þíns var ótrúlegur og ekki hægt
annað en að dást að þeirri hugrökku
ákvörðun sem þú tókst af æðruleysi
á lokasprettinum. Jafnvel þá varstu
sterkust af okkur öllum.
Ég kveð þig með söknuði en jafn-
framt miklu þakklæti fyrir allt og
allt. Ég mun hafa auga með afa eins
og þú baðst mig um. Þú lifir í hjarta
mínu.
Þín alltaf
Hallfríður.
Grátið ei við gröf mína
ég er ekki þar.
Ég lifi í ljúfum blænum
er strýkst um vanga þinn.
Ég er sólargeisli er smýgur
í sálu þína inn,
vermir hug og hjarta
eins og hinsti kossinn minn.
Ef að kvöldi til himins þú horfir
og þráir anda minn
þá líttu skæra stjörnu
og horðu hana á
því þar er ljómi augna minna
og svalar þinni þrá.
Er norðurljósin leiftra
þá njóttu þess að sjá
að orku mína og krafta
þú horfir þar á.
Ef uppsprettu lífsins þú leitar
þaðan ljósið kemur frá
dvel ég þar í birtu þeirri
er lífið nærist á.
Mér gefið hefur verið
að dvelja ykkur hjá
og tendra ykkur lífsneista
með nýrri von og þrá.
Grát því ei við gröf mína
ég lifi ykkur hjá.
(Þýð. Helga S. Sigurbjörnsd.)
Elsku amma.
Mikið var sárt að þurfa að kveðja
þig. Vissi þó vel að sú stund var
runnin upp að þú gast ekki meira.
Lífskrafturinn sem einkenndi þig
var á þrotum, eftir erfið veikindi. Ég
á svo margar fallegar og skemmti-
legar minningar um þig sem ég mun
geyma eins og gull. Þú varst gull,
gull sem glóði. Mér þykir heiður að
vera skírð í höfuðið á þér og er meira
en stolt af því að bera sama nafn og
þú. Ég er óendanlega þakklát fyrir
að hafa átt þig að í öll þessi ár því þú
varst svo sannarlega alltaf til staðar.
Það var alveg sama hvað dundi á í
mínu lífi, alltaf gat ég komið til
ömmu og fengið „plástur“, það sama
á við um mínar gleðistundir. Það
sem einkenndi þig mest er hversu
hlý og gefandi þú varst. Þú sagðir
mér sögur frá liðnum tímum, mér
þótti auðvitað nauðsynlegt að vita
allt, forvitna ég. Við gátum hlegið
tímunum saman enda varstu lúmsk-
ur húmoristi. Minningar úr Bugð-
utanganum eru ófáar enda bjó ég
hálfpartinn hjá þér og afa. Sit hér og
brosi út í eitt þegar ég hugsa um þig.
Þú sagðir við mig rétt áður en þú
kvaddir þennan heim að við mynd-
um fljúga saman um háloftin. Já,
amma mín, það munum við tvímæla-
laust gera. Ég elska þig og sakna
þín.
Þín,
Bára Brynjólfsdóttir.
Til elsku ömmu Báru.
Lítill drengur lófa strýkur
létt um vota móðurkinn,
– augun spyrja eins og myrkvuð
ótta og grun í fyrsta sinn:
Hvar er amma, hvar er amma,
hún sem gaf mér brosið sitt
yndislega og alltaf skildi
ófullkomna hjalið mitt?
Lítill sveinn á leyndardómum
lífs og dauða kann ei skil:
hann vill bara eins og áður
ömmu sinnar komast til,
hann vill fá að hjúfra sig að
hennar brjósti sætt og rótt.
Amma er dáin – amma finnur
augasteininn sinn í nótt.
Lítill drengur leggst á koddann
– lokar sinni þreyttu brá
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir – amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Daníel Levin.
Þegar sólin skín hæst og skærast
og fuglarnir syngja næturlangt í há-
önnum varptímans og gróður jarðar
er í mestum blóma kveður Bára.
Móðir, eiginkona, amma og kær öll-
um sem til hennar þekktu.
Fjölskyldan var henni mjög dýr-
mæt. Hún hlúði að börnum, eigin-
manni og síðar barnabörnum af
miklum kærleika.
Bára var vel gefin kona. Allt sem
hönd hennar snerti bar hæfileikum
hennar fagurt vitni.
Heimilið var henni til mikils sóma,
hvort sem var litla íbúðin í Gnoð-
arvoginum eða fallega húsið í Mos-
fellsbænum.
Hún var frábær matreiðslukona
og var ákaflega gaman að heim-
sækja hana og Sverri og njóta sam-
verustunda með þeim og alls þess
góða sem hún bar fram. Hannyrðir
hennar eru í minnum hafðar og
saumaði hún fötin á fjölskylduna
listavel.
Tónelsk var hún líka, sem kemur
fram í afkomendum hennar þegar
þau syngja og spila saman.
Öll sú elja og kraftur sem Bára og
hennar kynslóð lögðu af mörkum til
lífsins er grunnur að þeim allsnægt-
um sem yngri kynslóðir lifa við nú á
tímum. Þessari kynslóð verður seint
fullþakkað.
En við þökkum þér Bára og kveðj-
um.
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó.
Sof þú í blíðri ró.
Við höfum vakað nóg.
Værðar þú njóta skalt.
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
(Jóhann Jónsson.)
Guð blessi fjölskylduna.
Ester og Nanna.
Langamma mín hún Bára
Sigurðardóttir hefur alltaf
verið hlý og góð við mig, hún
hefur alltaf stutt mig í því
sem ég geri og hefur mjög
hlýtt hjarta og áður en hún
sofnaði sagði hún við mig:
„Embla mín, vonandi áttu
eftir að verða fótboltastjarna
og dansgella.“ Ég ætla að
reyna að fara eftir því og ég
er ánægð með það að við
fengum að fara með hana á
17. júní og við fengum líka að
kveðja hana fallega. Ég mun
alltaf hugsa um hana hvar
sem ég er …
Elska þig langamma!
Þín
Embla.
Elsku Bára
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Sverrir minn og fjöl-
skylda, Guð blessi ykkur.
Eygló.
HINSTA KVEÐJA
✝
Við þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, bróður okkar og frænda,
KRISTINS GÍSLASONAR,
Borgarheiði 2,
Hveragerði.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu á Kirkjubæjarklaustri.
Fjóla Baldursdóttir,
systkini og vandamenn.
✝
Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför elskulegs sonar míns,
bróður okkar, mágs og frænda,
MAGNÚSAR HELGA KRISTJÁNSSONAR,
Lambhól við Starhaga,
Guð veri með ykkur.
Ragnhildur Jóna Magnúsdóttir,
Sigurlína Sjöfn Kristjánsdóttir, Trausti Björnsson,
Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir,
Kristján Kristjánsson,
Jóhannes Bragi Kristjánsson, Svava Hansdóttir,
Auður Gróa Kristjánsdóttir, Guðmundur Bragason,
Unnar Jón Kristjánsson, Guðný Einarsdóttir
og frændsystkini.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
BJARNA VILMUNDAR JÓNSSONAR
vélvirkjameistara,
Jörfabakka 6,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Þorsteinsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
ÞORGILS GEORGSSONAR,
Klébergi 12,
Þorlákshöfn.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Sjúkra-
húss Suðurlands og starfsfólki Kumbaravogs fyrir
góða umönnun.
Sigurveig Sigþórsdóttir,
Gunnar Þorgilsson, Magnea Guðfinnsdóttir,
Jóhanna Dóra Þorgilsdóttir,
Sigrún Guðfinna Þorgilsdóttir, Hallgrímur Erlendsson,
Hafdís Þorgilsdóttir, Kári Hafsteinsson,
Elsa Þorgilsdóttir, Sturla Geir Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.+
✝
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
SVAVARS MARELS MARTEINSSONAR,
Breiðamörk 15,
Hveragerði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands og hjúkrunarheimilisins Kumbaravogs á Stokkseyri.
Kristjana Sigríður Árnadóttir,
Arnheiður Ingibjörg Svavarsdóttir, Einar Sigurðsson,
Anna María Svavarsdóttir, Wolfgang Roling,
Hannes Arnar Svavarsson, Guðbjörg Þóra Davíðsdóttir,
Árni Svavarsson, Svandís Birkisdóttir,
Guðrún Hrönn Svavarsdóttir,
Svava Sigríður Svavarsdóttir, Erlendur Arnar Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.