Morgunblaðið - 13.07.2007, Qupperneq 36
Framhaldsmyndir eru
jafn órjúfanlegur hluti
kvikmyndamenningarinnar
og popp og kók … 38
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
ÞRÍR ungir félagar hafa ráðist í
það verkefni að opna nýtt gallerí,
Crush að nafni, niðri í bæ. Þeir láta
sér venjulegt gallerí þó ekki nægja
heldur bæta um betur og starf-
rækja einnig búð í galleríinu, en að
sögn þeirra verða virk tengsl á milli
búðarinnar og sýninganna í gall-
eríinu. „Búðin mun breytast reglu-
lega, allt tekið í gegn og skreytt
upp á nýtt,“ segir Pétur Kristófer
Oddsson, og vísar til þess að útlit
búðarinnar verður í anda þeirrar
sýningar sem stendur yfir hverju
sinni.
„Hugmyndin að þessu kviknaði
hjá mér,“ segir Pétur. „Ég talaði
svo við þá Óla og Munda og Crush
er útkoma þess samstarfs.“ Hann
er hógvær og lofar félaga sína fyrir
störf þeirra í undirbúningsvinnunni.
Leyndardómsfullir
Sameiginleg hönnun þeirra
drengja er seld í Crush undir vöru-
merkinu „Sunshine & Lollypops“.
Ólafur Orri Guðmundsson (Óli)
hefur víða komið við, og meðal ann-
ars hannað fyrir Nakta apann,
Dogma, Spútnik og Nikita. Þriðja
hjólið í samstarfinu er svo Guð-
mundur Kárason (Mundi), og sér
hann um viðskiptahliðina að sögn
Péturs.
En hvað fær hina ungu menn til
að ráðast í svona stórt batterí?
„Mig langar bara að gera eitthvað
skemmtilegt,“ segir Ólafur Orri, og
ætli hinir taki ekki bara í sama
streng.
Þeir Arnar Ásgeirsson og Styrm-
ir Örn Guðmundsson ríða á vaðið
með að sýna verk í Crush. „Þeir
vinna oft saman,“ segir Ólafur Orri.
Crush-félagar vilja þó ekki
ljóstra því upp í smáum dráttum
um hvernig sýningu sé að ræða.
Pétur segir þó „að um sé að ræða
„art-show“; við erum búnir að
smíða; það verða mjög skemmti-
legir hlutir í gangi. Og þessi fyrsta
sýning verður ekki málverkasýning,
heldur er meira um einhverskonar
skúlptúra að ræða.“ Þeir félagar
eru því dálítið leyndardómsfullir,
enda sjón sögu ríkari í þessum efn-
um.
Galleríið er staðsett á Laug-
arvegi 28, annarri hæð. Gengið er
innum Rokk og rósir og Smekk-
leysu. Opnun Crush fer fram nú á
laugardaginn, milli kl. 15 og 18.
Búð sem breytist reglulega
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Crush Ólafur, Guðmundur og Pétur standa að galleríinu.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
KIRA Kira er listamannsnafn Kristínar Bjarkar Kristjáns-
dóttur en hún hefur í fjöldamörg ár verið með atorkusamari
einstaklingum sem starfa í íslenskri tilraunatónlist. Hún er
einn stofnmeðlima Tilraunaeldhússins og hefur staðið fyrir
fjöldamörgum viðburðum og útgáfum hin seinustu ár, bæði
hér heima og erlendis. Undanfarin misseri hefur hún einnig
verið á faraldsfæti með eigin tónlist, en fyrsta breiðskífa Kiru
Kiru, Skotta, kom út í hitteðfyrra. Kira er nú tiltölulega ný-
komin heim frá Finnlandi en þar dvaldi hún í tvo mánuði og
tók upp næstu plötu sína, sem hefur fengið heitið Our Map to
the Monster Olympics.
Með bát
Kira lýsir því að henni hafi verið boðið á hátíðina Pixelache
í Helsinki og hún hafi því ákveðið að nýta ferðina í upptökur.
„Samuli Kosminen (sem hefur m.a. trommað fyrir múm)
hefur verið mér góður vinur í mörg ár og við höfum lengi ver-
ið að leita að tækifæri til að vinna saman. Hann leigir nú
hljóðver á eyjunni Suomenlinna sem liggur rétt utan við Hels-
inki og við ákváðum bara að kýla á þetta.“
Kristín rifjar upp brosandi að þau hafi dag hvern tekið bát
út í eyjuna og iðulega voru gömlu glysrokkararnir í Hanoi
Rocks með í för.
„Þeir voru víst einnig að taka upp í eyjunni. Þrátt fyrir að
vera komnir á gamals aldur voru þeir alltaf uppstrílaðir í
mikilli rokkmúnderingu. Það lagði af þeim hassmettaður hár-
spreysfnykur!“
Kira segir að undanfarið hafi hún lagt áherslu að hafa
hljómveit með sér, bæði á tónleikum og í hljóðveri. Henni þyki
það gjöfulli aðferð en að vera alein, en hún hefur vanist alls-
kyns samslætti í gegnum hin ýmsu verkefni Eldhússins, en
þar hefur ávallt verið rík áhersla á að leiða fólk saman til
sköpunar. Þeir sem unnu með henni úti, ásamt Samuli, voru
þeir Hilmar Jensson gítarleikari, Alex Somers og Eiríkur
Orri Ólafsson. Einnig tók fiðluleikarinn Pekka Kuusisto þátt í
plötugerðinni, en Kuusisto er mikill virtúós sem hefur á und-
anförnum tveimur árum kastað af sér klassíska hamnum
reglubundið til að geta einhent sér í alls kyns tilraunir.
Kira segist hafa kynnst fullt af áhugaverðu og skapandi
fólki í Helskinki, svo mörgu að nánast var nóg um.
„Ég hefði getað verið þarna til eilífðarnóns að kokka upp
einhver skemmtileg verkefni. Þetta skemmtilega og skapandi
fólk kom hreinlega í bunum.“
Til Kína
Ekkert hefur verið ákveðið með útgáfudag plötunnar, og
Kira er sallaróleg gagnvart þeim þætti. Platan skal fá þann
tíma sem hún þarf. Nóg er svo að gera hina næstu mánuði. Í
ágúst tekur Kira þátt í Ström-hátíðinni í Kaupmannahöfn þar
sem hún mun sýna myndlist og myndbandsverk. Þá fer hún til
Kína í október, á Notch-hátíðina, þar sem hið sjaldheyrða Til-
raunaeldhúsband mun troða upp, en það skipa þau Kira,
Hilmar Jensson og Jóhann Jóhannsson. Að lokum ber að
nefna að auk tónleika í dag, kl. 17 í 12 Tónum, kemur Kira
Kira fram í Ráðhúsi Reykjavíkur, 21. júlí, og spilar við opnun
sýningarinnar Miðbaugur Kringla.
Orkan í eyjunni
Tónlistarkonan Kira Kira tók fyrir stuttu upp breiðskífu á eyjunni Suomenlinna í Finnlandi
Ljósmynd/Eggert Jóhannesson
Helskinki „Ég hefði getað verið þarna til eilífðarnóns að kokka upp einhver skemmtileg verkefni. Þetta skemmtilega og skapandi fólk kom hreinlega í bunum,“ segir Kristín.
this.is/kirakira
myspace.com/trallaladykirakira